Helgarpósturinn - 19.01.1984, Blaðsíða 23
AFSLÁTTUR
HRINGBORÐIÐ
I dag skrifar Jón Baldvin Hannibalsson
Opinberunarbók Benjamíns
Hvaðan berast slík undur og
stórmerki? Píslarsaga Gyðing-
anna (friðþæging alls mannkyns?)
afhjúpun lífslyginnar (hér á landi í
Gerzku ævintýri Halldórs frá
Laxnesi), ákæra á höfuðklerka og
kennimenn þjóðkirkjunnar fyrir
skort á trúarsannfæringu og
heimóttarskap frammi fyrir Hinu
Illa.
Allt þetta og miklu meira. Svo
sem fall Babýlonar hinnar miklu,
sem er sú andlega Moskva sem
nær um allan heim. Allt stendur
þetta skrifað í Heilagri Ritningu —
fyrir 2000 árum, auðskilið þeim
sem læsir eru á Guðs orð.
El Nin var helzta skurðgoð
Babýloníumanna. Altari hans
fannst við fornleifagröft í
Pergamos í Litlu—Asíu, og var
þaðan flutt, fyrst til Berlínar og
síðan til Moskvu. Þetta hásæti
Satans var Ráðstjórninni fyrir-
mynd að grafhýsi Lenins (E1 Nins).
—;-------s
Tákn nákvæmninnar
NACHI
KÚLULEGUR
,,Suo sannarlega sem ég lifi, segir
herrann drottinn, skal ég ríkjayfir
yður með sterkri hendi, útréttum
armlegg og fossandi heift. Og ég
mun flytja yður frá þjóðunum, og
safna yður úr löndunum, þangað
sem yður var tvístrað, með sterkri
hendi, útréttum armlegg og foss-
andi heift og leiða yður inn í eyði-
mörkina milli þjóðanna og ganga
þar í dóm við yður augliti til aug-
litis. “
Hvar standa þessi orð? í gamla
testamenti, Ezekiel og Jesaja.
Hvað tákna þau? Herleiðingu,
tvístrun og píslir Gyðingaþjóðar-
innar 2000 árum síðar.
„Utréttum armlegg, fossandi
heift". Nazistakveðjan, haturs-
ræður Hitlers, Goebbels og Gör-
ings. Hver var sú óheilaga þrenn-
ing? Verkfæri í höndum drottins
til að koma fram hefndum á hinni
Guðs útvöldu þjóð fyrir brigð
hennar við Drottin.
„Angistartími Jakobs," þjáning-
ar og tortíming Gyðinganna í
Evrópu undir lok styrjaldarinnar
miklu — allt er þetta fram komið
af spádómsorðum Biflíunnnr fyrir
2000 árum.
,,Þá munu menn framselja yður
til pyntinga og taka aflífi, og allar
þjóðir munu hata yður vegna
nafns míns. “ — Líka þetta (Matt.
24; 1—36) — er það ekki fram
komið, 2000 árum síðar? Nægja
tvö þúsund ár og tvö fet af ösku?
Nægja til hvers? Til þess að beygja
svíra hinna Guðs útvöldu til að
veita Jesú viðtöku, þegar endur-
lausnarinn vitjar aftur hins hrjáða
mannkyns?
„Fyrir þér er einn dagur sem
þúsund ár“ syngjum við einir
þjóða í þjóðsöngnum (sem Matt-
hías orti upp úr Davíðssálmum).
Þetta mun vera réttur skilningur á
tímatali Biflíunnar. Jesús reis upp
frá dauðum á þriðja degi. Reiði
Guðs hefur staðið í 2000 ár. Upp-
risan, Guðsríkið er í nánd .
,,En þegar eftir þrenging þessara
daga mun sólin sortna og tunglið
hœtta að skína. Stjörnurnar munu
hrapa af himni og kraftar himn-
anna birtast. Þá mun tákn Manns-
sonarins birtast á himni og allar
kynkvíslir jarðarinnar hefja
kveinstafi... Himinn ogjörð munu
líða undir lok, en orð mín munu
aldrei undir lok líða" (Matt 24■
1-36).
Úranos á grísku þýðir himnar.
Kraftur himnaefnisins er kjarn-
orkan. Kraftar himnanna munu
bifast þýðir að kjarnorkan er leyst
úr læðingi, kjarnorkusprenging-
ar.
Fyrir 2000 árum bjó höfundur
þessara spádóma yfir þekkingu,
| sem vísindamenn nútímans
öðluðust fyrst nýlega. Hvað þýðir
það? Biflían er Orð Guðs, hins al-
vitra og almáttuga, en ekki mann-
anna verk. Sú kirkja, sem ekki
skilur þetta, viðurkennír og boð-
ar, er heiðinn dómur.
Vituð ér enn, eða hvat?
Nachi legur er japönsk gæóavara
á sérsaklega hagstæöu verói.
Allaralgengustu tegundir
fáanlegarálager.
Sérpantanir eftir þörfum.
