Helgarpósturinn - 22.01.1982, Síða 15
14
Föstudagur 22. janúar 1982 he/garpásturinn
helgarpásturinn Föstudagur 22. janúar 1982
15
ánægjð ao pví aö vera kallaöur íhaldssamur í Ijármálum”
Ragnar Arnaids í Hdgar póstsv í oiai í
Þegar Gunnar Thoroddsen myndafti rikisstjórn sina fyrir tveimur árum, varft mörgum
ljóst, aft i raun og veru haffti myndast, og þaö hugsanlega fyrir slysni, einhver hin sterkasta
rikisstjórn, sem hugsanleg er á fslandi nútimans. Andstæftingar rikisstjórnarinnar nefna
hana stundum „grámóskulega nefnd”, sem hefur þaö hlutverk aft haga seglum stöftugt
eftir vindi, en leggja öll stefnumið flokkanna á hilluna á meftan stjórin situr. Fjármálaráð-
herrann gegnir aft sjálfsögftu þýftingarmiklu hlutverki i „rikisstjórnarnefndinni”. Ragnar
Arnalds, fyrsti formaftur Alþýftubandalagsins,hefur frá þvi hann settist i stól fjármálaráft-
herra, haft orft á sér fyrir dugnaö og þrautseigju og reyndar hefur ýmsum pólitiskum and-
stæöingum hans komift á óvart, hversu afthaldssamur hann er og nákvæmur, þegar rikis-
fjármálin eru annars vegar. Menn hafa vist búist viö ööru af „korama”.
Viöræddum vift Ragnar fyrir skemmstu, reyndum aö kynnast manninum á bak viö hina
pólitisku framhliö. Ragnar er sonur Sigurftar Arnalds stórkaupmanns og Guftrúnar Laxdal
kaupkonu. Uppruni hans — reykvisk miftstétt — bendir ekki til aft hann eigi til byltingar-
sinna eöa sósialista að telja, enda kemur I Ijós, aö Ragnar var aldrei I gamla Sósialista-
flokknum, heldur kom hann inn i Alþýftubandalagift úr Þjóövarnarflokknum sáluga og
Samtökum hernámsandstæftinga, sem nú heita Samtök herstöftvaandstæftinga.
Pótt ég væri kominn töluvert út i pólitik
um og eftir stúdentspróf, var ég staðráöinn
i aö ánetjast henni ekki og innritaðist fyrst i
islensku við Háskóla Islands og fór svo til
Sviþjóðar að lesa heimspeki og bókmennt-
ir...
Eiginlega var það Jónas Árnason sem
dró mig út i pólitikina. Hann bað mig um að
fara i fundaleiðangur með sér og séra
Rögnvaldi Finnbogasyni um Norður- og
Austurland. Við héldum fundi um her-
stöðvamálið. Báðir þessir menn höfðu mikil
áhrif á mig, enda báðir miklir lifsfilósófar.
Þetta var 1958. Þá var ég tvitugur...
Siöan lá leiðin til Sviþjóðar i nám og ég
var enn staðráðinn i að láta pólitikina eiga
sig. En vorið 1960 ákváðum við að gera
stórátak i herstöðvamálinu. Jónas sagði
sig úr Sósialistaflokknum. Ég kom heim,
sagði mig úr Æskulýðsfylkingunni og gerð-
ist ritstjóri Frjálsrar þjóðar. Við vildum
vera óháðir flokkum og byggja upp þver-
pólitisk samtök. Margir ágætir menn tóku
þátt i þessu, einkum fjölmargir mennta-
menn og rithöfundar, t.d. Einar Bragi,
skáld, sem var mjög virkur, og svo við
nokkrir strákar á stúdentsaldri, m.a.
Kjartan Olafsson, sem þá kom heim frá
námi og varð fyrsti framkvæmdastjórinn
fyrir hreyfingu hernámsandstæðinga. Á ör-
fáum dögum fór mikil hreyfing af stað eftir
margra ára deyfð, og fyrsta Keflavikur-
gangan var farin nokkrum vikum siðar eða
19. júni 1960. Það var ógleymanlegur dag-
ur...
