Helgarpósturinn - 19.02.1982, Blaðsíða 14
víðlal: Gunnar Gunnarsson
mynd: Jlm Smarl
g hafði ekki stóra drauma um eitthvert
ákveöiö ævistarf, þegar ég sem strákur var
að alast upp i Vik i Mýrdal. Ef aðstæður
hefðu leyft og ég hefði haft tækifæri tii lang-
skólanáms, hefði hugurinn trúlega staðið til
náms i læknisfræði...
. nnars kynntist ég ungur verslunar-
störfum i kaupfélaginu I Vik, þar sem faðir
minn starfaði...
kaftfellingur er ég, en ættir mfnar ná til
Rangæinga og Arnesinga en lika norður i
land. Karitas Jónsdóttir, stjúpdóttir Sr.
Jóns Steingrimssonar, sem fluttist meö
honum og móður sinni norðan úr Skagafirði,
er ein af ættmæðrum minum. Karitas var
kynsæl i Mýrdalnum...
oreldrar minir eru Einar Erlendsson
og Þorgerður Jónsdóttir sem bjuggu i Vik
lengst af sinum búskap, en faðir minn
starfaði við Kaupfélag Skaftfellinga um
nær 60 ára skeið...
g á margar góöar minningar frá æsku-
árunum i Vik. Byrjaði ungur að veiöa fýl og
lunda og fór i fyrsta róður til fiskjar 9
ára. — Það var erfitt að stunda sjóinn i Vik
á árabátunum. — Hafnlaus strönd, bein
lina i suður, haf og ekkert nema haf alla leið
aö Suöurskautslandinu. Brimið — stundum
ofsalegt og ógnþrungið. — Sjóslys
tið. — Eitt þeirra geymist i sálminum ,,A1-
faðir ræður”, sem Sigurður Eggerts orti
árið 1910, en hann var þá sýslumaður i Vik.
Siðasta sjóslysið i Vik varð árið 1940 þegar
sex menn fórust i lendingu.
Það var hörð lifsbarátta I Vestur--
Skaftafellssýsiu, þegar ég var að alast upp.
Samgöngur erfiöar bæði á sjó og landi.
Hafnlaus ströndin og jökulárnar oft erfiðar
yfirferðar...
g var i sveit á sumrin frá 6—12 ára ald-
urs þá kom vegavinna á sumrin og siöan 15
ára byrjaði ég að starfa i kaupfélaginu I
Vik. Reri stundum til fiskjar og menn fengu
yfirleitt fri frá störfum þegar gaf á sjó.
Faöir minn var formaður nokkrar vertiðir
áður en ég komst á legg. En Erlendur afi
minn var helsti skipasmiðurinn i Vik. Hann
hafði lært trésmiði án skólagöngu.
Ég var I Barna- og unglingaskólanum i
Vik. Og svo Samvinnuskólanum 1939—41
Ég vann með náminu I kaupfélaginu I Vik.
Maður varð sjálfur að kosta sig i skóla...
Siðan lá leiðin til Reykjavikur og 1942
gerðist ég starfsmaður Landsbankans til
ársins 1946. Ég fékk tækifæri til þess að fara
til Bandarikjanna 1944 og var þar við nám
og störf I banka og skóla 44 og 45...
•rið 1946 var ég beðinn að taka aö mér að
undirbúa tryggingafélag, sem Sambandið
hafði ákveðið aö koma á fót. — Samvinnu-
tryggingafélag...
F
• g tók þessu boöi, endurgreiddi náms-
stvrkinn. sem ég fékk frá Landsbankanum
til ferðarinnar til Bandarikjanna otg hóf
störf hjá Sambandinu 1. mai 1946, meö þvi
aö stiga á skipsf jöl ensks kolaskips og sigla
til Bretlands. Var svo fram i lok júli við
nám i vátryggingum i' Manchester og Lon-
don. Samvinnutryggingar voru svo stofn-
aðar 1. sept. 1946 og ég var ráðinn fram-
kvæmdastjóri þeirra...
; ð starfa i Samvinnutryggingum? Jú,
þaö var skemmtilegt aö byggja þær
upp. -r Við komum fljótt með nýj-
ungar, — endurgreiddum iðgjöld til trygg-
ingartakanna — það var algjör nýlunda á
Islandi...
