Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 4
l umfjöllun Helgarpóstsins um upplausn hjá ísfilm í þessu blaði kemur fram hjá Hjörleifi Kvaran, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að það séu allar líkur á því að hann hætti störfum þar um næstu mán- aðamót. Þá rennur út ársleyfi Hjör- leifs frá störfum hjá borginni, en hann var/er skrifstofustjóri borgar- verkfræðings. Á meðan hefur gegnt störfum skrifstofustjóra Agúst Jónsson, sem þá fer væntanlega til sinna gömiu starfa hjá sakadómi, þar sem hann er einnig í ársleyfi. .. Ir ■ vkristófer Már Kristins- son, fyrrum formaður landsnefnd- ar Bandalags jafnaðarmanna, tjáði alþjóð í beinni útsendingu á gaml- árskvöld að hann hygðist verja fyrstu dögum hins nýja árs í að leita sér að skemmtilegri vinnu. Sú við- leitni virðist hafa borið árangur, þvi Kristófer hefur nú hafið störf hjá fyr- irtækinu Miðlun, sem m.a. veitir fólki þá þjónustu að klippa út og halda saman blaðaskrifum um ýmsa málaflokka . . . wMl að hefur ekki beinlínis verið góður (köku)biti fyrir Þorstein Pálsson fjármálaráðherra að hafa sett 30% vörugjaldið á kökurnar. Bakarar hafa enda lýst því yfir að þeir muni baka vandræði. En málið þarf svo sem ekki nauðsynlega að verða flókið né erfitt viðureignar. Það er nú einu sinni þannig að það er bakarans að færa inn í bókhaldið hversu mikið hveiti fer í brauð og hversu mikið í kökur. Reikna enda kunnugir með því að eina raunveru- lega breytingin verði sú, að bók- haldið sýni verulega minnkandi sölu á kökum en aukningu brauð- sölu. Sjálf neyslan muni þó ekki breytast. . . SHÍÐASHACinn Hveradölum. Sími 99-4414 og 10024. Ársliátídir,\ þorrablót, fundaþjónusta, einkasamk vcemi, brúðkaupsveislur. Sjáum um flutninga á fólki til ogfrá Hveradölum. í Námsflokkum Reykjavíkur eru starfræktar tvær deildir, PRÓFADEILD og ALMENN DEILD. Til prófadeildar telst nám á grunnskólastigi og fram- haldsskólastigi: AÐFARANÁM, samsvarar 7. og 8. bekk grunnskóla. FORNÁM, samsvarar 9. bekk grunnskóla. FORSKÓLI SJÚKRALIÐA eða HEILSUGÆSLU- BRAUT, undirbúningur fyrir Sjúkraliðaskóla ÍS- LANDS. VIÐSKIPTABRAUT, framhaldsskólastig. ALMENNUR MENNTAKJARNI, íslenska, danska, enska og stærðfræði á framhaldsskólastigi. HAGNÝT VERSLUNAR- og SKRIFSTOFUSTÖRF, framhaldsskólastig. Nám í prófadeild er allt frá 1 önn í 4 annir, hver önn er 13 vikur og er kennt 4 kvöld í viku. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Laugalækjar- skóla. Skólagjöld greiðast mánaðarlega fyrirfram. í almennri deild (almennum flokkum) er kennt einu sinni til tvisvar í viku, ýmist 2, 3, eða 4 kennslustund- ir í senn í 11 vikur. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Laugalækjar- skóla, Gerðubergi og Árseli. Námskeiðsgjald fer eftir kennslustundafjölda og greiðist við innritun. Upplýsingar í símum 12992, 14106 og 14862 á skrifstofu Námsflokke Reykjavíkur, Miðbæjarskól- anum, Fríkirkjuvegi 1. □KUMANIMA Mikil- vægt er að menn geri sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem akstri fylgir. Bilar eru sterk- byggðir í samanburði við fólk. Athyglisgáfan verður því að vera virk hvort sem ekið er á þjóðvegum eða í þéttbýli. Song Dænastf Ijóðskáldið Su Dongpo mælti með því vegna heilsubætandi eiginleika þess. Frábær drykkur, hressir hugann og færir hamingjul Samkvæmt þeim sem drekka oft te, jafnar Tuo Te blóðþrýsting, blóðsykur- innihald og bætir æðaveggi, gagnar einnig sykursjúkum, hreinsar meltingarveginn og dregur úr óhóflegri þyngd. Chongqing Tuo-Te er heilsusam- legur morgunverðardrykkur. PÍTUR EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. GIRNILEGIR HAMBORGARAR OG ÝMISLEGT ANNAÐ GÖDGÆTI. Eiríkur, faðir pítunnar á fslandi, er með sitt eldhressa lið í eldhúsinu og frammi í sal er gamla góða „djúkboxið" á fullu. SENDUM EINNIG HEIM EF ÞÚ KEMST EKKIÁ STAÐINN Fítu-húsið Iðnbúð 8. Garðabæ Sími 64 12 90. Opið til kl. 05 Laugardags- og sunnudagsmorgna. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.