Helgarpósturinn - 21.02.1985, Side 19
Stutta og laggóða bréfið er dag-
sett 13. febrúar, en áður hafði Ljós-
myndarafélagið sent nokkrum
mönnum bréf, þar sem þeir voru
sakaðir um að hafa farið inn á verk-
svið félaga í Ljósmyndarafélaginu
og þá einkum tekið tízkuljósmyndir
og myndir í auglýsingar o.s.frv.
Fleiri atriði voru talin til.
í þessu bréfi var viðkomandi ljós-
myndurum hótað að þeir yrðu
kærðir ef þeir létu ekki af iðju sinni.
Meðal þeirra sem fengu bréf af
þessu tæi voru Kristján Ingi Einars-
son, Friðþjófur Helgason, Morgun-
blaði, Jim Smart, Helgarpósti,
Snorri Snorrason flugmaður og
fleiri.
Snorri Snorrason sagði í samtali
við Helgarpóstinn, að hann gæti
ekki sætt sig við hótunarbréf af
þessu tæi. „Þess vegna fékk ég Sig-
urð Líndal lagaprófessor til þess að
kanna málið fyrir mig lagalega og
hann skilaði mér síðan mjög ítar-
legri greinargerð. Niðurstaða henn-
ar er sú, að í mínu tilviki a.m.k. hafi
Ljósmyndarafélagið heldur lakan
málstað."
LISTGREIN EÐA
IÐNGREIN
í rauninni snýst spurningin um
lykilatriðið hvort flokka eigi ljós-
myndun sem iðngrein eða listgrein.
Inn í þessa spurningu koma svo at-
riði eins og þau hvort kaupendur
ljósmynda velji sér ljósmyndara eft-
ir félagatali Ljósmyndarafélagsins
eða eftir því hverja þeir telja hæf-
asta og bezta, burtséð frá löggild-
ingu Ijósmyndunar sem iðngreinar.
„Þessi flokkun á ljósmyndurum er
fáránleg," segir Jim Smart ljósmynd-
ari Helgarpóstsins. Jim er frá Bret-
landi og hann staðhæfir að
80—90% af öllum
blaðaljósmyndurum þar séu
óskólagengin og raunar megi
staðhæfa hið sama um aðra
ljósmyndara. „Ljósmyndun er list-
grein á Bretlandi og það dytti eng-
um í hug að setja ljósmyndun undir
sama hatt og múrverk eða pípu-
lagnir," segir Jim.
Þórir H. Óskarsson, formaður
Ljósmyndarafélagsins, segir að að-
gerðir félagsins beinist ekki sérstak-
lega að blaðaljósmyndurum, heldur
miklu fremur að ljósmyndurum sem
stofnuðu fyrirtæki en hefðu ekki
réttindi. Þó kvað hann viðbrögð
eins af dagblöðunum hafa kallað á
andsvar, því viðkomandi forsvars-
maður blaðs hafi ekki viljað ráða
tvo einstaklinga með réttindi en
ráðið þess í stað réttindalausan
mann. Viðkomandi „ráðandi mað-
ur“ mun hafa sagt að hann vildi ekki
iðnlærðan ljósmyndara vegna þess
að reynslan sýndi að þeir stoppuðu
stutt við í vinnu.
Önnur skýring sem HP heyrði var
sú, að forsvarsmaður biaðsins væri
þeirrar skoðunar að þeir iðnlærðu
væru einfaldlega lélegri Ijósmynd-
arar en sá sem var ráðinn.
í blaðaljósmyndarastétt fer ekki
mikið fyrir virðingu fyrir því ljós-
myndanámi sem fram fer í Iðnskól-
anum. Þó taka allir þeir ljósmyndar-
ar, sem HP ræddi við, fram að þar
væru almennt mjög góðir kennarar,
„enda er víst bara einn kennaranna
með sveins- og meistararéttindi,"
eins og einn þeirra orðaði þetta í
gamni.
Hins vegar mun fara afar lítið fyrir
eiginlegu ljósmyndanámi í Iðnskól-
anum, sex vikna verklegt nám af
einu og hálfu ári í sjálfum skólanum.
í tvö og hálft ár eru svo nemarnir
hjá meisturum „aðallega við að
sópa gólf“. Sá sem átti síðustu at-
hugasemdina bætti því við, að sjálf-
stæði nemanna væri lítið sem ekk-
ert og „við getum ekki fengið neina
tilsögn í blaðaljósmyndun, enda
þótt formaður Ljósmyndarafélags-
ins hafi haldið því fram í útvarpsvið-
tali“.
Snorri Snorrason, sem lært hefur
ljósmyndun af reynslu í áranna rás,
er ómyrkur í máli, þegar talið berst
að félagi ljósmyndara og námi og
kennslu í greininni hér.
