Helgarpósturinn - 20.02.1986, Side 18

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Side 18
Besta leikhúsborg heims er Lond- on. Kannski vœri réttara ad segja að besti leikhúsborgarhluti heims vœri íLondon, því flestöl! leikhús borgar- innar eru staðsett í West End og stuttur spölur milli athyglisverðustu sýninga Evrópu, efekki heimsins. Á fárra kílómetra svœði eru tœplega 50 stœrstu leikhús Lundúna staðsett svo ekki sé minnst á öll litlu leiksvið- in og tilraunaleikhásin. HP þrœddi helstu leikhús Lundúnaborgar fyrir nokkru. Sígild verk, söngleikir, farsar, gamanleikir, sakamálaleikrit, drama, heimildarverk, óperur og óperettur ... allt er leikið, sungið og dansað í London. Spurningin er bara að velja... og hafna. En hefj- slorleikarar í aðalhlutverkunum: Ben Kingsley leikur Othello og David Súchet leikur Jagó. Menn muna náttúrulega eftir Ben Kings- ley sem Gandhi í samnefndri kvik- mynd en fyrir utan kvikmyndaleik og fjölda sjónvarpsmynda, er Kings- ley einhver frægasti Shakespeare- túlkandi Bretlands í dag. Sömu sögu er að segja af David Suchet; hann hefur túlkað ótal persónur Shake- speares á sviði en heimsfrægur varð hann fyrir kvikmyndaleik, m.a. í The Trenchcoat, Greystoke, The Little Drummer Girl, The Falcon and the Snowman og Gulag, auk sjónvarpsmynda sem Reilly, Saigon — The Last Days svo eitthvað sé nefnt. LEIKIÐ SIINGIÐ OG hljóðfæri sem er. Mesta athygli vek- ur þó leikarinn/söngvarinn/hljóð- færaleikarinn Mark McGann sem leikur Lennon á bítlaárunum; hann gengur eins og Lennon, talar eins og Lennon (enda frá Liverpool), lít- ur út eins og Lennon, syngur og hreyfir sig eins og Lennon. Undir- ritaður var nánast í losti eftir þessa sýningu; það var allt að því óhugn- anlegt að sjá þennan tvífara Johns. Og þarna ómaði gamla, góða bítla- tónlistin eins og hún á að hljóma. Og ennfremur öll lögin hans Johns eftir viðskilnaðinn við Bítlana. Það eina sem vakti furðu mína var hve höf- undurinn, Bob Eaton, gerði Paul McCartney að fáránlegum og heimskum náunga. Sú persónu- um þessa leikhúsferð með því að líta inn á sýningu Royal Shakespeare Company i hinni nýju glæsilegu listamiðstöð Lundúna, Barbican. BEN KINGSLEY ER OTHELLO Viðfangsefni RSC þessa dagana er Othello, meistaraverk allra tíma um afbrýðisemina. Og það eru engir Pað sem einkum vakti athygli undirritaðs var leikur, sviðsmynd og búningar. Bresku leikararnir léku texta þessa höfuðsnillings leikbók- menntanna af slíkri innlifun, létt- leika og öryggi að unun var á að hlýða og horfa. Textinn var borinn fram af slíkum skýrleika og áreynsluleysi, að ég verð að játa að ég átti betur með að skilja ensku þessara afbragðs leikara en íslensk- ar þýðingar sem bornar eru fram af leikurum Þjóðleikhússins, án þess að á þá ágætu menn sé hallað. Ben Kingsley lék ekki Othello, hann var hinn ijúfi, yfirvegaði Mári sem breyttist í geðveilt villidýr, sundur- slitið af sjúklegri afbrýðisemi sem hinn djöfullegi en sjarmerandi Jagó, í listilegri túlkun Suchet, læðir í hann af eitraðri hugvitssemi. Svið og búningar voru í þrílit: gylltu, svörtu og hvítu. Glæsileiki og ein- faldleiki í sterkum andstæðum magnar fram hugsun verksins og af- markar það sterkum ramma. Ógleymanleg sýning í leikstjórn Ali- son Sutcliffe (sem reyndar leikstýrði Cyrano de Bergerac sem sýnt var í sjónvarpinu um daginn). VESALINGARNIR SEM SÖNGLEIKUR í hinu gamla og glæsilega leikhúsi The Palace Theatre (byggt 1890) er verið að sýna eina stórbrotnustu og vinsælustu leiksýningu Lundúna, Les Misérables (Vesalingana), byggða á klassískri skáldsögu eftir Victor Hugo um baráttu og líf refsi- fangans Jean Valjean, og byltingar- manna júlíbyltingarinnar í Frakk- landi. Þetta er franskt leikhúsverk, frumsýnt í Palais des Sports í sept- embermánuði 1980 en hefur gengið í tæpt ár í London. Textinn (eða rétt- ara sagt söngtextinn) er eftir Alain Boublil en höfundur tónlistarinnar er Claude-Michel Schönberg. Þetta er sem sagt nútímaópera; allur texti sunginn í dúndrandi blöndu rokks og hefðbundinna söngleikja. Textinn fylgir epískri skáldsögu Hugo þétt eftir en sýning- in er eftirminnileg fyrir magn- þrungna uppfærslu, viðamikil svið- setning, vandaðir búningar og gífur- legur kraftur er í sýningunni allri, ekki síst leiknum. Og má þá fremst- an teija Colm Wilkinsson sem leik- ur/syngur Jean Valjean. LENNON RÍS ÚR GRÖFINNI Fyrir okkur af gömlu bítlakyn- slóðinni (og aðrar kynslóðir reyndar líka) er mikill fengur að ganga inn af kaldri Charing Cross götunni í upp- hitað Aston'a-leikhúsið og horfa á söngleikinn Lennon. Þarna er ævi- saga John bítils Lennons rakin á rúmum tveimur tímum í leik og söng. Allir leikararnir eru ennfrem- ur miklir og góðir hljóðfæraleikarar sem geta nánast leikið á hvaða sköpun eyðilagði að nokkru leyti heildaráferð þessarar ágætu heim- ildarsýningar. Áfram með söngleikina: Cats, hinn heimsfrægi „mjúsíkal" með tónlist Andrew Lloyd Webber, er nú komin með fimm ár að baki í New London leikhúsinu í Drury Lane. Þótt greinileg þreytumerki sé að sjá á þessari sýningu, komu dansararn- ir og söngvararnir samt iðulega á óvart með frábærri kunnáttu sinni og list. Hið skemmtilega hringsvið með makalausri leikmynd er einnig þess virði að eyða kvöldstund í leik- húsinu. STEPPAÐ OG ÞEYST Á HJÓLASKAUTUM Ekta, gamlan, góðan söngleik er að sjá í hinu virðulega og stórfallega Konunglega leikhúsi í Drury Lane. Það er 42nd Street (42. stræti) eftir Michael Stewart/Mark Bramble við tónlist Harry Warrens. Sýningin sem lýsir baksviðsæfingum söng- leikja og dansarahóps, er ein eld- flaugasýning frá upphafi til enda. Verkið er óður tii steppdansins og aldrei hef ég séð jafn marga og jafn góða steppara dansa þindarlaust í Starlight Express: Dúndrandi rokkópera á hjólaskautum. eftir Ingólf Margeirsson 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.