Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.01.1984, Qupperneq 13

Helgarpósturinn - 19.01.1984, Qupperneq 13
YFIRHEYRSLA nafn: Mogens Glistrup fæddur: 28.5.1926 heimili: Hummeltoftevej 125, Virum, Danmörku staða: þingmaöur bifreið: engin eftir að hann varð gjaldþrota. (Eiginkonan hans ekur um á bíl frá Spies-feröaskrifstofunni) áhugamál Leikhús, skák, badminton, hjólreiðar Gott hjá Albert! Framfaraflokkur Mogens Glistrups galt mikid afhroð ídönsku þingkosningunum lO.janú- ar sl., tapaði lOaf 16 þingsœtum. Glistrup var illa fjarri góðu gamni. Fyrir fjórum og hálfum múnuði byrjaöi harm að sitja af sér þriggja og hálfs árs fangelsisdóm sem hann hlaut fyrir skattsvik. Glistrup var áður skattasérfrœðingur, m.a. dönsku ríkisstjórnarinnar. Hann vakti fyrst verulega athygli á sér þegar hann lýsti þvíyfir í sjónvarpsviðtali að hann heföi milljón króna árstekjur en borgaði ekki krónu í skatt. Glistrup náði kjöri í kosningunum núna, þrátt fyrir fangavistina. Við kjörið endurnýjaðist þinghelgi hans og hann losnaði úr prísundinni. A llar líkur eru þó taldar á því að hið nýja dariska þing svipti hann aftur þinghelginni á miö- vikudaginn kemur, daginn eftir að það kemur saman. Mogens Glistrup stendur því Iströngu. Hann er í yfirheyrslu Helgarpóstsins í dag. eftir Hailgrim Thorateinsson — Verður þú sendur aftur í fangelsiÖ? Það verður ákveðið á miðvikudaginn kemur, 25. janúar, daginn eftir að þingið kemur saman aftur, hvort ég verð sviptur þinghelginni. — Hver heldur þú að niðurstaðan verði? Ég vona auðvitað að réttlætið sigri og að ég verði ekki sendur aftur inn, en það er ómöguiegt að segja til um þetta. Það fer eftir því hvernig meirihlutaflokkarnir greiða atkvæði. — Te/ur þú þig enn saklausan afsakargifl- um í skatlsvikamálinu? Já. Ástæðurnar fyrir þessum dómi voru eingöngu póiitískar. Ég hef ekki brotið neitt af mér. Ég hef alltaf farið mjög varlega í þess- um skattamálum. Sko, þegar maður kastar fyrsta steininum, verður maður að gæta þess að ganga hreint fram, vera eins hreinn og nýfallin mjöll, og ég hef alltaf varað mig alveg sérstaklega á því að fara að dönskum lögum og reglugerðum í einu og öllu. — Hvernig tilfinning er það fyrir þing- mann að sœta því að sitja í fangelsi? Það er alveg hræðilegt. Maður heyrir og sér í útvarpi, sjónvarpi og blöðum að þetta og þetta sé að gerast í þinginu og maður hugsar með sér: „0, bara ef ég hefði verið þarna, þá hefði ég gert svona og svona og þá hefði þetta mál farið á annan veg“, o.s. frv. Þannig að ég kann ekki við þetta. Mér líður eins og ijóni í búri í dýragarði sem langar að vera úti í skóginum með hinum dýrunum. — Hvernig er farið með þig í fangelsinu? Á venjulegum virkum dögum vinn ég við skrifstofustörf frá klukkan sjö á morgnana til fjögur á daginn. Frá fimm tii hálfsjö spila ég oftast nær badminton, horfi svo kannski á sjónvarpið áður en ég fer að sofa. — Þú hefur þá lítinn tíma til að sinna stjórnmálunum úr fangelsinu? Já, það má segja það. Ein auðvitað reynir maður að nota þann tíma sem gefst um helg- ar tii að sinna þeim eitthvað. — Pú sakaðir þá sem vörnuðu þér út- göngu úr fangelsinu, og Erik Ninn—Hansen dómsmálaráðherra, um landráð þcgar þér var hleypt út í síðustu viku. Varð sú ásökun til þess að þér var hleypt út áður en þér var afhent kjörbréFið, og þannig í trássi viö fyrri ákvörðun dómsmálaráðherra? Já, ég held það. Fjölmargir prófessorar í stjórnarskrárrétti töldu líka að ég hefði rétt íyrir mér og að