Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.04.1986, Qupperneq 32

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Qupperneq 32
myndasjóði innan skamms og vænt- anlega strax eftir helgi. Staðið hefur á úthlutun vegna þess að enn liggur ekki fyrir skrifleg heimild fyrir fé því sem Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra lofaði sjóðn- um. Sverrir lofaði 10 milljón króna viðbót í sjóðinn og eiga þeir pening- ár að koma úr Iðnlánasjóði. Er verið að ganga frá þeim máium þessa dagana. Af Kvikmyndasjóði er það að segja að mjög margar umsóknir hafa borist og talsverður kurr kom- inn í umsækjendurna, því nú vorar óðum og vilja menn fá fjármálin á hreint áður en upptökur hefjast í sumar. Virðast slæmar fjárhagshorf- ur kvikmyndaiðnaðarins íslenska ekki aftra mönnum að halda ótrauðir áfram í innlendri kvik- myndagerð... A næstu dögum og manuð- um má væntra margra og mikilla frétta frá lögreglumönnum, sem nú hafa sagt upp störfum og þeim, sem eftir sitja. Meðal lögreglumanna er ekki eingöngu uppi gagnrýni vegna lélegra launa, heldur hefur HP frétt, að lögreglumenn hafi þegar komið á framfæri mjög harðri gagnrýni á yfirstjórn dómsmála í landinu. I skýrslu, sem fram hefur komið hjá lögreglumönnum, er m.a. mjög hörð gagnrýni á Þórd Björnsson ríkissaksóknara og vikið að því hvort hann sé hæfur eður ei. Eftir því, sem HP hefur heyrt segir í þess- ari skýrslu, að ekki sé verjandi, að hann hafi þau völd, sem hann hefur. Annars er engin furða, að hæfustu lögreglumennirnir hverfi úr störfum sínum og fari t.d. tii öryggisþjónust- unnar Securitas, því okkur er sagt, að þar bjóðist þeim 60 þúsund krón- ur á mánuði. . . E ins og við sögðum frá í síðasta blaði var haldinn aðalfundur í Lögmannafélagi íslands á dögun- um. Par var Sveinn Snorrason kjörinn nýr formaður. A þessum fundi hélt Benedikt Blöndai hæstaréttarlögmaður gagnorða ræðu, þar sem hann gagnrýndi Hæstarétt og hæstaréttardómara harðlega. Átaldi hann réttinn fyrir aö dæma seint í málum og þar sem þeir afsökuðu sig sýknt og heilagt með því að vera svo uppteknir við útgáfu Hæstaréttardóma ætti að taka það verk af þeim svo þeir gætu þá farið að dæma. Þá kom fram mjög ákveðin gagnrýni á misræmi í dómum Hæstaréttar. Nú væri svo komið, að ómögulegt væri að átta sig á hugsanlegum dómum Hæstaréttar, því allt færi þetta eftir því hvaða ,,holl“ dæmdi málið. Gleggstu skilin meðal hæstaréttardómaranna munu vera annars vegar á milli Magnúsar Thoroddsens og Gudmundar Jónssonar fv. borgardómara ann- ars vegar og svo hins vegar prófess- oranna fyrrverandi og sakadómar- anna fyrrverandi. . . rétt. Á dögunum var dæmt, að þungaskattur hefði verið ólöglega lagður á, en hins vegar bæri ríkinu ekki skylda til þess að endurgreiða eina einustu krónu, þar sem vöru- bílaeigendur og fleiri hefðu ekki gert fyrirvara um endurgreiðslu þegar þeir reiddu fram greiðsluna. Þetta er tekið sem dæmi um, að sumir hæstaréttardómaranna séu allhrikalega hallir undir ríkið og hafi t.d. í þessu tilviki sparað ríkinu tugmilljónir í endurgreiðslur. Þá þykir mönnum það heldur hlálegt, að menn þurfi að hafa vit á því að gera slíkan fyrirvara og nefna sem dæmi opinber gjöld einstaklinga, sem kynnu að vera ólöglega lögð á. Það væri þokkalegt, ef fólk þyrfti að gera fyrirvara um nánast hvaða greiðslu sem er, ef svo kynni að fara, að greitt gjald reyndist vera lög- laust. . . M ■ W ■ikil eftirvænting rikir um það hver hreppi starf útvarpsstjóra í. Akureyrardeild Ríkisútvarpsins. Við höfum velt vöngum yfir þessu hér í HP og nú getum við staðfest, að Erna Indriöadóttir fréttamaður útvarpsins á Akureyri hefur sótt um, eins og við spáðum. Þá eru enn nefndir þeir Stefán Jökulsson og Ólafur H. Torfason. Stefán Jón Hafstein mun vera búinn að gefa þessa hugmynd frá sér og pælir nú í störfum fyrir Rauða krossinn á er- lendri grundu.. . „Eitt besfa veifingahus í Evrópu • > *' I ii(]U siOui i'] ' ... hjcinu-n.m IullLmwjjLi *•'f% m (? il"\'Ti \v lujuwui u i'ITW || uoiinui lcu,(4 írcncLuu U 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.