Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 20

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 20
HUN VERÐUR A Ð N Á SÉR í KARLMANN KVENRÉTTINDAKONAN ÁSDÍS SKÚLADÓTTIR TELUR ÞAÐ VERA NEYÐAR- ÚRRÆÐI MARGRA ÍSLENSKRA KVENNA AÐ ÞURFA AÐ NÁ SÉR í EIGINMANN. HÚN ER í MARGRÆÐU HP-VIÐTALI. G. Pétur Matthíasson mynd Árni Bjarnason Þrátt fyrir miklar annir gefur félagsfrœdingurinn, leikarinn, kennarinn, félagsrádgjafinn, leikstjórinn og jafnvel stjórnmálafrœdingurinn Ásdís Skúladóttir sér tíma til aö koma í vidtal viö Helgarpóstinn. Hún segist gera það leikritsins vegna. Leikritiö sem hún á við er Njálssaga sem nú er sýnd í Rauöhólum við Reykjavík. Þar leikur atorkukonan Ásdís Skúladóttir sjálfa Bergþóru; bóndakonuna, ráðgjafann, móðurina og jafnvel stríðs- manninn — ef hœgt er að kalla erjur hennar og Haltgerðar stríð. Ásdíssam- þykkir viðtal, fái hún að tala um leikritið. Við moelum okkur mót á þeim eina tíma sem hún hefur, á sunnudagsmorgni klukkan tíu. Ég kem heim til hennar viðbúinn með spurningar um Njálssögu og hvernig standi á því að hún leiki þar. Viðtalið leiðist strax út í eitthvað allt annað. Ásdís hefur svo gífurlegan áhuga á kvenréttindamálum og félagsmálum aldraðra að sjálf Bergþóra fellur ískuggann, eða er það kannski Bergþóran íÁsdísi sem brýst svona fram? En þetta er skiljanlegt því Ásdís drakk í sig jafnréttishug- sjónina með móðurmjólkinni. Hún er dóttir Önnu Sigurðardóttur sem nú er forstöðukona Kvennasögusafnsins. Hún vinnur hjá Félagsmálastofnun Kópavogs að málefnum eldra fólks með meiru. Þó er það ekki œvistarf því hún er í lausamennsku á íslenskum vinnumarkaði. ,,Það er ekki von að þú munir það,“ segir Ásdís þegar ég spyr hana hvort rétt sé að hún hafi ekki leikið mikið. Með þessu vísar hún til aldursmunarins, sem er nokkur. „Ég útskrifaðist úr leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1968. Og það má segja að ég hafi leikið á fullu með Leikfélaginu frá því og allt til þess að Er þetta ekki mitt HP. var sett upp. Frá því hef ég lítið leik- ið, fyrir utan nokkur útvarpsleikrit og svo lék ég í Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Ég lék mömmu rauð- hærðu krakkanna. Þetta var ægilega skemmti- leg vinna. Eitt það skemmtilegasta sem ég hef lent í. Það heillaði mig þetta frelsi í kvikmynd- inni. Maður fékk vissa línu frá Þráni Bertelssyni en síðan var maður látinn impróvisera dálítið mikið." í eilífum sumarvinnum Asdís er lœrd leikkona, hún er lœrdur kennari og hún nam félagsfrœði og stjórnmálafrœði við Háskóla íslands. Þess vegna er það, þegar ég spyr hana hvað hún hafi gert annað en að leika, að hún teygir sig í Kennaratalið. Þar tekur hún þrefalt meira pláss en flestir aðrir. Hún hefur komið víða við og unnið á fjölmörgum stöðum. Eg slœ því fram eftir lesturinn að þetta sé líkt og sumarvinnuromsan manns. ,,Ja, það er rétt,“ segir hún. ,,Það má segja að ég sé í eilífum sumarvinnum. Ég hef enda verið í lausamennsku frá því ég var 29 ára. Ég veit ekki hvað þetta er en ég hef aldrei getað hugsað mér að setjast á skrifstofustól, mér finnst það nöturleg framtíð að sitja alltaf á sama stólnum. Mér hefur fundist að með því að setjast á slíkan stól myndi ég fórna frelsi mínu. Mér finnst það ekki skemmtileg tilhugsun að vera bundin á sama klafann fyrir lífstíð, fá sex vikna sumarfrí og basta. Og því miður búa flestir við þetta. En það sem auðvitað hefur bjargað mér er að ég hef haft þetta fernt: kennarann, leikstjórann, leikarann og félagsfræðinginn. Þess vegna hef ég getað verið laus á vinnumarkaðnum. Og það hefur verið þannig að ég bíð ekki eftir einhverju heldur er það síminn sem hringir og ég