írekara nám? Jú, ég fékk styrk til þess
að stunda nám I Harvard Business School i
svonefndu Advance Management Pro-
gram — 4ra mánaða nám. Þetta var stór-
kostlegt tækifæri. Ég var þá 31 árs en
meðalaldur þátttakenda 46 ár. Með mér I
þessu námi voru menn, sem siðar urðu,
þekktir i viöskiptalifi Bandarikjanna. Ann-
ars munaði minnst, að ég fengi ekki inn-
göngu i þetta nám, vegna þess, hve ungur
ég var. Meö hjálp forstjóra samvinnu-
tryggingafélagsins i Bandarikjunum, sem
var áhrifamaður I Washington, komst ég I
skólann. Ég er mjög þakklátur fyrir, að ég
fékk tækifæri til þess að dvelja i Harvard.
Þótt timinn væri ekki langur var námið
þannig, að maður læröi mikið á stuttum
tima.viö kennsluna var notuð svonefnd
Case Method...
vernig það æxlaðist að ég varö svo for-
stjóri Sambandsins?
Þess var fariðá leit við mig vorið 1954, að
ég tæki þetta starf frá 1. jan. 55. Vilhjálmur
Þór þáverandi forstjóri, hafði ákveðiö að
taka við fyrra starfi sem bankastjóri
Landsbankans, sem hann átti kost á.
Ég var tregur til þess að taka við for-
stjórastarfinu. Ég var aöeins 33ja ára og
þetta var mikið starf og miklu umfangs-
meira en að stjórna Samvinnutryggingum.
En þaö var lagt aö mér að taka starfið og ég
lét undan. Hér réði og nokkru, að ég átti
góða konu mér við hlið. I starfi sem hér um
ræðir hefur þaö ekki svo litið að segja.
Þú spyrð hvort hin gamla hugsjón sam-
vinnuhreyfingarinnar sé dauð og grafin
vegna þess aö hreyfingin sé orðin mikið
veldi I þjóðfélaginu.
Sem betur fer er Sambandið orðið tals-
vert veldi og hvernig ætti annað að vera, ef
það á að sinna skyldum sinum, með 42
kaupfélög aö baki og 42000 félagsmenn aö
baki kaupfélaganna.
Þetta með gömlu hugsjónina er hugtak,
sem menn nú til dags tala oft um og sveipa
hana oft geislabaug, — Sannleikurinn er
sá, að hugsjón frumherja samvinnuhreyf-
ingarinnar um aukna velferð og velmegun
efnahagslega, hefur orðið að veruleika
fyrir löngu siðan. Hér hefur komið til öflugt
samvinnustarf en lika almenn þróun fram-
fara i þjóðfélaginu.
En hin eiginlega samvinnuhugsjón er enn
við lýði. Hún er siung. Hún höfðar til
mannsins, sem er i eöli sinu félagsvera. 1
viðtækri merkingu er samvinnuhugsjónin
einskonar siögæðishugsjón. Hún á sér visan
stað I hugum þeirra manna sem vilja brjóta
grundvallaratriði tilverunnar til mergjar.
Lifið býður okkur bókstaflega upp á það aö
leysa hin ýmsu vandamál daglegs lifs með
samvinnu. Þetta er áþreifanlegast i fjöl-
skyldulifinu. Velgengni og hamingja
hverrar fjölskyldu byggist ekki hvað sist á
samvinnu. Samvinnan er andstæða sundr-
ungarinnar. Og enn er sú hugsjón samvinnu
i fullu gildi að leysa með samvinnu og sam-
takamætti ýmis mál á sviði efnahags og
viðskiptalifs...
á timum fer þvi miður of litið fyrir
samvinnuhugsjónum i lifi manna. Lifsþæg-
indakapphlaup nútimans er ekki hinn
ákjósanlegasti jarðvegur fyrir samhyggju
og samvinnu. Það fæðir miklu frekar af sér
þrýstihópa, þar sem eigin hagsmunir sitja i
fyrirrúmi...
