Helgarpósturinn - 22.01.1982, Síða 26
Einkunnarorð nýjustu myndar Sean Connerys/ Out-
land, gætu verið: „Allir erum við atvinnumenn", en
þau eru lögð Peter Boyle í munn, sem leikur mæddan
trúnaðarmann á vinnustað. Það sem hann á við er
þetta: Við erum vaxnir úr grasi og þvi ágjarnir að
meira eða minna leyti og ætlumst til þess að þú fylgist
ekki svo grannt með okkur. En Connery, sem leikur
fógeta, túlkar þessi orð svo: Hingað og ekki lengra
geng ég i umburðarlyndinu, annars tapa ég sjálfsvirð-
ingunni.
Sean Connery
fagmaður fram í fingurgóma
sköpun. Bond var ekki lengur hetja heldur
Imynd nautnadýrkunar sjöunda áratugar,
súperbósi og súpersadisti.
Það er langur vegur frá hinni yfirdrifnu
grimmd Bonds, sem féll svo vel i kramið
hjá áhorfendum forðum, til framandlegs
þvergirðingsháttarins sem einkennir fó-
getann i Outland.
Outland er ekki sú mynda Connerys,
sem gerir mestar kröfur til hans, en hún
kallar fram ýmsa bestu kosti leikarans.
Hér leikur hann ekkert ofurmenni.
Vandamálið, sem hann fæst viö hér, er
viðráðanlegt og þegar myndinni lýkur
hafa menn á tilfinningunni að enginn var-
anleg breyting hafi orðið. Hann er ekki
fullkominn, þess sér gleggst merki i litlu
atriði þar sem Frances Sternhagen kem-
ur að honum aö leika knattleik við sjálfan
sig og hún segir að svo virðist sem hann sé
að tapa leiknum.
„Hann er atvinnumaður fram i fingur-
góma,” sagði Richard Lester eitt sinn um
Sean Connery og myndin Outland er um
slikt fólk. „Allir erum viö atvinnumenn,”
segir Peter Boyle lymskufullur i hlutverki
trúnaöarmannsins. Fógeti Connerys tek-
ur þessi orö bókstaflega og það bjargar
myndinni bókstaflega.
Sem James Bond I Goldfinger.
Föstudagur 22: janúar• 1982’
i
- •.
Fógeti Connerys minnir aö ýmsu leyti á
fógeta Garys Coopers i High Noon. Hann
fær hjálp konu, ekki kvekara eins og
Cooper, heldur miðaldra, oröhvats læknis
sem Frances Sternhagen leikur. I High
Noon jók klukkan gifurlega á spennu og
sama er að segja um Outland, þar fer nið-
urtalningin fram með tölvuklukku. Gary
Cooper leitaði aðstoðar samborgara sinna
i kirkjunni en Connery skirskotar til
þeirra i matstofunni á vinnustað þeirra.
Með þessu móti er e.t.v. lika ætlunin að
skirskota til neyslusamfélags nútfmans.
Þessi mynd er full af óljósum skirskotun-
um og duldum boðskap.
Þá fjallar myndin um ástandið i iönað-
inum, spillta og samansvarna stjórnend-
ur, tækifærissinnaða trúnaðarmenn og
verkalýö sem er aö fara á taugum vegna
vinnuálags. Þvi má furðu gegna að nafla-
skoðararnir i breskum stéttarfélögum
kvikmyndagerðarmanna skuli hafa leyft
sýningu myndarinnar átölulaust.
Þó að High Noon hafi gert stormandi
lukku á sinum tima er sú mynd að ýmsu
ley ti úr sér gengin og vonlitið verk að gera
nýjan vestra á sömu nótum. Það sam-
rýmist illa nútimahugsunarhætti er hetj-
an leggur lifiö að veði fyrir siðferöishug-
sjón sina. Að sinu leyti tekst þetta f Out-
land með þvi að persónur hafa veriö
heilaþvegnar likt og I mörgum framtiðar-
myndum og meö þvi að Sean Connery
gerir þetta kleift.
Connery er i allra fremstu röð núlifandi
kvikmyndaleikara. En hann hefur aldrei
verið útnefndur til óskarsverðlauna og
sökum þeirra viðfangsefna sem hann vel--
ur sér hljóta myndir hans fremur litla aö-
aö vinna úr hetjuhugsjón Connerys. Litið
lagðist fyrir kappann i „Lausnarfénu”
sem Caspar Wrede leikstýröi og Connery
hæfði illa hlutverki sinu sem þjófur i
mynd Michaels Crichtons, „Fyrsta stóra
lestarráninu”. En John Huston, sem
stýrði myndinni „Maðurinn sem vildi
veröa konungur”, er óspar á hrósið i garð
Connerys. „Sean er stórkostlegur, eink-
um þegar hann þykist vera Alexander
mikli”.
Sidney Lumet og Richard Lester hljóta
að hafa mikiö dálæti á Connery þvi báðir
hafa leikstýrt fleiri en einni mynd með
honum.
Það hlýtur að koma mönnum spánskt
fyrir sjónir hve oft Connery missir stúlk-
una sina i myndum núorðiö, maöurinn
sem gerði kvennagullið James Bond
ódauðlegt. Það er alkunna að vinsældir
James Bonds voru Connery lengi til traf-
ala og fyrir bragðið dróst á langinn að
hann hlyti þá virðingu sem honum bar
sem leikara. Connery á það að visu fyrstu
Bond-myndunum að þakka að hann hlaut
hlutverkið sitt i kvikmynd Hitchcocks,
Marnie. Þvi fór fjarri aö hann hlyti það lof
sem honum bar fyrir leik sinn I Marnie en
nú eru menn almennt á eitt sáttir um aö (
sjaldan hafi sést betri leikur i Hitch-
cock-mynd.
Enn er algengt að leikarinn gjaldi fyrir
leik sinn i Bond-myndunum þar sem hann
lék algera andstæðu þeirra kvikmynda-
persóna sem hann túlkar nú. Hann var
glæsilegur og fyndinn sem Bond en þegar
gerð „Þrumufleygs” var lokið leist hon-
um ekkert á hvernig myndirnar byggðust
orðið frekar á tæknibrellum en persónu-
Outland: Sean Connery og Frances Sternhagen.
sókn. Það er erfitt á þessum timum and-
hetjudýrkunar að skapa hetjupersónur
sem allir geti sætt sig við. í myndum sin-
um berst hann oft fyrir töpuöum málstað
og fyrir vikið verður hann „vitlausari en
hann lftur út fyrir að vera” eins og trún-.
aðarmaöurinn i Outland er iátinn segja.
En baráttumál hans eru þess verö að allt
tapist eins og arabiski stigamaðurinn,
sem hann leikur i „Vindurinn og ljóniö”,
segir i lok myndarinnar.
Leikstjórum gengur mjög misjafnlega
<Jr mynd Richards Lesters, „Hrói og Marion”. Sean
Connery og Audrey Hepburn.