Helgarpósturinn - 19.02.1982, Blaðsíða 25
Fiðlunámið
krefjandi
Þá er komið aö fiölunni. Stuö-
arinn fékk Geröi Gunnarsdóttur
til að segja okkur eilítiö um fiöl-
una og við gefum henni orðið.
„Fiðlan á sér langa þróunar-
sögu eins og vænta má. Fyrr á
öldum voru til ýmiss konar
strengjahljóðfæri sem leikiðvar
á með boga og á sumum þeirra
var haldið eins og á fiðlu. 1
kringum 1520 var farið að smiða
þriggja strengja fiðlu á Norður
Italiu og nokkru seinna ca. 1550
bættist fjórði strengurinn við.
Fiðlan hélst si'ðan svo til óbreytt
i u.þ.b. 300 ár eða allt fram á
daga J.S. Bachs. Uppúr þvi má
segja að það hafi orðið þáttaskil
i sögu fiðluimar. Fiðlusmiðir
hófu að smiða sterkari og
hljómmeiri fiðlur og breyttu
jafnframtgömlum fiðlum til að
ná fram þessum eiginleikum.
Mjög snemma i þróunarsögu
fiðlunnar komu í ljós frábærir
fiðlusmiöir. A ítah'u eru þekkt-
ustu nöfnin Amati, Guameri og
Stradivari, i Austurriki Stainer
og i Frakklandi Lupot.”
— Hverjir eru helstu fiðluleik-
ararnir?
„Einn fyrsti fiölusnillingurinn
var ítalinn Biagio Marini en
hann var jafnf ram t einn af þeim
fyrstu til aö semja tónlist sem
féll að eiginleikum fiðlunnar,
(idiomatic music). Fiðluleikur
þróaðist á Italiu með tónlist
þeirra Marini,Legrenzi, Merula
og fleiri, en breiddist Siðan út til
Austurríkis, Þýskalands,
Frakklands og viðar. Ekki má
heldur gleyma italska fiðlusnill-
ingnum Corelli. Og ef við færum
okkurnærokkar dögum þá er af
mörgu að taka, t.d. Heifetz,
Schering, Oistrach, Menuhin,
Zuckerman og Perlman.”
— Hvaða möguleikar eru að
læra á fiðluna?
„Að þvi er ég best veit er
kennt á fiðlu i' öllum tónskólum
hér á Stór-Reykjavikursvæðinu
og i imjög mörgum tónskólum
úti á landi, en hér er enginn
skóli á háskólastigisvo þeir sem
hafa hug á framhaldsnámi
verða allir aðleita út fyrir land-
steinana og þaö er oftast nær
mjög kostnaðarsamt nám.”
— Er þetta erfitt nám?
„Já, bæði erfitt og langt nám
Ég er búin að læra i 10 ár og
finnst ég rétt að byrja. Þetta er
ekki nám sem tekur einhvern
ákveðinn árafjölda og eftir það
útskrifast maður. Maður er
aldrei búinnað læra á fiðlu, en
það er nú lika reyndin i svo fjöl-
mörgu öðru.
— Er eitthvað sérlega mikil-
vægtifiðlunáminu?
„Ja, það er nú kannski erfitt
að draga einn hlut framyfir
annan en ég mundi segja að
samspil væri mjög mikilvægur
þáttur i fiðlunáminu, bæði i
kammermúsik og hljómsveitar-
spili. Það er visshlutiaf náminu
að læra aö vinna með öðrum og
kynnast vinnubrögðum ann-
arra.”
— Er fiölunámið skemmti-
legt?
„Þetta er ákaflega krefjandi
nám en gefur manni lika alveg
gífurlega mikiö. Ég held að
skemmtilegt sé kannski ekki
alveg rétta oröiö en þó getur
þetta oft verið mjög skemmti-
legt í eiginlegri merkingu orös-
ins. En það er sama sagan meö
þetta og allt annað sem maður
tekur sér fyrir hendur að það er
gaman ef vel gengur.”
— Og hver er ekki sammála
þvi? Viö þökkum Gerði kærlega
fyrirupplýsingarnarog spjalliö.
PÓSTUR OG SÍMI
lAldrei heyrt í eins frá-
bærri hliómsveit!
Ég heyrði i hljómsveitinni
EGÓ niðri á Lækjartorgi um
daginn og ég hef aldrei á ævi
minni heyrt i eins frábærri
hljómsveit. Þeir sögðust vera að
fara i plötuupptöku svo mig
langar að vita hvað liður á löngu
þar til platan kemur út. Ég get
varla beðið eftir henni. Hvar er
hægt að fá brjóstnælu meö
EGÓ? Ég er búin að spyrja i
öllum búðum en fæ hana hvergi,
samt hef ég séð suma með
svona nælu.
