Helgarpósturinn - 19.01.1984, Page 26
*
'helgardagskraÍn
Föstudagur
20. janúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 A döfinni.
20.50 Við múrinn (At the Last Wall) 6.
október 1982 hélt breski rokk-
söngvarinn og lagasmiöurinn
Kevin Coyne hljómleika á Pots-
damtorgi I Berlln sem fylgst er
með I þaetti þessum.
/21.30 Kastljós
22.30 Sumarlandið (Smultronstállet)
Sænsk blómynd frá 1957. Höf-
undur og leikstjóri: Ingmar Berg-
man. Aðalhlutverk: Victor Sjö-
ström, Gunnar Björnstrand,
Ingrid Thulin, Bibi Andersson og
Folke Sundquist. Aöalpersóna
myndarinnar er aldraður maöur
sem tekst ferð á hendur. En þetta
ferðalag verður honum jafnframt
reikningsskil við fortlð og nútíð
svo að hann veröur ekki sami
maöur að leiðarlokum. Einhver
besta mynd Bergmans. Ómiss-
andiog topþeinkunn:4 stjörnur.
Þýðandi Þorsteinn Helgason.
00.00 Fréttir i dagskrárlok.
Laugardagur
21. janúar
16.15 Fólk á förnum vegi 10. Skipti-
borðið Enskunámskeið 126 þátt-
um.
16.30 Iþróttir Umsjónarmaður Ingólfur
Hannesson
18.30 Engin hetja Fjórði þáttur. Bresk-
ur framhaldsmyndaflokkur I sex
j þáttum fyrir börn og unglinga.
J Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
n8.55 Enska knattspyrnan Umsjónar-
maöur Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 í lifsins ólgusjó.
21.00 Reiðubúinn þegar þú vilt, hr.
DeMille Bandarlskur sjónvarps-
þáttur um einn frægasta og um-
deildasta kvikmyndastjóra vest-
anhafs, Cecil B. DeMille. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.55 Tehús ágústmánans (The Tea-
house of the August Moon)
Bandarlsk gamanmynd frá 1956.
Leikstjóri Daniel Mann. Aóalhlut-
verk: Marlon Brando, Glenn Ford, -
Eddie Albert, Paul Ford og
Michiko Kyo. Fisby, höfuðsmað-
ur i bandarlska setuliðinu I
Japan, er sendur til þorps eins
ásamt túlki til að stuöla að bætt-
um samskiptum þjóöanna. Svo
fer aó höfuösmaöurinn ánetjast
japönskum siðvenjum, yfirmanni
hans til mikillar gremju. Bæri-
lega heppnuð filma eftir gaman-
leik John Patrick. Tvær stjörnur.
Brando er ekki á réttri hillu I hlut-
verki túlksins. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
22. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja
16.10 Húsið á sléttunni Máttur trúar-
innar Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur. Þýöandi Óskar
Ingimarsson.
17.00 Stórfljótin 3. Visla.
18.00 Stundin okkar
18.50 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Sjónvarp næstu viku
20.45 Tökum lagið Fyrsti þáttur I nýrri
þáttaröð frá Sjónvarpinu, sem
tekin veröur upp I islensku óper-
unni. Kór Langholtskirkju syngur
undir stjórn Jóns Stefánssonar
en hljóðfæraleikarar eru Jón
Sigurösson, Reynir Sigurðsspn
og Vilhjálmur Guðjónsson. Út-
setningar annast Gunnar Reynir
Sveinsson. Umsjónarmaöur Jón
Stefánsson. Stjórn upptöku:
Tage Ammendrup.
21.20 Úr árbókum Barchesterbæjar
(Barchester Chronicles) Nýr þátt-
ur — Fyrsti þáttur. Framhalds-
myndaflokkur I sjö þáttum frá
breska sjónvarpinu, gerður eftir
tveimur skáldsögum eftir
Anthony Trollope. Leikstjóri
David Giles. Leikendur: Donald
Pleasence, Nigel Hawthorne,
Gerandine McEwan, Susan
Hampshire og fleiri.
22.15 Listakonur i fjórar aldir
©
Föstudagur
20. janúar
12.20 Fréttir.
14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup"
eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur
Holm Gunnar Stefánsson les
(19).