ég hefði notið þingheigi allt frá kjördegi. Ráðherrann byggði fyrri ákvörðun sína á lögum frá siðustu öld en það reyndust vera til nýrri lagagreinar sem snertu þessi atriði. Ég var látinn iaus um leið og það uppgötvaðist að ráðuneytið hafði haft rangt fyrir sér. Þannig að ég losnaði 4—5 dögum fyrr en þeir höfðu gert ráð fyrir. — Framfaraflokkurinn tapaði 10 af 16 þingsœtum i kosningunum. Er hann að hverfa af þingi? Ja, ef við töpum öðrum 10 sætum í næstu kosningum þá skuldum við fjogur. Það er auðvitað slæmt mái fyrir flokk sem hefur 16 sæti að tapa 10 þeirra. Ein aðalástæðan fyrir þessu afhroði er sú, að það hafa verið uppi áberandi deildur í flokknum. Fólki geðjast illa að flokkum sem deiia mikið innbyrðis. Þetta á við alis staðar, ekki bara í Danmörku. Fólk hugsar sem svo, að þegar flokkur virðist ekki geta gert það upp við sig hvað hann ætiar að gera, þá eru ekki miklar líkur á því að hann geti ákveðið hvernig stjórna eigi landinu. Flokkurinn hef- ur gert stórkostleg mistök i því að styðja stjórn Schluters í jafn ríkum mæli og við höfum gert, síðustu 16 mánuði, segjandi já, já, já, við flestu sem stjórnin hefur gert. Ónnur ástæða fyrir þessu fylgishruni held ég að haf i verið hversu illa okkur gekk í sjón- varpinu fyrir kosningarnar. Kosningabarátt- an fór næstum öll fram þar vegna jólahalds- ins. — Ertu að segja að það liafi vantað þig í baráttuna? Auðvitað er alltaf auðvelt að segja: „Bara ef ég hefði verið þarna, þá hefðum við kom- ið sterkar út,“ en maður veit náttúrlega ekkert hvernig ég hefði komið út í sjónvarp- inu. Það eina sem hægt er að meta er það sem við sögðum í sjónvarpinu og það var alls ekki nógu gott. — Er mikil andstaða gegn þér innun Frum- faraflokksins? Já, skiljanlega, þvi að aðstæðurnar eru þannig. Maðurinn sem stofnaði flokkinn, formaðurinn frá upphafi, er í fangelsi til margra ára og það er óhjákvæmilegt að hann verði deiluefni innan flokksins þegar þannig er ástatt. Sumir vilja fylkja sér um foringjann en aðrir telja flokkinn pólitískt óvirkan meðan ég sit inni. Hjiádeiium af þessu tagi verður ekki komist. — Er Framfaraflokkurinn nokkuð miklu meira en þú og þín persóna? Sjáðu til, ég stofnaði flokkinn og var eini leiðtogi hans fyrsta árið. Framan af var oftar talað um Giistrup-flokkinn í fjölmiðlum held- ur en Framfaraflokkinn — menn voru Glistrup-menn frekar en Framfaraflokks- menn. Svona var þetta lengi vel framan af en þróunin ersú að flokkurinn er að fjarlægj- ast þessa beinu skírskotun til stofnandans. — Hefuröu trú á að flokkurinn nái sér? Ég vona það. Það er erfitt að spá um þessa hluti, þeir eru nefnilega allir í frarntíðinni. Þetta fer mikið eftir því hvernig efnahags- þróunin verður í heiminum á næstunni. Ef þróunin verður áfram jákvæð, þá munu danskir kjósendur hafa tilhneigingu til að þakka það ríkisstjórninni. Verði þróunin hins vegar óhagstæð okkur Dönum, ef at- vinnuleysi eykst enn og viðskiptahallinn við útlönd sömuleiðis, þá kennir fólk stjórninni um. Þannig bregst hinn almenni kjósandi við. Ég held að þetta sé líka svona hjá ykkur, að afstaða fslenskra kjósenda sé svona líka. Þið eruð líka lftið land, sem byggir aíkomu sína að miklu leyti á erlendum mörkuðum. Við flytjum inn rnikið af olíu og hún hefur lækkað, vextir hafa lækkað. Við flytjum mikið út í doliurum og dollarinn hefur hækk- að... hugsanleg breyting á efnahagsþróun- inni í heiminum fer líkiega eftir því hvort Ronald Reagan stefnir að endurkjöri í kosn- ingunum