Helgarpósturinn - 19.02.1982, Qupperneq 17
he/garpústurinn
Fostudagur 19. febrúár 1'9B2‘
17
Eigi deilir litur kosti
kvaö vera spakmæli aftan
úr forneskju og þyöa aö
mannkostir ráöist ekki af
útliti. Sem sannast á mörg-
um Bretum, sem eru miklu
ljúfari i viökynningu en
hvaö þeir eru fallegir.
Stórborg er upplagður
staður til að sjá aldeilis
aragrúa af fólki. Ótal til-
efni til aö vera i fjölmenni
og ös, að sjá helst aldrei
sama andlitið tvisvar. Og
það er að vissu leyti gaman
að góna á allt þetta fólk.
Nóg er ég nú búinn að góna
til að fullyrða að ekki eru
Englendingar upp og ofan
gefið út myndapésa með
heilli opnu af litprentuðum
stuttpilsamyndum — það
var á þeim árum — og þann
fróðleik með að Reykjavik
sé ,,the ideal place for girl-
watching”, hinn eini sanni
staður að gaumgæfa stúlk-
ur. Sem var að visu
hneykslanlegt, ekki af þvi
það sé ekki satt, heldur eru
bara strákar i Reykjavik
lika mjög glæsilegt fólk.
Cg meina svona aö
meðaltali eöa drjúgur slatti
af þeim.Það eruauðvitaðtil
Lundúnapóstur frá Helga Skúla Kjartanssyni
neitt likt þvi jafn-fallegir
og við Islendingar. Enda er
sko litið upp þegar maður
birtist með fallega islenska
barnið sitt,ég tala nú ekki
um ef fallega islenska
mamma þess er með i för-
inni. Hér getur maður t.d.
hitt fyrir heilu hópana af
unglingum án þess að
nokkur þeirra sé verulegt
augnayndi. Þaö er þó mun-
ur eöa á Islandi. Það rif jast
upp fyrir mér eldgamalt
bla ðarifrildi sem spratt af
því aö einhver landkynn-
ingarstofnunin heima hafði
bráðfallegir Englendingar
einsogvið þekkjum úr bió.
Eða bara af drottningar-
fjölskyldunni: Filippus
hertogi, tengdadóttir hans
og yngsti sonur.
Og svo eru Bretar núna
orðnir svoddan kynþátta-
blanda: það er gamaldags
og nærri því dónalegt að
tala um Englendinga og
meina bara þessa venju-
legu hvítu. Hér eru í stór-
um stil innflytjendur eða
afkomendur þeirra, af alls
konar litbrigðum. Kannski
ekki svo mjög Indianar. En
allt hittsvart, gult og ýmis-
lega brúnt. Og puntar nú aö
sumu leyti upp á útlit
landsmanna. Sérstaklega
kvenþjóðarinnar, þvi að
flestar þessar þjóðir,
a.m.k. Asiubúarnir, eru
fingerðari en við og minni á
velliog verða það þá frem-
ur konur en karlar sem
passa viö okkar fegurðar-
hugsjón. Sláandi fallegir
karlmenn hér eru oftast
svertingjar af þvi lima-
langa og hnarreista kyni
sem runnið mun frá
Austur-Afriku. Og vantar
svo sem ekki að samsvar-
andi konur séu oft fallegar
lika og ekki siður krakkar.
En horaðir unglingar með
þessu limalagi geta gert sig
slánalegri en allt sem
slánalegt er á tslandi; það
eldist þó af þeim.
fr^etta var nú um útlitið.
En innrætiði eða kannski
uppeldið, það þurfa gamal-
dags hvitir Englendingar
ekki að skammast sin fyrir.