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Nýtt undir nálinni
16.00 Fréttir.
16.20 Siðdegistónleikar
17.10 Siödegisvakan.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
21.10 Karlakórinn Ægir í Bolungarvik
og Karlakór ísafjarðar syngja is-
lensk og erlend lög.
21.40 Við aldahvörf þáttur um braut-
ryðjendur I grasafræöi og garð-
yrkju á íslandi úm aldamótin.
(RÚVAK)
22.15 V'eöurtregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orö kvöldsins.
22.35 Djassþáttur Umsjónarmaður:
> Gérard Chinotti. Kynnir: Jórunn
Tómasdóttir.
23.15 Kvöldgestir — Þáttur Jónasar
Jónassonar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút-
varp frá RÁS 2 hefst með veður-
fregnum ki. 01.00 og lýkur kl.
03.00.
Laugardagur
21. janúar
9.30 Óskalög sjúklinga.
11.20 Hrimgrund. Utvarp barnanna
Stjórnandi: Sigriöur Eyþórsdótt-
ir.
12.20 Fréttir.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Hermann
Gunnarsson.
14.00 Listalif Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp — GunnarSalvarsson.
16.20 íslenskt mál Jörgen Pind sér um
þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón:
Einar Karl Haraldsson.
17.00 Tónleikar Kammersveitar Reykja-
víkur i Áskirkju 8. þ.m.
18.00 Ungir pennar Stjórnandi: Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK).
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Lifað og skrifað: „Nitján hundruð
áttatiu og fjögur" Þriðji þáttur:
„Ást og uppreisn"
20.20 Utvarpssaga barnanna: „Nikulás
Nickleby“ eftir Charles Dickens
20.40 Norrænir nútimahöfundar — 1.
þáttur: Pentti Saaritsa Hjörtur
Pálsson sér um þáttinn, flytur
inngangsorð og ræðir við skáld-
ið, sem síðan les úr verkum sln-
um.
21.15 Á sveitalinunni Þáttur Hildu
Torfadóttur, Laugum í Reykjadal
WMMMMMMMMMMMMMt
Val Steinars J. Lúövíkssonar
„Eg er vanur að verja tíma mínum frekar í bóklestur en útvarps- og
sjónvarpsneyslu og ætli það verði nokkur breyting þar á um þessa
helgi,“ segir Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur. „Mér sýnist sjónvarps-
dagskráin heldur ekki mjög spennandi þessa helgina, helst að ég gjói
augunum á ensku knattspyrnuna og Bergman-myndina á föstudags-
kvöldið. Á sunnudagskvöldið sé ég að það er að byrja nýr tramhalds-
myndaflokkur — ég hef fyrir reglu að horfa aldrei á framhaldsílokka.
i útvarpinu vekja Kvöldgestir Jónasar oftast forvitni mína, en auk
þeirra langar mig að heyra „Krummi er fuglinn rninn", dagskrána um
Davíð Stefánsson á sunnudag. Kristinn Kristjánsson er skáld sem ég hef
aldrei heyrt getið og líklegt að ég forvitnist til þess að heyra hvað hann
hefur tii málanna að leggja. Þetta er líka svo stuttur tími, ekki nema tíu
mínútur. Meira held ég að ég hlusti ekki eða horfi um helgina."
(RÚVAK).
22.00 Krækiber á stangli Þriðji rabb-
þáttur Guðmundar L. Friöfinns-
sonar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni
Jónsson.
23.05 Létt sigild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 tii kl.
03.00.
Sunnudagur
22. janúar
8.00 Morgunandtakt Séra Lárus
Guðmundsson prófastur I Holti
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10. Veöurfregnir.
10.25 Út og suöur Þáttur Friöriks Páls
Jónssonar.
11.00 Bænasamkoma i Aðventukirkju
Prestur: Séra Erling Snorrason.
Organleikari: Oddný Þorsteins-
dóttir. Hádegistónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir
13.30 Vikan sem var Umsjón: Rafn
J Jónsson.
j/14.10 „Krummi er fuglinn minn“: seinni
hluti. Dagskrá úr verkum eftir og
um Davið Stefánsson skáld frá
Fagraskógi. Umsjón: Gestur E.
