Helgarpósturinn - 20.02.1986, Page 28
VETTVANGUR
Gunnar Stefánsson dagskrárstjóri:
Vond „gagnrýni“
Helgarpósturinn lætur sér jafnan
títt um Ríkisútvarpið. Ekki einungis
með slúðri um innri málefni þess og
einstaka starfsmenn, heldur iíka
með föstum svokölluðum gagnrýn-
ispistlum. Slíkt er þakkarvert er vel
væri að staðið. A því vill þó verða
misbrestur. Skammt er þess að
minnast að einn skrifarinn gagn-
rýndi að tiltekinn dagskrárgerðar-
maður, Hermann Ragnar Stefáns-
son, hefði verið gerður brottrækur
úr dagskránni og birti mynd af
honum því til áhersluauka.
Sannleikurinn var hins vegar sá að
hlutur þessa manns í dagskrá hafði
einmitt verið aukinn! Mátti því ljóst
vera að hvorki hlustaði gagnrýn-
andinn á útvarpið né las þá dagskrá
sem hann fjallaði um.
Svipað er upp á teningnum hjá
Ingólfi Margeirssyni í einkar óvönd-
uðum pistli í síðasta Helgarpósti.
Góður gagnrýnandi leitast við að
finna orðum sínum stað. Það gerir
Ingólfur ekki. í staðinn fer hann
með órökstuddar fullyrðingar, þ.e.
sleggjudóma. Hann segir að frum-
kvæði dagskrárstjóra sé ekkert. Ef
komi góðir þættir sé það að þakka
fólki úti í bæ. Dagskrárstjórar fylli
dagskrána af leiðinlegú og ómerki-
legu efni. (Hlutverk útvarpsráðs í
mótun dagskrárstefnu nefnir hann
ekki.) Hann hneykslast á því að ,,alls
konar einstaklingar" og sérvitring-
ar geti komið hugðarefnum sínum á
framfæri í útvarpinu. „Ymsir lausa-
pennar og rithöfundar" fái fluttar
„alls konar þýðingar". Dagskrár-
gerðarmenn sæti engu eftirliti.
Dagskrárstjórar hafi ekkert sam-
band við aðrar deildir, eins og tón-
listardeild. O.s.frv.
A hverju byggir Ingólfur þennan
stóradóm? Mér er ekki kunnugt um
að hann hafi fylgst með starfi dag-
skrárdeildar á undanförnum árum
(sem nú heitir fræðslu- og skemmti-
deild). Af grein hans verður ekki
heldur ráðið að hann hafi fylgst
skipulega með dagskránni því ekki
nefnir hann eitt einasta dæmi ásök-
unum sínum og illmælum til stuðn-
ings. Hefur hann til að mynda kynnt
sér framhaldslestra í útvarpinu í
vetur sem hann talar um af svo mik-
illi lítilsvirðingu? Eða viðamiklar
dagskrár um menningarsöguleg
efni sem fluttar hafa verið á sunnu-
dögum í allan vetur? Eða dagskrár
um lönd og þjóðir? Eða umræðu-
þætti um þjóðmál? Eða þætti um
ýmsar hliðar atvinnulífs, félagslífs
og fjölskyldumála? Eða hið marg-
þætta framboð á efni fyrir börn og
unglinga?
Allt hefur þetta farið fram hjá I.M.
Að því marki sem grein hans er
meira en tuggur út úr öðrum lýsir
hún ekki öðru en dómsýki og hroka.
I.M. virðist ekki meta að neinu það
lýðræðislega hlutverk sem Ríkisút-
varpið hefur jafnan gegnt. Almenn-
ingur í landinu á þessa stofnun og
hún hefur ætíð verið opin fyrir því
að veita jafnt meirihluta sem minni-
hluta færi á að tjá skoðanir sínar og
áhugamál. Þetta hefur verið aðals-
merki Ríkisútvarpsins. Það hefur
líka sinnt menningarmálum og hlúð
að íslenskum menningararfi meir
en nokkur annar fjölmiðill. Það
virðist I.M. ekki heldur meta neins.
Ef I.M. hefði kynnt sér að ein-
hverju marki það sem hann fjallar
um væri honum ljóst að starfsfólk
við dagskrárstjórn er fátt og hefur
alltaf verið. Það er því hlaðið verk-
efnum þótt I.M. þyki sæma að bera
því aðgerðaleysi á brýn. I vaxandi
mæli er leitast við að samræma
vinnu dagskrárgerðarmanna, og
við tónlistardeild er náið samstarf
og hefur alltaf verið.