Sósialisti að ætt og uppruna? Ég á
kannski til ýmissa að telja, sem töldust rót-
tækir á sinum tima, eins og hann Ari afi
minn, eða Einar Kvaran langafi, en minir
nánustu voru engir þátttakendur i pólitik og
skoðanir skiptar eins og gengur. Ef ég á að
tala um pólitiskan uppruna minn, verðum
við að hverfa aftur til áranna i Laugarnes-
skólanum. Ég er að visu fæddur i Vestur-
bænum, en i Laugarneshverfinu hef ég búið
i 35 ár — og þó aðeins meft annan fótinn
seinustu 10 árin. Hinn hef ég haft norður i
Skagafirði, þar sem við hjónin byggðum
okkur hús...
E g var heppinn að lenda i Laugarnes-
skólanum. Það er ómetanlegt að njóta leið-
sagnar góðra kennara og þarna voru sér-
staklega hæfir menn eins og Skeggi Ás-
bjarnarson, Kristinn Gislason og Gunnar
Guðmundsson.Skeggi var einstakur maður
og i tómstundum sinum dreif hann nem-
endur sina i leiklist, tvö leikrit á ári, um jól
og páska, enda staðreynd, að margir
nemendur hans fengu ódrepandi leiklistar-
bakteriu. 1 mér er hún ekki alveg dauð enn.
Laugarneshverfinu fylgdi það einnig að
fara daglega i sund og sá ávani er löngu
orðinn sterkari en nokkurt fiknilyf...
"ólitisk vakning min varð liklega á
Lækjartorgi dag nokkurn haustið 1952. Þá
varég 14ára. Ég keypti fyrsta tölublaðið af
Frjálsri þjóð og las það upp til agna. Biaðið
allt var máttug hvatning til andstöðu vift
hersetuna. Ég hreifst með eins og margir
aðrir, og áður en ég vissi af var ég orðinn
einn af stofnendum Þjóðvarnarfiokksins
ásamt vini minum, Haildóri Blöndal: við
sátum fyrsta aðalfundinn, en að visu ekki
undirbúningsfund. Við Halldór vorum yngri
en svo að okkur væri hleypt i Félag ungra
þjóðvarnarmanna, þvi að þar var aldurs-
takmarkið 15 ár, en i' flokknum sjálfum var
ekkert aldursmark...
l^ennan vetur i 2. bekk (nú 8.) upphófst
mikill pólitiskur áhugi með tilheyrandi
málfundastarfsemi. Við deildum þar hart
og lengi, Styrmir, nú Morgunblaðsritstjóri,
Jón Baldvin, nú Alþýðublaðsritstjóri, og
Halldór Blöndal, nú þingmaður. Áuövitað
var það þroskandi fyrir okkur alla, vinina
og félagana, að takast hressilega á, en
sjaldan tókst okkur að sannfæra hver
annan. Og ekki gengur það betur nú...
Seinna fannst mér Þjóðvarnarflokkurinn
of einangrunarsinnaður og ekki með nógu
skýra sósialiska stefnu og fór þá i Æsku-
lýðsfylkinguna um skeið, en i Sósialista-
flokkinn vildi ég ekki ganga. Það var svo
mörgum árum. siðar, að ég kom aftur til
samstarfs við þá Þjóðvarnarmenn vegna
baráttunnar gegn hernum. Þá byrjaði sam-
starf mittvið Gils Guðmundsson, þann önd-
vegismann, og það átti eftir að verða mik-
ið...
