Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 12
„PROFMAL SEM VARMR
ÖRLÖG ÖTAL EINSTAKLINGA"
SEGIR KARVEL PÁLMASON, SEM KREFST SKAÐABÓTA AF REYKJAVÍKURBORG FYRIR HÖND BORGARSPÍTALANS
I aprílmánudi sídastlidnum birti
Helgarpósturinn vidtal vid Karvel
Púlmason alþingismann, þar sem
fram kom aö hann heföi faliö lög-
frœöingi aö kanna möguleika á
málshöföun á hendur lœknum
Borgarspítalans. Þó hljótt hafi veriö
um Karvelsmáliö svokallaöa aö
undanförnu, er langt því frá aö á
þeim vettvangi sé einhver ládeyöa.
Karvel hefur, í samráöi við lögfrœö-
ing sinn, ákveöiö aö fara í mál og aö
því hefur veriö unniö af fullum
krafti í margar vikur. Blaöamaöur
HP tók þingmanninn tali fyrir
skömmu og fékk fregnir af fram-
vindu málsins.
Hafi fólk haldið að Karvel Pálma-
son léti sér nægja að bera sjúkra-
sögu sína á torg í HP og síðar í sjón-
varpi og síðan ekki söguna meir,
skjátiast því hrapailega. í samtali
okkar tók Karvel það margsinnis
fram, að hann ætlaði að fylgja mál-
inu eftir þar til niðurstaða fengist. Sú
niðurstaða yrði svo birt almenningi
með sama hætti og upphaf málsins.
Sagði þingmaðurinn að hann
fyndi sig knúinn til þess að halda
þessu til streitu. Hann hefði orðið
var við að almenningur gerði kröfu
til þess. Sjálfur sagðist hann sífellt
verða sannfærðari um að þetta væri
rétt ákvörðun því þeir læknar, sem
fjaliað hefðu um málið opinberlega
af hálfu spítalans, hefðu einungis
forherst ef eitthvað væri. Líkti Kar-
vel þessu við það að rónar væru
sagðir koma óorði á brennivín, því
hann teldi viðkomandi lækna koma
óorði á stéttina í heild. Viðbrögð
þeirra lækna, sem ekki teldu málið
snerta sig persónulega, sagði þing-
maðurinn mjög jákvæð.
Viðurkenna vlta-
vert kæruleysi
En hvers vegna lætur Karvel
Pálmason sér ekki nægja að hafa
fengið í hendur bréf frá læknaráði,
þar sem viðurkennd eru mistök í
meðferð hans?
„Það má segja að þetta sé eins
konar prófmál. Þess vegna er
ábyrgð mín auðvitað afar mikil og
hefur satt best að segja valdið mér
ákveðnum áhyggjum. Ég hef það
hins vegar á tilfinningunni, og byggi
það á upplýsingum frá fólki sem haft
hefur samband við mig, að ótalinn
fjöldi einstaklinga hafi þurft að
gjalda þess kerfis, sem við búum við
gagnvart læknastéttinni. Það má
einnig vera að ég verði látinn gjalda
þess að koma í þetta blaðaviðtal
núna, en þá er bara að taka því.
Ég er fyrst og fremst að fara í mál
til þess að fá viðurkennda skaða-
bótaskyldu spítaians. Þetta geri ég
til að almenningur geti séð fram á
möguleika á að leita réttar síns í
framtíðinni.
Þú minnist á bréfið frá læknaráði,
sem Helgarpósturinn forklúðraði
reyndar í birtingu í apríl, með því að
smækka það svo grimmt að enginn
gat lesið það. í bréfinu koma fram
niðurstöður rannsókna læknaráðs
og á mæltu máli þýða þær einfaid-
LANDLÆKNIR ___
Raykjavik. 25.03.1986
Hr. alþingismaóur
Karvel Pálmason
c/o Alþingi
v/Austurvöl 1 riivíwn okk«i: öö/hþ
101 Reykjavik
filviiun »ð*i
Hr. Karvel Pálmason,
Á fundi Læknaráös þann 05.03.1986 var lögó fram ályktun Sióa-
máladeildar Læknaráós um mál yóar. Nióurstöóur umræóna uróu
eftirfarandi.
Læknaráó álýtur:
"aó of langur timi hafi lióió frá því aó siökomin ígeró i
skurói yfir bringubeini K.P. gerói vart vió sig (14.09.1985) og
þar til hann var innlagóur á Borgarspitalann (23.09.1985)"
- "aó of langur timi hafi liðió frá innlögn og þar til venjuleg
lungnamynd var tekin 30.09.1985"
"aó óeólilega langur timi hafi liöió frá þvi aó blóóþynning var
mæld (26.08.1985) og þar til ný mæling var geró (22.09.1985)
enda þótt geró hafi verió acut TT mæling á Bolungarvik 06.09.
1985 sem sýndi 7%".
"aó eólilegt hafi verió aó leggja K.P. inn á sjúkrahús þegar
hann lét vita af blóómigu"
F.h. Læknaráós
Landlaknir Simi 91-27555 Tele» 2050
; Laugevegl 116 2225 eiiern is
105 Reykjevlk
Bréfið frá læknaráði, dagsett 25. aprfl sl., þar sem viðurkennd eru mistök í meðferð
Karvels Rálmasonar.
lega að sýnt hafi verið vítavert
kæruleysi við meðferð á mér á
Borgarspítalanum. Það er þó ekki
þar með sagt að allir læknarnir séu
jafnsekir. Yms gögn, sem þegar
liggja fyrir, sýna að sumir læknar
vildu haga meðferðinni á annan
hátt en gert var. Óeining meðal
læknanna, sem önnuðust mig, olli
drætti sem hafði úrslitaþýðingu
varðandi þróun málsins. Viðkom-
andi munu hins vegar eflaust reyna
að verja sig, kannski meðal annars
með breyttum dagsetningum á
sjúkraskýrslunum."