Gunnar Stefánsson fyrrum dag-
skrárstjóri og núverandi dagskrár-
stjóri fræðslu- og skemmtideildar
Hljóðvarps sendir mér tóninn fyrir
að gagnrýna Ríkisútvarpið fyrir lé-
lega ritstýringu í síðasta tölublaði
HP. Skrif Gunnars einkennast meir
af snöggri reiði en skynsamlegri at-
hugun. Það er ekki nema von; sem
dagskrárstjóri hljóðvarps (sem nú
heitir dagskrárstjóri fræðslu- og
skemmtideildar) er hann óvanur
gagnrýni. Hvaðan ætti hún svo sem
að koma? Ekki frá samstarfsmönn-
um og ekki frá útvarpsráði, því
Gunnar er þægur maður og gerir
ekkert sem pólitíska varðhundalið-
inu mislíkar. Eina gagnrýnin sem
komið hefur á Gunnar og aðra deild-
arstjóra útvarpsins var skoðana-
könnun meðal hlustenda þar sem í
Ijós kom að íslendingar nenna ekki
að hlusta á rás 1 nema fréttirnar. En
Gunnar virðist ekki kippa sér upp
við lélega hlustun. Gunnar Stefáns-
son er sem sagt ekki vanur gagn-
rýni. Hann virðist heldur ekki vera
vanur að axla ábyrgð, því í svari
hans hér að ofan vitnar hann mjög
í hlutverk útvarpsráðs við mótun
dagskrár. Það þætti ekki góður rit-
stjóri sem neitaði að móta blaðið sitt
og benti í sífellu á útgáfustjórnina
sem réði hann.
En rétt er að byrja á byrjuninni.
Skensi Gunnars á Helgarpóstinn
nenni ég ekki að svara. Hins vegar
skal á það minnst að HP hóf fyrstur
að birta reglulega vandaða umfjöll-
un um útvarp og sjónvarp. Viðbrögð
lesenda og starfsmanna Ríkisút-
varpsins hafa verið slík við þessum
pistlum, að af má ráða að þeir séu
eina marktæka gagnrýni á ríkisfjöl-
miðlana í íslenskri pressu.
Ég stend við allt sem í pistli mín-
um stóð. (Og Gunnar kallar „einkar
óvandaðan".) Dagskrárstjóri hefur
ekki haldið reglulega fundi með
dagskrárgerðarmönnum. Mjög lítið
hlutfall dagskrárinnar er unnið af
dagskrárgerðarmönnum, fastráðn-
um við útvarpið, eða atvinnumönn-
um utanaðkomandi. Stefnumótun
dagskrár er og hefur ekki verið
nein, heldur dagskráin ráðist meira
eða minna af tilviljun. Þó hafa verið
undantekningar á þessu. Ævar
Kjartansson fyrrum varadagskrár-
stjóri hélt reglulega fundi með dag-
skrárgerðarfólki morgunútvarps og
síðdegisútvarps. Hann gerði einnig
virðingarverðar tilraunir til að
standa gegn útvarpsráði og ritstýra
dagskrá útvarpsins og axla þar með
ábyrgð sem dagskrárstjóri. Eftir að
Ævar var flæmdur burt frá útvarp-
inu tíefur öll ritstýring á morgun- og
síðdegisútvarpi fallið niður og
morgunútvarpið reyndar komið
undir fréttastofuna. Nær öll laus
dagskrárgerð kemur að utan, mest
fyrir þrýsting einstaklinga sem vilja
komast að með efnið sitt. Ef Gunnar
neitar þessari staðreynd, þá hlýtur
hann að vera blindur og heyrnar-
laus. Gunnar Stefánsson hampar
mjög hinni lýðræðislegu hefð Ríkis-
Útvarpsmenn eru vanir sleggju-
dómum þeirra sem allt þykjast vita
betur en aðrir. Við kippum okkur
ekki upp við slíkt. En við væntum
sæmilega rökstuddrar umfjöllunar
frá hendi atvinnublaðamanna.
Framlag Helgarpóstsins er aula-
fyndni í dagskrárkynningum og
gaspur í stað gagnrýni. Hefði vissu-
lega mátt unna blaðinu betra hlut-
skiptis. Gunnar Stefánsson
útvarpsins: að fólk utan af götu geti
viðrað skoðanir sínar og áhugamál.
Að sjálfsögðu er þetta gott og bless-
að en efninu verður samt að rit-
stýra, það verður að velja og hafna.
Blöðum berast mikið af greinum og
lesendabréfum. Sum eru því miður
ekki birtingarhæf og þau verður að
vinsa út hvað sem lýðræði viðvíkur.
