Helgarpósturinn - 21.06.1984, Side 27

Helgarpósturinn - 21.06.1984, Side 27
leið innanríkisstjómarvandamál. Þorsteinn er nú kominn að þeirri eindregnu niðurstöðu, samkvæmt góðum heimildum HP, að í haust verði rétti tíminn fyrir hann að taka sæti í ríkisstjóminni. Vandinn er sá, að þrátt fyrir talsverðar þreif- ingar vill enginn af aúverandi ráðhermm Sjálfstæöiaflokksins standa upp fyrir formanni sínum. Síst af öllu mun Geir Hallgríms- son, utanríkisráðherra og fyrrum formaður, hafa áhuga á að láta af ráðherradómi í bráð. Eina von hinnar ungu forystu flokksins er nú talin sú að Matthíasi Bjamasyni, heilbrigðis- og samgönguráðherra, gæti verið sama þótt hann drægi sig í hlé. Þá kemur hins vegar upp sú staða, að embætti Matthíasar þykir ekki mjög hentugt eða ákjós- anlegt fyrir formann. Kallar þetta því á uppstokkun innan stjómar- innar, og bindur flokksforystan vonir við að framsóknarmenn væm til í að víxla einhver jum ráðu- neytum til að leysa aðsteðjandi kreppu hjá samstarfsflokknum. í stjómmálaheiminum em menn a.m.k. sammála um að spennandi staða komi upp í þessum málum í haust... B ■Plaðamaður með félags- skírteini nr. eitt, Þói-arinn Þór- arinsson, ritstjóri Tímans og nú NT, tekur alveg á næstunni saman föggur sínar og stingur gamla sjálf- blekungnum í brjóstvasann eftir drjúgt ævistarf í þágu málgagns Framsóknarflokksins. Menn em þegar famir að bollaleg; ;ja hver setjist í sæti Þórarins, en vitað er að Ingvar Gislason alþingismað- ur hefur hug á starfinu. Ekki er talið líklegt að Ingvar komi inn þegar Þórarinn gengur út síðar í sumar, og reyndar mun enginn annar gera það um sinn. Hyggjast NT-menn láta á það reyna hvort ekki dugi að Magnús Olafsson verði einn um hituna, en þess í stað verði frétta- stjómm fjölgað úr tveimur í þrjá. Reynslan af þessu iyrirkomulagi verður svo trúlega metin nær ára- mótum... að vakti athygli er Sigrún Þorsteinsdóttir, áður varafor- mannskandídat í Sjálfstæðis- flokknum, sagði sig úr honum og lýsti því sem mannskemmandi að starfa innan hans. Sigrún hefur starfað í Samhygðarhreyfingunni og mun nú taka þátt í undirbúningi að stofnun nýs stjómmálaflokks í tengslum við Samhygð (sjá nánar um það í Bréfi til ritstjómar á bls. 10). HP heyrir að Sigrún hafi lengi verið ósátt við vinnubrögð í Sjálf- stæðisflokknum, en dropinn sem fyilti mælinn hafi þó verið atburð- ur sem gerðist á fundi framámanna í kvennahreyfingu flokksins í Reykjavík nýlega. Eins og kunnugt er hefur Samhygð að undanfömu gengist fyrir undirskriftasöfnun gegn atvinnuleysi af verulegum krafti og safnað tugþúsundum undirskrifta. Á þennan fund sjálf- stæðiskvenna kom Sigrún og hafði með sér undirskriftalista. Bað hún viðstaddar konur að skrifa nöfn sín á listann. Allar neituðu. Upp úr því sagði Sigrún bless... u H^Hefnd á vegum mennta- málaráðuneytisins hefur undan- farna mánuði unnið að endurskoð- un á Iögum um Myndlista- og handíðaskóla íslcmds, en þau þykja fyrir mcirgt löngu