Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 18

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 18
Leiöarvísir til handa þeim, er œtla sér eitthvad í lífinu, um hvernig œtlast er til ad þeir hegði sér er þeir sœkja um betri vinnu. Leiðarvís- irinn er einkum œtlaður þeim er sœkja á innan viðskiptalífsins en gœti gagnast öðrum að einhverju leyti. Pad er hryggileg stadreynd en samtsönn ad fáir una oid sitt. Flestir vilja njóta meiri virdingar og eign- ast meiri peninga en þeir hafa nú. Svo margir, ad þad er álitið ein- hverskonar klikkun að láta sér nœgja það sem maður hefur. Þetta eru gömul sannindi og það hafa margir orðið til þess að agnúast útí þessa löngun mannsins í gegnum árhundruðin en haft nœsta lítinn ár- angur af erfiði sínu. Nú er það fyrir löngu orðið svo að ekki nokkur heilvita maður hefur nennu í sér til að taka undir þennan kór og flestir hafa tekið þá ákvörð- un að sætta sig við orðinn hlut. Menn hafa jafnvel snúið hinum gömlu andmælum við og komist að því að löngun manna eftir virðingu og völdum sé í raun hin allra besta og eina kennd mannsins sem eitt- hvað sé byggjandi á. Þannig hafa margar kenningar í vísindum jafnt og mörg alþýðuspekin snúist um það að reyna að beygja sem flesta þætti mannlegs lífs undir þessa kennd. í henni hafa menn séð hreyfiafl samfélagsins jafnt sem hamingju sérhvers einstaklings. Það er því orðið langt um liðið síð- an menn höfðu um það nokkra bak- þanka að koma ár sinni vel fyrir borð og heyja kappróður við með- bræður sína. En með tímanum hef- ur róðrarlagið breyst og það sem einu sinni þóttu góð og gild meðul eru nú hin klossuðustu axarsköft. Eins og allir vita er nútíminn hrað- skreiður fararskjóti og ef menn ætla sér ekki að sogast niður í hringið- una verða þeir að horfa vökulum augum í kringum sig og fylgjast vel með hvað gerist þar. Meðlimum fárra þjóða er meiri þörf á þessu en íslendingum. Sú þjóð hrökk úr koki forneskjunnar, eins og biti er sat fastur, og er varla búin að fóta sig á glerhálu gólfi nú- tímans. Brögðin sem áar okkar not- uðust við til að koma sér sæmilega fyrir duga ekki einu sinni fyrir lifi- brauði lengur og allt eins víst að þeir sem hygðust nýta sér þau yrðu tugt- húsaðir hið fyrsta. Jafnvel leikreglur foreldranna verða fornfálegar þar sem leikvöllurinn er nú orðinn allt annar og mun fleiri sem leika sama leikinn. En þar sem það er nú einu sinni kynslóð foreldranna sem hefur töglin og hagldirnar og hefur réttinn til að flauta mann útaf, er vissara að kunna göngulag hennar. Þannig verður sá sem er að vinna sig upp stigann í dag að ganga í takt við þá sem fóru um hann í gær og jafnvel þrátt fyrir það að hann sé á hlaupum. En þeir sem á eftir koma þurfa ekki að vera svínbeygðir und- ir duttlunga hinna sem eru ráðsestir hið efra. Nýliðar hafa eins og nafnið gefur til kynna eitthvað nýtt í far- teskinu sem þeir geta selt hinum eldri og jafnvel gert þá sólgna í. Þeir hafa líka kapp sem hinir eldri hafa skemmtun af að stýra með forsjá. Ferð þeirra sem eru á Ieið til betri staða er því oft skrítinn dans með hnarreistum hergöngutakti og bljúgum hneigingum á milli. Allt fer þetta eftir settum reglum því eftir því sem fleiri eru á vellinum verða sviptingarnar og hraðinn meiri. Menn bregða sér á milli stiga á leið- inni upp ef þeir telja sér það henta og þegar einhver hinna eldri fellir stigann fyrir félaga sínum liggur líf- ið við að ná taki á einhverju því ann- ars er hætta á að maður steypist nið- ur í hyldýpið. Þegar mennirnir hafa þannig endaskipti og staldra stutt við á hverjum stað er nauðsyn á venjum og einkennum svo ekki fari á milli mála hvað snýr upp og hvað niður. Því hafa með tímanum orðið til nokkurs konar umferðarreglur á leið mannanna upp á við. Með ákveðinni hegðan er hægt að gefa til kynna að maður ætli sér framúr næsta og eins gefa menn stefnuljós þegar þeir skipta um akrein. Og þegar regla er komin á ferðavenjur manna verða sumar brautir að aðal- brautum og eins hafa