Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 7
YFIRHEYRSLA
nafn: Ásmundur Stefánsson fæddur 21.3. '45 í Reykjavík staða Forseti Alþýðusambands íslands
heimili: Njörvasund 38, Reykjavík bifreið: Datsun Cherry árg. 1980 laun: 93.179 með yfirvinnu
heimilishagir: Kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Þjóðviljans. Tvö börn
Fráleitt að ég verði formaður
eftir Sigmund Erni Rúnarsson myndir Jim Smart
Kjaramál og árangur verkalýöshreyfingarinnar á síöustu árum er ekki til umfjöliunar hér,
heldur nýjustu yfirlýsingar Þjódviljaritstjórans um bladid, flokkinn ogstödu einstakra manna'
innan og utan hvorstveggja — og þó einkanlega um Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ. Hann
er yfirheyrdur.
— Hefur verkalýðsforustan, með þíg
fremstan manna, haldið flokksforustu
Alþýðubandalagsins í pólitískri gísl-
ingu, eins og einn gagnrýnandi ykkar
komst að orði?
„Ég held það sé nú skynsamlegra að spyrja
flokksforustuna um það hvernig líðan henn-
ar hefur verið á undanförnum árum...“
— Viltu ráða því hvernig flokkurinn og
málgagn hans, Þjóðviljinn, fjallar um
kjaramál?
„Ég hef aldrei haft nokkurn áhuga á því að
verða hvort sem væri blaðamaður eða rit-
stjóri á Þjóðviljanum. Ég hef hinsvegar verið
óánægður með skrif Þjóðviljans og ég er það
ennþá. Blaðamennskan þar er ekki nógu
góð. Mál eru ekki nægilega vel skýrð. Það er
blandað of mikið saman ritstjórnarstefnunni
og hinni daglegu fréttamennsku, bæði í vali
á fréttum, viðmælendum, fyrirsögnum og
því hvernig mál eru sett frarn."
— Finnst þér gagnrýni þeirra á þig og
Verkalýðshreyfinguna ekki einfaldlega
vera of hörð?
„Nei, málið snýst ekki um það. Það snýst
hinsvegar um mikla þröngsýni af hálfu
blaðsins. Það fá alltof fá sjónarmið að koma
fram á síðum Þjóðviljans.”
— „Einn verkalýðsforinginn fór fram
á það við mig að éjg bæri ieiðaraskrifin
undir sig,“ segir Ossur ritstjóri í nýju
viðtali við Heimsmynd, en vill ekki
nefna hann á nafn. A hann við þig?
„Ég veit satt að segja ekki hvern hann á
við. En ég vildi sjá þann mann sem hefði geð-
heiisu til þess að fara yfir alla leiðara Þjóðvilj-
ans.“
— Sérðu hagkvæmni í því að verka-
Iýðshreyfingin fái beina línu inn til rit-
stjóra Þjóðviljans — hjálpi til við leiðara-
skrifin?
„Nei.“
— Hefur þig langað til að skrifa leiðara
í Þjóðviljann?
„Ég hef ajdrei sýnt áhuga á því.“
— Viltu Össur út af ritstjórn blaðsins?
„Össur segir sjálfur í Heimsmyndarviðtal-
inu að ég hafi viljað sparka honum þaðan. A
einföldu íslensku máli er það lygimál. Ég hef
hvergi sett fram slíkar kröfur. Ég hef hinsveg-
ar sett fram þá skoðun að það sé nauðsynlegt
að við hlið hans sé annar ritstjóri til aö
tryggja þá víðsýni og yfirsýn sem ég tel blað-
inu vera nauðsynlega."
— Ertu að tala um einhverskonar yfir-
frakka?
„Ef Össur telur ekki að það geti verið starf-
andi ritstjóri við hlið hans í almennum skrif-
um á blaðinu — en það er Árni Bergmann,
vel að merkja, ekki eins og verkaskiptingin
er í dag — án þess að sá hinn sami sé yfir-
frakki, þá sýnist mér að það sé þeim mun
meiri þörf á ritstjóra við hliðina á honum."
