Helgarpósturinn - 20.02.1986, Side 39

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Side 39
FRÉTTAPÓSTUR Skriður á viðræður VSÍ og ASÍ Fjörkippur hefur komist i viðræður VSÍ og ASÍ eftir að sam- komulag varð í samninganefnd ASÍ um að setja fram óform- legar hugmyndir í nokkrum liðum við samninganefnd vinnuveitenda og VMS um að reynt yrði að fá ríkisstjórnina til að eiga stærri hlut í væntanlegum samningum. Forsætis- ráöherra, Steingrimur Hermannsson, hefur sagt sig hafa trú á þessari leið. Flugleiðir og Arnarfiug berjast um pílagríma Flugleiðir og Arnarflug eru meðal 25 flugfélaga sem hoðið hafa í samninga við Air Algerie um pilagrímaflug og áætlun- arflug. Samkvæmt útboðsgögnum er um að ræða flutning á 25 þúsund pílagrímum frá Alsír til Saudi Arabíu og til baka aftur. Verðmæti samningsins er um 650 milljónir ísl. kr. Arnarflug hefur tryggt sér leigu á 8 vélum ef þeir hreppa hnossið. Báðherra víttur Samþykktar voru vítur á Jón Helgason landbúnaðarráð- herra á fjölmennum bændafundi í Njálsbúð sl. þriðjudags- kvöld. Var Jón víttur fyrir seinagang í gerð reglugerðar um mjólkurframleiðslu. Þá urðu allsnarpar umræður um sama mál á Alþingi sl. miðvikudag. Breskar stúlkur setja Eskifjörð á hvolf Talsvert uppistand varð á höfninni á Eskifirði síðdegis á mánudag þegar fiskibáturinn Óskar Halldórsson lagðist að bryggju. í ljós kom að skipverjar höfðu haft með sér þrjár stúlkur frá Hull þar sem skipið var í söluferð. Tollverðir voru í viðbragðsstöðu, en i ljós kom að stúlkurnar höfðu gild vegabréf. Hins vegar fundust 26 kassar af bjór og fáeinar flöskur af brenndu víni sem tollverðir gerðu upptækar. Piltar látast í bifhjólaslysi Tveir piltar, Geir Halldórsson, 18 ára og Gísli Jón Hannes- son, 17 ára, báðir frá Hveragerði, biðu bana i bifhjólaslysi í Ölfusi fyrir síðustu helgi. Lögreglumenn hunsa dómsmálaráðuneytifi Lögreglumenn í Kópavogi mættu ekki á tvo boðaða fundi dómsmálaráðuneytisins í siðustu viku. Með því vildu þeir mótmæla hugmyndum ráðgjafarfyrirtækisins IKO-grupp- en um breytingar á skipulagi löggæslu á höfuðborgarsvæð- inu, en þær fela m.a. i sér að löggæsla i Kópavogi falli undir embætti lögreglustjórans í Reykjavík. Banni á mjólkurdreifingu aflétt Samkomulag hefur náðst um ágreiningsefni vegna mjólkur- dreifingar til ákveðinna verslana á höfuðborgarsvæðinu. Útkeyrslumenn Mjólkursamsölunnar hafa neitað að dreifa mjólk til a.m.k. 10 verslana vegna þess að þær liggja undir grun um að hafa keypt stolna mjólk. Á sameiginlegum fundi starfsmanna, forstjóra og stjórnarformanns MS sl. mánu- dag náðist samkomulag um ágreiningsefnið og hefur eðlileg mjólkurdreifing hafist á nýjan leik. Grænfriðungar veita frest Grænfriðungar hafa ákveðið að gefa íslenskum yfirvöldum frest fram til 15. júní til þess að hætta við eða breyta verulega áformum um hvalveiðar í vísindalegu skyni. Að öðrum kosti munu Grænfriðungasamtökin beita sér fyrir efnahags- þvingunum beggja vegna Atlantshafsins. Fréttapunktar • Almenn bifreiðaskoðun hófst sl. mánudag og stendur yfir til 10. október nk. • Krabbameinsfélagið hefur hafið umfangsmikla leit að krabbameini í ristli og endaþarmi og nær frumkönnunin til 6 þúsund karla og kvenna. • Islensku skákmennirnir virðast vera að gefa sig í barátt- unni um efstu sætin í 12. Reykjavikurskákmótinu. Þegar HP fór í prentun var staðan þessi: Larsen, Tal, Gheorghiu og Hansen efstir með SVz vinning hver en Hansen átti jafntefl- islega biðskák við Miles. • Samkvæmt stjórnarfrumvarpi um ríkisendurskoðun er gert ráð fyrir að hún verði sett undir vald Alþingis. Fram að þessu hefur ríkisendurskoðun heyrt undir Stjórnarráð sem deild i fjármálaráðuneytinu. • Um næstu helgi verður kosið um áfengisútsölur i Hafnar- firði og Garðabæ. Þ. 31. maí verður kosið um áfengisútsölu í Kópavogi. • Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra hefur hækkað laun stjórnarmanna í Sementsverksmiðju ríkisins úr 50 þúsund í 126 þúsund á ári. Þetta eru sömu kjör og stjórnar- menn Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga njóta. • 37 ára gamall karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. mars vegna meintrar nauðgunartil- raunar á ungum manni. Fátítt er að menn séu úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að þvinga samkynja aðila til samræðis. NQATUN Nogar vörur i Noatuni *&!#<**£ Rofabæ 39 sími 671200 ÍZ-S1 rirl Nóatúni 17 sími 17261 1'irJ HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.