Helgarpósturinn - 19.01.1984, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 19.01.1984, Blaðsíða 10
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Árni Þórarinsson og Ingólfur Margeirsson Ritstjórnarf ulttrúi: Haligrlmur Thorsteinsson Blaöamenn: Egill Helgason og Sigmundur Ernir Rúnarsson Útlit: Björr. Br. Björnsson,' Björgvin Ólafsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Hildur Finnsdóttir Útgefandi: Goðgá h/f. Framkvæmdastjóri: Guðmundur H. Jóhannesson Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen Skrifstofustjóri: Ingvar Halldórsson Innheimta: Jóhanna Hilmarsdóttir Afgreiðsla: Þóra Nielsen Lausasöluverö kr. 30. Ritstjórn og auglýsingar eru aö Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrif- stofa eru að Ármúla 36. Simi 8-15-11. Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Blaöaprent hf. Síðasta hálmstráið Happdrætti hafa ekki lengi viðgengist á íslandi miöað við pað sem þekkist I nokkrum ná- grannalöndum okkar. Engu að siður höfum við þegar náð for- ystu ( þessu efni. Hvergi ann- ars staðar I heiminum starfa jafnmörg lotterl og er þar vit- anlega miðað við blessaða höfðatöluna. Sá fjöldi haþpdrættismiöa, sem rigniryfirþjóðinaáhverju ári, er gffurlegur. Hann skiptir nokkrum milljónum. Þessi mergð gefur okkur að hvert mannsbarn (landinu eigi völ á þrettán happdrættismiðum á árinu. Það er enn eitt heims- metið sem íslendingar geta státað af. Helgarpósturinn fjallar um þetta fyrirbæri á (tarlegan hátt I blaðinu. Þar kemur meðal annars fram að forráðamenn helstu happdrættanna I land- inu sjá ekki fram á samdrátt i sölu sinni á þessu ári. Af orð- um þeirra máskilja að kreppan sem nú rlkir meðal launafólks auki beinlinis lotterisneysl- una. Þeir segja íslendinga von- glaða með eindæmum, einkanlega þegar stóri vinn- ingurinn sé annarsvegar. Þeir lifi fyrirlukkuna. Hún sé þeirra helsta hálmstrá þegar að þrengir. En eins og jafnan áður verða þeir fáir i ár sem hreppa munu stóra vinninginn. Þeir verða margir sem ganga slypp- ir frá borði sem endranær. Á þennan hátt er happdrættis- tromlan um leið örlagahjól margs launamannsins. Svo sem fram kemur I grein Helgarpóstsins um þetta mál- efni starfa nú rúmlega hundr- að happdrætti I landinu. Þaö sem vekur hvað mesta athygli þegarsáfjöldi erhafðurf huga er að enginn skýr skilyrði eru af hálfu dómsmálaráöuneytis- ins um leyfisveitingar til rekst- urs happdrættis. Þar er ein- ungis höfð að leiðarljósi ára- löng hefð sem erfst hefur milli starfsmanna. Lögin um happdrætti á ís- landi eru lika komin til ára sinna. Þautóku raunargildi all- mörgum árum áður en fyrsta happdrættið kom til sögunnar hér á landi. Ljóst er að margt þárf aö endurskoöa Iþeim, svo og afmarka skilyrði ráðuneyt- isins ( þessum efnum. Það er þeim mun nauðsynlegra þegar vitaö er um nokkra misnotkun á þessu fyrirbæri, eins og Helgarpósturinn skýrir frá í grein sinni. Möröur í útvarpinu Heiðraða ritstjórn! í grein sem Páll Baldvin Bald- vinsson ritar í Helgarpósti 5.,jan. um flutning Ríkisútvarpsins á Merði Valgarðssyni eftir Jóhann Sigurjónsson eru þessi orð látin falla: .hinsvegar leiðist mér tildrið í hérlendum leikstjórum þegar þeir eru að skrifa sig fyrir leikgerðum, eins og það hafi ekki tíðkast frá upphafi að leikstjórar styttu, skeyttu saman og yfirleitt réðu talsverðu um þau verk sem þeir stýrðu, og þætti ekki tiltöku- mál.