Sar
imvinnuhugsjónin er enn i fullu gildi og
i velferöarþjóðfélaginu á hún erindi til
okkar. í henni býr boðskapur um réttlæti i
stað sundrungar. Og samvinnufélags-
formið getur stuölaö að þvi, að þessar hug-
sjónir fái aö dafna. Ég tel gott fyrir islensku
þjóðina að eiga sina samvinnuhreyfingu.
Dyr samvinnufélaganna standa opnar
hverjum þeim sem vill taka þátt i sam-
vinnustarfi..'.
IL.
vort Sambandið lúti einvörðungu eigin
lögmálum, lögmálum auðhrings, frekar en
einstaklingunum og kaupfélögunum sem
mynda það?
Sambandiölýtur þeim lögmálum fyrst og
fremst, sem grundvallast á hinu lýðræðis-
lega félagsformi samvinnufélaga, Kaup-
félögin eru félög sem opin eru öllum, sem
vilja gerast þar félagsmenn. Hver félags-
maður hefur eitt atkvæði á fundum, burt
séð frá þvi, hve mikil' viöskipti hann hefur
eða á mikla innistæðu i stofnsjóöi sins
félags...
ðambandið er hins vegar félag sem kaup-
félögin hafa myndað til þess að láta það
annast ýmis viðskipti og þjónustu fyrir sig
og félagsmenn sina. Félagsmennirnir velja
fulltrúa úr sinum hópi á aðalfundi kaup-
félaganna og félagsmenn á aðalfundum
kaupfélaganna velja svo fulltrúa úr sinum
hópi á aðalfund Sambandsins. Þessir
félagsmenn, um 120 að tölu, á aðalfundi
Sambandsins hafa æðsta vald i málefnum
Sambandsins. Þeir velja stjórn og þeir hafa
vald til þess að gera ályktanir, samþykkja
stefnuna i smærri eða stærri atriðum.
Stjórn Sambandsins skipa 9 fulltrúar,
kjörnir á aðalfundi en siðan kjósa starfs-
menn Sambandsins tvo fulltrúa I stjórnina.
Þeir hafa málfrelsi og tillögurétt. Nauðsyn-
legt er að breyta núgildandi lögum um
samvinnufélög til þess að fulltrúar starfs-
manna hafi fullan rétt. Nú er unnið að
endurskoðun samvinnulaganna skv. þings-
ályktunartillögu. Ég geri ráð fyrir að lög-
unum verði breyttá þann veg, að fulltrúar
starfsmanna i stjórn fái fullan atkvæðis-
rétt.
Ég vil fullyrða, að sú lýðræðislega upp-
bygging samvinnufélaga hér á landi sem
annars staðar I heiminum, er þaö lýðræðis-
legasta form, sem völ er á i viðskiptalifinu.
íslensk samvinnufélög starfa eftir grund-
vallarreglum Alþjóða samvinnusambands-
ins, en þær eru byggðar á Rochdaleregl-
unum...
vað auðhringstalið varðar, sem er
margtuggið og orðið útþynnt slagorð, þá er
það algjört öfugmæli. Ef Sambandinu
gengur vel og hefur tekjuafgang, þá er það
félagsmannanna á aðalfundi að ákveða,
hvernig slikum tekjuafgangi skal varið.
Stjórnendur Sambandsins eiga ekki grænan
eyri i eignum Sambandsins. Það eru kaup-
félögin sem eiga Sambandið og félags-
mennirnir sem eiga kaupfélögin — enda
þótt eignarhlutdeild hvers félagsmanns sé
ekki laus til úttektar...
annleikurinn er sá, að Sambandiö og
kaupfélögin eru mesta lýðræðisaflið i við-
skiptalifinu — þriðja aflið. Hin tvö eru
einkaframtakið, þar sem fjármagn hinna
fáu — i flestum tilfellum — ræöur og svo
ríkisfyrirtækin, þjóðnýtingin, þar sem
skrifstofubákniö, oft eftirlitslitið ræður
rikjum. Ég verö að mála þetta nokkuð
sterkum litum, vegna þess að auðhrings-
talið um samvinnufélögin gefur tilefni til
þess...