Þegar leið á menntaskólaárin, sóttu oft á
mig hugleiðingar um þá einkennilegu stað-
reynd, að mannkynið ætti kannski eftir að
tortimasjálfusér. Það vará þessum árum,
sem fyrst varð ljóst, að sú hætta væri raun-
verulega fyrir hendi. Mér fannst augljóst,
að engin pólitisk staðreynd væri jafn þung á
metunum og tilvist vetnissprengjunnar,
^sem eldflaugin gat þá þegar borið i mark
hvarsem var á jörðinni. Ég undraðist sljó-
leika fólks gagnvart þessari hættu og ég
trúði þvi, að ógnarveruleiki þessara vopna
hlyti að umskapa hugmyndaheim
mannanna. Smátt og smátt yrðu allir
hugsandi menn knúnir til að játa, að ekkert
þjóðfélagskerfi væri svo gott.engin hugsjón
mannanna svo fögur, að hún félli ekki i
skuggann fyrir kröfunni um alheimsfrið...
E g samdi nokkra þættiog sögurum þetta
efni, m.a. smásögu sem hét ,,Ég, faðir
minn og fimmta rikið” — hálfgerðvisinda-
smásaga i reyfarastil með siðferðilegum
undirtónum — ég sá hana reyndar endur-
birta i blaði i fyrra, en það var nú liklega
fremur vegna höfundarins en ágætis sög-
unnar. Ég samdi lika segulbandsþátt um
, yfirvofandi heimsstyrjöld og kjarnorkuá-
rás á Island. Þetta var allt leikið eftir hand-
riti og ég fékk ágætar eftirhermur til að
herma eftir Ólafi Thors, Hermanni Jónas-
syni og Einari Olgeirssyni, auk þula frá út-
varpinu,sem verkuðu mjög sannfærandi.
Þátturinn var svo fluttur i Menntaskólasel-
inu. En niu árum siðar lánaði ég mennta-
skólanemunum þáttinn, sem var til á bandi,
og þá var hann endurtekinn. Agúst
Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri var i
þessum bekk og enn seinna geröi hann
kvikmyndina „Skólaferð” sem fjallar um
viðbrögð nemenda við þessum þætti.
Munurinn var hins vegar sá, að þegar við
fluttum þáttinn fyrst og skelfingin fór að
gripa um sig i Selinu, þá sögðum við strax
frá, hvernig i öllu lá...
Já, óneitanlega hefur maður orðið fyrir
nokkrum vonbrigðum með baráttuna gegn
herstöðvum. En ég held, að þessi kröftuga
barátta hafi þó haft sitt aö segja. Ég
held að herstöðin væri fjölmennari, vold-
ugri og enn frekar niðurnjörvuð hér,
hefði ekki verið þessi mikla andstaða gegn-
um árin. Bandarikjamenn hafa sem betur
fer litið á Isiendinga sem heldur ótrygga
liðsmenn — og einmitt vegna þessarar ó-
slitnu baráttu verður auðveldara að losna
við hinn erlenda her þegar þar að kemur.
Aft þvi kemur brátt, sannaðu til„!
Nei, ég ætlaði mér alls ekki að verða
stjórnmálamaður. Allir eiga sina drauma,
og það var ekki minn draumur. Þegar ég
var unglingur, var ég heillaður af hvers
konar ræktun, gat best hugsað mér að
verða bóndi. Ég sá fyrir mér blómlega jörð
idjúpum dal milli hárra fjalla. Þar átti að
risa mikill skógur. Svo heilluðu bók-
menntirnar...
1962 var mér boðið að fara i framboð fyrir
Alþýðubandalagið. Ég hafði lengi gengið
með þá hugsjón að vinna að sameiningu
vinstri manna. Ég lenti inn á þing og
byrjaði um leið að lesa lögfræði. Þetta var
1963. Ég var 24 ára og afskaplega óvirðu-
legur unglingur iaugum meðframbjóðenda
minna...
Sérstaklega eru mér minnisstæð við-
skiptin við Björn Pálsson. Hann ætiaði ég
að fella, en Björn var þriðji maður á lista
Framsóknar. Það var eins og Björn vissi
ekki alveg hvernig hann ætti að taka þvi,
þegar unglingur eins og ég kom fram á móti
honum. Hann var vanari þvi að þreyta kapp
við roskna bændahöfðingja eins og Jón á
Akri og fleiri...
