Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 14
Þegar eplið fellur langt frá eikinni ÆTTLERAR Helgarpósturinn tekur tali einstaklinga sem hafa tileinkað sér allt önnur viðhorf en foreldrarnir og œttin Eitt af þeim frómu máltœkjum sem huad oftast heyrast, er á þessa leið: ,,Sjaldan fellur eplid langt frá eikinni". Þá er audvitad átt viö aö börnin leiti gjarnan í sama farveg og foreldrarnir. En epliö á þaö til aö rálla talsveröa vegalengd þegar stormasamt er. Iþessari grein er ein- mitt fjallaö um einstaklinga sem hafa tileinkaö sér allt annaö lífsviö- horfen ríkjandi er og var í fjölskyldu þeirra og œtt. Helgarpósturinn ræddi við nokkra einstaklinga, sem fallið hafa nokkuð langt frá eikinni, og sést af- raksturinn hér í opnunni. Fleiri til- vik hefði auðvitað mátt tína til á síð- ari tímum. Við getum t.d. nefnt að Guömundur J. Guömundsson, verkalýðsforingi og alþýðubanda- lagsmaður, er sonur Guömundar H. Guömundssonar, sem var talsvert virkur í sjálfstæðisfélögunum Verði og Óðni. Höröur Sigurgestsson, for- stjóri Eimskipafélagsins, er sonur virks verkalýðsforingja, Sigurgests Guöjónssonar. Thor Vilhjálmsson rithöfundur og vinstrisinni, er sonur Guömundar Vilhjálmssonar, sem lengi var forstjóri Eimskipafélagsins og stjórnarformaður Flugleiða og að auki af hinni voldugu Thorsætt. Jónas Haralz, bankastjóri Lands- bankans, tilheyrir gegnheilli sjálf- stæðismannaætt; hann var hins vegar gallharður sósíalisti fyrr á ár- um — en hefur snúið við blaðinu síð- an. Samantekt þessi einskorðast þannig við börnin sem fóru allt aðra leið en foreldrarnir og ættin. Hitt er ljóst að af nógu væri að taka ef sam- antektin yrði í víðara samhengi og tekin dæmi af óvenjulegum hjóna- böndum og fjölskyldutengslum. Dettur þannig einhverjum í hug að tengja saman Magnús Kjartansson heitinn, ráðherra Alþýðubandalags- ins, og Morgunblaðið og Thorsætt- ina? Jú, Ólöf Magnúsdóttir Kjart- anssonar er gift Kjartani Thors, syni Björns Thors, blaðamanns Morgun- blaðsins, og Helgu Valtýsdóttur fyrr- verandi ritstjóra Morgunblaðsins Stefánssonar. Austri er þannig tengdur Staksteinum! Svo má nefna að Freyr Þórarins- son, sem er annálaður vinstrisinni, er tengdasonur Geirs Hallgrímsson- ar, fv. formanns Sjálfstæðisflokksins og núverandi stjórnarformanns Ar- vakurs, útgáfufélags Morgunblaðs- ins. Loks skulum við nefna, að Guöni Jóhannesson, formaður Al- þýðubandalagsins í Reykjavík, er tengdasonur Sverris Hermannsson- armenntamálaráðherra. í viðtölum hér í opnunni kemur í ljós að viðbrögðin við óvæntum ferðalögum „eplanna" eru ærið mis- jöfn. í tilfelli Guörúnar Ágústsdótt- ur, borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins, var ,,mengunin“ erfiður biti að kyngja, aðrir mættu skilningi og frjálslyndi eins og Hannes Hólm- steinn, sem þó segist eiga við for- eldravandamál að stríða hvað póli- tíkina varðar! Og Árni Hjartarson telur sig ekki hafa rúllað svo langt frá eik sinni sem í fyrstu mætti ætla. GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR BORGARFULLTRÚI: MÁTTI EKKI RÆÐA f SÍMA! „Það gerði svo sannarlega enga lukku í fjölskyldunni þegar fram fóru að koma vinstri tilhneigingar hjá mér í kringum 1970, en það var í tengslum við þátttöku mína í Rauð- sokkahreyfingunni. Eftir nokkur ár fannst mér ljóst að það var útilokað að vera sjálfstæðismaður, því sá flokkur vann beinlínis gegn kvenna- baráttunni. Fað var síðan 1974 að ég fór í framboð fyrir Alþýðubanda- lagið og ég væri að skrökva ef ég segði það hafa gert lukku í minni fjölskyldu, þar sem allflestir voru flokksbundnir í Sjálfstæðisflokkn- um eða studdu þann flokk heilshug- ar.“ Það er Guörún Ágústsdóttir, borg- arfulltrúi Alþýðubandalagsins, sem þannig lýsir því hvernig hún tileink- aði sér stjórnmálaskoðanir þvert á línu sinna nánustu. Guðrún er dóttir Ágústs Bjarnasonar, sjálfstæðis- manns og söngvara, sem aftur er sonur Bjarna Jónssonar vígslubisk- ups, sem var sérstakur forseta- kandídat Sjálfstæðisflokksins í for- setakosningunum 1952, en hann tapaði tiltölulega naumlega fyrir Ás- geiri Ásgeirssyni. Guðrún er og var umvafin sjálfstæðismönnum og til marks um hversu „alvarlegt hliðar- spor“ hennar taldist, segist hún hafa heyrt þá sögu, að þegar faðir henn- ar hringdi í móður sína og sagði henni frá þvi að dóttirin færi í fram- boð fyrir Alþýðubandalagið hafi svar ömmu hennar verið: „Svona lagað ræðir maður ekki í síma!