ð öðru leyti tel ég það heppilegt, hér á
landi, að þessi þrjú rekstrarform skipi
undirstöðurnar undir efnahagslifið. Sem
ein af þremur undirstöðum gegnir sam-
vinnuhreyfingin miklu hlutverki og þvi
skyldu menn ekki gleyma, að samvinnu-
félögin verða ekki þjóðnýtt. Þar eru engin
hlutabréf til sölu, ef reksturinn hallast. A
hinn bóginn er það staðreynd, að rikiö hefur
róðað sér inn i fjöldann allan af hluta-
félögum og þá undantekningarlitið til þess
að veita þeim fjárhagslegan stuðning. Að
þessu leyti standa einkahlutafélögin betur
að vfgi, þegar rekstur þeirra lendir i erfið-
leikum, en samvinnufélögin. Einkarekstur
leysir oft vandamál félaga sinna með þvi að
koma þeim á rikisjötuna. Það er ekki ónýtt
að vita af slikri tryggingu...
Eg reyni að hafa gott samband við sam-
vinnufólkiði landinu. Bæði með þvi að láta
vita af þvi, hvað er aö gerasti hreyfingunni
igegnumfréttabréfogfjölmiðla. Égmæti á
mörgum fundum á hverjuári, en timi minn
fer að sjálfsögðu mest istjórnunarstörf. Ég
hef engan fastan viðtalstima. Reyni áð taka
á móti þeim sem við mig eiga erindi. Af þvi
að spurning þin snertir bændur og launa-
menn, þá vil ég taka það fram, að ég er
vaxinn úr jarðvegi bænda, fiskimanna og
launamanna og litsvo á að hlutskipti mitt I
Sambandinu sé að stuðla að velferö þeirra,
með þróttmiklu samvinnustarfi...
vort SÍS sé ánægt með hagsmunagæslu
Framsóknarflokksins og Timans? Eða
hvort þessir aðilar séu baggar á samvinnu-
hreyfingunni?
Mér finnst ekki rétt að tala um hags-
munagæslu Framsóknarflokksins við sam-
vinnuhreyfinguna. Hitt er rétt, að allt frá
þvi að Framsóknarflokkurinn var
stofnaður hafa verið hugsjdnatengsl milli
hans og samvinnuhreyfingarinnar. Fram-
sóknarflokkurinn hefur á ýmsan hátt stutt
samvinnuhreyfinguna á Alþingi, t.d. hvað
löggjör varðar. Ég tel það mjög æskilegt,
að samvinnuhreyfingin eigi málsvara á
Alþingi. Ég tel það mjög æskilegt, að sam-
vinnuhreyfingin eigi málsvara innan
stjómmálaflokkanna. 1 hreyfingunni eru
menn úr öllum stjórnmálaflokkum. Ég held
að ástæðan fyrir þvi að margir framsókn-
armenn eru frammámenn i samvinnufé-
lögunum sé sú, að Framsóknarflokkurinn
hefur viljað styðja samvinnuhreyfinguna
meira en aðrir flokkar...
g teldi það æskilegt fyrir samvinnu-
hreyfinguna að hún ætti fleiri málsvara i
öðrum flokkum. Það mundi koma af sjálfu
sér ef aðrir flokkar sýndu hreyfingunni
meiri áhuga. Á sinum tima voru jafnaðar-
menn mjög framarlega i samvinnufélög-
unum á ísafirði og Hafnarfirði og eru það
að nokkru leyti ennþá. Samvinnustefnan og
jafnaðarstefnan eiga sin hugsjónatengsl.
Þá eru Alþýðubandalagsmenn ráðandi I
Kaupfélagi Reykjavikur og nágrennis.
Þessi tvö félög hafa sina menn i stjórn
Sambandsins. Hvað varðar dagblaðið
Timann, þá hefur hann i' gegnum árin stutt
samvinnuhreyfingua og oft verið málsvari
hennar...
að hefur sitt að segja fyrir samvinnu-
hreyfinguna aö £á inni i blöðunum. Nú orðið
er þó ríkjandi miklu mdra frelsi i þessum
málum en áður var og er það vel. Hvort
Framsóknarflokkurinn og Timinn séú
baggar á hreyfingunni, þá tel ég það fjarri.