í nóvember á þessu ári. Fari svo, þá mun hann eyða öllu sínu púðri í að halda batanum til streitu svo hann nái góðri kosn- ingu, en svo þegar kemur fram á 1985 mun aftur fara að syrta í álinn, vegna þess að hann getur ekki haldið áfram að ganga gegn öðrurn og djúpstæðari tilhneigingum í efna- hagsmálum heimsins. Þá fara Danir að snúa baki við ríkisstjórninni. — Er þetta raunhœft mat á stöðunni hvaö varðar frumtíð Framfaraflokksins í dönsk- um stjórnmálum eða er þetta óskhyggja? , Ég held að Framfaraflokkurinn komi til með að tapa fylgi alit þe.tta ár en að við för- um svo að vinna á í kringum febrúar á næsta ári, að þá fari þetta að snúast. En það er nátt- úrlega erfitt að spá um framtíðina, það er miklu auðveldara að vera spámaður fortíð- arinnar. . — Þú sagðir fyrir nokkrum dögurn að einn jðati veðurdag yrðir þú forsætisráðherra Uanmerkur. Erþetta ekki nokkur kokhrevsti miðað við stöðuna núna? Sjáðu til, grundvöllur hugmyndafræði Framfaraflokksins er sá, að það er ekki hægt að byggja efnahagsstefnu á skuldum á skuld- ir ofan. Það hlýtur að koma að þvi að stjórn- arheimilið verði að hætta að eyða meiri peningum en koma inn í sköttum. Við höfum lagt fram nákvæmar tillögur um það hvern- ig draga skuli sanian útgjöld hins opinbera til að geta grynnkað á skuldunum og hvernig lækka megi skatt svo mikið að það skapi at- vinnu handa fólki. Þegar að því kemur að ekki verður lengur hægt að safna skuldum verð ég einí maðurinn með ákveðnar tillög- ur í þessum efnum og því rétti maðurinn í forsætisráðherraembættið þegar kemur að skuldadögum. — Þú hefur oft verið kallaður lýðskrumari og flokkur þinn talinn tœkifœrissinnaöur? Ég held að þetta sé alrangt. Við í flokknum höíum, aiveg frá upphafi, byggt upp allt okk- ar starf á nákvæmum tillögum um sparnað í kerfinu, hvar eígi að skerá og hvernig það skuii gert. Þetta eru óvinsælar tillögur sem við höfum sett fram um sparnað í skólakerf- inu, heilbrigðiskerfinu o.s.frv. og geta því alls ekki flokkast undir lýðskrum, heldur þvert á móti. Við berjumst fyrir erfiðum langtímalausnum á meðan hinir flokkarnir láta undan þrýstingnum og fjármagna aukin opinber útgjöld með útgáfu ríkisskulda- bréfa, sem þeir segjast ætla að borga ein- hvern tíma seinna. Ef til er einn flokkur í Danmörku sem hvorki er tækifærissinnaður né beitir lýðskrumi, þá er það Framfara- flokkurinn. Hinir flokkarnir eru allir í skammtímalausnum og í því að iofa upp í ermi dansks efnahagslífs. — Yfir í allt aðra sálma. Hefur þú heyrt um kœruna á hendur fjármálaráðherranum okkar fyrir hundahald og yfirlýsingar hans í málinu? Nei, ég er nýkominn úr fangelsinu, ég var í einangrunarklefa, alveg út úr heiminum... hvað gerði hann? Ja, það er bannað að halda hund í Reykja- vík en fjármálaráðherrann, Albert Guð- mundsson, á hund... Gott hjá honum! ....og fréttamaður Ríkisútvarpsins hérna kœrði hann fyrir það. Þá sagðist Albert held- ur flytja úr landi en borga sektina. Já, þegar menn eru uppi á þeim tímum i sögunni, þar sem fjöldinn allur af fáránleg um reglugerðum er í gildi, eins og þetta. að maður megi ekki hafa hund, eða þurfi aö gefa skýrslu hjá hinum og þessum stofnun um í kerfinu, eða að mnður eigi að borg. skatt o.s.frv., þá verður maður að gera upp reisn. Þannig að ég hef rika samúð með !; málaráðherranum ykkar, sem er að rísn i gegn svona kjánalegum reglugerðum e og þéssari, að það inegi ekki hafa hum Reykjavík.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.