— Veldur Össur ekki ritstjórahlut-
verkinu að þínu mati?
„Nei, hann tryggir ekki einn þá breidd sem
nauðsynleg er.“
— Tekur því fyrir verkalýðshreyfing-
una og þig að vera að æsa þig svona yfir
jafn lítt útbreiddu blaði og Þjóðviljinn
er?
„í þessu sambandi er kannski rétt að und-
irstrika að ég er fyrst og fremst að gagnrýna
Þjóðviljann sem meðlimur Alþýðubanda-
iagsins en ekki sem forseti ASI.
— Hefur Þjóðviljinn svikið verkalýðs-
hreyfinguna?
„Hann hefur verið ákaflega einsýnn þegar
hreyfingin er annars vegar. Jákvæðar fréttir
hafa ekki átt upp á pallborðið hjá blaðinu.
Þær hafa verið lagðar til hliðar, á meðan því
neikvæða hefur verið slegið upp.“
— Stafar þetta fréttamat Þjóðviljans,
sem þú lýsir, af persónulegri óvild ykkar
Össurár og Óskars Guðmundssonar?
„Ég kannast ekki við neina persónulega
óvild þarna á milli."
— Att þú ítök í ritstjórn Þjóðviljans?
„Nei.“
— En í Alþýðubandalaginu, ertu sterk-
ur þar?
„Eg er ekki réttur maður til að dæma um
það. En auðvitað reyni ég að fylgja mínum
skoðunum vel eftir.“
— Ertu að taka yfir Alþýðubandalagið,
eins og Össur vill meina?
„Mér finnst nú satt að segja órar Össurar í
Heimsmyndarviðtalinu vera mjög sérstakir.
Það sem er kannski hvað athugaverðast er
að þarna fer ritstjóri Þjóðviljans, maður sem
fólk gerir sér almennt grein fyrir að hlýtur að
vera í innsta hring Alþýðubandalagsins, með
allskonar Gróusögur um það sem sé að ger-
ast eða kunni að gerast í flokknum..."
— Segirðu hann ljúga hlutum upp á
Þíg?
„É skal ekkert segja um það hvenær hann
segir satt og hvenær hann segir ekki satt.
Mér má að sjálfsögðu í léttu rúmi liggja
þótt ofstækisfullir menn séu að reyna að
gera mig að allsherjargoða til lands og sjávar
í sínum martröðum og sálarþrengingutp.
Mér finnst það hinsvegar mjög alvarlegt þeg-
ar ritstjóri Þjóðviljans gengur opinberlega
fram með það sjónarmið að það sé réttlætan-
legt að Þjóðviljinn sé tæki ákveðins hóps í
flokknum í innanflokksátökum. Og jafnvel
að þau innanflokksátök séu aðdragandi að
því að efna til sérframboðs með Bandalagi
jafnaðarmanna og fleiri aöilum."
— Þú hefur lýst því yfir að þú viljir
kosningar í haust. Er sú yfirlýsing í ein-
hverju sambandi við hugsaniega löngun
sjálfs þín á þing?
„Það fæ ég ekki séð. Ef ég stefndi á þing
sýnist mér sá kosningatími mér óhagstæður.
Eg þyrfti væntanlega undirbúningstíma til
þess að afla mér fylgis og sá tími yrði þá æði
skammur.
— Þú ferð nú samt fram í haust, er það
ekki, ef kosið verður þá?
„Ég sé ýmsa kosti því samfara að forseti
ASÍ sé jafnframt þingmaður, fyrst og fremst
vegna þess að þar er hægt að taka upp mál
og þar fer fram umræða. En gallarnir eru
þeir að starf forseta er yfrið nóg eitt og sér,
auk þess sem það getur skapað viss óþæg-
indi þegar það fer saman við þingmennsku."
— Hagsmunatogstreita?
„Já, það getur kostað mikla hagsmunatog-
streitu. Og einmitt þess vegna hef ég metið
gallana við að fara fram til þings meiri en
kostina."
— En verðurðu ekki að fara fram
strax, fyrst þú hefur áhuga, því ella gæti
verið hætta á að missa af lestinni í
flokknum?
