Helgarpósturinn - 16.01.1986, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 16.01.1986, Qupperneq 24
KVIKMYNDIR eftir Ólaf Angantýsson og Sigmund Erni Rúnarsson „Cocoon; blessunarlega laus við þá tæknibrellumanfu, sem oft á tfðum hefur fþyngt sfðari tfma kvikmynd- um af þessari gerð. . ." „Cocoon; blessunarlega laus við þá taeknibrellumanfu, sem oft á tfðum hefur (þyngt sfðari tfma kvikmynd- um af þessari gerð.. ." „Þarna hafa menn ekki einasta dillandi Travolta heldur Ifka tálgaða leggjalengju sem vindur sig framan viö vélarnar af viðlfka krafti og skúringakelling tuskuna sfna," segir Sigmundur Ernir m.a. um Fferfect, en þar leika Travolta og Jamie Lee Curtis (sjá mynd) aðalhlutverkin. Afbrigöi af Atlantis Bíóhöllin: Cocoon (Undrasteinninn). ★★★ Bandarísk. Árgerð 1985. Framleiðendur: Richard D. Zanuck, David Brown og Lili Fini Zanuck. Leikstjórn: Ron Howard. Handrit: Tom Benedek. Kvikmyndataka: Don Peterman. Tónlist: James Horner. Aðalhlutverk: Don Ameche, Wilford Brimley, Steve Guttenberg, Thanee Welch, Hume Cronyn o.fl. „Efvið fjöllum um bestu upplýsingar, sem viö höfum af strangri rökfrœði, þá er það niðurstaða sanngjarnra vísindamanna, að í vetrarbrautinni okkar einni saman séu sex hundruð og fimmtíu milljónir byggðra hnatta“ /.../„byggðir verum á öllum stigum þróunar. Sumar œttu tímans vegna að vera komnar miklu lengra en mannkynið." Gunnar Dal: „Heimsmynd okkar tíma“. 1983. í ljósi þess að þróunin frá prenttækni Gut- enbergs til geimferða nútímans tók aðeins 500 ár, og ef mannskepnan hegðar sér skyn- samlega, og þar af leiðandi sé ástæða til að ætla að mannkyn geti þrifist á jörðinni í 7,4 billjónir ára, þá er ekki svo fráleitt að ætla að einhvers staðar úti í óravíddum himingeims- ins sé til siðmenning, sem eru lengra á veg komin en við jarðarbúar. í „Heimsmynd okkar tíma“ fullyrðir Gunnar Dal reyndar að: ...þetta þýðir að aðeins 260 hnettir með tæknimenningu af 390 milljónum í vetrar- brautinni eru komnir jafnstutt, eða styttra en við.“ Þegar maður fer í Bíóhöllina til að sjá þriðju vinsælustu mynd Bandaríkjanna á ný- liðnu ári, þá er ekki úr vegi að hafa ofan- greint til hliðsjónar. Hugmyndin er nefnilega ekki jafn fráleit og hún í fljótu bragði kann að virðast. Við þekkjum öll goðsögnina um Atlantis; meginlandið sem sökk í sæ í fyrndinni og sið- menningu þá, er þar af leiðandi leið undir lok. Nú, það er skemmst frá því að segja, að Cocoon fjallar um íbúa plánetunnar Antarea, sem komnir eru til jarðar í þeim til- gangi að sækja nokkra strandaglópa, er eftir urðu, þá er Antarea-búar fluttu vísindastöð sína á annan hnött vegna náttúruhamfara þeirra, er urðu til að eyða Atlantis. Verk þetta áætla þeir að muni taka 27 daga og bregða þeir sér því í mannsgervi og taka á leigu einbýlishús í St. Petersburg á Florída, ásamt því að þeir nota sundlaug þá er fylgir með í leigusamningnum, til að afvatna og hleypa nýju lífi í ofangreinda strandaglópa. Verkið gengur að vonum vel, þar til sú snurða hleypur á þráðinn, að þrír vistmenn á