Helgarpósturinn - 16.01.1986, Qupperneq 32
S_Ftog„
vikudaginn 15. janúar og þeim til-
kynnt að sprengja myndi springa á
Keflavíkurflugvelli kl. 16.00 um
daginn. Þá var vél lögð af stað til
London og þegar hún lenti á
Heathrow-flugvelli var hún dregin
út á sérstaka braut þar sem
sprengjufræðingar hersins könnuðu
farþega og farangur nánast með
smásjá. Var margþuklað á hverjum
einasta farþega og farið í gegnum
allan farangur og annað lauslegt um
borð. Þetta olli rúmlega klukku-
stundarlangri töf, en ekkert grun-
samlegt fannst við þessa leit. . .
N
I iðurstöður í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í desember komu
mörgum þrýstihópum innan flokks-
ins á óvart og voru ekki allir jafn-
hressir með niðurstöðurnar. Fall
Huldu Valtýsdóttur úr öruggu sæti
í borgarstjórn (og borgarráði) niður
í 11. sæti olli miklu fjaðrafoki hjá
stuðningsmönnum hennar. Eitt
traustasta vígi Huldu er Morgun-
blaðsveldið, enda á hún ættir þang-
að að rekja. Þar að auki er maður-
inn hennar, Gunnar Hansson,
stjórnarmaður í Árvakri, útgáfufé-
lagi Morgunblaðsins. Morgunblaðs-
veldið berst nú með klóm og kjafti
fyrir því að Hulda verði hækkuð á
listanum og henni tryggt öruggt
sæti. Hins vegar mun barátta Morg-
unblaðsins ganga alltreglega því
flokkurinn mun ekki vera hrifinn af
þessum þrýstingi . . .
ÍESins og fram kom í fréttum á
sínum tíma, söfnuðust 340 milljónir
í Þróunarfélagið og af þeirri upp-
hæð á ríkið um 100 milljónir. í skil-
málum félagsins er kveðið á um, að
greiða megi féð inn á fjórum árum.
Davíð Scheving Thorsteinsson
var kjörinn formaður Þróunarfé-
lagsins á stofnfundinum. Davíð er
jafnframt formaður bankaráðs Iðn-
aðarbankans. Davíð þótti því eðli-
legast að allir þessir peningar Þró-
unarfélagsins yrðu lagðir inn í Iðn-
aðarbankann, á sérstakan reikning.
Ekki voru allir eigendur félagsins á
sömu skoðun. Landsbankinn á t.d.
rúmlega 20 milljónir í Þróunarfélag-
inu og vildi ekki sjá fé sitt hverfa inn
í Iðnaðarbankann og lét útbúa sér-
staka bók og lagði þetta framlag sitt
inn á sérstaka kjörbók bankans.
Bókin var síðan afhent stjórn Þróun-
arfélagsins. Davíð gerði sér hins
vegar lítið fyrir, labbaði niður í
Landsbanka og tók allt út af henni
og lagði peningana inn á reikning
Þróunarfélagsins í Iðnaðarbankan-
um. En sagan er ekki öll. Lífeyris-
sjóður SIS á einnig í Þróunarfélag-
inu. Allar fjárreiður lífeyrissjóðsins
eru að sjálfsögðu í Samvinnubank-
anum. Sjóðurinn lagði því sitt fram-
lag inn á reikning í Samvinnubank-
anum. Davíð tók einnig út alla pen-
inga lífeyrissjóðsins sem Þróunarfél-
aginu voru ætlaðir og lagði inn í Iðn-
aðarbankann. Og ekki nóg með
það. Bæði Búnaðarbankinn og
Stofnlánadeild landbúnaðarins eiga
mikla fjármuni í Þróunarfélaginu og
voru þessir peningar eðlilega lagðir
inn á reikning í Búnaðarbankanum.
En Davíð kom einnig við í Búnaðar-
bankanum á göngu sinni og tók út
þessa peninga og lagði inn á reikn-
ing Þróunarfélagsins í Iðnaðarbank-
anum. Samanlagt eignarfé þessara
banka í Þróunarfélaginu sem Davíð
lagði inn á reikninginn í Iðnaðar-
bankanum mun hafa numið 85
milljónum. Hina bankana munar að
sjálfsögðu um þessa peninga því
þeir hafa áhrif á lausafjárstöðu þess-
ara lánastofnana og bindiskyldu
gagnvart Seðlabankanum. Banka-
stjórar þessara banka voru því væg-
ast sagt trítilóðir út í Davíð Scheving
og titraði allt bankakerfið vegna
þessa máls um áramótin. En þessi
framkvæmd stjórnarformanns Þró-
unarfélagsins var ekki aftur tekin og
Iðnaðarbankinn situr nú uppi með
nýjan stórkúnna, Þróunar-
félagið . . .
s
^^^infómuhljómsveitin verður
með svonefnda Stjörnutónleika í
kvöld, fimmtudag. Verða þar leiknir
valsar aðallega frá hinum klassíska
tíma Strauss-valsanna en einnig frá
öðrum tímum. Aukanúmer kvölds-
ins hefur hins vegar hvergi verið
auglýst og á að vera leynileg uppbót
fyrir gesti og koma þeim skemmti-
lega á óvart. Leynivopn Sinfóníu-
hljómsveitarinnar er nefnilega eng-
in önnur en Hólmfrídur Karls-
dóttir — Hófí —- fegursta kona
heims. Hún á að lemja nokkra takta
við undirleik sinfóníunnar og á ekki
ómerkara hljóðfæri en steðja. Við
höfum heyrt að Hólmfríður hafi æft
stíft fyrir þessa tónleika en meðleik-
arar hennar í sinfóníunni hafi hins
vegar verið dálítið skjálfhentir og
átt erfitt með að einbeita sér að
nótnalestrinum eftir að Hófí bættist
við í hljómsveitina. Steðjinn er hins
vegar mikill og þungur og hefur
þurft fjóra menn til að bera hann
upp á svið Háskólabíós. Einn hljóð-
færaleikaranna í sinfóníunni stakk
upp á því að fyrst verið væri að
flagga alþjóðlegum stjörnum í íslensku
sinfóníunni, væri örugglega þjóðráð
að láta Jón Pál Sigmarsson bera
steðjann einan upp á svið og halda
á honum þar meðan Hófí slægi á
steðjann í takt við undirleik hljóm-
sveitarinnar. . .
SERSTAKRI
VAXTAVIÐBÓT AUK
VAXTA OG VERÐBÓTA
ÁRS
32 HELGARPÓSTURINN