Helgarpósturinn - 19.01.1984, Side 17

Helgarpósturinn - 19.01.1984, Side 17
LISTAPP * Lárus Ymir geröi sjöttu bestu mynd heims 1982/83 samkvœmt International Film Guide „Mesti heiður sem mér hefur verið sýndur“ Choice of Films 1982/83 1 Nostalgia, Tarkovsky (Italy) 2 Fanny and Alexander, Bergman (Swcaen/France/West Germany) 3 Camminacammina, Olmi (Italy) 4 Heat and Dnst, Iyory (U.K.) 5 Merry Christmas Mr. Lawrence, Oshima (U.K./Japan) 6 The Second Dance, Oskarsson (Sweden) 7 Lianna, Saylcs (U.S.A.) 8 Local Hero, Forsyth (U.K.) 9 The Year of Living Dangerously, Weir (Australia) 10 Sophie's Choice, Pakula (U.S.A.) 11 Demonios en al jardin, Gutierrcz Aragon (Spain) 12 Angel, Jordan (Eirc) Kvikmynd Lárusar Ýmis Ósk- arssonar leikstjóra ,,Andra dans- en“ var valin sjötta besta mynd ársins 1982/83 af hinni alþjóð- legu kvikmyndahandbók Inter- national Film Guide 1984. „Þetta er mesti heiður sem mér hefur ver- ið sýndur, “ segir Lárus Ýmir við HP. Handbókin er árbók og virtust sinnar tegundar í heimi. Ritstjóri bókarinnar, Peter Cowie, segir m.a. í umsögn að „þessi íslending- ur er nýstárlegasti kvikmynda- gerðarmaður í Svíþjóð frá því að Jan Troell kom fram á sjónarsvið- ið. “ International Film Guide velur 12 bestu myndir ársins og hafnaði „Andra dansen" í 6. sæti. Röðin er eftirfarandi: 1. Nostalgia, Tark- ovsky (Ítalía), 2. Fanny og Alex- ander, Bergman (Svíþjóð/Frakk- land/V.Þýskal.), 3. Cammina- cammina, Olmi (Ítalía), 4. Heat and Dust, Ivory (Bretland), 5. Merry Christmas Mr. Lawrence, Oshima (Bretland/Japan), 6. Andra dansen, Óskarsson (Sví- þjóð). Sem dæmi má nefna að Sophie’s Choice, sem nú er sýnd hérlendis, lenti í 10. sæti. Ritstjóri handbókarinnar, Peter Cowie, er geysilega virtur penni og gagnrýnandi kvikmynda. Hann segir m.a. í umsögn sinni um „Andra dansen”: „Gegnum alla myndina, sem lýsir ferðalagi tveggja kvenna, eru stöðug leiftur hugmyndaflugs sem eru það heill- andi, hlaðin töframætti og kerskni, að þau gera það að verk- um að þessi Islendingur er nýstár- legasti kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð frá því að Jan Troell kom Kim Anderson og Lisa Hugoson i „Andra dansen“. fram á sjónarsviðið.” Þess má geta að Troell sló í gegn fyrir 20 árum. Cowie rekur atburðarás myndar- innar og segir m.a. að hótelsen- urnar séu í sama gæðaflokki og í myndum Hitchcocks og Némecs. í niðurlaginu segir ritstjórinn: „Bak við allt leynist auga Lárusar Ósk- arssonar sem fylgist náið með per- sónunum, á hlutdeild í hugarflugi þeirra og festist á óvörðu andar- taki, ljkt og polaroid-myndataka Jo. (Jo er önnur kvenpersónan í myndinni). — IM Toots Thielemans til Islands Munnhörpuleikarinn, gítarist- inn og biístrarinn heimsfrægi Toots Thielemans kemur til Is- lands og heldur hér hljómleika á vegum Jazzvakningar um miðjan febrúar. Þessi skemmtilegi belg- íski tónlistarmaður er öllum jazz- unnendum að góðu kunnur, og reyndar mörgum fleiri því óvið- jafnanlegur munnhörputónn hans hljómar gjarnan í kvikmyndum, ekki síst þegar Quincy Jones sem- ur músíkina, en þeir Thielemans hafa mikið leikið saman. Af öðr- um kunnum samstarfsmönnum Toots Thielemans má nefna Oscar Peterson, Stephane Grappelli, Jacob Pastorius og George Shear- ing. Jazzvakningartónleikar Toots Thielemans verða í Gamla bíói 15. febrúar, og mun hann leika hér með íslenskri rytma- sveit. -ÁÞ Nýjar íslenskar kvikmyndir í deiglunni: Agúst, Þráinn og Valdimar eru tilbúnir í slaginn fslenskir kvikmyndagerðar- menn eru nú að undirbúa fram- leiðslu sína á þessu ári og eru ýms- ar kvikmyndir í uppsiglingu. Þrá- inn Bertelsson hefur tvœr myndir í takinu á árinu, Agúst Guðmunds- son hefur lokið handriti að leik- inni kvikmynd og Valdimar Leifs- son hefur skrifað drög að gaman- kvikmynd ásamt Þorsteini Marels- syni. „Við hefjum upptökur í febrúar- byrjun," segir Þráinn Bertelsson leikstjóri við HP um hina nýju kvikmynd „Skammdegi”, sem Nýtt líf sf. framleiðir. „Við reikn- um með