Kurteisara fólk hef ég
aldrei hitt. Ég er margbú-
inn að fara þar inn sem ég
átti ekkert erindi, bara af
þvi aö einhver var búinn aö
halda svo lengi opnu fyrir
mig. t kuldum stafar voða-
legur trekkur af þvi hvað
fólk er alltaf að halda hurð,
en þaö finnst öllum sjálf-
sagt og gera þaö af frá-
bærri ljúfmennsku. Eða sú
selskaps iþrótt sem
mjólkurpósturinn og al-
vörupósturinn leggja i aö
þekkja alla i si'num götum,
heilsa ljúflega, bauna á
mann á hlaupunum ein-
hverjum huggulegum smá-
athugasemdum. Og sú
fræga biöraðamenning.
Englendingar sjálfir hafa
þó þá óþægilegu tilfinningu
að þeir séu að týna niður
kurteisinni. Þeim finnst
það ógnarleg afturför hvað
tillitssemií umferðinni hafi
minnkað og ekki siður hvaö
fólk sé fariö að brjótast út
úr biðröðum. Til dæmis
þeir sem biöa eftir strætó.
Hér er áætlunum strætis-
vagna að mestu haldið
leyndum.Sem erskynsam-
legt, því að flestar strætis-
vagnaleiðir eru langar,
liggja að hluta um fjölfarna
borgarhluta, oftsjálfa mið-
borgina,og gatnakerfið hér
er svo ofhlaöiö langar
stundir dagsins að enginn
vegur er að halda áætlun.
Algengt er aö vagnar gangi
á tiu minútna fresti, jafnvel
þéttar á annatimum, en
samtbiöur maður iðulega I
hálftima og meir meðan
heil strolla af vögnum situr
föst i sama umferðar-
hnútnum. Þá stendur fólk
nokkuö fast i sinum biðröð-
um. En þegar vagn loksins
kemur og li'tur út fyrir aö
vera þéttsetinn, þá rofnar
röðin. Því aö strætisvagna-
kerfið er líka ofhlaðið eins
og gatnakerfið og manni er
oft visað frá, jafnvel trekk i
trekk, þvi að strætisvagnar
hérerueins og vinveitinga-
staðirheima að telja inn og
segja svo bara stopp. Þá er
sem sagt of mikið i húfi til
aö biðraðamenningin
haldi: og eins má vist
tengja frekju margra i um-
feröinni við þaö aö kurteis
maður má búast við töfum
svo klukkutimum skipti.
Svo má brýna deigt járn að
biti, og það er erfiðara aö
temja sér kurteisi og þolin-
mæöi þegar svona ann-
markar i umhverfinu eru
sifellt aö brýna mann.
Dýpkandi efnahagskreppa
i landinu er aö vissu leyti
prófraun á það hve mikið
má leggja á inngróna
kurteisi þessarar þjóðar.
Eignarréttur á
og skoteldar
ttalir barma sér mikið
ýfir páfa sinum þessa dag-
ana. Hann talar ekki um
annaö en Pólland og aftur
Pólland, segja þessir gest-
gjafar hans. Páfi hefur þótt
verða æ póiskari með
hverju árinu og aldrei
pólskari en nú um jólin og
áramótin. ttalir eru miður
sin. Ættjarðarást páfa tek-
ur jafnvel fram þeirra eig-
in. ..Biðiið fyrir Ættiandi
kan, góðan daginn), blaða-
útgáfu (L’Osservatore), og
tveimur friverslunum (það
er ekkert leyndarmál að
bæöi lögreglu- og klerka-
stétt utan múra er útdeilt
þaðan tollfrjáisum siga-
rettum), þá spannar starf-
semi þess vitaskuld langt
út fyrir rikismúrana. Banki
heilags anda (Banco di
Santo Spirito) og Banki
heilagrar guðsmóður
’ C*i.TEl.tO Oi
Rómarpóstur frá Auði Ölafsdóttur
minu”, hljóðaði jólaboð-
skapur páfa að þessu sinni
til ftöslsku þjóðarinnar,
eins og það hefði alveg far-
ið fram hjá honum að it-
alska stjórnin rétt lafði,
einu sinni enn, og brauðið
hækkaði hálfsmánaðar-
lega.