elliheimili nokkru þar í grenndinni fá sér óboðnir bað í sundlauginni og losna þar með undan þeim hrörnunareinkennum, sem óneitanlega fylgja háum aldri okkar jarðar- búa. Þó svo að Cocoon sé búin flestum þeim kostum, er vel þykja sæma góðum vísinda- skáldskap, þá er hún blessunarlega laus við þá tæknibrellumaníu, sem oft á tíðum hefur íþyngt síðari tíma kvikmyndum af þessari gerð. . . og er það e.t.v. einmitt þar, sem styrkur hennar liggur. Handritið er í alla staði svo vel útfært og skrifað, að engin þörf er á að bæta upp galla þess með slíkum óþarfa, í þeim tilgangi að halda áhorfendum við efnið. Kvikmyndin er að auki einkar hugljúf og sannfærandi lýsing á hlutskipti nokkurra eldri borgara við lok æviskeiðsins og við- brögðum þeirra við því með ólíkindum heill- andi tilboði, er geimverurnar gera þeim und- ir lok myndarinnar. -Ó.A. Sláturtíð Háskólabíó: Code of Silence (Þagnarskyld- an) ★★ Bandarísk. Árgerð 1985. Framleiðandi: Raymond Wagner. Leikstjórn: Andy Davis. Handrit: Michael Butler, Dennis Shryack og Mike Gray. Kvikmyndataka: Frank Tidy. Tónlist: David Frank. Aöalhlutverk: Chuck Norris, Henry Silva, Bert Remsen, Mike Genovese, Molly Hagan o.fl Þá er Chuck Norris enn mættur til leiks og í þetta skiptið í hlutverki stórborgarlögregl- unnar Eddie Cusacks, sem í anda Callahans og Eastwoods ranglar um í undirheimum Chicagoborgar innan um náttsvarta skúrka og annað illþýði, sem unnendur þessarar tegundar kvikmynda hafa svo gaman af að sjá geispa golunni, eftir vel til fundnar og vægðarlausar líkamsmeiðingar söguhetj- unnar. Það er einkum þrennt, sem er athyglisvert við kvikmyndir sem gerðar eru undir ofan- nefndum formerkjum. í fyrsta lagi er það vitaskuld ofbeldið og þá einkum hversu sjálf- sagt (og í raun nauðsynlegt) það þykir við lausn þeirra vandamála, er söguhetjan stendur frammi fyrir hverju sinni. Okkur er m.ö.o. strétx gert skiljanlegt að eina leiðin til að fá skjóta úrlausn okkar mála er að forðast samningaumleitanir og sýna hörku, því þá gefst mótherjanum ekki færi á að yfirfara mprðtól sín og búast til varnar. í öðru lagi er sú heimsmynd, er þessi teg- und kvikmynda býr yfir, nær einvörðungu mönnuð karlrembudurgum (englum dauð- ans og réttlætisins) og síðan illasinnuðum blókum eða mannleysum, sem vegna lítilla mannkosta og af ræfildómi einum saman hreinlega bjóða uppá að söguhetjan lemji þá í spað hvenær sem þeir eru svo ólánsamir að gefa á sér færi. í þeim fáu tilvikum sem þessi heimsmynd yfirleitt gerir ráð fyrir kvenfólki, þá eru þær nánast einvörðungu „til ráðstöf- unar" fyrir karlremburnar, eða í besta falli sem slíkar ágreiningsefni hetjunnar og skúrkanna, eins og reyndar Diana Luna í Code of Silence. Þriðja atriðið sem ég vildi nefna í þessu sambandi eru þeir nihilistisku undirtónar, sem ganga eins og rauður þráður gegnum nánast allar kvikmyndir þessarar tegundar. Söguhetjan er m.