Jónasson.
15.15 í dægurlandi Svayar Gests kynnir
tónlist fyrri ára. í þessum þætti:
Sönvarinn Al Joison.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
frengir.
16.20 Um visindi og fræði Charles
Darwin og Gregor Mendel: Sigur-
berar efnishyggjunnar i líffræði
Einar Árnason dósent flytur
sunnudagserindl.
17.00 Síðdegistónleikar.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og ketti
og fleiri islendinga Stefán Jóns-
son talar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Bókvit Umsjón: Jón Ormur Hall-
, dórsson.
y19.50 „Tjaldað til einnar nætur“ Krist-
inn Kristjánsson les eigin Ijóð.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi:
Guðrún Birgisdóttir.
21.00 Gömul tónlist
SJÓNVARP
Inn og út
um
UTVARP
eftir Gísla Helgason
Illlæsi, hósti og hroki
Það er í sjálfu sér lýsandi fyrir bágborið
ástand Lista- og skemmtideildar að
Glugginn skuli vera nær eini vettvangur
listaumfjöllunar í sjónvarpi. Því heldur
mætti halda að ábyrgð stjórnenda yxi í
hlutfalli við þessa leiðu staðreynd, en svo
er ekki, að virðist; Glugginn er magasín
sem snertir lauslega yfirborð listgreina
án þess að skilja mikið eftir hjá áhorfend-
um. Sömu fræðslu gæti sami fengið með
því að lesa listadagskrá blaðanna eða
fylgjast með Á döfinni. Það var því
ánægjulegt að Giugginn s.l. helgi í um-
sjón Sveinbjarnar I. Baldvinssonar brá
upp nokkrum atriðum sem gáfu til kynna
hvað hægt er að gera í sjónvarpsmiðli
þegar listir eru annars vegar. Hér er ég
fyrst og fremst að tala um hina hnit-
miðuðu en efnismiklu umfjöllun Björns
Th. Björnssonar listfræðings um list-
málarann Þorvald Skúlason. Það var
undursamleg afþreying frá flatneskju-
legri poppumfjöllun um vonda list á líð-
Björn Th.—- hnitmiöaöur og vandaöur
flutningur.
andi stundu að fá að heyra menntaðan
og vel máli farinn listfræðing rekja feril
eins merkasta samtíðarmálara okkar á
áreynslulausan en meitlaðan hátt. Eitt-
hvað meira en lítið hlýtur að vera að hjá
sterkasta fjölmiðli á landinu, þegar mað-
ur hrekkur í kút við að heyra vitsmuna-
lega umræðu eða fræðandi setningar um
líf og list sem stingast í gegnum síbylju
íþrótta og skonrokks. Hinn stutti bútur úr
bandarísku sjónvarpskvikmyndinni
„The Day After“ sat eftir á nethimnunni
og vakti ógnvekjandi spurningar um
návist kjarnorkutortímingarinnar. Þarna
var einnig miðillinn á réttum stað, enda
leikin mynd fyrir sjónvarp.
Restin var þessi hefðbundna og álappa-
lega afgreiðsla; brugðjð upp myndum af
væntanlegri sýningu LR á Gísl, Björgvin
Pálsson ljósmyndari endurvakti gamla
framköllunartækni á vatnslitapappír,
Frakkarnir léku eitt lag og leikarar Al-
þýðuleikhússins sýndu brot úr Andar-
drætti leikfélagsins eftir bandaríska
höfundinn Mamet. Nú má segja þessu til
bóta að Stefán Baldursson svaraði spurn-
ingum um Gísl á skýran og kúnnáttusam-
legan hátt, Björgvin er góður fagmaður,
Frakkarnir örugg hljómsveit og Mamet
eflaust áhugaverður höfundur þótt
leikararnir væru afleitir. Sveinbjörn er
einnig geðþekkur stjórnandi. En hvaða
tilgangi þjónar þessi yfirborðslega
skyndikynning? Því ekki að fækka atrið-
unum og veita hverju efni meiri tíma og
fara dýpra og skilmerkilegar í hlutina?
En í rauninni er hér ekki við Gluggann að
sakast — öllu heldur er um heildarstefnu
að ræða.