aðrar orðið að botnlöngum. Þrátt fyrir þessar ann- ars fastmótuðu venjur eru til menn er göslast yfir blindhæð á vitlausri akrein og komast jafnvel upp með það, sumir hverjir. Þar sem erfitt er að henda reiður á nokkru í allri þessari hringiðu manna á hraðferð á betri staði hafa þeir sem eiga eitthvað undir sér fengið sérþjálfað starfsfólk til að velja þá úr sem kunna að gagnast þeim á einhvern hátt. En þar sem hraðinn er mikill þarf þetta fólk að draga hratt í dilkana og hefur því með tímanum komið sér upp tiltölu- lega einföldu kerfi til þess. Þetta get- ur líka komið sér vel þegar sérþjálf- aða starfsfólkið rýkur sjálft af stað til betri staða og annar sérþjálfaður þarf að taka upp þráðinn. Þó er það ekki algilt þar sem buslugangur á hverjum nýjum stað þykir bera vott um atorkusemi, til hvers svo sem breytingarnar eftir buslið kunna að leiða. Úrið Vandað og látlaust úr. Rolex getur virst ofmetnaður hjá mönnum er ekki hafa verið í vellaunuðum störf- um, en menn verða að stefna að því að eignast slíkt áður en yfir lýkur. Barmur Kiwanismerki í barminum er traust. Sömuleiðis merki frá Lions, Rotary, Sjálfstæðisflokknum, jafnvel JC og svo öll merki er gefa til kynna að sá sem ber þau hafi látið eitthvað af hendi rakna til hjálparstarfs. öll áberandi barmmerki eru hinsvegar illa séð og merki Flokks mannsins er alger dauðadómur. Buxur Ullarbuxur eru traustar. Litvana eins og annar fatnaður og í sam- ræmi viö hann. Krumpur um hnés- bæturnar eru slæmar og því er nauðsynlegt að taka létt í þær hnén þegar menn setjast. Taska Taskan á fyrst og fremst aö vera úr samskonar leöri og skórnir. Hún má vera hörð eða mjúk, en alltaf vel hirt og snyrtileg. Þaö má ekki leggja hana frá sér fjær en í seilingarfjar- lægð, því í henni eiga aö vera mikil- vægari hlutir en svo að þeir megi liggja á glámbekk. KARLMAÐUR 25 Best er að eiga góða konu og vera ráðsettur vel eða vera á leiðinni að verða það. Hinsvegar gefa þeir ein- hleypu til kynna að þeir séu tilbúnir að vinna töluverða eftirvinnu, en enginn vafi má leika á hárréttri kyn- hegðan. Bakgrunnur Starfsferillinn þarf að vera þráð- beinn upp á við og stefna að því starfi er maðurinn sækir um. Sum- arvinna frá því á skólaárunum getur jafnvel skipt sköpum. Ekkert grugg- ugt má finnast í ástæðum fyrir því að maðurinn hefur skipt um starf. Að hætta vegna missættis við yfir- mann sinn er dauðadómur. Hvaða fyrirtækjum maöurinn hefur unnið hjá skiptir einnig miklu máli. SÍS er blettur á ferli sérhvers manns og meira að segja hið opinbera er skömminni skárra ef menn hafa ekki hangiö þar of lengi. Starfsferill erlendis getur veriö af hinu betra, svo framarlega sem um rétt lönd er að ræöa. Bandaríkin, Bretland og Þýskaland eru góö, en Frakkland, Spánn og önnur þessleg fylki lyfta engum upp. Menntun vegur ekki jafn þungt og margur heldur. Viðskiptafræðingur sem er nýskriðinn úr skóla og hefur unnið í vegavinnu á sumrin getur til dæmis ekki búist við að geta valið úr girnilegum störfum. Námskeið hjá Stjórnunarfélaginu geta jafnvel gert mann, sem hefur bara verslun- arpróf, að eftirsóknarverðum starfsmanni. Það gefur til kynna aö fyrri atvinnuveitendur hafi metið manninn það mikils að þeir hafi kostað hann á námskeið, eða þá að maðurinn sé svo metnaðarfullur að hann leggi sjálfur til stórfé til að koma sér áfram. JC er náttúrlega langt frá því jafn virðulegt og Stjórnunarfélagið, en lægra settir starfsmenn geta fengið þar þjálfun í stjórnun og komið sér síðan áfram á þeirri reynslu. öll tölvunámskeið reiknast til tekna á þessum öru tím- um. Andlit Frísklegt útlit er alger nauðsyn. Það er tiltölulega auövelt að koma sér því upp og þarf ekki að kosta annað en nokkrar ferðir í Ijósalampa. Sól- brúnka er „sportý" og „sportý" er heilbrigði og heilbrigði er bæði skýrleiki og færri veikindadagar. — 40 ARA Íhaldssemi í stjórnmálaskoðunum er af hinu betra en þó er flest leyfi- legt í þeim efnum ef menn fara vel með. Hinsvegar er Flokkur manns- ins