er beðin um að gera eitthvað. Síðan er það spurningin hversu lengi síminn heldur áfram að hringja, því nú er ég að verða 43 ára. Staðreyndin er að kvenfólk hættir að vera spennandi vinnuafl svona almennt með aldrinum. En ég get sagt þér að enn er ekkert lát á hringingunum. Hef alltaf þráð að leika Þegar hér er komið tekur Ásdís öll völd af spyrjandanum og leiðir okkur aftur til áranna þegar hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík. „Ég hef alltaf þráð að leika," segir hún. „Ég byrj- aði að leika strax í barnaskóla og svo í mennta- skóla. I fjögur ár lék ég í fjórum Herranóttum, gæti ég leikið var allt vel þegið. Ég hef alltaf vilj- að verða leikari og kannski er það þess vegna sem ég hef ekki ráðið mig í fasta vinnu. Ég hef alltaf þessa von að fá að starfa við það að leika. Enda hefði ég t.d. ekki getað leikið Bergþóru núna hefði ég ekki nokkurn veginn ráðið mín- um tíma. Já, svo starfaði ég við Melaskólann í átta ár. En ég var í tvöfaldri vinnu. Ég hef alltaf verið tvö- föld í roðinu. í menntaskóla var ég í Herranótt, í stjórn Framtíðarinnar, það hefur alltaf verið nóg að gera hjá mér. Nú, þegar ég var í Meló var ég einnig í Leiklistarskólanum til að byrja með og síðan þegar ég fór í Háskólann lék ég líka hjá Leikfélagi Reykjavíkur." Og það er greinilegt að Ásdís hugsar einnig um eitthvað tvennt í einu: „Nú dettur mér í hug, í sambandi við Njálssögu, saga sem ég sagði ein- mitt í frumsýningarpartíinu. Þegar ég var í öðr- um bekk í Gaggó-Hring þá leikstýrði Erlingi Gíslason leikriti í skólanum. Hann var þá ungur maður og upprennandi leikari. Ég varð alveg óstjórnlega ástfangin af Erlingi Gíslasyni. Meira að segja svo ástfangin að ég klippti út mynd af honum og setti í dagbókina mína. Ef mig hefði grunað það þá, í minni ungmeyjarást, að ég ætti eftir að leggjast undir einn feld með Erling Gísla- syni hefði ég sennilega andast. í Herranótt leik- stýrði Helgi Skúlason en þá var ég orðin þrosk- aðri en svo að ég teldi að eldri menn vildu eitt- hvað með mig hafa.“ Auðvitað vildi ég leika Bergþóru Hér sé ég fceri á að spyrja um Njálssögu og spyr hvernig hafistaðið á því að hún hafi fengið hlutverk. • „Síminn hringdi einn daginn upp á Félags- málastofnun Kópavogs. Helga Bachmann var í símanum og spurði hvað ég væri að gera í sum- ar. Spurði þá hvort ég vildi leika Bergþóru. Nú, ég sagði að sjálfsögðu já.“ Ég var mikil kvenréttindakona En Ásdís hefur engan tíma til að staldra við á Rauðhólum, hún hverfur aftur til menntaskóla- áranna. „Þegar ég var í menntaskóla var ég gífurlega mikil kvenréttindakona, enda alin upp á kven- réttindaheimili. En það þótti ekki fínt í þá daga. Og maður var ekki að flíka þeirri skoðun sinni að konur væru kúgaðar. Það var í raun skamm- aryrði að kalla einhverja stúlku kvenréttinda- konu. Eg man eftir einu atviki í sambandi við þetta. Það var eitt sinn sem oftar að ég gekk fram með oddi og egg í tolleringum á þriðjubekkingum. Kemur þá til mín bekkjarbróðir minn og spurði mig — og hann hvíslaði þegar hann spurði." Hér kemur leikarinn upp í Asdísi og hún hvíslar með tilþrifum: „Er það satt, Ásdís, að þú sér kvenrétt- indakona." Svona var þetta mikið leyndarmál. En ég hafði gaman af því að svara já, því þetta var svo óskaplega mikið já. Einu sinni stofnuðum við, sem í þessum kven- réttindamálum stóðum, til málfundar við bekk þar sem var m.a. Friðrik Sophusson. Það er svo skrítið á hvern hátt umræður um kvenréttinda- mál leystust oft upp í þá daga. Það kom fyrir oft- ar en einu sinni eftir að maður hafði þanið sig í ræðustól, full af ákafa, að strákarnir sögðu: Láttu ekki svona, þú gengur örugglega út — ein- hvern