Helgarpósturinn - 22.01.1982, Blaðsíða 24
I w*S:,ru,HAu.
I SrLoZ%ZRTH£m
I asasasr^
■ £# »wr>« i»?
[ssisrr i
asæ* J
| HStjan flB
I *“»»• •<«> J«»n,
| »«**»• »
\fQHk AO K'
Föstudagur 22. janúar 1982 hdlrj^rpÓ^turÍnn
þann draum aö gefa út unglinga-
blað, þannig að það má segja að
þetta hafi verið hugsjónastarf og
er enn.”
Fræðslu- og
skemmtiefni
— Hver er tilgangurinn?
„Tilgangur blaðsins er bæði að
fræða unglingana og skemmta
þeim. betta er ekkert gróðafyr-
irtæki enda erfitt að halda úti
unglingablaði. Blaðiðer selt i lausa-
sölu i 3.500 - 4.000 eintökum en
þyrfti að seljast í 6 - 8.000 eintök-
um ef vel ætti að vera. Eins og
stendur er útkoman i núlli, við
græðum hvorki né töpum.”
Samkeppni um
unglinga
— Nú er þetta eina unglinga-
blaðið á landinu, af hverju er erf-
itt að halda þvi úti?
„Það eru margir sem keppa um
unglingana, ýmislegt sem boðið
er upp á sem ekki var áður, t.d.
sjónvarp, diskó, videó og félags-
miðstöðvar. Unglingar geta sótt
Vilja fá borgað fyrir
Ég er ekki að segja að það sé of
mikið gert fyrir unglingana, það
mætti gera meira, eða réttara
sagt láta þá sjálfa gera eitthvað
en það nennir enginn að standa i
þvi, nema að fá vel borgað fyrir.
Annars hafa unglingarnir verið
duglegir að skrifa okkur, en það
er auðvitað alltaf erfitt að velja
og hafna efni. Mestu viðbrögð
sýna þeir við spurt og svarað og
poppþættinum.
Bjartsýnir
Við vildum gjarna fá meira og
helst smásögur, það er aldrei of
— Stuðarinn
ræðir við
Eðvarð Ingólfsson
Samkeppni um unglingana
Nýlega barst okkur i hendur 4.
tbl. unglingablaðsins 16 1. ár-
gangur 1981. Stuðaranum lék for-
vitni á að vita hvernig rekstur
blaðsins gengi, hvernig það yrði
tii og þess háttar, þannig að við
vippuðum okkur á ritstjórn blaðs-
ins.
Þar hittum við fyrir annan
tveggja ritstjóra, Eðvarð Ingólfs-
son,og röktum úr honum garnirn-
ar.
Hugsjónastarf
— Hver voru tildrög útgáfunn-
ar?
„Sigurður Blöndal, annar rit-
stjóri blaðsins og jafnframt eig-
andi blaðsins,hafði lengi átt sér
sér skemmtanir i ýmislegt annað
misgott. Mér finnst félagsmið-
stöðvarnar vinna mjög jákvætt
starf, en oft fá unglingarnir ekki
að vinna nógu sjálfstætt og eru
mataðir.
mikið af þeim. Við erum bjart-
sýnir á framtiðina, það eru alltaf
að bætast við áskrifendur.”
Stuðarinn vonar að ágætisblað-
ið 16 haldi sinu striki og óskar
útgefendum þess alls góðs.
Hvað finnst
beim um 16?
Dóri sagðist hvorki vera diskógæi
né pönkari... bara alveg eðlileg-1
ur.
i tilefni kynningar Stuðarans á
unglingablaðinu 16, brugðum við
undir okkur betri fætinum og
hófum lcit að unglingum til að fá
áiit þeirra á umræddu blaði. Við
skelltum okkur á Billiardstofuna
Júnd,þvi þar þóttumst við vissar
um að hitta einhverja hressa
krakka.
Hafa aldrei séð það
Strax fyrir utan rákumst við á
þrjár stelpur: þær Elisabetu,
Dagbjörtu og Ingigerði allar 17
ára. Og við spurðum: Lesið þið
unglingablaðið 16? Nei, engin
þeirra las blaðið; þær höfðu ekki
einu sinni séð það. Við spurðum
þá hvort þær læsu Stuðarann og
viti menn, auðvitað lásu þær
Stuðarann og fannst hann ágætur.
Að lokum spurðum við hvernig
þeim fyndist að unglingablöð og
siður ættu að vera en um það
vildu þær ekkert segja.