INokkru eftir að framboðið var auglýst,
var ég á Borginni að skemmta mér með
vinum minum úr Háskólanum. Þá kom
Björn á Löngumýri þar inn, enda bjó hann
löngum á hótelinu. Ég bað vini mina að
vera ekki að kynna okkur sérstaklega. Svo
tókum við tal saman við barinn og fór vel á
með okkur. Þegar Björn heyrði að ég væri
stúdent úr Háskólanum, sagði mér i ó-
spurðum fréttum að ungur' stúdent væri i
tramboði íyrir Alþýðubandalagið og ætlaði
að feila sig i kosningunum. Þetta þóttu mér
vond tiðindi, þegar svo ágætur maður ætti i
hlut. Er ekki að orðlengja, að Björn biður
mig að hugleiða, hvort ég geti ekki sagt
honum eitthvað misjafnt um þennan
Ragnar Arnalds, t.d. einhverjar vondar
sögur, sem hann gæti svo notað i kosninga-
baráttunni. Ég reyndi náttúrlega að verða
við þessari bón og sagði honum margar
ijótar sögur. En þegar upp var staðið var
fátt um kveðjur, þegar hann að skilnaði
vildi vita, hvað ég héti...
Rjörn er sómamaður og afskaplega
skemmtilegur andstæðingur. í ræðum hans
var ég yfirleitt kallaður „drengurinn”. En
það skapaði meira jafnræði, að ég skyldi
snúa á hann i fyrstu lotu. Þær urðu margar
loturnar i þrennum kosningum.
j)egar ég kom á þing haustið 1963 var
Hermann Jónasson fyrsti sessunautur
minn. Hann var að byrja að draga sig út úr
pólitik þá. Ólafur Thors var aðalmaðurinn
á fyrsta þingdegi, aldursforseti og forsætis-
ráðherra og átti skammt eftir ólifað. Á
fyrsta þingfundi hallaði Hermann sér að
mér og sagði: Þú átt kollega hér, veistu
það?
IN ei, ég vissi ekki um neinn annan stúdent
á þingi.
Jú, hann Ólaf. Þú veist það. Hann er stud.
phil. eins og þú.
Þá skynjaði.ég i einu vetfangi að þarna
voru tveir sem löngum höfðu eldað saman
grátt silfur. En forspjallsvisindin dugðu
Ólafi Thors vel. — Ég lét þau hins vegar
ekki duga, og lauk lögfræðinni 1968. Ekki
vegna þess að ég ætlaði að snúa mér að lög-
mannsstörfum: lögfræði er góð undirstöðu-
menntun fyrir þingmann...
Arin 1964 til ’68 einkenndust af upplausn-
inni i Alþýöubandalaginu. Þá var hin
sósialistiska hreyfing bókstaflega að
leysast upp. Það var deilt um skipulag og
stefnumið. Gróskan var töluverð i Alþýðu-
bandalaginu en sundurlyndið gifurlegt — og
það leiddi til algers klofnings ’68 þegar
Hannibal yfirgaf flokkinn. í þeirri upp-
lausn lenti ég nokkuð óvænt i sæti for-
manns Alþýðubandalagsins...
Ymsir andstæðingar trúðu þvi þá, að
þessi hreyfing væri að liða undir lok, enda
blóðtakan mikilf Hannibal stofnaði sinn
flokk og Sósialistafélag Reykjavikur
stofnaði aðra hreyíingu með stuöningi
Æskulýðsfylkingarinnar. En það merkilega
gerðist að okkur tókst að fylkja mönnum
saman og siðan hefur Alþýðubandalagið
verið i sókn...
Sjötti og sjöundi áratugurinn voru óhag-
stæðir vinstriöflunum, vegna þess að hægri
mönnum tókst með árangri að bendla
islenska sósialista viö kommúnismann i
Rússlandi og Austur-Evrópu — og það átti
sér sögulegar skýringar. En auðvitað eru
pólitiskar hefðir þar eystra gjörólikar
okkar veruleik. íslenskir sósialistar hljóta
að leggja megináherslu á að varðveita þá
frjálsræðis- og lýðræðishefð, sem við höfum
búið viðhér á landi. Þetta viðhorf hefur ein-
mitt komið miklu skýrar fram hjá islensk-
um sósialistum siöasta áratuginn...