Sambandið auglýsir i Timanum eins og
öðrum blööum og ef það væri eitthvað
meira að tiltölu en i öðrum blöðum, þá
kynni það að stafa af þvi,aö margir félags-
menn samvinnufélaganna Uti á lands-
byggðinni lesa Timann...
<Já, þú spyrð hvaða eiginleikum eftir-
maður minn þurfi að vera gæddur. En það
er erfitt fyrir mig að svara þvi. Og ekki
verður það ég, sem ákveð hver hann
verður. Ég geri ráð fyrir að þeir sem leita
hann uppi og ráða, kjósi og ráði góðan,
traustan mann. Hann þarf að vera viðsýnn
og góðum kostum búinn — en þaö gefur af
skilja að það er erfitt að svara þessu á ann-
an veg...
Ilvo
vort ég hafi lengi stefnt að læknis-
fræðinni sem ég talaðium i byrjun? — Nei.
Ég hafði ekki tækifæri til langskólanáms.
Ég byrjaði ungur að vinna.það var ekki um
lengra nám að ræða. Síðan hefur þetta
verið þannig, að ég hef ekki sóst eftir
störfum. Það hefur frekar verið leitað til
min. Ég sótti að visu um starf i Lands-
bankanum þegar ég var búinn með skóla
hér,enfrá þviþað var,hefurverið komið til
mfn...
í, ég les vitanlega mikið af bókum sem
snerta samvinnumál, erlendum. Ég reyni
að fylgjast með. En sannleikurinn er sá, að
þaðhefurekki gefist nógu mikill timi til að
stunda bóklestur. Ég fæ heilmikið af alls
konar timaritum um viðskiptamál. Ég
reyni að lesa þau. Nú, ég les auk þess jafm
an nokkrar bækur á hverju ári. En timini"
er knappur. Starfiðhefur setið i fyrirrúmi...
Já, ég las vist siðast bókina um Agnar
Kofoed Hansen. Ég las nokkrar af jólabók-
unum, en ég held að þessa hafi ég lesið
siðast. Ég las lika fyrir nokkru bókina
hennarShirley Williams og hafði gaman af
að lesa hana. Hún er ein þessara fjögurra
sem eru I forystu þeirra sem eru að stofna
sósialdemókratiska flokkinn I Bretlandi.
g held að það megi segja já, aö ég sé
sósialdemókrati, en hins vegar hef ég
sterkar tilfinningar fyrir þvi að rekstur
þurfiaðganga og rekstur fyrirtækja geng-
ur ekki af hugsjónum einum. Hugsjónir eru
ágætt eldsneyti i byrjun, en duga ekki
alfarið til aö reka fyrirtæki. Þar þarf margt
fleira til. Það má segja aö st jórnun sé orðin
visindagrein...
vort ég sé farinn að hlakka til að losna
úr forstjórastólnum?
Sattað segja hefég ekki hugsað mikið um
það ennþá. Ég er ekki nema rétt sextugur.
En vinnudagurinn er að sjálfsögðu talsvert
langur i svona starfi. En ég er ennþá hress
og hef vigamóð...
að hefur ekki farið mikið fyrir tóm-
stundastörfum hjá mér. Það hefur löngum
oröið litiðúr sumarleyfum eftir að til Sam-
bandsins kom. Ég reyni þó að komast á
hverju ári austur i Landbrot að veiða sjó-
birting. Það má segja að það sé min eina
tómstundaiðja. Við eigum þar afdrep hjón-
in. Þar er fallegt land og gaman aö geta
komist þangað. En undanfarin ár hefur það
verið rétt um helgarnar...
g hef gaman af veiðiskap. Ég er upp-
alinn viö að fara i veiði, veiða fugl og fara á
sjó. Ég byrjaði ungur að veiða sjóbirting
þarna austur i Vik...
ónlistin hefur smám saman orðið helsta
tómstundagamanið. Ég hlusta mikið á si-
gilda tónBst. Við eigum gott plötusafn. Og
góð hljómflutningstæki.Og við förum mikið
á tónleika...
aður hefur andað I takt við starfið hér
hjá Sambandinu og þvi ekki gefist mikill
timi til fristundaiðjunnar. Það hefur verið
ævintýri að standa i þessu...
aktjaldapólitik og klikumyndun kring-
um forstjórastólinn spyrðu?
