Helgarpósturinn - 16.01.1986, Page 6

Helgarpósturinn - 16.01.1986, Page 6
INNLEND YFIRSÝN Stjórnarmaður í Brunamálastofnun Is- lands heldur því fram í samtali við Helgar- póstinn að ástandið á eldvörnum langflestra opinberra stofnana sé mikið hneyksli. Þessi maður vill ekki koma fram undir nafni, en segir HP: „Ástandið er sumstaðar þannig að við viljum loka þeirn." Hann vill ekki segja nákvæmlega við hvaða staði hann á, af ótta við að „panikera þá sem þar dvelja" eins og hann kemst að orði. Þar komi þó á móti „nauðsynin að opna þetta mál í fjölmiðlum", en varla verði með öðru góðu móti bent á þetta vandamál svo eftir því sé tekið. Annar maður, kunnur eldvörnum á Reykjavíkursvæðinu, segir blaðinu: „Rétt- lætiskennd okkar íslendinga er hvað ríkust þegar búið er að sparka fast í rassinn á okk- ur.“ Hann hefur þá í huga brunann á Kópa- vogshæli í byrjun vikunnar, en afleiðingar hans voru hörmulegar eins og komið hefur fram í fréttum. Einn vistmaður lést og aðrir fimm björguðust úr húsi á síðustu stundu, að- framkomnir af súrefnisskorti og reykeitrun. Alls var fjórtán mönnum bjargað úr brun- anum. Strax í kjölfar fréttanna af þessum at- burði, þar sem meðal annars kom fram að ekkert eldvarnakerfi er á öllu Kópavogshæli, hófust umræður manna um það sem þarna hefði betur mátt fara. Og má, því komið hef- ur í ljós að ástandið á öðrum opinberum stofnunum er í mörgum tilvikum engu betra en á Kópavogshæli, þegar litið er á eldvarnir. Orð stjórnarmannsins í Brunamálastofnun íslands staðfesta það enn frekar. Hann segir að það sé nánast sama hvert litið sé í opinbera geiranum; eldvarnir sitji þar all- staðar á hakanum. Það sé algengt að reglur þær sem Brunamálastofnun setti árið 1979 um eldvarnakröfur við gerð nýbygginga, séu þverbrotnar, jafnvel vísvitandi. Hann bendir til dæmis á nýbyggingar stærstu spítala landsins, Landspítalans og Borgarspítalans. „Trassaskapurinn á þessum stöðum í eld- varnamálum er slíkur að engu tali tekur. Til- högun nýjustu álma við þessar stofnanir er nánast andstæða þess sem krafist er í reglu- gerð okkar um eldvarnir. Nýju álmurnar eru eitt helvítis brunahólf. Það mátti hvergi „Trassaskapurinn í eld- vörnum spítala tekur engu tali,“ segir stjórnar- maður hjá Brunamála- stofnun íslands. Elliheimilin med verstu eldvarnirnar? koma hurð fyrir á milli og fyrir bragði er stór- kostleg hætta á því að allt eins og það leggur sig fuðri upp í hvelli ef einhver eldur fær að kvikna. Þetta er hræðilegt." Símon Steingrímsson forstjóri ríkisspítal- anna segist auðvitað vera fylgjandi uoibót- um í eldvörnum á spítölum landsins. Honum finnst hinsvegar lýsingin hér á undan helsti hástemmd. Það sé umdeilanlegt hversu ástandið sé slæmt. Hann segir: „Það er gífur- legur fjárskortur til allra framkvæmda og kaupa á ríkisspítalana. Við erum undir stans- lausri pressu um að spara á sem flestum svið- um. Það er kalt mat hvers tíma hvar pening- arnir komi sér best. Valið getur til dæmis staðið á milli þess að kaupa bráðnauðsynleg lækningatæki og fullkomið eldvarnakerfi. Og meðan ekkert gerist, hvergi kviknar minnsti eldur, er það vitaskuld freisting að kaupa frekar lækningatækin. Við skulum í því sambandi líka hafa í huga, að það er ekki síður öryggisatriði að lækningatækin séu í góðu lagi.