Gott og
smekklegt
Fyrir innan, i spilasalnum,
hittum við fyrst tvo stráka þá
Kristján 14 ára (tv.) og Andrés 13
ára (th.) Andrés hafði ekki lesið
blaðið en það hafði Kristján gert
og fannst það mjög gott. Af
hverju? Það er mikið og fjöl-
breytt efni, allt jafn gott og
skemmtilegt. Kristján sagðist
lesa blaðið þegar hann rækist á
það en ekki kaupa það sjálfur.
Gaman að fá viðtöl við
frægt fólk
Þær Kristin Sigurjóns og
Anna Eiriks, báðar 13 ára,
lesa 16 og finnst það gott blað.
Þær voru mjög ánægðar með við-
talið við Bubba og finnst gaman
að lesa viðtöl við frægt fólk en
vildu gjarna fá viðtöl við
venjulegt fólk lika. Við spurðum
hvort Bubbi væri i uppáhaldi hjá
þeim en þeim fannst vera svo
mikið af góðum islenskum hljóm-
sveitum núna að erfitt væri að
gera upp á milli þeirra. Þær
sögðust sjaldan sjá Stuðarann en
næsta Helgarpóst (þennan)
ætluðu þær örugglega að kaupa.
Yfirleitt ágætt
Arnar Halldórsson, 15 ára, varð
næstur til að svara okkur. Hann
les stundum blaðið 16 og finnst
það yfirleitt ágætt. Við spurðum
hvort hann sjálfur hefði einhvern-
tima skrifað i eða gefið út blað,
en það hafði hann aldrei gert.
Aðal áhugamál hans eru fótbolti,
handbolti og svo auðvitað billiard
og sagðist hann oft fara á Júnd.
Honum fannst Stuðarinn lika
ágætur og vildi ekki breyta
honum neitt.
Fyrsta blaðið frábært
Siðast hittum við Dóra, 14 ára,
hann var reyndar að spila en
talaði við okkur á milli „stuða”.
Hann les 16 stundum og 1. blaðið
fannst honum frábært — mjög
gott efni —. Uppáhaldshljómsveit
Dóra er Dire Straits. Dóra finnst
Stuðarinn lika góður og bað endi-
lega að koma með viðtal við Egó.
Viðtalið við diskógæjana Jónas og
Hermann fannst honum ágætt en
hvorki fannst honum þeir vera
sniðugir né gáfaðir. Við spurðum
Dóra að lokum hvort hann væri
diskógæi, pönkari eða eitthvað
Elisabet, Dagbjörtog Ingigerður vildu ekki segja hvernig unglingablöð
ættu að vera.
þessháttar, neiþað varhann ekki,
sagðist bara vera alveg eðlilegur.
Súperviðtöl
við stjörnur
Við hittum lika eina 16 ára
• stelpu, sem ekki vildi ldta birta
nafn sitt eða mynd. Hún les ekki
blaðið 16 og hefur ekki áhuga á
þvi.
Það væri uppfullt af kjafta-
sögum um frægt fólk og supervið-
tölum við stjörnur.
ÖNNUR HUÐ A
Okkur Stuðkonum til
mikillar ánægju hefur
fyrsta smásagan borist.
Þefta er stutt og laggóð
saga með óvæntum endi.
Við fengum hana senda
undir dulnefninu „Stjöl-
ur“ sem þýðir víst stél,
rass, sitjandi, lendar. Við
notum að sjálfsögðu tæki-
færið og hvetjum alla til
að senda okkur sýnar
smásögur, Ijóð eða bara
hvað sem er.
Hún fann volgt og rakt slímið
milli fingra sinna. Svimi, henni
var óglatt hún hafði héapað,
hvað svo? Hún var lengi að opna
augun og þegar það tókst vissi
hún ekki hvar hún var.
Það var sleipt vegna slimsins
og loftið var mettað af súrri
lykt, sem virtist eiga upptök sin
i matar-og beinahrúgu er var i
einu horninu. Allt var á ferð og
flugi hún fann hverja hreyfingu
upp og niður.
Hún var gömul og vissi að hún
átti ekki langt eftir. Allt sitt lif
hafði hún búið i skóginum, fyrst
með manni sinum siðar með
dóttur sinni. Þar hefði hún kosið
að deyja en nú mátti svo ekki
fara, hún mundi deyja hér.
Henni varð óglatt en gat engu
ælt, bara að hann þyrfti að æla
þá ætti hún möguleika, þó hún
gæti vart hlaupið, ekki lengur.
Hún hélt áfram að kastast til
og frá brátt myndi hvert bein
brotna.
Hjartað hamaðist og berg-
málaði i hverju skoti, var allt i
kringum hana, barðist ótt og titt
eins og trommur.