Peningar skipta
engu máii
— Hvernig hefur undirbúningi
málsins veriö háttaö?
„Þetta mál er auðvitað erfitt í
vinnslu, eins og þú getur ímyndað
þér. Það er hvergi hliðstæðu að
finna, segja sérfróðir menn. Skurð-
irnir á brjóstkassanum á mér eru
165 cm langir og í honum eru engin
bein eftir, utan rifbein. Brjóstið er
allt saman vöðvafylling, sem fengin
er annars staðar úr líkamanum.
Þeir sem að þessu máli vinna fyrir
mig, eiga þess vegna erfitt um vik,
og hafa þar að auki framtíð og örlög
ótal einstaklinga í höndum sér. Hér
er um það að ræða hvort réttur ein-
staklingsins sé virtur eða ekki. Þó
um skaðabótamál sé að ræða,
skipta peningar engu í þessu sam-
bandi.
Tryggingayfirlæknir hefur haft yf-
irumsjón með söfnun gagna í mál-
inu og þetta hefur allt tekið sinn
tíma, en ég vonast til að málið verði
lagt fyrir lögfræðing Reykjavíkur-
borgar núna í júlí. Ég hef enga eirð
til þess að sitja aðgerðalaus hvað
þetta varðar.“
— Þaö vakir sem sagt fyrir þér aö
sýna fram á og láta skjalfesta þaö
aö mistök geti hent lœkna eins og
aöra menn og aö þeir veröi aö taka
afleiöingum þeirra eins og viö hin?
„Læknar eru engir guðir, Jónína.
Þeir eru misjafnir eins og aðrir
menn. Sumir þeirra eru mjög traust-
ir, en það loðir við aðra að menn
eigi í erfiðleikum með að treysta
þeim. Sú spurning hefur orðið áleit-
in hjá fleirum en mér, hvers virði
læknaeiðurinn sé mönnum sem
hegða sér svona í starfi.
Nú þegar liggja m.a. fyrir upplýs-
ingar um að fullyrðingar Éinars
Baldvinssonar um að hann hafi sagt
mér að hætta lyfjatöku nokkrum
dögum áður en ég var lagður inn á
Borgarspítalann í annað sinn, eru
rangar.
Þann 11. september er ég í skoðun
í Reykjavík og bendi Einari á að
skurðurinn sé farinn að breyta sér,
en hann lætur ekki röntgenmynda
mig eins og til hafði staðið. Einungis
þremur dögum síðar, þann 14. sept-
ember, verður héraðslæknirinn fyr-
ir vestan að opna skurðinn, sem þá
var orðinn mjög bólginn vegna þess
að það gróf í brjóstholinu á mér.
Þetta er allt skjalfest.
Eftir að menn eru einu sinni farnir
að ljúga, hvernig á maður þá að geta
treyst þeim? Ég vil heldur ekki trúa
því að þeim, sem hengja sig aftan í
lygar og ósannindi, sé sjálfrátt. Þar
á ég við læknana og hjúkrunarfræð-
inginn sem skrifuðu undir staðhæf-
ingar Einars Baldvinssonar um
einkasamtöl hans við mig.“
Tilbúinn að fara
fyrir æðstu dóm-
stóla
— Nú varst þú í upphafi alls ekki
ákveöinn í aö þetta yröi dómsmál.
Ertu sáttur viö þessa þróun?
„Já, líklega var það best að svona
færi. Ekki endilega mín vegna, held-
ur fyrir almenning í landinu. Mér er
það ekkert kappsmál að fá menn
dæmda fyrir dómstólum — ég vil
taka það fram. Það er hins vegar
mikilvægt að fá menn í læknastétt
til þess að hlíta lögmálum almennra
mannlegra samskipta.
Það er ljóst að vítavert gáleysi var
sýnt í meðhöndlun á mér og það
sama hefur eflaust hent marga aðra
sjúklinga að einhverju marki. Ég er
viss um að ótalmargir hafa borið
skarðan hlut frá borði í viðskiptum
við þessa stétt.
Eins og ég hef þegar sagt, þá mun
skaðabóta verða krafist vegna þess-
arar meðferðar á Borgarspítalan-
um. Það fer eftir þróun mála hvort -
þetta fer í opinberan dóm eða ekki,
en það er ekkert til fyrirstöðu af
minni hálfu. Ég er tilbúinn að fara
fyrir æðstu dómstóla, ef því er að
skipta. Almenningur á kröfu á því
og ég vil á engan hátt bregðast hvað
það varðar."
— Hefur veriö leitaö umsagnar
ensku lœknanna, sem tóku viö þér
þegar þú komst til London í annaö
sinn meö Landhelgisgœsluvélinni?
„Ég hef fullan hug á að leita til
þeirra, já. Kannski vita þeir manna
best hvað hér um ræðir."
— Hvernig leggjast vœntanleg úr-
slit málsins í þig á þessu stigi?
„Þau leggjast vel í mig. Mér er
sem ég sjái dómstóla landsins segja
læknaráð fara með rangt mál! Þá
sæi almenningur í landinu líka sína
sæng útbreidda varðandi það að
sækja rétt sinn gagnvart læknastétt-
inni. Hins vegar hef ég enga trú á
öðru en að réttlætið sigri.“
Helgarpósturinn hafði samband
við Einar Baldvinsson, lækni á
Borgarspítalanum, og spurði hvort
hann hefði áhyggjur af yfirvofandi
málssókn Karvels Pálmasonar.
Sagðist Einar ekki vilja tjá sig um
þetta mál við fjölmiðla.
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart
12 HELGARPÓSTURINN