Gunnar nefnir ennfremur að barna-
og unglingaefni hafi stórbatnað í út-
varpinu. Það er alveg rétt en hvers
vegna? Jú, vegna þess að eftir að
Gunnvör Braga varð yfirmaður
barnaefnis hefur hún haft það frum-
kvæði innan stofnunarinnar að
funda með sínu fólki og skipuleggja
efnið. Þarna gæti Gunnar Stefáns-
son lært af Gunnvöru. Sambands-
leysið milli deilda hljóðvarpsins er
einnig alþekkt. Þar að auki ríkir
ákveðið kvótakerfi mijli deildanna
sem læsir dagskránni í heild. Það er
verðugt verkefni fyrir útvarpsstjóra
og deildarstjóra hljóðvarps að sam-
ræma efni deildanna svo viðunandi
heildarsvipur komist á dagskrána.
En það hefst ekki með aðferðum
Gunnars Stefánssonar að vitna í
„menningarsöguleg efni“, „dag-
skrár um lönd og þjóðir" eða „þætti
um ýmsar hliðar atvinnulífs, félags-
lífs og fjölskyldumálá". Það þýðir
heldur ekki að stinga hausnum í
sandinn og mæta gagnrýnisröddum
með þeim orðum að þarna sé á ferð-
inni dómsýki og hroki. í pistli mín-
um leitaðist ég við að gagnrýna
sjálft „módelið"; uppbyggingu dag-
skrár útvarps og þá sem ábyrgðina
bera á henni, þ.e.a.s. dagskrárstjór-
ana.
Opið, lýðræðislegt útvarp er gott
og blessað. En það gefur einnig alls
konar þrýstihópum, sumum póli-
tískum, lausan tauminn. í raun og
veru hentar slíkt kerfi útvarpsráði
mjög vel sem getur barist fyrir „sín-
um mönnum" sem lausráðnum
dagskrárgerðarmönnum úti í bæ.
Það firrir líka deildarstjóra ábyrgð.
En málið í hnotskurn er eftirfarandi:
Meðan dagskrárstjóri axlar ekki
ábyrgð og hagar sér eins og ritstjóri,
meðan hann skýtur öllum ákvörð-
unum til útvarpsráðs eða bendir á
hve starfsfólk við dagskrárdeild sé
fátt, og starfsskilyrði erfið, verður
dagskráin tilviljunarkennd og léleg.
Dagskrárstjóri líkt og ritstjóri verð-
ur að marka stefnu. Það vildi Ævar
Kjartansson og var flæmdur á brott,
það er Hrafn Gunnlaugsson að gera
í sjónvarpinu og er skammaður
óspart fyrir. Svo það er kannski ekki
nema von að Gunnari Stefánssyni
fallist hendur, snúi sókn í vörn og
verji stofnunina og yfirmenn sína.
En meðan hann og aðrir deildar-
stjórar og yfirmenn útvarpsins sitja
aðgerðalausir, breytist dagskráin
ekkert og skoðanakannanir hlust-
enda verða í samræmi við fyrri
könnun. Og það er ekki heillavæn-
leg þróun.
Ingólfur Margeirsson,
ritstjóri.
Auktn þjónusta
FUNDIR
EINKASAMKVÆMI
Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og
fjöIbreYttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur
Amarhóll enn við umsvif sín. Við hinn almenna veitingarekstur hefur
berlega komið í Ijós að margir af viðskiptavinum Amarhóls hafa brýna þörf
fyrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts
við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita
þessa þjónustu og eíns og alltaf þegar Arnarhóll er annars vegar situr
fjölbreytnin í fyrírrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum
veítingastaðarins getur AmarhóII nú boðið fjölbreyttum hópi viðskiptavina
sinna margvíslega þjónustu.
KLUBBAR
FELAGASAMTOK
FYRIRTÆKI
AmarhóII býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem
einstakra og einnig einkasamkvæma.__
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:
Smærri hópa (frá 10 manns) hádegi og kvöld alla virka daga(í koníakssal).
EINKASAMKVÆMI
Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefnið er, brúðkaup, afmæli,
fermingar, próflok, Arnarhóll annar öllu._____________
_____ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR=_______________________
Stærri samkvæmí (allt að 100 manna matarveíslur og 200 manna hanastél
til kl. 18.00) hádegí laugardaga og sunnudaga.
Gestir utan af landi - Ópera-Leikhús
Amarhóll tekur á móti hóppöntunum óperu- og leíkhúsgesta utan af Iandí.
Ingólfur Margeirsson ritstjóri:
Dagskrárstjóri á
að axla ábyrgð
og marka
stefnu dagskrár
28 HELGARPÓSTURINN