Ég held að þaö hafi nú ekki verið hérna
hjá okkur I Sambandinu. Við höfum verið
blessunarlega lausir við slikt. Þegar ég tók
hér við, þá var ég ungur mMiur og þá voru
hérmenn iframkvæmdastjórastöðum, sem
voru eldri en ég. Þegar ég lit yfir farinn
veg, finnst mér að mér hafi tekist að ná
góðri samstöðu við þá nokkuð fljótt.
Það hefur verið góð samstaða meðal
framkvæmdastjórnar Sambandsins. Við
erum samstarfsmenn, en við erum lika
vinir. Ég held við höfum verið lausir viö
„klikur” — og valdabaráttu. Mér finnst
það.... það hefur ekki verið mikið um það
hér... kannski ekkert...
l-g hef gert mér grein fyrir þvi, að það er
þýðingarmikið að hér hjá Sambandinu riki
hóphugarfar og að menn starfi saman.
„Teamwork” segir maður á útlenskunni.
Framkvæmdastjórar hér hafa sjálfir
fengið að taka ákvarðanir. Það hefur verið
reynt að byggja þá upp. Telja kjark i menn
og ekki vera með nefið of mikið i störfum
annarra.
Nei, ég hef aldrei sóst eftir frama I
stjórnmálum og hefi ekki látið stjórnmála-
skoðanir minar hafa áhrif á samstarf við
samvinnumenn I kaupfélögunum. Mitt
starf hefúr snúist um það að reyna að efla
samvinnustarfið ilandinu og ég hefi átt gott
samstarf við menn úr hinum ýmsu stjórn-
málaflokkum .samstarf til þess að vinna að
ýmsum framfaramálum og hrinda I fram-
kvæmd uppbyggingu á ýmsum sviðum.
Foréldrar minir höföu mikinn áhuga á
málefnum samvinnufélaganna, þegar ég
var að slita bamsskónum. Ég tel mig
fæddan inn I samvinnuhreyfinguna og þætti
vænt um að mega enda minn starfstima
þar...
...íq hdfl hah sé ohxtt að stflla það
Föstudagur 19. febrúar 1982 helgarpÓ^furínn
Jielgarpósturinnll
Föstudagur 19. febrúar 1982
Samband íslenskra samvinnufélaga var stofnað fyrir réttum áttatíu
árum, eða þann 20 febrúar 1902.
Stofnendur voru aðstandendur þriggja lítilla kaupfélaga og hafði S(S
lítið umleikis í fyrstu, einkum ef við lítum til starfsemi þess á okkar tíð,
áttatfu árum seinna.
Á árunum 1915-20 tók Sambandið hinsvegar að sér alhliða inn- og út-
f lutningsverslun og þar með varð S(S í reynd að þeim viðskipta jöfri sem
síðan hef ur blásið út og er núorðinn marghöfða.
Frá árinu 1915, er Hallgrímur Kristinsson tók við stjórnartaumum
Sambandsins, hafa f orstjórar þess ekki verið margir. Sigurður Kristins-
son tók við af Hallgrími 1923 og gegndi forstjórastarf i til 1946 að Vil-
hjálmur Þór tók við. Vilhjálmur Þór lét af starfi í ársiok 1954 og síðan
um áramót 54/55 hefur Erlendur Einarsson vermt forstjórastólinn, ríkt
á efstu hæð Sambandshússins við Sölvhólsgötu.
Erlendur var ungur maður, þegar honum bauðst forstjórastarfið.
Hann var aðeins 33 ára en hafði verið framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga frá stofnun þess fyrirtækis árið 1946. Erlendur er því marg-
reyndur f störfum fyrir samvinnuhreyfinguna og „reynslutíma" hans
fyrir löngu lokið. En þótt hann haf i verið stjórnandi SfS í næstum 40 ár,
ef árin hjá Samvinnutryggingum eru talin með, þá virðist maðurinn
síður en svo vera á förum f rá þessu volduga viðskiptasambandi.
demðKrati..