“ Varðandi þessi orð vil ég taka fram eftirfarandi: Enginn ábyrgur aðili hefur hald- ið því fram að Bríet Héðinsdóttir hafi samið „leikgerð" upp úr Merði Valgarðssyni. I prentaðri dagskrá stóð einungis að Bríet hefði gert útvarpshandrit og í les- inni kynningu var talað um út- varpsgerð. Þessi orð hafa sömu merkingu og erlend orð eins og „radio version" eða „radiobear- betning“ og merkja ekki annað en það að gerðar hafi verið ýmsar tæknilegar breytingar á Ieikriti sem upphaflega er samið fyrir annars. konar miðil en útvarp. Engin leið er að leggja í þau sama skilning og orðið leikgerð sem er íslenskun á orðinu dramatísering, en það er látið ná yfir leiktexta sem samdir eru upp úr annars konar bókmenntatextum, oftast skáldsögum. Þetta ætti raunar ekki að þurfa að segja manni með jafn yfirgripsmikla þekkingu á öll- um sviðum leikhúss, útvarps, sjón- varps og kvikmynda og Páll Bald- vin telur sig auðsæilega státa af. Það er algerlega persónulegur skáldskapur hans eins sem stend- ur í staðareyndatali á undan greininni að leikgerð sé eftir Bríeti Héðinsdóttur og meiri háttar ó- svífni að hnýta síðan í leikstjórann fyrir það. Hitt er svo annað mál að Bríet hefur gert mun róttækari breyt- ingar á handriti Jóhanns en að stytta það. Veigamest og snjöllust er sú breyting hennar á brennu- þættinum, þar sem teknar eru inn ýmsar orðræður úr Njálu sjálfri sem Jóhann sleppti úr leikritinu, að hluta af tæknilegum ástæðum. Þannig er hljóðneminn fluttur á milli þeirra sem eru inni í bænum og brennumanna fyrir utan sem er að sjálfsögðu ógerlegt á sviði. Bragð þetta þjónar hér ekki síst þeim tilgangi að auka dramatísk- an þunga atriðsins, þar sem á- heyrandinn skynjar með þessum hætti mun betur návist beggja á- takaaðila en í sviðsgerð höfundar. Þessu og raunar ýmsu öðru hefði Páll Baldvin kannski tekið eftir hefði hann nennt að lesa útvarps- gerðina, sem leiklistardeild sendi honum, og bera saman við frum- textann, sem ég vona hann eigi. Og meðal annarra orða: hvaða leikstjóra og verk á Páll Baldvin við með glósum þeim sem vitnað var til hér að ofan? Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Jón Vidar Jónsson leiklistarstjóri hljóduarps. Listaupp- gjör og LA Ágæti menningarpóstur! „Engin hornreka vil ég vera,“ sagði Bergþóra forðum og eins mælir Leikfélag Akureyrar nú. Gunnlaugur Astgeirsson skrifar í Helgarpóstinn þann 12. jan. um leiklistarárið 1983. Hann kveðst þar láta hugann reika yfir starf- semi leikhúsanna á sl. ári og gerir •það skynsamlega svo langt sem hugur hans nær. En Gunnlaugur mætti vera víðförlari í hugsun sinni og leik- húsferðum. Honum og öðrum heimakærum Reykvíkingum til fróðleiks langar mig að geta þess að á Akureyri hefur frá árinu 1907 staðið fallegt hús, Samkomuhúsið svokallaða, og þar hefur starfað óslitið frá 1917 leikfélag, sem nefnist Leikfélag Akureyrar. Um- rætt leikfélag