ö.o. í raun ekki samþykk þeim boðum og bönnum sem réttarfarslegt skipulag þjóðfélagsins gerir ráð fyrir, heldur skipuleggur hann og framkvæmir áætlanir sínar utan við öll lögboðin mörk almennrar háttvísi og eðlilegs siðferðismats. Hetjan leggur gjarnan í rúst heilu bæjarfélögin, strá- drepur fjöldann allan af fólki, og allt í þeim mótsagnakennda tilgangi að vernda við- komu þess þjóðskipulags, sem hann í raun innst inni trúir ekki á. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að rekja söguþráð myndarinnar eftir ofangreint, enda mun handrit myndarinnar upphaflega verið skrifað fyrir Clint East- wood og getur þar með hver sem vill getið í þær eyður, sem kunna að vera á greinargerð minni hér að framan. Code ofSilence er sem sagt dæmigerð for- múlumynd og sem slík hefur hún lítið nýtt fram að færa, sem aukið gæti á vitsmuni vora og skilning á eðli tjáskipta skúrka og ill- menna undirheima Chicagoborgar. Myndin er þó þokkalega gerð tæknilega og sóma- samlega leikin, þó svo að Norris sé að vanda býsna stirðbusalegur og ósannfærandi í hlut- verki sínu... en það heyrir hefðinni til og kemur því ekki að sök. -Ó.A. Travolta blaðamaður Stjörnubíó: Fullkomin (Perfect) ★★ Bandarisk, árgerð 1985. Framleiðandi: James Bridges. Leikstjórn: James Bridges. Handrit: Aaron Latham og James Bridges. Kvikmyndun: Gordon Willis. Tónlist flutt af Whaml, Thomson Twins, Pointers Sisters, Nonu Hendryx, Whitney Houston og fleirum. Aöalleikarar: John Travolta, Jamie Lee Curtis, Marilu Henner, Anne De Salvo, Jann Wenner, Laraine Newman og Kennet Welsh. James Bridges er gamalkunnur leikari frá fyrri tíð sem fékk þá flugu í höfuðið um fer- tugt, að sennilega gæti hann allt eins vel leik- stýrt og þessir kallar sem höfðu verið að vas- ast með hann framan við vélarnar. Fyrsta mynd hans er frá 1970 og heitir The Baby Maker. Hún þótti mjög gott byrjandaverk, en er reyndar hvað kunnust fyrir glimrandi leik Barböru Hershey í hlutverki ungrar stúlku sem tekur að sér að fæða barn fyrir hjón sem er það ekki mögulegt. Bridges hefur ekki tekist að gera betri mynd síðan, þó the China Syndrome komist nálægt því. Með myndinni Perfect kastar Bridges ljósi á alþekkt þema bandaríska kvikmyndaiðn- aðarins frá miðjum síðasta áratug, blaða- mennskuna, sem virðisL reyndar aftur vera að verða vinsælt viðfangsefni vestan hafs og nægir þar að minna á nýlega mynd með Kurt Russel, The Mean Season. Perfect er byggð á blaðagreinum sem hafa birst í tímaritinu Rolling Stone, sem sýna, ef rétt er farið með, að þar fer harla ódýr snepill. Þessvegna er ill- skiljanlegt að sjálfur ritstjóri þessa blaðs og aðaleigandi, Jann Wenner, hafi fengist til þess að leika sjálfan sig í myndinni. Hér segir af tveimur býsna ólíkum verk- efnum ungs blaðamanns sem hann fæst við samtímis. Annarsvegar tilraun hans til þess að fá viðtal við iðnjöfur sem ákærður er fyrir eiturlyfjasölu. Hinsvegar víur sem hann ber í leikfimikennara í vaxtarræktarstöð, en um það fyrirbæri hyggst hann skrifa grein. Hvorutveggja heppnast vel, en hefur þær af- leiðingar að hann verður það náinn stúlk- unni að erfitt reynist að skrifa grein um hana og stöðina og svo hótar alríkislögreglan