vera orðin úrelt. Formaður nefndarinnar hefur ver- ið Einar Hákonarson, fyrrum skólastjóri skólans, og liggja frum- niðurstöður hennar nú fyrir ráð- herra. Þar er meðal annars lagt til að sérdeildum skólans verði kom- ið á akademískt stig er jafngildi há- skólanámi. Þessi róttæka breyting á högum skólans, ef af verður, þýð- ir að hann þarf að ráða til sín próf- essora við hverja sérdeild og fjölga föstum kennurum við þær að auki. Þar með er knúið á um úrbætur í húsnæðismálum skólans sem hcifa verið í hrikalegum ólestri síðustu ár. í niðurstöðum nefndarinncir er einnig lagt til að nýjar deildir verði teknar upp við skólann, meðal annsirs í fatahönnun, málmsmíði og ljósmyndun. Breyting MHÍ í akademíu er gamall draumur að- standenda hans en hún auðveldar nemendum hans meðeil annairs að halda til frekara náms erlendis... 'tÍSFið sögðum í siðasta HP frá hátíðcihöldum í tilefni aJ því að óskabarn þjóðarinnar, Eimskipa- félag íslands, Vcirð sjötugt. Þar kom m.a. freun að mikilli fjöl- skylduhátíð fyrir almenning sem fyrirhuguð var í Sundahöfn í maí var aflýst vegna þess að stjómar- formaður félagsins gat ekki verið á landinu þá. Hins vegar var fjöl- menn mótttaka fyrir viðskipta- menn fyrirtækisins sJ. föstudag í Sundahöfn. Og nú getum við bætt því við að þótt fjölskylduhátiðinni stóm hafi verið aflýst, var engu að síður haldin velheppnuð fjöl- skylduhátíð á vegum Eimskips á laugardaginn var í tilefni afmælis- ins. Þangað var boðið öllum starís- mönnum félagsins og fjölskyldum þeirra, og flutt fjölbreytt skemmti- dagskrá og farið í siglingu á íra- fossi. Þátttakendur voru á áttunda hundrað og mæltist hátíðin vel fyr- ir hjá starfsmönnum... LAUSNÁ SKÁKÞRAUT Ebert 1. Kb8! 2. c8D 3. Db7+ og 4. Hc8 mát. Hér var vandinn sá að velja réttan reit fyrir kónginn, svo að hann væri ekki fyrir drottningunni. Gamalt stef Þetta hafa sjálfsagt flestir lesendur kannast við; 1, Re7 + kh8 2. Dxh7 + Kxh7 3. Hh3 mát. :-XvWAWvV.- VESTURBÆR Nýstandsett, þriggja herb. íbúö á góðum stað í Vesturbænum, park- et á gólfum, viður í loftum, vand- aðar innréttingar, verð 1.600 þús. BARMAHLÍÐ Vönduðsérhæð-möguleikará2ja herb. íbúð í kjallara- í skiptum fyrir 4-5 herb. íbúð í Hlíðunum - verð 2.7 millj. HALLVEIGARSTIGUR 120 fm. sérhæð - hæð + ris - góðlega tilbúin undir tréverk - samþykktar teikningar að breytingu fylg ja - verð 1.700 þús. SELTJARNARNES Parhús- 130 fm.-mikiðendur- nýjað, nýir franskir gluggar, nýtt bað - 3 rúmgóð herbergi + fatabúr uppi, rúmgóð stofa og eldhús og bað á neðri hæð - góður garður, bílskúrsréttur, eignarlóð-verð 3.0 millj. ARNARHRAUN Ca. 200 fm. einbýli með innbyggð- um bíiskúr - mjög vandað hús, f ullbúið - nýjar innréttingar - stór gróinn garður. KASTALAGERÐI KÓP. 5 herb. sérhæð í tvíbýlishúsi -150 fm. — bílskúr — stór garður — friðsæll staður - skipti á 3ja herb. íbúð í Vesturbænum eða miðbæ Reykjavíkur. Verð 2.6 millj. m m HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.