fagnaði 10 ára af- mæli sínu sem atvinnuleikhús á sl. ári. Vafalaust má deila um verk- efnaval þessa útkjálkaleikhúss og • „listrænan metnað", sem Gunn- laugur saknar hjá „stóru leikhús- unum“. En við erum til. A.m.k. er ég hrædd um að samstarfsmönn- um mínum í leikhúsinu brygði í brún ef ég reyndi á næsta viku- lega samstarfsfundi að telja þeim trú um að við værum ekki til. Svo vill til að aldrei hafa fleiri gestir komið langan veg til að sjá sýningar okkar en á sl. ári og þá ekki síður Reykvíkingar en t.d. ís- firðingar eða Egilsstaðabúar og kom þar einkum til söngleikurinn My Fair Lady í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Kom þar í ljós hvað menning (hvort sem Gunnlaugur kýs að kalla það handverkeða list) getur orðið heimabyggð sinni mikil lyftistöng og á ég þar eink- um við hótel, verslanir, skemmti- staði og aðra sem á lífsglöðum ferðamönnum hagnast. Ef litið er yfir liðið ár er mér persónulega efst í huga hve marg- ir hafa hrifist af leikstjórn, leik- mynd og leikurum í leikritinu um lokakaflann í ævi listmálarans Van Gogh, „Bréfber-inn frá Arles", og vísa ég þar til leikdómara blað- anna, ekki síst.hins franskmennt- aða leikdómara Helgarpóstsins á Akureyri, Reynis Antonssonar. Flug frá Reykjavík til Akureyrar tekur þrjá stundarfjórðunga og starfsmenn Helgarpóstsins eru ævinlega velkomnir á sýningar okkar. En sem sagt. Við erum til! Med bestv kvedjum, Signý Pálsdóttir leikhússtjóri Leikfélagi Akureyrar. USTUPPGJÖR i Gagnrýnendur Helgarpóstjins meta stöðu listgreina á nýliðnu óri og velja helstu viðburði órsins Stúdentaleikhúsit) bar aí Helgarpósturinn þakkar vin- samlega ábendingu og gott boð. En þar eð blaðið hefur ekki tök á að senda norður leikdómara úr hópi sunnanmanna, m.a. vegna kostnaðar, verða umsagnir um uppsetningar LA áfram í höndum Reynis Antonssonar, enda æski- legt í sjálfu sér að slík skrif komi frá manni í viðkomandi bæjarfé- lagi. Það breytir ekki því að vafa- lítið eiga ýmsar sýningar LA heima í úrvali bestu sýninga hvers leikárs. HP óskar svo LA gæfu og gengis á nýju leikári. — Ritstj. Finnum tilganginn í lífinu Vandi vandamálanna í dag er talinn hið einangraða þjóðfélags- fyrirbæri fíkniefni. Já, mikil ósköp, nóg er um þau talað (eða öllu heldur röflað) en þrátt fyrir allan talandann sitjum við jafn föst í skaflinum og áður. Er það skrýt- ið? Nei, reyndar ekki, en finnst einhverjum það er það vegna þess að sá hinn sami er samofinn heimskunni í þessu öllu saman. Ha, hvaða heimsku? Jú, þeirri að halda að fleiri hasshundar, aukin tollgæsla, víkingasveitir og svo- kölluð uppfræðsla í fjölmiðlum og skólum leysi einhvern fíkniefna- vanda. . Til að leysa vandann verðum við að gera okkur grein fyrir að fíkniefnaneysla er aðeins ein leið sem þjóðfélagið notar til sjálfs- flótta. Leið sem ekki er viður- kennd en er etv. ekki verri en aðr- ar leiðir s.s. brennivínsdrykkja, vídeógláp, efnahagshyggja o.s. frv. Maður heyrir að eiturlyf séu vandamál unga fólksins, sbr. greinina um heróínið í síðasta tbl. HP. En hverjar eru fyrirmyndir unglingsins? Eru það ekki foreldr- ar sem drekka í óhófi eða svo- kölluðu „hófi"? Eru það ekki fjöldi fyrirtækja sem svæfa unglingana með tónlist, spilatækjum, vídeói, allskyns skemmtunum og tísku- fatnaði? Þess vegna virðist það í minnsta lagi heimskulegt að ein- angra fyrirbærið fíkniefni og e.t.v. er það hræsni. Ef talað er um ábyrgðarleysi hjá unglingum innan þjóðfélags sem veðsetur framtíð barnanna með erlendri skuldasöfnun, sem eyðir allri frjálsri orku í óþarfa hluti, er ekki eðlilegt að ætlast til þess að unglingarnir sýni ábyrgð. Ef þetta er spurning um skiln- ing, þá getur hver og einn sem notar áfengi um helgar eða leigir sér nokkrar vídeóspólur spurt sjálfan sig, af hverju hann gerir slíkt. Hver og einn sem skemmir heilsu sína með því að sækjast eft- ir lystisemdum í óhófi, getur spurt sjálfan sig þessarar spurningar, til þess að skilja, hvernig unglingarn- ir skemma heilsu sína með dópi. Hver og einn sem á erfitt með samskipti nema undir áhrifum á- fengis, ætti að geta skilið hvers vegna unglingarnir nota dóp til að eiga „afslappaðri" samskipti. Hver og einn sem lifir í tilgangs- leysi eða bráðabirgðatilgangi ætti að skilja tilgangsleysi ungling- anna. Svo gott fólk, blundar ekki í okkur löngun til að snúa baki við heimskunni og finna varanlega lausn fyrir alla og taka þá fyrir þjóðfélagið í heild sinni, en ekki einhver einangruð fyrirbæri inn- an þess. Spurningin er hvort þið eruð reiðubúin að ríða á vaðið og gefa unglingunum fordæmi. Reiðubúin að hætta að sulla og hætta að spenna ykkur upp, hætta að kvarta yfir tímaleysi sem er ekki annað en blekking. Reiðbúin að hafa tilgang í lífi ykkar, tilgang sem er varanlegur og ekki bund- inn við húskofa eða fasteign á hjólum. Reiðubúin að segja al- þingismönnum frá siðleysi þeirra. Reiðubúin að gjörbreyta þjóðfé- laginu svo það líti ekki á manninn sem hlut, að það þvingi ekki fólk. Fíkniefnavandinn er ekki orsök, heldur afleiðing. Afleiðing af þjóð- félagi sem byggir á þvingunum, sjálfsflótta og siðleysi. Einungis með því að gjörbreyta þjóðfé- laginu og gera það mannlegt, munu fíkniefnin hverfa, því þá verður engin þörf á sjálfsflótta, engin þörf á að deyfa sig. Lærið að þekkja ykkar innri mann og lærið að hafa góð sam- skipti við ykkur sjálf og aðra svo þið þurfið ekki að flýja raunveru- leikann. Lærið að losna við óttann við annað fólk. Gerið þetta fyrst, farið síðan út til þeirra sem í fíkni- efnum eru ogsegið þeim það hvað þið gerðuð og þá fyrst munu þau hlusta á ykkur en ekki fyrr, því að í dag hafið þið ekki siðferðilegan styrk til að fá þau til að leggja eyr- un við því sem þið segið í alvöru. Tillaga til úrlausnar er því afar einföld: 1. Að skilja sjálf og fræða ungl- >nga um að það er þjóðfélagið í heild sinni sem veldur vand- anum. 2. Að eldri kynslóðin (fullorðna fólkið) sýni fordæmi. 3. Að unglingarnir fái eitthvað í staðinn. Að þeir læri að ,hafa góð samskipti. Finni tilgang í lífinu. Finnist meira gaman að vera vak- andi en deyfðir. Að stuðla að því að byggja upp nýtt þjóðfélag og finna tilgang í því. Ingibjörn Ólafsdóttir Kristín Sœvarsdóttir Þuríöur Vilhjálmsdóttir leidbeinendur í Samhyggd. 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.