síefnfnum fa'ff fiann ekkí vídfafsspo'furnar af hendi. Að útliti er Perfect ágætis augnayndi. Þarna hafa menn ekki einasta dillandi Trav- olta heldur líka tálgaða leggjalengju sem vindur sig framan við vélarnar af viðlíka krafti og skúringakelling tuskuna sína. John og Jamie Lee Curtis mynda sætan sykurhjúp um myndina en eru þar fyrir utan ekki neitt neitt. Þau leika beinlínis illa. Ég á erfitt með að sjá þá leikhæfileika sem James Bridges virðist greina í Travolta, en þetta er önnur myndin þar sem han lætur þessum pilti eftir meginrulluna. Urban Cowboy var hin. Gleymanleg. Inntak Perfect er bæði rýrt og frekar flatn- eskjulegt í þeirri meðferð sem Bridges gefur annars áhugaverðum efnivið. Hann reynir að segja tvær alls óskyldar sögur í einni at- rennu, en tekst það ekki og hefði betur hald- ið sig við aðra þeirra og þá frekar þá sem greinir frá líkamsræktinni. Þar nær hann á skrið ágætri fléttu sem hefði sjálfsagt orðið áhugaverð með meiri aðhlynningu. Áhersl- ur myndarinnar eru líka furðulegar. Það er eins og leikstjórinn gleymi sér í sumum sen- anna þar sem lopinn er teygður til hins ýtr- asta. Áhugaverðari atriði hafa hinsvegar ver- ið klippt niður í fáeina ramma og mörg hver orðið óskiljanleg fyrir bragðið. -SER Löggulífið vestra Austurbcejarbíó, Lögregluskólinn 2 (Police Academy 2): ★ Bandarísk, árgerð 1985. Framleiðandi: Paul Maskansky. Leikstjóri: Jerry Paris. Handrit: Barry Blausten og Daniel Sheffield. Aðalleikarar: Steve Guttenberg, Bubba Smith, David Graf, Colleen Camp, Howard Hesseman, Art Metrang, George Gaynes og Bob Goldhwait. Nýjasta stílbragðið í bandarískri grín- myndagerð er yfirgangur. Ærslin eru aðal- atriði, ásamt asnaskap. Jafnframt er meira hugsað um útlit en inntak. Propsið er óskap- legt, förðunin fyrst og fremst mikil og bún- ingar grípandi. Leikmyndin jafnan ofhlaðin. Persónusköpun er gefið langt nef, tæming oftast hverfandi og leikstjórn að mestu látin ráðast. Takmarkið er að leikararnir hafi gam- an af þessu, skríki, emji og dangli svona jibbý-gaman í rassinn hver á öðrum. Og hugsunin er sem sagt: Þetta hlýtur fólki að finnast fyndið. Það er svo upp og ofan. Lögregluskólinn er til að mynda ofan. Hún er einn hamagangur frá upphafi til enda og svo sem sæmileg ef menn gera ekki meiri kröfur til grínsins en að það fái þá til að flissa. Þó er hér einn og einn brandari sem varið er í, en þess á milli er hinsvegar að finna svo óskemmtilegar uppfyllingar og vita metnaðarlausar að þess- ir góðu gleymast þegar upp er staðið. Lögregluskólinn er líka ein af þessum myndum sem hafa tölustaf fyrir aftan nafnið, en það eitt virðist orðið nægja til þess að gefa mönnum vísbendingu um útþynntan efnivið. Lögregluskólinn 2 er framhald af þokkalegri mynd sem grínaðist með léttruglaða nem- endur í varðmannafræðum. Nú segir frá fyrsta verkefni hópsins sem útskrifaðist í síð- ustu mynd. Ef að líkum lætur hlýtur svo þriðja vitleysan bráðum að fara að koma, því miður... -SER. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.