Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 16

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 16
Engar kröfur um hœfni eða menntun þeirra sem vinna að gerð ,,svartra lista“ um vanskilaaðila í viðskiptalífinu Hús Reiknistofunnar hf. er að Flatahrauni 29 í Hafnarfirði. Tvisvar á ári gefur einkafyrirtœk- iö Reiknistofan hf. út skrá yfir ein- staklinga, fyrirtæki og adrar ,,lög- persónur“ sem teljast vera í vanskil- um og því vafasamt að eiga viö láns- viöskipti. Eins og HP ftefur áöur skýrt frá, er þessi svokallaöi ,,svarti listi" upp á nokkur hundruö blaö- síöur þar sem um 10 þásund aöilar meö rámlega 20 þásund mál á bak- inu eru skráöir, sumir fyrir miklar sakir en aörir vegna vanskila sem ekki ná 1000 krónum. Listann kaupa t.d. viöskiptabankarnir og stœrri fyrirtæki sem stunda lána- starfsemi í viöskiptum sínum, t.d. í formi víxla og skuldabréfa. íbyrjun jání bar þaö hins vegar til aö for- svarsmenn Auglýsingastofunnar GBB, auglýsingaþjónustunnar ráku augun í aö þeir voru ranglega skráöir í gjaldþrotameöferö í splunkunýrri útgáfu listans. Höföu þeir því strax samband viö Gylfa Sveinsson, forstjóra Reiknistofunn- ar ht, og kröföust þess aö listinn yröi tafarlaust leiöréttur. Þegar Gylfi tók því fálegd, sneru forsvarsmenn auglýsingafyrirtœkisins sér til tölvu- nefndar, ríkisskipaörar nefndar sem veitir tölvuþjónustufyrirtœkjum á borö viö Reiknistofuna hf. starfs- leyfi. Tölvunefnd brá skjótt viö og kallaöi Gylfa á sinn fund. Þegar far- iö var aö skoöa máliö betur, kom hins vegar í Ijós aö Auglýsingastof- an GBB, auglýsingaþjónustan var fráleitt eini aöilinn sem Reiknistofan hf. haföi ranglega skráö í gjald- þrotameöferö heldur voru a.m.k. eitt hundraö og ellefu mál afþvítagi á þessari nýju átgáfu listans. Þar aö auki viöurkenndi forstjóri Reikni- stofunnar hf. aö þessi mistök vœru ekki ný af nálinni. Tölvunefndar- menn gáfu Reiknistofunni hf. fyrir- mœli um aö stööva þegar dreifingu listans, sem þá stóö yfir, endurkalla eintökin sem þegar höföu veriö send út, átbúa nýjan lista, og senda þar aö auki út sérstakan leiörétting- arlista og fjölritaö afsökunarbréf til allra þeirra sem höföu oröiö fyrir baröinu á þessum mistökum. Sem Reiknistofan hf. og geröi. INNKÖLLUNARAUGLÝS- INGAR í LÖGBIRTINGA- BLAÐINU En hvernig stóð á þessum mistök- um Reiknistofunnar hf? Að sögn Jóns Thors, ritara tölvunefndar og deildarstjóra í dómsmálaráöuneyt- inu, höfðu starfsmenn Reiknistof- unnar hf. skráð niður svo til allar auglýsingar í Lögbirtingablaðinu sem eru undir fyrirsögninni „Inn- kallanir“ og fellt viðkomandi aðila sem þar voru nafngreindir, undir lið- inn „gjaldþrotameðferð“, án tillits til þess hvort þeir sættu gjaldþrota- meðferð eða ekki. Það skipti þannig ekki máli hvort innköllunarauglýs- ingarnar, þ.e. þegar verið er að lýsa eftir kröfuhöfum, voru á vegum skiptaráðanda vegna eiginlegra gjaldþrotaskipta eða hvort um var að ræða innkallanir í dánarbú eða vegna slita á fjárfélagi hjóna þar sem engin gjaldþrotaskipti voru á dagskrá. Hlutafélög, sem sett höfðu innköllunarauglýsingar í Lögbirt- ingablaðið t.d. vegna fyrirhugaðrar niðurfellingar félaganna eða sam- einingar við önnur hlutafélög og áttu heldur ekkert skylt við gjald- þrotaskipti, höfðu einnig verið felld undir „gjaldþrotameðferðarkvót- ann“. „Þetta eru nú nokkuð frumstæð mistök sem lýsa mikilli vanþekk- ingu starfsmanna Reiknistofunnar hf. á grundvallareðli innkallana," sagði Jón Thors hjá tölvunefnd. Þvi má svo bæta við að einu innköllun- arauglýsingarnar sem fullvíst er að ekki höfðu farið á skrá og fengið þessa meðferð hjá fyrirtækinu eru auglýsingar um glataðar banka- bækur þarsem skorað er á handhafa nefndra viðskiptabóka að segja til sín innan 6 mánaða. Ennfremur höfðu skiptaráðendur borgar- og bæjarfógetaembætta ranglega ver- ið skráðir í gjaldþrotameðferð (sic!) en að sögn Jóns á Reiknistofan hf. í raun ekki sök á því, heldur liggja mistökin í kerfinu. SKAÐABÖTAMÁL? Eins og