“ Guðrún segist þó ekki selja þessa sögu dýrar en hún keypti hana. „Við barnabörnin, önnur kynslóð- in eftir afa og ömmu, höfum í meira mæli dreift okkur á hina ýmsu flokka. Ég held að segja megi að við forsetakosningarnar 1968 hafi mjög margt ungt fólk fylgst með kosn- ingavél Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðinu og að það hafi opn- að augu mjög margra sem fylgdust með. A mínum unglingsárum vann maður svo sem í kosningastarfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og það var talið eðlilegt og sjálfsagt að maður fetaði í fótspor foreldranna, færi sömu leið. Sviptingarnar 1968—1970 breyttu því hins vegar. Og þótt þetta hafi ekki gert lukku þá er það nú svo að tíminn líður og skynsamt fólk lætur svona lagað ekki hafa áhrif á vináttu sína. Fjölskyldulífið gengur nú enda vel — þótt maður hafi fyrstu árin forðast mjög að ræða pólitík. Ég hef aldrei ætlað mér að breyta afstöðu föður míns, ég þykist vita að það tæki nokkrar aldir þótt markvisst væri unnið! Og ég'held að hann hafi áttað sig á því að hann breytir ekki afstöðu minni og nú rík- ir full virðing okkar á milli fyrir skoðunum hvors annars," segir Guð- rún. Guðrún Ágústsdóttir er dóttir sjálf- stæðismannsins Ágústs Bjarnasonar, sem er sonur sjálfstæðismannsins og for- setaframbjóðandans Bjarna Jónsson- ar vígslubiskups. Allir hennar nánustu eru sjálfstæðismenn og það gerði ekki beinlínis lukku þegar Guðrún fór í fram- boð fyrir allaballa 1974... HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON FRJÁLSHYGGJUMAÐUR: „ÁKVEÐIÐ FORELDRA- VANDAMÁL!" „Ég hef stunduð orðað þetta svo, að ég ætti við ákveðið foreldra- vandamál að stríða. Móðir mín er í Framsóknarflokknum og af mikilli framsóknarætt og faðir minn er sósíalisti. Ég hef hins vegar aldrei verið vinstri maður," sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson við Helgar- póstinn um sitt tilfelli. Mikið er um framsóknarmenn í móðurætt Hannesar — Guðlaugs- staðakyninu — meðal annars má nefna Pál Pétursson þingflokksfor- mann Framsóknarflokksins. Um þetta kyn hefur verið kveðið: Malar hátt í mærðardyn mest á hundavaði, þetta fræga kjaftakyn kennt við Guðlaugsstaði. Hannes segir að það hafi einmitt verið fyrir tilstilli móður sinnar að hann gerðist hliðhollur Sjálfstæðis- flokknum! „Þannig var að þegar ég var 8 ára vildi móðir mín gjarnan að ég fengi vinnu um sumarið. Á mínu heimili voru keypt tvö blöð, Tíminn og Þjóðviljinn, en hún gat bara fengið blaðaútburð fyrir mig hjá Morgun- Hannes Hólmsteinn Gissurarson er að líkindum nafntogaðasti frjálshyggju- maður landsins. En faðir hans er sósíalisti og móðir hans framsóknarmaður af Guð- laugsstaðakyni. Þegar Hannes var 8 ára útvegaði móðir hans honum vinnu við blaðaútburð — á Morgunblaðinu. Hannesi þótti það gott blað... blaðinu. Það varð til þess að ég las þetta blað og mér fannst það miklu betra blað og boðskapur en hjá hin- um blöðunum. Þannig var það til- raun móður minnar til að afla mér sómasamlegrar vinnu sem olli því að ég gerðist frjálshyggjumaður. Annars voru mínir foreldrar frjáls- lyndir að því leyti að þau voru ekk- ert að skipta sér af því hvaða skoð- unum ég fylgdi. Þó er heimilið og var mjög pólitískt. í síðustu bæjar- stjórnarkosningum var móðir mín á lista Framsóknarflokksins, systir mín á lista Sjálfstæðisflokksins og faðir minn í stjórn Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi, þannig að þar eru ýmsár skoðanir í gangi. Hjá mér hafa þó vinstri tendensarnir aldrei verið ríkjandi. Ég hef í huga að ís- land byggðist út frá því að við neit- uðum að greiða skatta til Haraldar lúfu (hárfagra) og þannig varð frjáls- lyndið og einstaklingseðlið til þess að við brutumst undan framsóknar- farginu," sagði Hannes. ÞÓRARINN V. ÞÓRARINSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI VSÍ: „LÍTT ÁHUGAVERT TILFELLI" „Ég vil nú síður tjá mig um þetta núna. Ég held að það hafi lítið að Þórarinn V. Þórarinsson er sonur verkamanns í prentsmiðju Þjóðviljans og sjálfur var hann meira að segja sendill hjá þessu fjandriti vinnuveitenda. Fyrst í stað var Þórarinn líka rauðliði... 14 HELGAFtPÓSTURINN leftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart, Árni Bjarnason og fleiri

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.