Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 9
/slendingum er boöiö upp á
3.134.435
happdrœttismiöa á hverju ári.
Paö jafngildir því aö hver
íslendingur eigi kost á þrettán
lotterísmiöum á ári.
ákvæðum og eru nefndar krónutölur þar um
sem eins og gefur að skilja eru löngu úreltar.
Þegar komið er inn fyrir dyr dómsmála-
ráðuneytisins kemur í ljós að engin skýr
ákvæði eru til um það á plaggi hvaða aðilum
megi veita heimild til að reka happdrætti, og
hverjum ekki. Skilyrði fyrir leyfisveiting-
unni eru heldur ekki skýr, þar sem þeim hef-
ur aldrei verið staflað upp í reglugerð.
Samkvæmt upplýsingum sem HP leitaði
sér hjá Ólafi Walter Stefánssyni, skrifstofu-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu, er það aðeins
„vinnuregla sem erfst hefur milli starfs-
manna", sem sker úr um leyfisveitingar þeg-
ar umsóknir um rekstur happdrættis eru
metnar.
„Hér í ráðuneytinu hefur skapast áralöng
hefð um það hvaða skilyrðum þurfi að full-
nægja til að stofnsetja happdrætti. Út frá
þessari hefð vinnum við," segir Ólafur.
Og „hefð" ráðuneytisins er í stórum drátt-
um þessi: í fyrsta lagi þarf umsækjandi að
fullnægja því skilyrði að hann ætli með fyrir-
huguðu happdrætti sínu að afla fjár til góð-
gerðar—, líknar- eða menningarmál, íþrótta-
eða stjórnmálafélags, svo og sem sú hefð
hefur myndast að útskriftarnemar fram-
haldsskóla mega reka fjáröflunarhappdrætti
til félagsmála sinna. — Fjöldi númera í happ-
drættinu skal miðast við miðaverð annars-
vegar og upphæð vinninga hinsvegar og
mega vinningslíkurnar ekki vera minni en
einn á móti sex. — Vinningar mega ekki
greiðast í peningum, sem HHÍ hefur einka-
leyfi á. — Fulltrúi sýsiumanns skal vera við-
staddur drátt vinninga og skulu þeir vera
auglýstir fljótlega eftir að dregið hefur verið,
að minnsta kosti í Lögbirtingablaðinu. —
Þetta er
„vinnuregla" ráðuneytisins og með hana að
leiðarljósi í leyfisveitingum hefur það gerst
nokkrum sinnum að aðilum hefur verið synj-
að um rekstur happdrættis. „Þetta hafa þá
verið atvinnufyrirtæki eða bísnesskallar úti
í bæ sem séð hafa í happdrættinu skjóta
gróðaleið. í þessum leyfisveitingum er það
nefnilega alltaf helsta spurningin sem við
spyrjum okkur, hvort tilgangurinn helgi
meðalið," segir Ólafur Walter í dómsmála-
ráðuneytinu.
Þorkell Gíslason, fulltrúi hjá borgarfógeta,
sem hefur þann starfa að fylgjast með drætti
allra lottería í Reykjavík, svo og Ólafur
Walter, segjast ekki geta nefnt ákveðin
dæmi um misnotkun happdrætta. Ellegar að
nokkur vafaatriði hafi skotið upp kollinum í
þessu efni.
Heimildir HP vísa þó til annars og verður
eitt dæmi nefnt hér á eftir.
Á Vörusýningunni 1979 var sá háttur
hafður á að happdrætti var innifalið í inn-
göngumiðaverðinu. Hver miði var sérstak-
lega númeraður og skyldi draga út nokkra
glæsta vinninga síðasta dag sýningarinnar.
Því hafði hinsvegar verið komið þannig fyrir
að vinningar happdrættisins höfðu verið
dregnir út „fyrirfram" og seldust vinnings-
númerin því aldrei. Starfsstúlka í miðasöl-
unni varð þessa vör. Þeir miðar sem hún var
að selja í miðasölunni voru allir númeraðir í
réttri röð að öðru leyti en því að nokkur
númer vantaði í miðabunkann. Starfsstúlk-
an iét valda menn vita af þessu, enda fannst
henni þetta í meira lagi dularfullt. Þeir komu
boðum áleiðis til blaðamanns sem rann-
sakaði þetta mál og varð úr þessu talsvert
blaðamál á sínum tíma. Það var hinsvegar
fljótlega þaggað niður af áhrifamönnum sem
áttu hagsmuna að gæta á Vörusýningunni,
jafnframt því sem þeir áttu innangengt í
blaðaheiminn. En ekki fór frekari sögum af
vinningum þessa „happdrættis", „sem lík-
lega hafa aldrei verið keyptir, hvað þá
meira", eins og einn heimildamaður HP orð-
ar það.
