Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 24
Þekkirðu Smið smið?
Þegar skfrnarnafnið
Það er líkast til kunnara en fráþurfi ad segja
hvernig þau eru tilkomin mörg œttarnöfnin
sem flestar þjóðir aörar en íslendingar bera —
sonur malarans fór líka að heita malari og svo
koll af kolli þar til helftin af þýskumœlandi
fólki fór að heita Miiller, og hið sama má segja
um bónda, bakara og smið um mestalla vest-
urálfu. Starfsheiti undir- og miðstéttarinnar í
hinu forna lénssamfélagi festust sumsé við
heilu fjölskyldurnar og urðu að átbreiddum
œttarnöfnum.
Það má sennilega kenna hinni íhaldssömu
föðurnafnahefð Islendinga um að hér hafa
aldrei fest rœtur ættarnöfn á borð við bóndi,
beykir, fiskimaður og svo framvegis. Þó eru
vituð dœmi þess að þróun í þá áttina hafi átt
sér stað — í Hafnarfirði mun til dœmis hafa
verið vinsœl og velmegandi fjölskylda sem öll
gekk undir viðurnefninu ,,lóðs“ í höfuðið á
fjölskylduföðurnum sem gegndi því starfi.
Fleiri slík dæmi má óefað finna. En þetta ernú
sagan og kemur meginmáliþessara síðna ekki
nema óverulega við. Hér skal ekki fjallað um
œttarnöfn, heldur um nöfn fólks og störf þess,
fólk sem ber nöfn sem hœfa þvístarfi sem það
hefur valið sér í lífinu fram ár hófi vel.
Ihinu ómetanlega uppflettiriti, símaskránni,
má finna fleiri dœmi þessa en tilgreind eru hér
á síðunum. Við nefnum af handahófi og von-
um að enginn fyrtist við: Sigurjón Bláfeld loð-
dýrarœktarráðunaut, Ægi Hafsteinsson sjó-
mann, Loft Jóhannsson flugumferðarstjóra,
Bóthildi Hauksdóttur klœðskera, Rósalind
Ragnarsdóttur sem starfar í blómabúð og svo
má sjálfsagt lengi telja. Við œtlum okkur ekki
þá dul cð fullyrða að nöfn þessa ágœta fólks
hafi skapað því örlög — þetta er tilviljun,
ekkert annað...
kallar á ævistarfið
Feðgarnir Logi og
Sigurbjörn Eldon
arinsmiðir
Eldur er bestur
— Logi og Sigurbjörn
Eldon arinsmiðir
Það ku vera harla fágætt að
menn á þessu höfuðbóli hitaveit-
unnar, íslandi, gegni starfsheitinu
arinsmiður, en þó er ekki alveg
laust við að slíkt finnist, enda alltaf
einhver brögð að því að stórhuga
húsbyggjendur verði sér úti um
slík þing og þá er víst ráðlegra að
leita hjálpar sérfræðinga til að ar-
inninn komi að réttum notum og
reykurinn fari út en ekki inn.
Tveir af grónari arinsmiðum hér á
höfuðborgarsvæðinu eru feðgar
sem heita — og nú er ekki farið
með neitt fleipur — Logi Eldon og
Sigurbjörn Eldon Logason.
„Nafnið er upprunalega þannig
tilkomið að vinkona mömmu
missti lítinn dreng sem hét þessu
nafni. Þegar ég fæddist árið 1907
var ákveðið að skíra mig í höfuðið
á honum," segir Logi Eldon. „Eitt-
hvað var manni strítt á þessu í
skólanum, það var kannski ekki
óeðlilegt — ég var uppnefndur
„Alelda“ og eitthvað fleira í þá
veru. En mamma sagði mér að ég
mætti ekki kafna undir nafninu,.
svo maður reyndi að svara fyrir
sig eins og maður gat. Hvort nafn-
ið hafði einhver áhrif á starfsval-
ið? Nei, það held ég sé af og frá.
Þegar ég var um tvítugt fór ég að
læra múrverk hjá föðurbróður
mínum og arinsmíðin kom svona
í beinu framhaldi af því. Ég er far-
inn að minnka mikið við mig í
þessu, það eru aðallega synirnir
sem eru í þessu núna.“
„Ég er hæstánægður með þetta
nafn,“ segir Sigurbjörn Eldon
Logason. „Ég hef reyndar orðið
var við það að menn brosa stund-
um út í annað þegar nafnið birtist
þeim í öllu sínu veldi, en það er
ekkert til að kippa sér upp við. Jú,
jú, það stendur heima — ég hef
stundum verið kallaður Arin-
björn. Það byrjaði með því að ég
var einhvern tímann að vinna í
arni hjá gamansamri konu hér í
bænum. Þá hringdi síminn og það
var spurt um Sigurbjörn. Konan
24 HELGARPÓSTURINN