algert bannorð því hann þýðir í raun ekkert annað en hærri síma- reikninga og ofnotaðar Ijósritunar- vélar. Augu Augnatillitið þarf að vera hiklaust og alls ekki flöktandi. Horfa beint í augun á viðmælanda og gefa með því til kynna að maður hafi ekkert aö fela. Gott er að reyna að koma einhverjum skarpleika fyrir íaugun- um ef hægt er. Nef Menn skyldu gæta að nefinu. Menn sem eru óaðfinnanlegir í alla staði hafa hrunið í áliti er lítið hár gægist niður um aðra nasaholuna eins og upphrópun um skort á sýn á smáatriði. Óþarfi er að taka það fram að fingur sem læðist í nef er sjálfsmorð. Munnur Þrátt fyrir niðurlægingu íslenskrar tungu eru ennþá til þeir menn af eldri kynslóðinni sem nota talanda manna til þess að mæla greind. Því ber að gæta þess að tala skýrt og nota vandaða íslensku þegar talað er um almenn málefni en hinsvegar er nauðsynlegt að sletta vandaðri ensku þegar talið snýst að sérsviö-l um. Margir telja norðlenskan fram- burð aðalsmerki og það er sjálfsagt að flagga honum ef menn geta og koma sér honum upp ef menn hafa ekki. Þá er það oft talið merki um greind aö tala hratt en menn verða að varast að ofgera sér. Brandarar geta verið varasamir áður en geng- ið er úr skugga um í hvernig skapi viðmælandi er. Eyra Hringur í eyra hefur stöðvað frama margra. Hann er yfirlýsing um að tilfinningalíf viðkomandi sé brengl- að ög allt að því viðsjárvert. Að sjálfsögðu er öll vond lyki óæskileg, en þó ber að varast að reyna að kæfa hana meö alltof mikl- um rakspíra eða ilmvatni. Armani- ilmur kemur karlmanni lengst. Hár Hárið á að vera snyrtilegt og bera vott um umhirðu, eins og reyndar sem flest við útlitið. Stutt, örlítið blásið, jafnvel með strípum en alls ekki áberandi litað. Vandaðar ítalskar eöa enskar leður- mokkasíur úr samskonar leðri og annað leöur á manninum. Skórnir verða aö líta út fyrir að vera þægi- legir, en fyrst og fremst vel burstað- ir. Það er til heilmikil speki um skó og margur trúir því að skór sé innri maður og því ber að vanda sérstak- lega til þeirra. Brúnir skór við svört eða dökkgrá föt eru til dæmis alger lágkúra. Skyrta Blá- eða gráröndótt skyrta frá rétt- um framleiðanda. Brjóstvasi Pennar í brjóstvasanum á jakkan- um eru ekki lengur af hinu góða. Hinsvegar er nauðsynlegt að hafa vandaðan penna í innri vasa til reiðu. Ef hinsvegar veitingahúss- miði dettur uppúr vasanum þegar maðurinn grípur til pennans er auð- séð að þar er á ferðinni óreglupési. í brjóstvasann má hinsvegar setja vasaklút en það getur virkað full há- tíðlegt. Jakki Jakki af réttri tegund. Eins og aðrar flíkur má hann ekki vera krumpaður og að sjálfsögöu ekki rifinn. Hann á að vera í lífvana samræmi viö ann- an fatnað. Það að hneppa jakkan- um frá er frjálslyndi og ber aö nota á réttum stöðum. Skeggstæði Þar sem það er orðiö vel yfirlýst að skeggbroddar séu „inni" ganga þeir vel í suma. Annars er vel rakað- ur vangi æskilegur og plástrar á kinnum geta dregiö menn niöur. Bindi Bindið er nauðsyn. Flagaraklútar og slaufur geta ekki komið í stað þess. Það má vera líflegt og skera sig örlítiö úr annars litvana klæðn- aði en fyrst og fremst verður það að vera frá einhverjum þekktum fram- leiðanda. Hinn svokallaði skyrtu- pinni þykir nú nauðsynlegur. Hendur Hendurnar vel snyrtar og handtakiö traust. Slappt handtak hefur haldið mörgum manninum niðri. Þvalir lófar eru tilkynning um taugaveikl- un. Þegar hendurnar eru ekki í handtaki eiga þær að vera kyrrar. Handapat er ekki af hinu góða. Gift- ingarhringur er náttúrlega viss yfir- lýsing. Aðrir hringar eru ekkert sér- staklega eftirsóknarverðir, en verða að vera í stíl við aðra skartgripi. Skyrtuhnappar Þar sem skyrtan gægist fram úr jakkaerminni er gott að láta glitta í skyrtuhnappa. Skartgripir karl- manna eiga að vera vandaðir og án alls útflúrs. Ef skyrtuhnapparnir eru úr gulli veröur úrið og skyrtupinn- inn að vera þaö líka. 18 HELGARPÓSTURINN eftir Gunnar Smára Egilsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.