fyrr sagði voru í nýju van- skilaskránni um 111 mál af þessu tæi, þar sem samtals um 100 ein- staklingar, fyrirtæki eða „lögper- sónur“ voru ranglega felld undir lið- inn „gjaldþrotameðferð". Flest eru þó fyrirtækin, eða um 60. HP hafði samband við forsvarsmenn tveggja fyrirtækja sem sættu þessari með- ferð. Halldór Guömundsson, fram- kvœmdastjóri Auglýsingastofunnar GBB, auglýsingaþjónustunnar kvað fyrirtæki sitt líklega hafa lent á „svarta listanum" þegar auglýsinga- fyrirtækin tvö, sem að fyrirtækinu standa, hefðu sett lögbundnar inn- köllunarauglýsingar í Lögbirtinga- blaðið vegna sameiningar fyrirtækj- anna. Tilgangurinn hefði verið að ganga úr skugga um hverjir teldu sig eiga kröfur á þau til glöggvunar stöðu fyrirtækjanna við samrunann og hefði fyrsta auglýsingin birst í marsbyrjun á þessu ári. Halldór sagði að enn hefði ekki verið tekin afstaða til þess hvort fyrirtækið færi út í frekari aðgerðir gegn Reiknistof- unni hf. svo sem skaðabótamál, en mistök Reiknistofunnar hf. hefðu valdið fyrirtækinu talsverðum ama og kostnaði. „Málinu er ekki lokið af okkar hálfu, þótt þessi leiðrétting hafi verið gerð. Okkur þykja það undarleg vinnubrögð að geta ekki greint á milli innkallana vegna gjaldþrotaskipta og annarra innkall- ana. Listar sem þessi eru að mörgu leyti mjög gagnlegir ef þeir eru unn- ir af skynsemi. En það er frumskil- yrði að það sé hægt að treysta þeim. Ég hef t.d. heyrt að menn hafi lent inni á vanskilalistum fyrir mistök í bankakerfinu og átt í erfiðleikum með að komast út af þeim aftur." Halldór bætti því við að það væri og umdeilanlegt hvort listar sem þessi ættu yfirhöfuð rétt á sér. Sveinn Grétar Jónsson hjá Hljóö- rita hafði svipaða sögu að segja. Hljóðriti hefði lent á „svarta listan- um“ þegar nokkur lítil hlutafélög, þar sem hann og faðir hans voru aðaleigendur, hefðu verið sameinuð í eitt hlutafélag og hefðu þeir birt í Lögbirtingablaðinu innköllunar- auglýsingar þar að lútandi. „Mistök Reiknistofunnar hf. eru mjög alvar- leg. Það að lenda á „svarta listan- um“ svertir mjög orðstír fyrirtækja og rýrir lánstraust þeirra og engan langar í slíka meðferð, hvað þá að ófyrirsynju. „Svarti listinn" hefur ekki bara áhrif á þær lánastofnanir sem við skiptum við, heldur líka á viðskiptavini okkar sem hingað koma til að taka upp hljómplötur. Þeir kæra sig ekki um að skipta við fyrirtæki sem þá og þegar á lokun yfir höfði sér og eiga þar með á hættu að það sem þeir hafa þegar tekið upp sé unnið fyrir gýg.“ Sveinn Grétar sagði að fyrirtæki sitt hefði sent Reiknistofunni hf. skeyti þar sem fram kæmi að það áskildi sér allan rétt til frekari aðgerða á hend- ur henni. MISTÖKIN VÖRÐUÐU EKKI STARFSLEYFIS- SVIPTINGU En hvað með starfsleyfið? Sáu tölvunefndarmenn ástæðu til að „Vil ekkert segja44 Gylfi Sveinsson, forstjóri Reiknistofunnar hf., neitar enn og aftur að ræða við blaðamann Helgarpóstsins Tœplega 100 aöilar voru vegna mistaka fyrirtœkis þíns ranglega skráöir í gjaldþrotameöferö á ,,svarta listanum" sem fyrirtæki þitt gefur út. Hvernig stendur á því? „Ég vil ekkert um þetta mál segja.“ Mistök ykkar aö gera ekki grein- armun á innköllunum vegna sam- runa hlutafélaga og skipta á dánarbúum annars vegar og inn- köllunum vegna aöila sem teknir hafa veriö til gjaldþrotaskipta hins vegar, eru einstaklega klaufa- leg, ekki satt? „Já, eru þau það? Það fer eftir því hvaða augum þú lítur á það.“ Hvaöa augum ég lít á þaö? Fer þaö ekki frekar eftir því hvaöa augum tölvunefnd lítur þaö? „Jú, og það eru fleiri aðilar sem málið varðar." Mér er tjáö aö þessi mistök séu ekki ný af nálinni. „Þú færð nú engar slíkar upplýs- ingar hjá mér.“ Teluröu þaö hag fyrirtœkis þíns fyrir bestu? „Ég er alveg maður til að taka mínar ákvarðanir sjálfur." Og standa viö þœr? „Það geri ég yfirleitt alltaf." Þú vilt sumsé ekki rœöa þetta? „Nei, það vil ég ekki.“ leftir Margréti Rún Guðmundsdóttur myndir Jim Smarti

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.