Helgarpósturinn - 19.02.1982, Side 12
Lúðumús
frá Frans
Helgarrétturinn þessa vikuna
er franskættaöur, en unninn úr
alislensku hráefni. Sá, sem læt-
ur okkur hann f té, er franski
kokkurinn Jea n-Francois
Lemercier, sem eldaö hefur
ofan i gesti Frönsku vikunnar á
Hótel Loftleiöum.
Rétturinn heitir lúöumús eöa
Mousse de fle'tan og er hann
matreiddur á eftirfarandi hátt:
1 kg. lúöa
750 g. rjóm i
14 egg
400 g. smjör
salt, pipar, múskat.
Fiskurinn er hakkaöur.
Eggjunum er hrært vel saman
við hann, siðan er smjörinu
hrært samn viö og loks rjóman-
um. Þetta er siöan kryddaö og
sett i kæli i 15 minútur. Fiskur-
inn er siöan settur i form og
bakaöur i vatnspönnu i 25—30
minútur i 200—220 gráöu heitum
ofni.
Meö fiskinum er borin fram
sósa sem lögöuö er á eftir-
farandi hátt:
CHskétek
interRent
Bílaleiga Akuréyrar
Akureyri Reykjavik
Mesta úrvalló besla þiónustan.
Vló utvegum yóur ataláll
^ a bilalelflubilum er'endls
Boröa-
pMtllW
Sícni 86220
•5660
Veltlngahúslð í
GLÆSIBÆ
Hægt er að vera á hálum ís
þótt hált sé ekki á vegi.
Orukknum manni er voði vis
vist á nótt sem degi.
___a___/
Jean-Francois Lemercier
Smjör er brætt og niður-
skorinn púrrulaukur er glans-
eraöur. út i er síöan bætt
sveppum og tómötum, sem
skornir hafa veriö i teninga.
Loks ersvo settur rjómi úti og
sósan soöin niöur þar til hún er
hæfilega þykk.
Beriö fram sellerimauk meö
rétti þessum.
Hljómlistarmenn halda mikla hátiöi næstu viku, þar sem ýmislegt veröur á boöstólum.
FÍH 50 ára:
Húllumhæ um allan bæ
Fyrir fimmtiu árum, fengu
nokkrir hljóðf æraleikarar i
Keykjavik s vohljóöandi bréf:
„Viö undirritaöir teljum aö
nauösynlegt væri, af ýmsum
ástæöum aö stofnaö væri til fé-
lagsskapar fyrir islenska hljóð-
færaleikara, þ.e.a.s. þá, sem hafa
músik aö einhverju eöa öllu leyti
aö atvinnu. Viljum viö þvi biöja
yöur, sem viö vonum að hafi^
áhuga fyrir þessu máli, aö nota á
fund á Hótel Borg, herbergi 103,
sunnudaginn 14. febrúar kl. 5 siö-
degis til aö athuga og undirbúa
stofnun þessa félagsskapar.
Viröingarfyllst,
Bjarni Böövarsson,
Þórhallur Arnason.
A undirbúningslundi fyrir
stofnun hagsmunafélags hljóð-
færaleikara mættu 14 manns en á
sjálfum stoíníundinum voru þeir
25. Stofnfundurinn var haldinn 28.
febrúar 1932.
Bjarni Böðvarsson varð strax i
upphafi hinn ókrýndi íoringi
hljómlistarmanna og var hann
formaður félags þeirra i 17 ár.
Núverandi formaöur Félags is-
lenskra hljómlistarmanna er
Sverrir Garðarsson. Hann sagði.
aö upphaflega hafi félagiö ætlaö
aö halda upp á þessi merku tima-
mót meö þvi aö gefa eingöngu út
bók, þar sem saga félagsins væri
rakin imáli og myndum, auk þess
aö halda heföbundna árshátiö.
„Siöan datt okkur i hug að
heimsækja allar sjúkrastofnanir
á Stór-Reykjavikursvæöinu. Þeg-
ar viö uppgötvuðum aö þær væru
fjörutiu, drógum viö ekkert úr,
heldur söfnuðum liöi,” sagði
Sverrir.
Málin þróuöust svo þannig, að
ákveðiö var aö efna til mikillar
tónlistarhátiöar sem stendur dag-
ana 22.-27. febrúar.
Tónleikarnir fara fram viöa um
bæinn. Á Lækjartorgi verða
lúðrasveitir, Biggbönd og popp-.
sveitir. Kaffihúsatónlist verður á
Hótel Borg en siöan á Hótel Esju
kl. 15. Þrjá fyrstu daga hátiðar-
innar veröa djasstónleikar á
Hótel Sögu, þar sem færustu
djassistar okkar leika. Tveir
merkir heiðursmenn frá útland-
inu verða gestir á þessum djass-
kvöldum, en þeir eru engir aðrir
en Pétur Ostlund trommuleikari
og Jón Páll gitarleikari. Báðir
þessir menn starfa i Sviþjóð.
Veitingastaðurinn Broadway
gegnir þýöingarmiklu hlutverki i
hátiðahöldunum, þvi þar verða
halndar fimm upprifjunar-
samkomur, þar sem saga félags-
ins og tónlisar i landinu veröur
rakin aftur á bak. Byrjaö veröur
á upprifnun áratugarins
1972—1982. Þá veröur rifjaður upp
áratugurinn 1962—72. og mun
Þorgeir Astvaldsson veröa kynnir
og sögumaöur þessi tvö kvöld.