Það var ttölum veru-
legt áfall fyrir rúmum
þremur árum þegar kosinn
var útlenskur páfi til rikis i
miðri Róm, — slfkt hafði
ekki gerstsiðaná 16. ö ld að
þeir ættu ekki páfa sinn
sjálfir. Rúmlega fimmtug-
ur kommúnisti að austan
var orðinn forstjóri Vati-
kansins, fjörutiu og fjög-
urra hektara viggirtrar
spildu fyrir aftan Péturs-
kirkjuna með um 750 ibúa
(sem flestir eru karlkyns-
þjónar kirkjunnar) og and-
legur faðir 750 milljóna ka-
þólikka um allan heim.
Þótt Vatikaniðsé sjáifstætt
riki með eigin myntsláttu
(100 páfalirur = 100 italsk-
ar lirur), frimerkjaútgáfu,
útvarpsstöö (Útvarp Vati-
(Banco di Santa Maria),.
sem drottna yfir öðru
hverju götuhorni i Róm,
eru eitt af þvi sem ber
vitni blómlegum rekstri
páfarikis. Sá rekstur verð-
ur þó ekki blómlegur nema
með velviljuðum nágrönn-
um. Þvi var það, fljótlega
eftirað til rilds kom Karol
Wojtyla hinn pólski, alias
Giovanni Paolo annar, að
berasttóku yfirlýsingar frá
Vatikaninu þess efnis að
Wojtyla páfi væri hinn
mesti aðdáandi þeirra Leo-
nardo og Michelangelo og
að honum þætti italskan
með fegurstu tungum. Tal-
aði reyndar ágæta itölsku
sjálfur (með latneskum
hreim). Þá spurðist það
ennfremur út að Wojtyla
páfi hefði mikið dálæti á
italskri matargerð - ekki
hvað sist á spaghettí — og
pastarettum, og væri
hvorutveggja barngóður og
Ijóðelskur. Og um tima leit
svodtsem ttalirværu aftur
farnir að elska sinn páfa,
sem innfæddur væri. Plötur
og kassettur með mennta-
páfa
skólaljóöum Wojtyla páfa
(platónsk ástarljóö og nátt-
úrustemmningar) runnu út
eins og heitar lummur.
Sömuleiöis leikrit sem
hann haföi samið i æsku,
meðan hann ætlaöi sér að
verða listamaöur og leikari
og áður en máttarvöldin
gripu i taumana og beindu
honum á rétta lifshiDu.
ítalir töluðu um lista-
mannspáfann sinn og sum-
ir um leikarapáfa. Það fa-
heldur ekki milli mála að
Wojtyla páfi hefur haft
meiri unun af þvi að vera i
sviðsljósinu heldur en fyr-
irrennarar hans siöast liðin
nokkur hundruð ár. Leik-
arahæfileikar hans þykja
lika njóta sin ágætlega i
embætönu. Wojtyla páfi
var ekki búinn að sitja
nema daglangt i embætti
sinu þegar spurðist til hans
akandi um götur Rómar
ásamt li'fvarðasveit sinni
og nokkrum sjónvarpsbil-
um. Siðan hefur páfi farið
viða, svo sem kunnugt er.
Framan af, meðan hann
var ekki eins áberandi
pólskur, ferðaðist hann vitt
og breitt um ttaliu og átti
það jafnvel til að birtast
skyndilega i einkaþyrlu
sinni i afskekktustu fjalla-
þorpum og blessa þar
byggð og kyssa börn og
gamalmenni. ttalir kalla
hann alþýðlegan páfa.
A.m.k. er Wojtyla páfi tal-
innhafakysstfleiri börn og
konur á sinum stutta ferli
heldur en fyrirrennarar
hans samanlagt um nokkur
hundruð ár. Vilja sumir
túDía það sem vott um
frjálslyndissveiflu hjá ka-
þólsku kirkjunni^ aðrir
teljaframtak páfa sprottið
af þörf fyrir persónulega
aðdáun og enn aðrir telja
það af öðrum toga spunnið.
