Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 22

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 22
KRÖNUR OG KLÁRAR SÖGUSAGNIR UM TVEGGJA MILLJÓNA KRÓNA TILBOÐ í SKAGFIRSKAN STÓÐHEST Á NÝLOKNU LANDSMÓTI HESTAMANNA VEKJA UPP HUG- LEIÐINGAR UM UPPHÆÐIRNAR SEM GILDA ORÐIÐ í ÞESSUM GEIRA íslenski hesturinn var hér ádur fyrr kaUaöur ,,þarfasti þjónninrí' þegar hann gegndi mikilvœgu hlut- verki í atvinnu- og samgöngumál- um þjóöarinnar. Ogennþá má kalla hann þarfan þjón því menn hafa af hestum hina mestu skemmtun og ánœgju. Svo er hann líka prýöis markaösvara og eftirsóttur erlendis. En hestamennska hefur þó löngum veriö nokkuö dýrt sport. . . Um síðustu helgi lauk 10. Lands- móti hestamanna sem haldið var að Gaddstaðaflötum við Hellu. Um 14 þúsund manns, þar af um 3 þúsund útlendingar, og á þriðja þúsund hesta sóttu mótið. Innkoma mótsins mun vera 10—12 milljónir og mótið var fjölmennasta hestamannamót sem haldið hefur verið til þessa. Að sögn Gunnars Jóhannssonar for- manns framkvæmdastjórnar lands- mótsins má reikna með að hagnað- ur hafi verið nokkur og skiptist hann milli þeirra 15 hestamannafé- laga og Landssambands hesta- manna sem stóðu að mótshaldinu. Þau leigðu mótsstaðinn af Rangár- bökkum sf. sem er sameignarfélag 9 hestamannafélaga austan Hellis- heiðar og austur að Lómagnúp, og Rangárbakkar sf. hafa lagt út í tug- milljóna króna kostnað við að koma mótsaðstöðunni upp. Eins og mun vera um fjölmenn mót af þessu tæi gátu héraðsmenn grætt nokkuð á veitinga- og gistisölu. Ljóst er því að margir peningaseðlar skiptu um eigendur og margir peningarseðlar voru í umferð. En svo er líka þegar íslenskir hestar eru annars vegar. Peningarnir og hestar skiptu líka um eigendur, og þótt forsvarsmenn markaðsnefndar Félags hrossa- bænda og búvörudeildar Sam- bandsinssem eru helstu milligöngu- aðilar um hestasölu telji að ekki hafi verið mikil hestasala á mótinu, buðu útlendingar hátt verð fyrir suma stóðhesta og þær sögur hafa flogið fjöllum hærra að boðnar hafi verið allt að 2 milljónir króna fyrir einn stóðhest. Og það leiðir hugann að hestasölu og hestaviðskiptum. Kynbótahross a.m.k. 620 þúsund Landbúnaöarráöuneytiö ákveður lágmarksverð ísienskra kynbóta- hrossa til útflutnings. Kynbótahross sem hlotið hefur 1. verðlaun sem „einstaklingur" og 1. verðlaun fyrir afkvæmi kostar a.m.k. 620 þúsund krónur. Kynbótahryssa sem hlotið hefur sömu verðlaun kostar hins vegar a.m.k. 300 þúsund krónur. Lágmarksverðið fer síðan stiglækk- andi eftir því sem hestarnir fara neð- ar í veltilgreindum og nákvæmum verðlaunastiganum. Lágmarksverð ósýndra og óskoðaðra stóðhesta er t.d. 150 þúsund krónur og ósýndar en ættbókarfærðar hryssur kosta minnst 70 þúsund krónur. Markaðsnefnd Félags hrossa- bænda og búvörudeild Sambands- ins hafa komið sér saman um lág- marksverð annarra „hestaflokká', s.s. geldinga og fjölskylduhesta. Þannig mun lágmarksverð fjörugra og fallegra gæðinga vera um 65 þúsund krónur, bandvön, „gang- laus" hross kosta minnst 25 þúsund krónur og lágmarksverð hesta í slát- urhús er 12 þúsund krónur en þá er væntanlega ekki hægt að fara neðar í skránni. En allt er þetta lágmarks- verð og slyngir hestasölumenn geta komið verði eins stóðhests upp í 2 milljónir króna. Stóðhestar munu reyndar vera langdýrastir enda mjög eftirsóttir en meðalverð þokkalegra reiðhesta hátt í 70 