V ið höfum engan áhuga á að flytja inn
það skipulag sem einkennir þjóðfélög
Áustur-Evrópu og Rússastimpillinn er sem
betur fer orðinn máttlaus og marklaus i
augum flestra landsmanna...
Atburðirnir i Tékkóslóvakiu 1968 og af-
dráttarlaus afstaða Alþýðubandalags-
manna til þess sem þar gerðist, átti vissu-
lega stóran þátt i' þvi að gera fólki fullkom-
lega ljóst, að markmið okkar er lýðræðis-
legur sósialismi, þótt ýmsir sósialistar hafi
á sinum tima bundið vonir við þróun mála i
Austur-Evrópu — og orðið fyrir vonbrigð-
um...
Hvað er iýðræðislegur sósialismi? — Það
er þjóðskipulag, þar sem efnahagslifi og
stærstu fyrirtækjum er stjórnað af fólkinu
og fulltrúum þess, með atvinnulýðræði og
samkvæmt vilja meirihluta kjósenda.
Einkaeigneins manns á vinnustað, þar sem
hundruð manna starfa, veröur einhvern
tima talin mikil forneskja...
Hins vegar er vandi einræðisrikja, hvort
sem þau kalla sig sósialisk eða ekki,að
minni hyggju gjörsamlega óleysanlegur.
Pólland er einmitt augljóst dæmi, þar sem
fólkið ris upp gegn einræðisstjórn. Stjórn-
endur langar i hjarta sinu að slaka til. Þeir
•skynja einangrun sina og leyfa frjáls
verkalýðsfélög. En þá verður til pólitiskt
afl sem hlýtur að keppa við flokkinn og
hlýtur fyrr eða siðar að hóta að taka við. En
það er einmitt bannorðið. Valdamenn
skynja hvflikt afl er uppvakið og gripa til
vopna tilað sundra þessu afli. En svo lengi
sem þeir afneita lýðræðislegum vinnu-
brögðum hljóta þeir að hrekjast aftur og
aftur inn i sama vitahringinn. Það er
enginn sósialismi til án lýðræðis. Það er nú
sannleikur málsins. Innsta eðli sósialism-
ans er einmitt lýðræði og jafnrétti. Hvorugt
er fyrir hendi I þessum rikjum fyrir austan.
Sameignarskipulag þeirra er blandið aust-
rænum ofrikishefðum og forystukjarninn
trúir þvi eins og Sonur Sólarinnar að hann
sé borinn til þess að hafa vit fyrir fólkinu
um aldur og ævi...
Siðferðisstyrkur rússneska kommúnism-
ans sem rikir i Austur-Evrópu byggist á þvi
að þeir sigruðu fasismann i Evrópu eftir
miklar hetjudáðirog ægilegar fórnir. Það
var örlagarikur sigur. En það festi ein-
ræðisskipulagið i sessi og það mun kosta
þessar þjóðir miklar þjáningar að brjóta
þá hlekki...
Hú spyrð um samstarfið við Framsókn.
Það er rétt; hver dregur dám að sinum
sessunaut. Ég hef bæði slegist hart við
framsóknarmenn og unnið mikið með
þeim. Það er ekkert unnt að gera nema i
samstarfi viö aðra. Ég met þá fram-
sóknarmenn mikils. Þeir eru með fæturna á
jörðinni...
Hað er rétt, að ég hef mjög hvatt til sam-
starfs Alþýðubandalags og Framsóknar.
Framsóknarflokkurinn hefur að visu oft
lent á villugötum, en þar i ílokki má finna
mikinn fjölda af ágætum félagshyggju-
mönnum.