“ Viðmælandi HP frá Brunamálastofnun segir að eldvarnakerfi þurfi ekki að kosta ýkja mikið „og miklu minna en menn láta sér detta í hug, engar milljónir að minnsta kosti". Hann segir að fyrst um sinn sé réttast að bæta úr þar sem brýnust er þörfin, áður en farið verður út í stórt og almennt átak til að kippa þessum málum í liðinn. Nauðsynlegt sé að fylla strax í verstu gloppurnar. Símon Steingrímsson vill hinsvegar meina að mjög erfitt sé að meta hvað sé nauðsynlegast í þessum efnum. I sínum huga sé það nauð- synlegasta í flestum tilvikum það yfirgrips- mikið, að réttast væri að ganga að fullu í verkið frekar en að vinna það í áföngum. Það síðarnefnda sé jafnvel dýrari leið, þegar upp sé staðið. Áð mati Brunamálastofnunar íslands er ástand eldvarna þokkalegt á Kleppsspítala og allgott á Landakoti, en á öðrum spítölum ríkir „meira og minna ófremdarástand" í þessum málum eins og viðmælandi okkar segir frá. Af öðrum stofnunum hins opinbera sé ástandið skást í fyrirtækjunum og á dag- heimilunum. Mjög misjafnt ástand sé á skrif- eftir Sigmund Erni Rúnarsson stofuhúsnæði, ýmist mjög vont eða til fyrir- myndar, og fari það því miður ekki eftir því hvorum megin '79 þessir staðir voru teknir í notkun. Utan spítalanna sé ástandið á elli- heimilunum og flestum samkomuhúsunum hinsvegar langverst og sé það samdóma álit stjórnar Brunamálastofnunar. Stjórnar- maðurinn sem hér hefur talað, segir: „Hvað samkomuhúsin varðar eru útgönguleiðir yf- irleitt mjög fáar og reyndar hvergi í samræmi við þann fjölda sem þarf að flýta sér út ef eldur brýst út. Troðningurinn í útgönguleið- um þessara húsa getur sjálfsagt orðið háska- legri en eldurinn inni fyrir. Á elliheimilunum er sjaldgæft að fullkomin viðvörunarkerfi séu til staðar og yfirleitt er ekki að finna eldvarnahurðir á þessum stöðum sem hamla útbreiðslu elds. Elliheimilin eru oftast eitt gap og jafnframt er víða svo, að útgönguleið- irnar eru erfiðar því fólki sem eldinn þyrfti að flýja, myndi hann kvikna. Sum elliheimil- in, ég vil ekki nefna nöfn, eru með verstu eldvarnirnar á Islandi, sýnist mér þegar litið er yfir skýrslur." Þeir forsvarsmenn dvalarheimila á Reykja- víkursvæðinu sem Helgarpósturinn náði í vegna þessara fullyrðinga Brunamálastofn- unar, töldu að hér væru á ferðinni vafasamar alhæfingar. Pétur Sigurðsson í stjórn Hrafn- istu kvaðst ætla að uppbygging eldvarna hjá DAS væri að ýmsu leyti til fyrirmyndar. Á Hrafnistu í Reykjavík væri verið að koma fyr- ir fullkomnasta aðvörunarkerfi sem völ væri á og væri því verki lokið að hluta. Áætlun væri um að ganga í sama verk suður í Hafn- arfirði eins fljótt og unnt væri. Pétur bætir við: „Auðvitað er aldrei nógu varlega farið í þessum efnum og auðvelt að gagnrýna ýmis- legt sem betur má fara. En því má fólk trúa, að við gerum okkar besta." Gtsli Sigurbjörns- son forstöðumaður Elliheimilisins Grundar, taldi líka að ástand eldvarna á sínum bæ væri í engu samræmi við fullyrðingar Bruna- málastofnunar. „Ég veit ekki annað en þetta sé nokkuð gott á Grund," sagði Gísli. ERLEND YFIRSYN Dramb er falli næst segir hið fornkveðna, og þessa dagana sannast það eftirminni- ■lega á Margaret Thatcher. Einmitt þegar álit breska forsætisráðherrans og fylgi við íhaldsflokk