þús- und krónur. Hestasala innan- lands sjaldnast gef- in upp til skatts Ýmis tilbrigði munu vera í innan- landssölu hesta. Að sögn sr. Hall- dórs Gunnarssonar í Holti, for- manns markaðsnefndar Félags hrossabænda, eiga menn þar ýmiss konar skipti sín á milli og kaupend- ur reyna að prútta um verð, sem er verslunarmáti sem þekkist frekar í suðrænum löndum en hér á íslandi. Hestaeigendur munu líka hafa gam- an af því að fara í hrossakaup, þ.e. að skipta á hrossum upp á von og óvon. „Þessu fylgir nokkur spenna því menn ákveða að láta nokkur hross sín en vita ekki hvað þeir fá í stað- inn,“ sagði sr. Halldór í samtali við HP. Markaðsnefnd Félags hrossa- bænda og búvörudeild SÍS hafa hins vegar annast gerð sérstakra sölu- skráa og þannig geta kaupendur sem ekki hafa áhuga á því að taka áhættu í hrossakaupum snúið sér til þeirra. „Við höfum lítil áhrif á innan- landssöluna en reynum að höfða meira til þeirra sem vilja vita hverju þeir eru að festa kaup á, hvort sem um er að ræða íslenska eða erlenda kaupendur og í þeim tilgangi var sölusýningin sem við stóðum að á landsmóti hestamanna haldin.“ Hestasala innanlands er skattskyld en að sögn sr. Halldórs er hestasalan sjaldnast gefin upp til skatts. „Þetta eru viðkvæm mál og það mætti túlka þau sem skattsvik en menn hafa gjarnan talið hestasölu sína til hiunninda í búskap. Hlunnindi eru ekki til nema þau séu nýtt. Hrossa- rækt er einungis aukabúgrein og ef kaupandi æskir þess að hestasalan sé ekki gefin upp hefur það verið raunin.“ Útflutningurinn gegndarlaus á arum áður Öðru máli gegnir um útflutning hesta. Þar hlaupa menn ekki undan skattinum. Að vísu er enginn sölu- skattur hirtur af lifandi dýrum hvorki af sölu innanlands né í út- flutningi. Kaupandi greiðir 20% af söluverði ógeldra hesta og 10% af söluverði hryssa til stofnverndar- sjóðs íslenska hestakynsins, sem er sjóður í vörslu Búnaðarfélags ís- lands og á að veita hrossaræktar- samböndum, stofnræktarfélögum og stofnræktarbúum lán eða styrki BÚGREINASTRÍÐ: KJÚKLINGAR, SVÍN OG LÖMB BERJAST UMKÚNNANN „NÝJfl" FJALLALAMBIÐ ER í RAUN HUNDGAMALT — Fjallalömbin eru öll komin til útlanda, segir Eldjárn Magnús- son hjá Hagkaupum um fjallalömbin, sem markaðsnefnd er að reyna að selja hérlendis „Eg held aö fjallalömbin séu nú öll komin til útlanda," sagöi Eldjárn Magnússon, innkaupastjóri hjá Hagkaupum, í samtali viö HP um átak markaösnefndar landbúnaö- arins til sölu á lambakjöti. Fœstir af viömœlendum HP úr hópi bœnda, kaupmanna og fleiri hópum höföu trú á því söluátaki sem nú er ráöist í meö kynningu á hinu íslenska fjallalambi. A hinn bóginn er Ijóst aö öll aukin sala á lambakjöti verk- ar til þess aö minnka sölu á öörum landbúnaöarafuröum — svo sem nautakjöti, svínakjöti, fuglakjöti og hrossakjöti. Kjötneysla íslendinga hefur fariö minnkandi ár frá ári og mest hefur minnkunin oröiö á neyslu lambakjöts. Það er svo eng- um blööum um þaö aö fletta aö sölustríö á kjötmarkaönum er tog- streita milli einstakra búgreina bœnda. „Það er mikið til í því,“ sagði Magnús G. Friðgeirsson hjá búvöru- deild SÍS þegar HP bar undir hann að tilraunir til að auka sölu á einni kjöttegund bitnuðu jafnharðan á sölu á öðrum landbúnaðarafurð- um.“ En það getur líka verið til- færsla milli hefðbundinna slátur- dýra annarsvegar og hinsvegar kjúklinga og fisks.