Mér hefur meira orðið uppsigað við krat-
ana, það er rétt, og þó er þar fjöldinn allur
af ágætlega þenkjandi mönnum. En eftir
að þeir glötuðu forystunni i verkalýðshreyf-
ingunni og gerðust kaþólskari en páfinn I
herstöðvamálum, heíur hver villiminkur-
inn af öðrum brotist þar inn og iagt undir
sig plássið...
H vað ég segi við bændur i Skagafirði? Ég
legg ekki i vana minn að rökræða við fólk
um fræðileg viðfangsefni, hvorki við
bændur né aðra. En ég lel, að islenskur
landbunaður eigi fyllsta rétt á sér.
Ég veit vel, að innílutt kjöt og smjör yrði
ódýrara fyrir neytendur. En slik stefna yrði
einhver hrikalegustu mistök sem islenskir
stjórnmálamenn gætu gert.
Grisjun byggðar i sveitum landsins er að
nálgast hættumörkin og hættan er sú, að
þegar á bjátar af völdum veðurtjóns eða
kreppu, hrynji islenskur sveitabúskapur ef
illa er við hann gert.
Draumsýn man na um islenska bænd-
ur, standandi við eldstór erlendrar stóriðju,
sem nú er raunar rekin með bullandi halla
og verið að loka viða um heim, er bæði ó-
hugnanleg og óraunsæ að minni hyggju...
Eg tel afskaplega nauðsynlegt að hlúa að
islenskum sveitabúskap, þótt hann sé
kannski ekki gróöavænlegasti atvinnuveg-
ur landsmanna. Það er bæði menningar-og
sjálfstæðismál að viðhalda búsetu i sveitum
landsins og bændur eiga kröfu á að búa
við sömu kjör og aðrir...
Já, ég er ágætlega sáttur við að vera fjár-
málaráðherra. Kannski hefði ég þó helst
kosið að starfa að atvinnumálum. En fjár-
málaráðuneytið er býsna góður skóli...
týðræði og þingræði stafar hætta af þvi,
þegar stjórnmálamenn kunna ekki að segja
nei, þegar það á við. Annars vegar dekra
menn við skattgreiðendur: það er vinsælt
að lækka skatta. Hins vegar eru menn
tregir til að skera niður. Og þá verður
niðurstaðan sú, að allt er rekið með dúndr-
andi tapi...
I mörgum nágrannalöndum okkar er ó-
hugnanlegur halli á rekstri rikissjóða, t.d. I
Danmörku, Sviþjóð, Þýskalandi og I
Bandarikjunum, enda er þarna mikil
kreppa.
Margir imynda sér, að það sé einkenni
vinstri manna að eyða og ástunda óábyrga
fjármálapólitik. Þetta er fjarri sanni. Það
er ekki síður nauðsynlegt fyrir vinstri menn
að láta endana ná saman og segja nei,
þegar það á við...
M ér er satt að segja sönn ánægja að þvi,
þegar sagt er að ég sé ihaldssamur i fjár-
málum. Fjármálaráðherra á að vera það
og verður að vera það. Þvi meira aðhald,
þeim mun gagnlegri nýting fjármuna.
Á hinn bóginn tel ég það annað einkenni
vinstri stefnu og sósialistiskrar lifsskoð-
unar, að menn séu frjálslyndir, þ.e. um-
buröarlyndir.opnir fyrir ólikum skoðunum
og ekki refsiglaðir. Það er dæmigerð á-
róðursklisja frá hægriöflunum, aö vinstri
stefna einkennist af boöum og bönnum.
Þvert á móti hafa flestir sósialiskir hugsuð-
ir verið frjálslyndir menn, sem gera sér
grein fyrir þvi, að góöum markmiðum
verður aldrei náð nema með opnum, gagn-
rýnum huga og samvinnu við vinsamleg
öfl...
...Og þar að auki með fullkomlega á-
byrgri stefnu jafnt i fjármálum sem öðru,
svo að aftur sé vikiö að viðfangsefni þess
sem gætir kassans.