að upptökum ljúki fyrri- partinn í apríl og að við getum verið með kvikmyndina tilbúna til frumsýningar í septembermán- uði. Tvœr kvikmyndir „Skammdegi” fjallar um stúlku sem kemur heim frá útlöndum. Hún er nýorðin ekkja og heldur vestur á firði þar sem maður hennar heitinn átti hálfa jörð á móti systkinum sínum. Stúlkan vill selja sinn hlut og koma honum í peninga en þessu eru systkinin afhuga. Þegarstúlkan kemur vest- ur fara að gerast ýmsir dularfullir atburðir. Kvikmyndin verður tek- in í Reykjafirði sem gengur inn úr Arnarfirði. Með aðalhlutverk fara Ragnheiður Arnardóttir, María Sigurðardóttir, Hailmar Sigurðs- son og Eggert Þorleifsson. Hand- ritið er eftir Þráin Bertelsson og Ara Kristinsson, sem ennfremur er kvikmyndatökumaður mynd- arinnar. Um „skammdegi” segir léikstjórinn: „Þessi kvikmynd er sálfræðilegur þriller.” Þráinn Bertelsson er einnig með aðra mynd í takinu • Handritið er eftir hann og Ara Kristinsson og stendur til að hefja tökur í júní eða júli og full- gera myndina fyrir jól. Myndin hefur enn ekki hlotið heiti en um verkiö segir Þráinn: „Þetta er mynd í léttum dúr. Varðandi vinnsluna er allt ófrágengið enn- þá og ekki farið að ráða leikara. Við reynum að glíma við það að framleiða tvær myndir í einu og það á eftir að koma í ljós hvort ís- lenskt kvikmyndafélag getur leyst þá þraut." Stuðmannamynd á árinu,” segir Agúst. „Það er áhugi okkar allra að gera nýja gleðimynd en eins og stendur liggur allt í pækli og það ' eiria sem er öruggt er að ekki Ragnheiöur Arnar- dóttir — leikur eitt aðalhlutverkanna í „Skammdegi" Þráins Bertelsson- ar. ,,Sandur“ og engin Stuömannamynd Ágúst Guðmundsson vinnur þessa dagana að upptöku „Gullna hliðsins” í sjónvarpssal. En hann er einnig með kvikmyndaáform í huga; Þegar HP hafði samband við Ágúst hafði hann eftirfarandi að segja um áætlanir sínar: „Eg hef lokið við að skrifa frumsamið handrit að kvikmynd sem mun bera nafnið „Sandur". Eiginlega ætti undirtitillinn að vera „trúnað- armál" því ég get varla gefið meira upp í svipinn." HP getur þó bætt við þessi orð leikstjórans að hér er um leikna, alíslenska kvik- mynd að ræða og gerist hún til sveita. Þetta er gamansöm frá- saga sem þó er ekki beint kómísk og tæpt á ýmsum alvarlegum mál- efnum á líðandi stundu í íslensku þjóðfélagi. Ágúst segir að enn sé allt á huldu um hlutverkaskipan og framleiðendur. En hvað með nýja Stuðmannamynd? „Það eru engin áform uppi um að gera nýja Ágúst Guðmunds- son — „Sandur“ er frumsaminn og full- gerður I handriti. Þorsteinn Marels- ’ son — skrifar hand- rit ásamt Valdimar Leifssyni. verður farið út í Stuðmannamynd á þessu ári.“ Beðið eftir gjaldmiðli Kvikmyndafélagið Njála hyggst fara út í gerð myndar á árinu ef fjárhagurinn leyfir. Valdimar Leifsson mun leikstýra þeirri mynd ef úr henni verður. Hann segir við HP: „Hér er um kómedíu að ræða sem Þorsteinn Marelsson og ég höfum skrifað uppkast að. Endanlegt handrit er í vinnslu en enn er allt á huldu um hvort úr áformunum verður. Þetta ræðst allt af því hvort við getum fjár- magnað þessa fyrirhuguðu kvik- mynd. Við erum því enn ekki farn- ir að ráða leikara eða annað starfslið, en bíðum eftir gjald- miðli." Af öðrum kvikmyndaleikstjór- um er það að frétta að þessa dag- ana er Hrafn Gunnlaugsson stadd- ur í Svíþjóð þar sem hann er að ljúka vinnslu myndarinnar „Hrafninn flýgur", sem sýnd verð- ur á kvikmyndahátíð Listahátíðar í byrjun febrúar. Þorsteinn Jóns- son er að leggja síðustu hönd á Atómstöðina sem verður frum- sýnd innan tíðar. Þessir leikstjórar hafa ekki nein áform uppi um nýj- ar kvikmyndir svo vitað sé nema hvað Hrafn hyggst ljúka við kvik- myndina um Reykjavíkurborg, sem borgarstjórnarmeirihlutinn fól honum í fyrra. Lárus Óskars- son hefur enn engar fastmótaðar áætlanir en ýmsar hugmyndir eru uppi meðal sænskra kvikmynda- framleiðenda varðandi leikstjórn Lárusar Ýmis á sænskri mynd. — IM HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.