„Ha... af hverju? Ég geri mér nú ekki grein
fyrir því að það sé nein lest á ferðinni."
— Eg á við að þú viljir búa þig undir
formennsku Alþýðubandalagsins með
þingmennskunni!
„Þótt ég beri ágætt traust til andlegrar og
líkamlegrar heilsu minnar, finnst mér nú
ekki alveg raunhæft að ég sé, ásamt störfum
mínum fyrir Alþýðusambandið, yfirritstjóri
Þjóðviljans, þingmaður Alþýðubandalags-
ins, formaður flokksins og þá væntanlega
ráðherra síðar meir, eins og órar Össurar
virðast snúast um þessa dagana."
— Dreymir þig ráðherratign, svona
fyrst þú nefnir starfið?
„Nei.“
— En aftur á móti hvarflar formennsk-
an að þér?
„Hún hefur ekki verið á mínum óskalista."
— Er þetta einlægt svar hjá þér núna?
„Já. Ég held nánast að það sé fráleitt að ég
verði formaður eins og sakir standa..."
— Þannig að Ólafur Ragnar kemst
óáreittur í formannssætið á næsta
landsfundi?
„Það er ekki rétt að setja spurninguna svona
upp. Það er misskilningur að Svavar geti ekki
haldið áfram formennsku, vegna reglna í
flokknum, og reyndar tel ég að best fari á því
að hann sitji."
— Eru fylkingarnar í Alþýðubandalag-
inu ósættanlegar?
„Ákveðinn hópur í Alþýðubandalaginu,
sem undir formerkjum valddreifingar vill
flytja valdið allt til sín, virðist stefna í kiofn-
ing ef dæma má af yfirlýsingum Össurar í
Heimsmynd. Mér sýnist að þessi hópur vilji
ekki samstarf við hinn hluta Alþýðubanda-
lagsins..,"
— Er klofningurinn þegar hafinn?
„Þessi hópur virðist heimta klofning. Ann-
ars fer betur á því að þeir sem standa fyrir
klofningnum, svari þessu."
— Þú kvaðst áðan vilja kosningar
strax í haust. Er ekki hætt við að flokk-
urinn mætti veikur til leiks þar með upp-
lausnina á Þjóðviljanum, Guðmundar-
málið og klofninginn á herðunum?
„Mál Guðmundar J. er flokknum ekki
vandamál. Hitt getur verið stórt vandamál,
ef hver fylkingin gengur á aðra í kosninga-
baráttunni..."
— Mál Guðmundar J. flokknum ekkert
vandamál!
„Ég tel ekki rétt að nein stofnun flokks-
ins krefjist þess að Guðmundur segi af sér
þingmennsku. Mér finnst framkoma ákveð-
inna forystumanna flokksins í þessu máli
hafa verið mjög ódrengileg og beinlínis
óheiðarleg."
— Það er þá kannski ekki um nein
prinsipp að ræða í þessu máli!?
„Það er auðvitað um það að ræða í þessu
máli — og ég gæti vissulega farið út í rökræð-
ur við þig um þau — en mín niðurstaða af
málinu er sú að ég tel ekki rökrétt að flokkur-
inn skipi Guðmundi eitthvað fyrir í þessu
máli, nema eitthvað nýtt komi fram í rann-
sókninni sem hann bað um.“
— Er flokknum stætt á að gagnrýna
aðra flokka um hagsmunaárekstra og
annað í þeim dúr eftir sem áður?
„Já, það tel ég vera."
— Svona í lokin. Þegar ég bað þig um
að tala við mig, kvaðstu í fyrstu ekki
vera áfjáður í að tala við þetta „sorp-
blað“ sem ég starfaði við. Hversvegna
kaustu að kalia HP þessu nafni?
„Helgarpósturinn hefur lagt sig eftir Gróu-
sögum og að mínu mati stundum verið með
órökstuddar fullyrðingar um menn og mál-
efni, stundum sagt ósatt.
— En þú lætur þetta blað samt yfir-
heyra þig
„Já, og ekki í fyrsta sinn.“