öðru hvoru hefur ltölum
gefist sérstakt tækifæri til
að rifja það upp að páfi
væri af útlendum ættum.
Svo var t.d. þegar hann tók
upp á þvi að reisa sér
þriggja milljarða lfra
einkasundlaug og stuttu
siðar tvo einkatennisvelli
við eittaf sveitasetrum si'n-
um rétt sunnan við Róm.
Eftir skotárás Tyrkj-
ans á páfa f fyrravor hefur
minna farið fyrir alþýð-
leika páfa. Þannig var mið-
næturmessa Wojtylapáfa í
Péturskirkju þessi jól i
fyrsta skipti ekki ætluð al-
menningi. Aðeins þeir sem
höfðu boðsmiða fengu inn-
göngu gegnum fimmfalt
öryggisnet li'fvarðarsveitar
Vatikansins og lögreglu.
Þingið i kjól og hvitu og
frúr i pels höfðu brúna
boðsmiða og sáu þar af
leiðandi framan i páfa við
háaltarið (fyrir miðri
Péturskirkju yfir gröf Pét-
urs postula), grænir miðar
sáu vangasvip páfa og gulir
aftan á. Popullinn mátti éta
það sem úti fraus (það var
logn og bliða). Það er
reyndar ekki alveg sann-
leikanum samkvæmt, þvi
suðandi sjónvarpsvélar
upp um alla veggi f Péturs-
kirkjunni og inn um pietur
og Mariumyndir, ásamt
fljóðljósum sem lýstu upp
sviðið, sáu til þess að flytja
páfa og boðskap hans inn i
stofu tU almúga.
En þótt ítalir hafi
margir setið heima á jóla-
kvöld,gegndi ekki sama
máli um Sánkti-Silvestro-
dag, eins og ttalir nefna
siðasta dag ársins hjá sér,
eftir heilögum Silvestro
sem páfi var i Róm ein-
hvern timann á fjórðu öld.
Gamlaársdagur er einhver
mesti hátiðisdagur ársins
og tekur jólum langtum
.fram hjá öllum þorra ttala.
Veitingahús eru troðfull og
dansað er á götum úti.
Sánkti-Silvestro-dagur er
sömuleiðis einhver mesti
slysadagur ársins, sem
stafar ekki hvað sist af
þeim þjóðlega sið inn-
fæddra að losa sig við alls
kyns gamalt drasl ut um
glugga hjá sér niður á götu.
Skiptir þá engu máli hvort
viðkomandi hankalausir
bollar, stólsetur og dúkku-
hausar tilheyra fimmtu
hæð eða þeirri fyrstu. A
siöasta ári voru sett ný lög
sem eiga að miða að þvi að
takmarka útkast á hlutum
eins og gömlum isskápum
cg kommóðum og draga
þannig úr slysahættu.
Sánkti-Silvestro-dagur er
lengi i undirbúningi. Smá-
pollar á Tjarnarborgar-
aldri eru farnir að bjástra
með púður i dollu i skotum
bak við bila löngu fyrir jól
og þegar liður á desember
eru sprengjuhvellir á göt-
um úti orðnir verulega tið-
ir.Flestirerukomnir langt
með flugeldabirgöir sinar
fyrir gamlaársdag. ttalir
eiga sér enn einn þjóðlega
siðinn sem tengist miönætti
ál.desember. Þegar klukk-
an slær tólf á miðnætti
dregur heim ilisfaöirinn
upp úr pússi sinu fjörutiu
ára gamla byssu siðan i
striðinu, og hleypir af skoti
eða skotum út um gluggann
til heiðurs nýju ári. 1 ár
greindu blöðin frá niu látn-
um og nokkrum tugum
særðra fórnarlamba þessa
heimilissiðar. Venjulega
var það einhver úr fjöl-
skyldunni á móti sem varð
fyrir skotinu, stundum lika
frænka sem stóð úti á svöl-
um.