Ef LSD og sjónvarpið hefði einhvern
menningarlegan metnað myndi það
verja peningum og mannskap í að fram-
leiða frambærilegt* efni. En svo virðist
ekki vera. Og sjónvarpsáhorfendur
hanga í haiarófu. Inn og út um gluggann.
Einhvern tíma fyrr í þessum pistlum
hef ég vikið að kvöldvökum útvarpsins
og haft orð á því, að þær væru nokkurs
konar „ruslakista" í dagskránni. Þessi
grunur minn staðfestist endanlega síðast-
liðin þriðjudags- og miðvikudagskvöld,
þegar ég hlustaði á frásögn Jóns Gísla-
sonar þar sem hann sagði frá sauðaþjófi
í Þingvallahrauni. Sem slík var frásögnin
ágæt, en flutningurinn hins vegar afleit-
ur. Mig rekur minni til þess, að þessi
ágæti maður Jón Gíslason hafi verið álit-
inn ólæs hér á árum áður og varla hefur
hann batnað með aldrinum. Það hefði
verið miklu nær að láta einhvern annan
flytja frásöguþáttinn, þá myndi hann
hafa notið sín, en það var ekki gert.
Annars hef ég heyrt marga erlenda dag-
skrárgerðarmenn hrósa því, hversu
greiðan aðgang almenningur hér á landi
á að útvarpinu. Ef til vill er þetta liður í
því að ieyfa einstaka illa læsum manni
sem Jóni Gíslasyni að fá að lesa eitthvað
eftir sjálfan sig og njóta þess að hlusta á
sjálfan sig í leiðinni.
Með vetrardagskrá útvarpsins hófust
Páll Heiöar — undir núverandi kringum-
stæöum bestur sem stjórnandi beinnar
útsendingar.
tveir nýir þættir. Annar þáttanna er „Á
virkum degi,“ en hinn er Síðdegisvaka
þeirra Páls Heiðars, Páls Magnússonar
og núna nýlega hefur Esther Guðmunds-
dóttir bæst í hópinn. Um Síðdegisvökuna
er gott eitt að segja. Páll Magnússon virð-
ist afbragðs útvarpsmaður og Ester sækir
stöðugt í sig veðrið. En því miður verður
að segjast um Pál Heiðar, að hann fer
versnandi. Eilífar ræskingar, hósti og
önnur búkhljóð eru heldur hvimleið.
Hann þarf að gera eitthvað róttækt í því
að laga á sér hálsinn og á meðan á þessari
raddveiki stendur, ætti hann ekki að
gera sjálfum sér þann óleik að koma fram
í útvarpi.
Hann væri undir þessum kringum-
stæðum bestur sem stjórnandi beinnar
útsendingar, og svo er kominn tími til
þess að hann fari að venja sig af þessum
bresku leiðindaáherslum, sem hann
vandi sig á í Lundúnum hér um árið og
frægar voru í Lundúnapistlum hans. Gott
ráð við hálsveiki Páls væri fyrir hann að
hætta umsvifalaust reykingum, ef hann
þá reykir, hvíla sig á áfengum drykkjum,
ef hann þá neytir þeirra, eða þá að anda
að sér heitri gufu frá sjóðandi heitu
kamillutei bæði kvölds og morgna. þá
væri gott fyrir hann að fá uppáskrift
læknis og taka A-vítamín með þessu. Ég
hef reynslu af slíkum vítamínum og
tegufukúrum og gáfust þeir vel.
Sigmar B. hefur verið með þættina
Listalíf í vetur. Eru þeir sumpart nokkuð
góðir, en sitt hvað mætti betur fara. Þá
langar mig að nefna leikgagnrýni Páls
Baldvinssonar. Hún er flutt af slíku yfir-
læti og hroka, að fram úr hófi gengur.
Það þjónar engum tilgangi að nota gífur-
yrði um þá hluti, sem fjallað er um og
kalla sumt „rugl“ eða öðrum slíkum
ónefnum. Gagnrýni Páls myndi ná miklu
betur tilgangi sínum, ef hún væri sann-
gjarnari og hógværari.
26 HELGARPÓSTURINN