Állskonar vinningaplott hafa einnegin
verið í gangi á íslenska happdrættis-
markaðnum. Þekkt eru dæmi frá ýmsum
félögum sem gefið hafa út tugþúsundir miða
í krafti rándýrrar bifreiðar sem aðalvinn-
ings. Fáein þúsund miða seljast hinsvegar og
þannig er þess freistað að félagið sitji uppi
með dýrasta vinninginn í lok dráttar, þar
sem dregið er úr öllum útgefnum miðum.
Þess eru dæmi að íþróttafélög hafa verið
með sama bílinn að aðalvinningi allt að þrjú
ár í röð, enda hafi happdrættið sjálft fengið
hann í vinning öll árin þar á undan. Með
þessu móti er hægt að spara vinningakaup
svo um munar!
Frægasta dæmið hvað þessu vinninga-
plotti viðvíkur er þó sjálfsagt happdrætti
SÁÁ frá síðasta ári. Tíu glæsilegar bifreiðar
voru til vinnings, en fæstir kaupendur mið-
anna hafa sjálfsagt velt því fyrir sér að út-
gefnir miðar samsvöruðu hartnær íbúa-
fjölda þjóðarinnar. Engin von var um að svo
mikið sem sjöund miðanna seldist og þess
voru forráðamenn happdrættisins með-
vitaðir. En með því að draga úr öllum út-
gefnum miðum freistuðu þeir þess að sem
fæstir bílar færu frá þJ.m. Það kom enda á
daginn að þeir sátuoippi með níu af þessum
tíu glæsilegu bifreiðum sem í boði voru.
I þessu vinningaplotti er vissulega um tölu-
verða áhættu að ræða þar sem tölfræðilegar
líkur eru á að seldir miðar dekki öll vinnings-
númerin. En líkurnar
á að svo fari minnka vitanlega eftir því sem
bilið milli seldra miða og útgefinna breikkar.
Þetta vita þeir sem við happdrætti fást — og
greinilegt er að áhættan er þess virði svo
sem dæmin hér að framan sýna glögglega.
Engar tölur
eru til um það hve margir fslendingar spili
árlega í happdrættum, ellegar hvað hver
þeirra sem á annað borð spilar í þeim, kaupir
að jafnaði marga miða á sama tíma. Fróðlegt
væri að nákvæm skoðanakönnun færi fram
á því. Hitt er næsta víst að hvergi í heiminum
starfa jafn mörg happdrætti miðað við fólks-
fjölda. Þau eru eitt á hver tvö þúsund manns.
Miðafjöldinn sem rignir yfir þjóðina á sér
heldur varla hliðstæðu á öðru byggðu bóli.
Mað það í huga er auðvelt að útnefna íslend-
inga mestu happdrættisþjóð heims.
Landinn er lotteríssjúkur!
■■ ■ ■
HELGARPÓSTURINN 9
Arkitektar - Verkfræðingar - Byggingameistarar - Húseigendur
*
Á ÍSLAIMDI
EEIIIEI1TR m abSviþjóA
er eitt elsta fyrirtækið í Evrópu með þessa nýjung.
Allar upplýsingar gefur Gunnar F.E. Magnússon múrari í síma 20623 kl.
12-13 og 18-22.
1. Cementa gólfílagningarefni sem stenst allar þær gæðakröfur er til
þarf í íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum.
2. Með þessu efni þurfa múrarar ekki að bogra við að strauja gólf eða
að skríða á fjórum fótum við að pússa þau.
3. Fljótandi efni sem leggur sig sjálft og verður algjörlega lárétt
(spegilslétt).
4. Mun ódýrara en gamla aðferðin.
5. Þornar á 24 tímum.
6. Fyrir ný sem gömul gólf (getum rétt af gólf allt út í 1 mm).
7. Hagstæðir greiðsluskilmálar á efni og vinnu. Dæmi: Þú greiðir 30%
út og eftirstöðvar á allt að 6 mánuðum.