Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 25
MYNDLiST eftir Guðberg Bergsson Halldór Runólfsson: Innihald og hiö ytra byrði Málaralistin á það sameiginlegt skáld- sagnagerðinni, að hún er langbest þegar hún er sem minnst sett á svið. Hér á ég við það, að tilgangur eða innihald séu ekki látin liggja um of í augum uppi, sökum lærdóms og þekkingar listmálarans. Best er hið sakleysis- lega — já og jafnvel hið heimskulega yfir- bragð. En á bak við andlit barnsins leynist saga mannkyns. Þegar ég kom inn á sýningu Halldórs B. Runólfssonar, sem haldin er í Nýlistasafninu við Vatnsstíg, datt mér í hug ljóð eftir spænska nóbelsskáldið Vicente Aleixandre. Ljóðið heitir Á torginu, og það hljóðar þann- ig, að hluta til, í fljótgerðri þýðingu: Ósköp er gott, yndislega látlaust og traust, örvandi, og sú kennd djúp að dvelja í sól á meðal (ólks og vera ýtt, teymdur, leiddur, flæktur og dreginn í niðinn. Þetta datt mér í hug, vegna þess að Halldór hefur nú látið eðli sitt draga sig að einhverju leyti frá listfræðinni á torg listamannanna. Hann er teymdur, leiddur, flæktur og dreg- inn í niðinn. Og nú getur hann ekki horfið aftur á skrif- stofuna. Hann veit, eins og stendur í ljóðinu, að „Engum er hollt að bindast bakka / líkt og bryggju, ellegar vera skeldýr það / sem reynir með kóral sínum að líkjast kletti. / Heldur er óblandið og vekur frið að fyllast gleði iðunnar og glatast, / að hitta sjálfan sig aftur í straumi, sem stórt / hjarta mannsins slær í takt við.“ Og þess vegna segi ég við Halldór, eins og Aleixandre í lok ljóðsins: Stígðu því nöktum fæti. Farðu inn í ys torgsins. Steyptu þér í strauminn sem heillar, vertu þú sjálfur þar. Ó, litla örsmáa hjarta sem langar ákaft að slá og slást í hóp sameinaðra hjartna sem fundu eðli sitt. Aftur á móti dettur mér ekki í hug að segja við Halldór, eins og Aleixandre fyrr í kvæð- inu: Stígðu gætilega inn í mannhafið líkt og logandi hræddur baðgestur, ástfanginn af en samt tortrygginn á vatnið... Vegna þess að ég held að Halldór hafi í raun og veru teiknað sig frá varúðinni í flest- um litlu myndunum. Við vitum of vel hvað er að gerast á þeim — og í þeim: þær eru aðeins eða að mestu leyti fyrir augað sem ann létt- um lestri eða upprifjun þess sem lesið hefur verið áður. En í þeim er ágætur katarsis — eða hreinsun eða skíring. Og hið sama er lík- lega hægt að segja um myndir þær sem bera númerin frá 1—11. Gallinn við þær myndir er, að mínu viti, sá að innihaldið er ekki nógu leynt í ytra byrðinu, það er: í litnum eða pensildráttunum (sem við getum kallað saumaskapinn). Ég er ekki endilega að segja að Halldór falli í gröf listfræðingsins og setji þessar myndir um of á svið til þess að þær geti verið „...Halldór hefur nú látið eðli sitt draga sig að einhverju leyti frá listfræðinni á torg listamannanna... Og nú getur hann ekki horfið aftur á skrifstofuna." verulega heillandi og óljóst málverk, heldur jaðra þær við það að vilja gera auganu of mikið til geðs — og þá hinu „uppfrædda viti" líka. í þeim er of fljótfarið í saumana. í list má hið uppfrædda vit helst ekki fá neitt bitastætt til að tönnlast á og naga. Upp- frædda vitið verður að bíta klakann hvað kúnstina varðar. Eitthvað svipað hlýt ég að segja um mynd númer 12 og heitir Rætur harmieiksins. Hún minnir mig of mikið á samnefnda bók eftir Nietzsche; einkum þá kafla hennar sem heita: Andi tónlistarinnar, uppruni harm- leiksins. Best er eins og Aleixandre segir í ljóðinu: Kn hann breiöir út faöminn, breiöir loks út arma. Sundmaöurinn þekkir nú eigið afl, verður áræöinn .. . leggst til sunds, eys upp lööri, öruggur og þreytist, engist og kafar eins og hjarta í iöandi vatni, syngur og er ungur. Slíkt gerir Halldór einmitt í hinum ágætu myndum sínum, sem falla þin í listastraum tímans: Bautasteinn, Sigurvilji og En nú falla öll vötn til Dýrafjarðar. Og þar er hann ekk- ert að minna okkur á Gaston Bachelard (eins og listfræðingi gæti hætt til), á verk hans: Vatniö og draumarnir. Ritgerd um ímyndun- arafl efnisins. í þessum verkum er Halldór í sinum eigin vötnum sem falla öll til Dýrafjarðar. Hann er harmsögulegur í litnum. Og hann veit að ekki verður aftur snúið. Þarna er hann bestur, eins og gladíator með sverð sem blómgast í hendi hans. LJÓSABEKKIR-GUFUBÖÐ-AEROBIC-TÆKJASA oc < (/) D 0. O o Q D 2 O I (0 I oc D BJARTUR RÚMGÓÐUR ÆFINGARSALUR Líkamsræktarstöðin Borgartúni 29 kynnir: Aerobic-leikfimi alla virka daga Blandaðir tímar alla daga frá kl. 17.00. Kennarar: Sólveig Róbertsdóttir og Katrín Gísladóttir. Upplagt fyrir alla er vilja sameina aerobic og æfingar í tækjasal. Frúarleikfimi undir stjórn Sólveigar Róbertsdóttur á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 13.00. Öllum námskeiðum fylgir aðgangur í tækjasal. Innritun í Líkamsræktarstöðinni Borgartúni 29, sími 28449. Höfum einnig upp á að bjóða einn stærsta og fullkomnasta tækjasal til líkamsræktar á íslandi. Reyndir og færir leiðbeinendur ávallt til staðar til aðstoðar byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. Opnunartímar: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 11.30- 22.00 11.30- 22.00. 11.30-22.00. 11.30- 22.00. 11.30- 20.00. 10.00-15.00. 10.00-15.00 Æfið í tækjum sem Arnold mælir með Líkamsræktarstöðin Borgartúni 29, sími 28449. c 30 vsvrMBTa-oisouBv-aoandnÐ-HiMMaavson HELGARPÓSTURINN 25 SVÆÐAIMUDP-BIOPULSAR

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.