LOKUÐ STÉTT -
FÁRÁNLEGT
„Þetta er raunar mjög krítískt mál
fyrir Ljósmyndarafélagið, því það er
annað í þessu máli sem er svaka-
Þessir sex Ijósmyndarar eru aðeins hluti af öllum hópnum, sem
starfarsem Ijósmyndarar fyrir blöðin. Alls eru þeir 20-25 talsins.
Friðþjófur Helgason
Morgunblaðinu
Gunnar V. Andrésson
Kristján Ingi Einarsson
lausamaður (free-lance)
Jens Alexandersson
Frjálst framtak
Jim Smart
Helgarpóstinum
Bjarnleifur Bjarnleifssor,
DV
Ljósmyndarar
í hár saman!
Ljósmyndarafélag íslands hefur sent um þad bil 50 bréf út til blada, tímarita og útgáfufyrir-
tækja nú síðustu dagana, þar sem forsvarsmönnum fyrirtækjanna er gerð grein fyrir því, að
ljósmyndun sé löggilt iðngrein. Yfir 90% allra ljósmyndara blaðanna eru ekki iðnskólageng-
in í Ijósmyndun og eru þar með réttindalaus. I þessum hópi eru margir þekktustu og bestu
ljósmyndarar landsins.
Fyrstu viðbrögð þeirra eru þau, að Ljósmyndarafélagið sé að segja þeim stríö á hendur. Þessu
neitar Þórir H. Óskarsson, formaður félagsins. Aðspurður um ástæðu útsendingar þessa
bréfs kvað hann hana vera þá, að gera ljósmyndurum og útgefendum ljóst að samkvæmt lög-
um þurfi að hafa tiltekin réttindi sem kveðið væri á um í lögum um iðnfræðslu, reglugerð
og iðnaðarlögunum.
Hjá embætti ríkissaksóknara liggja nú kærur á hendur tveimur aðiljum vegna þess sem
Ljósmyndarafélagið telur ólögmæta starfsemi. Það er Landssamband iðnaðarmanna, sem
kærir fyrir hönd félagsins. Bragi Steinarsson hjá saksóknara sagði við HP, að ekki væri búið
að taka ákvörðun um hvað yrði gert í málinu.
legt. Það er það, að ætli ungur mað-
ur á íslandi að læra ljósmyndun þá
er mjög erfitt að komast í nám. Það
er ekki bara það, að kennslan fari
fram einungis annað hvert ár, held-
ur verður væntanlegur nemi að
komast inn hjá einhverjum faglærð-
um ljósmyndara sem nemi og það er
víst enginn leikur. Þeir taka ekki all-
ir nema og þeir sem gera það taka
yfirleitt bara einn hver," segir
Snorri.
„Strangt til tekið er þetta nám
nánast lokað á íslandi. Menn verða
að flýja til útlanda og svo verja þeir
sig með því, að menn verði kærðir
séu þeir eitthvað að fitla við þetta,"
segir Snorri Snorrason. „Þetta Ljós-
myndarafélag, stéttarfélag eða
hagsmunafélag atvinnuljósmynd-
ara, hefur það í hendi sér hverjir og
þá hvort menn geta lært ljósmynd-
un á íslandi. Þetta er fáránlegt."
Þórir H. Óskarsson, formaður
Ljósmyndarafélagsins, sagði við HP,
að það væri víða pottur brotinn
varðandi ljósmyndun hérlendis og
lög og reglur um ljósmyndun sem
löggilta iðngrein væru þverbrotin.
En hvernig ber að skilja bréf Ljós-
myndarafélagsins? Hafa allir þessir
50 aðiljar gerzt brotlegir?
Þórir: „Nei, það er nú alveg óþarfi
að taka þessu svona. Hins vegar er
það alveg ljóst, að iðnlöggjöfin er
brotin, það fer ekkert milli mála,
einkum í sambandi við auglýsinga-
og iðnaðarljósmyndun. Hvað varð-
ar blaðaljósmyndara skilst mér að
þeir starfi samkvæmt einhverri
gamalli undanþágu, sem gefin var
út af atvinnumálaráðuneytinu á
meðan það var við lýði. Þessi und-
anþága náði eingöngu til fréttaljós-
myndunar, en nú hafa margir þess-
ara manna teygt sig allmiklu lengra
en það. Sumir hverjir hafa t.d. tölu-
vert tekið auglýsingamyndir að sér
og myndir fyrir fyrirtæki. Það eru
ýmis dæmi um það,“ sagði Þórir.
Einn þessara manna er Kristján
Ingi Einarsson, sem hefur verið
kærður til saksóknara. Meðal verk-
efna sem Kristján Ingi hefur unnið
Þórir H. Öskarsson
formaður
Ljósmyndarafélagsins:
„Okkar iðngrein ekki
lokaðri en margar
aðrar."