hennar var komið á uppleið í skoðanakönnunum eftir langa lægð, held- ur hún þannig á málum að vandséð er hvernig forustuímyndin sem hún hefur lif- að á í breskum stjórnmálum fram til þessa getur átt sér viðreisnar von. Thatcher reyn- ist hafa blekkt stjórn sína, reynt að þagga niður í samráðherra sem vildi leggja sig í framkróka til að evrópskir hagsmunir yrðu yfirsterkari bandarískum og látið einn vikapilt sinn í ráðherrastöðu bera ósann- indi á borð fyrir breskan þingheim. Meira að segja Times fær sig ekki lengur til að bera blak af járnfrúnni. Málið snýst um framtíð bresku þyrlu- smiðjanna Westland. Þær eru ekki stórfyr- irtæki, en það eina í Bretlandi sem telst í fremstu röð þessarar þýðingarmiklu grein- ar flugvélaiðnaðarins. Gjaldþrot blasti við Westland eftir mikið tap á síðasta reikn- ingsári. Á jólaföstu hillti undir björgunar- leiðangra úr tveim áttum til liðs við nauð- statt fyrirtækið. Fyrri á vettvang með frágengið tilboð var United Technologies Corp, bandarísk samsteypa sem á fyrir Sikorsky þyrlusmiðj- urnar, í félagi við Fiat á Ítalíu. Margbrotnari og því seinni til var bjarghringur frá helstu evrópskum fyrirtækjum sem halda uppi keppni við bandarískan flugvélaiðnað. Þar stóðu saman að tilboði um hlutabréfakaup í Westland, endurfjármögnun að öðru leyti og útvegun verkefna Aerospatiale í Frakk- landi, Messerschmitt-Bölkow-Blom í Vest- ur-Þýskalandi, Agusta á Ítalíu og bresku fyrirtækin British Aerospace og General Électric. Á fundi með stjórn varnarmálanefndar þingflokks íhaldsmanna ræddi Thatcher framtíð Westland. Nefndarmenn mæltu með að tekið yrði evrópsku tilboði, og í Guardian hefur Hugo Young eftir þing- mönnum sem fundinn sátu, að ómögulegt hafi verið að skilja forsætisráðherra öðru vísi en hún væri á sama máli, ef slíkt tilboð kæmi fram, en teldi tormerki á að af því gæti orðið. Sikorsky-tilboðið lá á borðinu, og Thatcher lét Leon Brittan viðskiptaráð- herra skýra sir John Cuckney, stjórnarfor- manni Westland, frá að ríkisstjórnin væri Michael Heseltine er í vígahug og hlífir Margaret Thatcher í engu. Flett ofan af vinnubrögðum forsætisráðherra Bretlands því hlynnt að gengið yrði til samninga við Bandaríkjamennina. I stað þess að skýra ríkisstjórninni rétt frá afstöðu varnarmála- nefndar flokksins, lét forsætisráðherra svo að hún hefði reynst sammála sér, um að upp á evrópska kostinn væri ekkert að púkka. Thatcher hafði ekki reiknað með Michael Heseltine landvarnaráðherra. Hann hafði lagt sig í líma til að koma sam- an tilboði evrópskra aðila í Westland, og þegar það lá fyrir hóf hann harða sókn fyr- ir að því yrði tekið. Hann benti á að málið snerist bæði um getu bresks iðnaðar til að uppfylla þarfir breskra landvarna og um mátt evrópsks iðnaðar til að hafa í fullu tré við bandarískan í þýðingarmikilli hátækni- grein, flugi og öllu sem því tengist. Næði Sikorsky taki á Westland, yrði fyrirtækið aldrei meira en útibú fyrir bandaríska þyrlusmíði. í félagi við evrópsku tilboðsað- ilana fengi það tækifæri til að gegna full- gildu hlutverki í framþróun þyrlusmíða. Málafylgja Heseltine á opinberum vett- vangi var fljót að skila árangri. Evrópuráð- ið lagðist á sveif með honum. í Bretlandi risu upp fyrirtæki og fjármálamenn og tóku að kaupa