Ég skil ekki afhverju Þóra og
Ella segja i síðasta Stuðara að
EGÓ séu tilfinningalega bækl-
aðir. Mér finnst að þær verði að
rökstyðja svona skitkast.
Getiði ekki kynnt góðar út-
lendar hljómsveitir? Það er svo
margt sem mig langar aö vita
um CLASH. Ég á allar plöt-
urnar þeirra og lika plötur sem
þeir búa til meö öðrum eins og
Ellen Foley og Ian Hunter. Mig
langar að vita hvaða fleiri
plötur þeir hafa gert með öðr-
um. Ég hef heyrt að það sé til
Kántrý plata með lögum eftir þá
og að þeir hafi hjálpað enskri
symfóniu hljómsveit. Viljiö þiö
1 skrifa allt um CLASH sem þið
Utanáskriftin er:
Stuöarinn
do Helgarpósturinn
Síðumula 11
105 Reykjavík
Sími: 81866
vitið. Mér finnst CLASH og EGÓ
vera bestu hljómsveitir í heim-
inum. Svava
Hæ Svava!
Við hringdum i Bubba EGÓ-
kappa og spurðum hann um allt
sem þig langar að vita. Hann
gat ekki sagt nákvæmlega
hvenær platan kemur út, þaö
getur verið fljótlega en það
getur lika dregist fram i júni,
það veltur allt á útgáfufyrir-
tækinu. Það er ekki búiö að
ákveða hvort þaö verður plakat
með plötunni en það verða alla-
vega einhverjar myndir. EGO
menn létu búa tii brjóstnælur
fyrir sig og eru bara meö þær
heima enn sem komiö er en ætla
kannski að setja þær I búöir.
Viö hringdum lika I tónlista-
sérfræðing okkar og fengum
allar upplýsingar sem hann gat
krækt I um CLASH.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1976 af Mick Jones. Arið eftir
fóru Clash og Six Pistols i svo-
kallaö anarkihljómleikaferða-
lag um England og vöktu alls-
staðar mikla eftirtekt. Eftir
þessa ferð varð Clash ein helsta
pönkhljómsveit Englands. Nú á
seinni timum hafa Clash hins-
vegar veriö ásakaöir um aö
hafa svikið pönk „hugsjónina”,
með þvi að hafa gert samning
við stórútgáfufyrirtækið C.B.S.
Núverandi meölimir Clash
eru: Mick Jones (sambýlis-
maöur Ellen Foley) á gitar, Joe
Strummer (John Mellor) gitar
og söngur, Paul Simonon á
bassa og Terry Crimes
(Chimes) á trommur. Og plötur
þeirra: The Clash 77, Giv’en
enough rope 78, London calling
Æskan 83 ára
Nýjasta tölublað
Æskunnar sem nú er 83 ára
barst í hendur okkar Stuð-
kvenna um daginn. Æskan
hefur tekið upp þá ný-
breytni að fjalla töluvert
mikið um popptónlist með
það fyrir augum að ná bet-
ur til unglinga. — Að öðru
leyti hefur blaðið lítið
breyst. AAeginefni er
fræðslu og sögu- og mynd-
efni fyrir börn.
Æskan mætti breytast
töluvert meira ef hún vildi
ná tii unglinga að ein-
hverju ráði og væri þá
kannski ekki úr vegi að
leggja niður predikunar-
tóninn.
(tvöfalt) 79 og Sandinista
plötur) 80.
Mick Jones og Joe Strummer
hafa spilað inná eina plötu meö
E. Foley og Mick Jones á plötu
með I. Hunter. M. Jones hefur
spilaö meö Synfóniuhljómsveit
Lundúna en llklega er ekki P
nein upptaka af þvi. Clash halaa
nú til i USA en ekkert hefur
heyrst frá þeim siðan 6980. Sér-
fræðingur okkar hefur ekki
VY
heyrt aö til sé nein kántrý plata
með þeim. En Clash stefna að
þvi aö gefa út plötu á þessu ári.
Still þeirra hefur breyst töiuvert
frá þvi sem hann var en nú spila
þeir helst rokk og raggý.
Vertu vandlátur
á brauðið þitt.
Þaó emm vió.
SAMSOLIJ
BRAIJÐ