tímann. Það var nefnilega aðalmálið fyrir stúlku að ganga út. Einu sinni steig Friðrik Sop- husson á stokk og lofaði mér því að þegar allt um þryti og ég næði ekki í neinn þá skyldi hann bjarga málunurn. En það hefur aldrei komið til þess að ég rukkaði Friðrik um þetta loforð. Ég hef þó alltaf verið svolítið skotin í Frikka þannig að það er nú aldrei að vita. Við vorum nokkuð margar stelpur sem sótt- um fundi hjá Kvenréttindafélagi íslands. Við töl- uðum þar á fundum og vorum byrjaðar að pæla í þessum málum. Aftur á móti var oftlega hlegið að okkur í skólanum. En þetta skipti mjög miklu máli fyrir mig og fyrir okkur stelpurnar. Þá var ástandið þannig (þetta var 1963—64) þegar við stóðum að framboði Sigríðar Hjartar til inspect- or scholae að fjöldinn allur af stelpum var mikið á móti því að stelpur byðu sig fram. En margar þeirra eru frelsaðar nú og hafa séð ljósið. Aftur á móti voru nokkuð margir strákar sem studdu okkur dyggilega. í raun og veru var þetta smá- bylting, við reyndum byltingu án þess að gera okkur beint grein fyrir því. Þetta var æðislega skemmtilegt, maður var heitur og ákafur í þá daga. Annars töpuðum við kosningunni og það var svona glott við tönn. Síðan þá hefur gífur- lega mikið gerst í kvenréttindamálum. En þó við létum svona nokkrar í menntaskóla þá var enginn áhugi á þessum málum. Jarðveg- urinn var ekki tilbúinn á þessum árum. Þegar ég var t.d. komin upp í Kennaraskóla veturinn 1964—^65 átti að halda fund um kvenréttindi en það varð að fella hann niður vegna þess að það kom enginn. Ekki einu sinni kvenfólk hafði áhuga á þessum málum." Vildi ekki vera kennari í hálfa öld Og enn stjórnar Ásdís viðtalinu og stoppar mig með því aö segja að nú sé nóg komið um þetta. Eg spyr hana þvíum Háskólann og félags- frœðina. „Þegar ég var liðlega tvítug, kennari í Mela- skóla, spurði ég sjálfa mig hvort ég ætlaði að vera þar næstu hálfa öldina í sama starfinu og svarið var nei. Ekki það að kennarastarfið væri leiðinlegt, langt því frá. En mér fannst þetta óhugnanleg framtíð að sitja í sama hjólfarinu og rúlla eftir því alla ævina. Ég hafði mikinn áhuga á pólitík og félagsmál- um og fór því í félagsvísindin, hafði reyndar beð- ið dálítið eftir deildinni. Ég var í Háskóla íslands frá 1973 til ’77. Ég var mjög pólitísk á þessum tíma en félags- vísindadeildin flatti mig út, pólitískt séð. Þeir sem hafa haldið því fram að deildin hafi einhver pólitísk áhrif á fólk til vinstri, vaða í villu og svíma. Kennararnir stækkuðu sjóndeildarhring- inn hjá manni, menn eins og Haraldur Ólafsson, Olafur Ragnar Grímsson og Þorbjörn Brodda- son. Það er kannski réttara að segja að þeir hafi hreinlega flatt mig út flokkspólitískt séð. En þetta var mjög skemmtilegt tímabil. Ég lék allan tímann á fullu hjá Leikfélaginu, samfara nám- inu, þannig að þetta var svakaleg törn, en skemmtileg. Frístundahópurinn Hana-nú Og þá er komið að félagsmálunum, hluta- starfinu sem félagsráðgjafi og öldrunarfélags- frœðingur. „Hefurðu heyrt um frístundahópinn Hana-nú í Kópavogi? spyr Ásdís. „Þá verð ég að segja þér frá honum. Þetta er hópur fólks eldra en 50 ára sem býr í Kópavogi. Hópurinn var stofnaður 1983 að frumkvæði Hrafns Sœmundssonar sem hafði reynt af eigin raun hvernig það er að vera at- vinnulaus og hvernig sú staða getur einangrað mann og fyllt mann vonleysi meðan hún varir. Hópurinn var stofnaður til að fólk á þessum aldri gæti notið félagsskapar, fengið andlega upplyft- ingu. Þetta byrjaði með tólf manns og samkomu einu sinni í mánuði, nú eru félagar tæplega 400 og hópurinn skiptist í nokkra klúbba auk heild-

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.