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SÍMI: 85656 OG 85518
UMFERÐARMENNING
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
IUMFERÐAR
RÁÐ
föndur. Glataða kynslóðin hans
Ólafs Hauks virtist engu hafa að
glata. Það verður því enginn hér-
aðsbrestur þótt hún týni sjálfri sér.
Samt komu út nokkrar góðar
bækur. En engin á borð við Benja-
mínsbók. Hún er ein, án saman-
burðar.
En hvernig ber að taka svona
bók? Hún er þrungin þekkingu og
lærdómi. Höfundurinn er einn úr
hópi fárra útvalinna lærdóms- og
menntamanna á okkar tíð, sem
hafa miklu að miðla. Hagfræði-
kaflinn er hreint afbragð. Ritgerð-
in um „kjarabaráttu og þjóðfélag"
er það bezta sem um það efni hef-
ur verið skrifað á íslenzku; harm-
saga hins unga lýðveldis, skilin
djúpum skilningi.
En ég spyr enn: Hvernig ber að
taka svona bók? Hin eiginlega
opinberunarbók (IV og V hluti:
Egummig og trúmál) er handan
míns þekkingarsviðs. Mér virðist
sem höfundurinn hafi orðið fyrir
trúarreynslu líkt og Páll frá
Tarsus. Af þeim rótum er runnin
sú sannfæring, sem reist er á
bjargi. Þar er ekki töluð nein
tæpitunga við hálfheiðna kirkju
eða afvegaleiðendur æskunnar
(skurðgoðadýrkendur hinnar
nýju Babýlonar).
Mættum við hundheiðnir efna-
hyggjumenn trúlausrar aldar
biðja höfuðklerka og kennimenn
(a.m.k. Sigurbjörn og Þóri Kr.) að
láta ljós sitt skína, en setja það
ekki undir mæliker. Marxista þarf
ekki að kveðja til sögu. Þeirra er
hið útbrunna skar. En þessi bók á
ekki að liggja í þagnargildi.
Eða hvað segja fræðimennirnir
um þetta: „Kæmi Jesús með „nýtt
vín“ til Reykjavíkur og vildi fá inni
í blöðunum með það, þá er það
fyrirfram gefið mál, að það mundi
ekki ganga. Morgunblaðið hefur
að vísu lýst því yfir, að það sé
sverð og skjöldur kristninnar í
landinu. En þeir Matthías og
Styrmir myndu áreiðanlega
standa sem veggur gegn birtingu
slíkra skrifa. Sökum fyrirvitundar
sinnar myndi Guð að sjálfsögðu
sjá svo til, að nýtt dagblað yrði
stofnað, svo að Jesús gæti birt
skrif sín, hið nýja vín. Hvaða nafn
gæti maður hugsað sér að blaðið
fengi: Nýr belgur? Vínpressan?
Rauð.. Nei, nú hætti ég. Annars
gæti ég valdið ótímabœrum skiln-
ingi. “
í Opinberunarbók og af spá-
dómum Jeremia má ráða að reiði
Guðs mun beinast að Babýlon og
djöfladýrkun hennar á vorum
dögum. Og samkvæmt dæmisög-
unni um Davíð og Golíat mun
Risaveldið fá stein í ennið (haf-
stein). „Það mun nægja. Þegar því
er lokið mun mannkyn allt anda
léttar.“
Og Dómsdagur, Ragnarök, End-
urfæðing — allt er þetta í nánd.
Með fullri vissu. Það stendur
skrifað. Og ekki bara einhvern
tíma, heldur núna. Því að nú eru
liðnir sex dagar (6000 ár) hjál-
præðisvikunnar og því komið að
hvíldardeginum.
Enn er spurt: Hvaðan berast slík
undur og stórmerki? Guðs Orð?
Já, eins og það er skilið réttum
skilningi í opinberunarbók Benja-
míns: EG ER.
Hver var Benjamín? Yngsti son-
ur Jakobs, albróðir Jóseps, hin
týnda ættkvísl ísraels. Nafnið
merkir hamingjusonur, haft um
þjóðflokk sem bjó „hægra megin“
á fljótsbakka. í trúarjátningunni er
sagt: „ — og situr við hægri hönd
Guðs föður almáttugs...". Sitthvað
er gefið í skyn um að íslendingar
kunni að vera hin týnda ættkvísl.
Dr. Benjamín H. Eiríksson birt-
ist okkur sem hagfræðingur, efna-
hagsráðgjafi ríkisstjórna, ^rithöf-
undur, spámaður. Bók hans ÉG
ER, er engri annarri lík. Hún er
einstök í samanlögðum íslenzkum
bókmenntum, ef ekki heimsbók-
menntum. Hún er ritgerðasafn
fremur en ævisaga; samt er hún
öðrum þræði ævisaga, saga
mikillar ævi. Og Opinberunarbók
er hún.
í samanburði þótti mér aðrar
venjulegar bækur þurmur þrett-
ándi. Ævisögur stjórnmálamanna
misfánýtt hjal. Skáldskapartil-
burðir yngri höfunda bragðlítið
HELGARPÓSTURINN 23