Ragnar Axelsson
Ijósmyndari á
Morgunblaðinu:
„Þessir menn gætu
ekki kennt blaða- eða
fréttaljósmyndun."
er ljósmyndun fyrir Iðnaðarbank-
ann, Fréttablað iðnaðarins auk
fastra verkefna, eins og t.d. mynda-
tökur fyrir Alþingi.
„MEIRA EN VIÐ
HÉLDUM”
Þórir sagði, að reynt hefði verið
að afflytja mál Ljósmyndarafélags-
ins og koma því inn hjá fólki að fé-
lagið væri á móti öllum sem bæru
framan á sér myndavél. „Það er al-
ger misskilningur," sagði Þórir.
„Okkur dytti t.d. aldrei í hug að am-
ast við þeim sem taka náttúrulífs-
myndir."
I þessu sambandi er athyglisvert
áð minna á dóm Hæstaréttar í máli
ákæruvaldsins gegn Hjálmari R.
Bárðarsyni, fyrrv. siglingamála-
stjóra og ljósmyndara, sem er lands-
frægur fyrir gullfallegar ljósmyndir
sínar, einkum landslagsmyndir.
Dómurinn var kveðinn upp 1955 og
Hjálmar sýknaður af kröfum ákæru-
valdsins, þar sem hann var sakaður
um brot á iðnlöggjöfinni, eins og t.d.
Kristján Ingi á vorum tímum. Hlið-
stætt mál var höfðað á sama tíma
gegn Guðna Þórðarsyni (í Sunnu).
Hann var einnig sýknaður.
HP spurði Þóri hvort hann liti á
ljósmyndun sem listgrein eða iðn-
grein.
„Þetta er iðngrein hér og hefur
ekki verið til umræðu að breyta því.
Mitt viðhorf er, að það sé ekki nokk-
ur ástæða til að breyta því að svo
komnu máli.“
Nú túlka blaðaljósmyndarar þetta
bréf ykkar sem hótun. Verður eitt-
hvað framhald af ykkar hálfu?
„Nei, bréfið er fyrst og fremst
hugsað sem áminning um að ljós-
myndun sé löggilt iðngrein."
„HÁLFVITALEG
VINNUBRÖGÐ''
Þá kom fram hjá Þóri, að mennt-
un ljósmyndara skipti öllu um inn-
göngu í Ljósmyndarafélagið. Það
væri ekki nóg að viðkomandi ljós-
myndari væri búinn að sanna að
hann væri góður ljósmyndari.
HP ræddi við Ragnar Axelsson,
ljósmyndara á Morgunblaðinu, sem
vel að merkja hefur ekki fengið
neitt bréf sjálfur. Hann var spurður
hvað væri á seyði í stétt ljósmynd-
ara.
„Ég veit satt að segja ekki hvað er
að gerast, því mér þykja þetta held-
ur hálfvitaleg vinnubrögð. Maður á
ekki til orð, því alls staðar sem ég
hef kynnzt þessu og hef rætt við
ljósmyndara (ekki neina gervi-
karla), þar er ekki verið að rakka
niður náungann. Ef einhver er góð-
ur, þá er borin virðing fyrir honum.
Hér er hins vegar ekkert metið það
sem menn eru að gera. Gæði mynda
virðast ekki skipta neinu máli. Ljós-
myndun er flokkuð hér sem iðn-
grein, enda erum við á steinöld í
þessum efnum,“ sagði Ragnar.
„VÆRU ÓFÆRIR AÐ
KENNA BLAÐA-
LJÓSMYNDUN''
„Ég er á þeirri skoðun," sagði-
Ragnar, „að þessir náungar væru
alls ófærir um að kenna blaðaljós-
myndun eða fréttaljósmyndun. Þeir
geta það ekki. Hins vegar eru þeir
miklu klárari á sínu sviði en við, en
svið flestra þessara manna er því
miður svo þröngt."
Því má skjóta hér inn, að í reglu-
gerð um iðnfræðslu er löggilt ljós-
myndun flokkuð í tvennt: Almenna
ljósmyndun og persónuljósmyndun.
Stóra spurningin er því hvað „al-
menn ljósmyndun" þýðir. Nær það
hugtak yfir t.d. neðansjávarljós-
myndun eða geimljósmyndun?
Ragnar Axelsson tók skýrt fram,
að í hópi félaga í Ljósmyndarafélag-
inu væru mjög góðir ljósmyndarar,
sumir jafnvel í heimsklassa.
Hvað um það, upp er kominn
ágreiningur á meðal ljósmyndara
og HP hefur fregnað að e.t.v. verði
stofnað nýtt félag þeirra sem eru ut-
an Ljósmyndarafélagsins.
Þess má að lokum geta, að aðal-
fundur Ljósmyndarafélags íslands
er á laugardaginn. Félggið verður
60 ára á næsta ári.
HELGARPÓSTURINN 19