Siöan veröa rifjaöir upp áratug-
irnir allt aftur til ársins 1932 er fé-
lagið var stofnaö. Kynning og
sögumaöur á siöari kvöldunum
verður Hrafn Pálsson. A kvöldum
þessum munu helstu danshljóm-
sveitir sins tima koma fram og
spila, og verða gamlar hljóm-
sveitir endurvaktar af þvi tilefni.
Þarmánefna Hljóma, Roof Tops,
KK-sextettinn hljómsveit Svav-
ars Gests, sextetts Ölafs Gauks,
hljómsveit Björns R. Einarsson-
ar. Loks má svo nefna útvarps-
hljómsveit i anda Þórarins Guð-
mundssonar, og tvær hljómsveit-
ir i anda Bjarna Böðvarssonar,
sem Ragnar Bjarnason mun
stjórna. Eru það útvarpsdans-
hljómsveit Bjarna og danshljóm-
sveit hans.
I upphafi hvers kvölds mun •
lúðrasveit leika fyrirgesti og föst
hljómsveit kvöldanna veröur
Pónik. Munu þeir sjá um borötón-
list og tónlist eftir aö dagskrárat- •
riöum lýkur.
Lokatónleikarnir verða siöan i
Háskólabiói, þar sem Sinfóniu-
hljómsveit íslands leikur undir
stjórn Páls P. Pálssonar. A efnis-
skránni eru verk eftir innlend og
erlend tónskáld. Karlakór
Reykjavikur, og karlakórarnir
Fóstbræöur og Stefnir í Mosfells-
sveit munu taka þátt i flutningi
þriggja verka á þessum tónleik-
um.
>
Aðkvöldi 28. febrúar munu tón-
listarmenn svo halda árshátíö
sina i Broadway, en daginn eftir,
1. mars, hefst hér þing norræna
tónlistarmanna.
„Viö förum þvi beint úr veisl-
unni i alvöruna”, sagöi Sverrir
Garðarsson.
Mikil ásókn hefur veriö i miða á
dagskrárliði hátiðarinnar og er
fólk hvatt til að tryggja sér miða i
tima. Miðana er hægt að fá á
skrifstofu FiH að Laufásvegi 40.
og er aðgangseyririnn 50 krónur.
„Við spiluðum eins og englar”
segir Aage
Lorange, einn af
stofnfélögum FÍH
Aage Lorange var einn þeirra
tónlistarmanna, sem tóku þátt i
stofnun FÍH I febrúar 1932.
Helgarpósturinn rabbaöi stutt-
lcga viö Aage i tilcfni þessara
tfmamóta og spuröi hann fyrst
hvort mikiil hasar heföi veriö i
tónlistarmönnum á þessum ár-
um.
„Já, Bjarni heitinn Böövarsson
var mjög duglegur. Hann sá, að
þaö þýddi ekki annaö en aö hafa
munninn á réttum staö. Þaö var
mikil barátta við útlendar hljóm-
sveitir, sem voru aö koma inn i
landið”, sagöi Aage.
Sem dæmi um þaö nefndi hann,
aö eitt sinn hafi Jóhannes á Borg
veriö búinn að fá leyfi fyrir er-
lendri hljómsveit. Þegar Bjarni
Böövarsson frétti þetta, fór hann
upp istjórnarráö og kom þá i ljós,
aö einhver undirtylla haföi veitt
leyfiö. Samkvæmt islenskri
vinnulöggjöf var hins vegar ekki
hægt að ráöa hingaö erlenda
krafta nema meö samþykki
félagsins. Leyfi þetta varð þess
vegna afturkallað.
— H venær byrjaðir þú aö spila.
,,Ég hef verið byrjaöur að spila
á dansæfingum um 1925 og geröi
það meö skólanum. Ég fékk
meira aö segja áminningu hjá
Geir Zoega, sem þá var rektor.
Ég var kallaöur upp á skrif-
stofuna og hann sagöi: Heyriö
þér, þér megiö bara spila á
laugardagskvöldum, ekki önnur
kvöld ”,
Sina eigin hljómsveit stofnaöi
Aage Lorange I kringum áriö 1934
og var hún kölluö Djassband
Reykjavikur eöa eitthvað i þá
veru. Hljómsveitin lék þá fyrir
dansi i Iðnó. A þeim tima hófust
dansleikir kl. 22 og menn dönsuöu
til kl. 4-5 á morgnana.
Siöán lék Aage, ásamt hljóm-
sveit sinni I Oddfdlowhúsinu og
þar voru þeir i átta ár. Eftir þaö
kom Sjálfstæðishúsiö, þar sem
hann lék i niu ár.
Aage og félagar hans munu
leika nokkur lög I Broadway, þeg-
ar áratugurinn 1932-42 verður
rifjaöur upp og var hann aö lok-
um spuröur hvort hann saknaöi
gömlu timanna þegar hann lék I
da n shlj óm s vd tu num.
,,Já, ég geri þab” sagöi hann.
„Þetta var persónulegra. Tökum
dæmi, ef bilaöi rafmagn á böllum
idag gætu menn ekki spilað. Það
kom fyrir hjá okkur aö þaö var
rafm agnslaust i tvo tima. Þá voru
bara sett kertaljós og viö
spiluðum eins og englar”, sagði
Aage Lorange.