hlutabréf í Westland til að af- stýra því að fyrirtækið yrði lagt undir Sikorsky. Gera átti út um málið í atkvæða- greiðslu um tilboðin tvö á hluthafafundi, sem boðaður hafði verið þriðjudaginn í þessari viku. Thatcher forsætisráðherra brást hart við óstýrilæti landvarnaráðherra síns. Á opin- berum vettvangi lét hún talsmenn stjórnar- innar halda því fram, að hér væri hvorki um landvarnamál né tækniþróunarmögu- leika að ræða, aðeins að ríkisstjórnin væri ekki að skipta sér af því, hvernig kaupin gerast á eyrinni milli sjálfstæðra fyrirtækja, sem reka skuli einvörðungu á ábyrgð stjórnenda og eigenda. Var með þessu minnt á að Michael Heseltine er úr þeim armi íhaldsflokksins, sem aldrei hefur ját- ast undir einstrengingslega markaðs- hyggju núverandi flokksforingja. Undir hástemmdu tali um stefnufestu og trúmennsku við lífsreglur ríkisstjórnar býr, að Margaret Thatcher getur ekki þolað í stjórn sinni ráðherra sem dirfast að mæla henni í mót. Allra síst má það á sannast að þeir hafi sitt mál fram gegn vilja hennar. Því var á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku ákveðið að þaðan í frá skyldi einstökum ráðuneytum óheimilt að láta nokkuð frá ■ eftir Magnús Torfa Ólafsson sér fara um mál Westland, öll upplýsinga- miðlun um það skyldi vera í höndum starfs- manna forsætisráðherrans. Þannig átti að kefla Heseltine. Landvarnaráðherrann lét ekki bjóða sér slíkt. Hann sagði af sér munnlega og gekk af fundi, hafði ekki fyrir að senda bréf. Síð- an hélt hann fréttamannafund, þar sem hann hellti sér yfir framkomu og starfsað- ferðir Margaret Thatcher í máli Westland. Forsætisráðherrann hafði vonast til að allt yrði klappað og klárt að hennar vilja, án þess þingið fengi tækifæri til að ræða fram- tíð Westland. En þegar fyrsti þingfundur eftir jólaleyfi hófst á mánudaginn, var það framtíð ríkisstjórnar Margaret Thatcher sem liggur undir í umræðunni. Alvara málsins fyrir forsætisráðherrann hefur verið að koma í ljós smátt og smátt, eftir að Leon Brittan, auðsveipur undir- maður hennar, svaraði á þingfundinum á mánudag fyrirspurn frá Michael Heseltine, hvort ríkisstjórninni hefði ekki borist bréf um togstreituna um Westland frá formanni stjórnar British Aerospace, helsta breska fyrirtækisins sem að evrópska tilboðinu stendur. Viðskiptaráðherrann þóttist ekki við neitt slíkt bréf kannast, en varð að kveðja sér hljóðs síðar á sama fundi, játa til- vist bréfsins og reyna að afsaka sig með að það hafi verið trúnaðarbréf til forsætisráð- herra og því hafi hann haldið að það ætti að fara leynt. Á þriðjudag þóttust svo bresku blöðin vita með vissu, hvað í bréfinu stendur. Þar kvartar stjórnarformaður British Aero- space yfir að Leon Brittan viðskiptaráð- herra hafi lagt hart að sér að hindra að fyr- irtækið taki þátt í evrópska tilboðinu til Westland, enda þótt það sé tvímælalaust því í hag. Engum sem til breskra stjórnmála þekkir kemur annað til hugar en Brittan hafi gengið erinda Thatcher í þessu máli. Svona vinnur forsætisráðherrann, sem státar sig þegar það hentar henni af algeru afskipta- leysi af högum sjálfstæðra fyrirtækja og gerðum stjórnenda þeirra. Hluthafafundi Westland hefur verið frestað til föstudags. 6 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.