“ En auglýsing markaösnefndar á fjallalambi — er ekki bara gert grín aö þessu þegar veriö aö breyta um nafn á dilkakjöti sem fólk hefur ver- iö aö éta í áratugi? Og viö vitum aö þessi lömb bíta rœktuð tún og fóöur- kál í bland viö fjallagróöurinn! „Þetta er náttúrlega fjallalamb að miklum meirihluta, en með þessu 22 HELGARPÓSTURINN vaknar kannski meðvitund um það hjá framleiðendum að þetta er eftir- sóknarverð vara sem fjallalamb og því ekki rétt að eyðileggja þá fram- leiðslu þegar það kemur af fjalli. En ég lít nú ekki á þetta sem alveg breytt nafn á þessari vöru. Þetta fór nú frekar mjúklega í mig. Mér finnst þessi auglýsing setja ferskan blæ á þessa sölu, en það er engin söluleið nákvæmlega rétt. Það er úr sögunni að hægt sé að segja fólki að borða meira feitt ket.“ Eri hefur fjallalambiö ekki veriö flutt út? Eru þaö ekki helst fitulitlir skrokkar af fé sem hefur þá ekki gengiö í fóöurkáli og rœktarlandi sem valiö er úr til útflutnings? „Ég er nú ekki sammála þessu. Það er fluttur út 1. flokkur og hann er ansi breiður, getur verið frá mjög mögru yfir í það að vera feitt. En að öllu jöfnu þá er það eins og þú segir magurt kjöt sem er flutt út. En hitt eru fjallalömb engu að síður." Útsala eina leiðin? „Það sem flutt er út er það kjöt sem er hæfast til sölu og það er mag- urt dilkakjöt," sagði Eldjárn Magn- ússon hjá Hagkaupum og benti á að magra kjötið væri af því fé sem hvað helst hefði lifað á villtum fjalla- gróðri en ekki bitið ræktuð tún og verið spikað með fóðurkáli. En Eld- járn taldi fleira þurfa til svo hægt væri að auglýsa kindakjöt sem nýja og áður óþekkta vöru. „í dag eru ærnar látnar bera miklu fyrr en var og slátrað heldur seint. Þessar sömu kindur eru svo á fóðri sem gerir það að verkum að mjólkin er mjög sterk. Eftir að hafa lifað á henni fara þessi lömb á fjallið þar sem blessuð þjóðargjöfin bíður þeirra. Þessu þarf öllu að breyta og nær ekki nokkurri átt að fara bara allt í einu að auglýsa hér nýja vöru sem er samt sú sama og fólk hefur veri að éta í 30 ár. En það var öðruvísi kjöt sem var af- greitt hér fyrir svona 30 til 40 árum — þá gekk féð ekki á ræktuðu landi.“ Aðspurður um söluaukningu núna vegna auglýsinga markaðs- nefndar um hið íslenska fjallalamb kvaðst Eldjárn ekki hafa orðið var við að þær hefðu áhrif og taldi raun- ar að það eina sem hægt væri að gera til að örva sölu á lambakjöti væri að lækka verðið. „Verðlækkun í kjölfar svona herferðar gæti skilað talsverðu — en ein og sér gerir svona herferð ekki neitt," sagði einn af heimildamönnum HP. En hvað gerir verðlækkun eða útsala á lambakjöti? Síðastliðinn vetur var útsala á lambakjöti í nóvember og seldist þá allmikið af birgðum landsmanna. Næstu mánuði á eftir var sala í al- gjöru lágmarki. Sala á öðru kjöti minnkaði talsvert sem svo aftur olli birgðasöfnun á þeim vettvangi og útsölu á svínakjöti í mars — sem aft- ur dró úr sölu á sauðaketi. „Við í hvíta kjötinu erum náttúrlega ekki hressir með samkepjmi við ríkis- rekna atvinnugrein. Utsölur eins og sú sem var í haust kemur engum til góða nema þeim sem vill ná vísitöl- unni niður. Það selst ekkert meira af kjötinu, heldur dettur salan niður næstu mánuði á eftir, þannig að í raun og veru er þetta eins og að taka launin fyrirfram en bara með verulegum afföllum," sagði Halldór Kristinsson á Hraukbæ í Eyjaf irði um dilkakjöts- útsöluna í haust, en Halldór er for- maður félags svínabænda. Halldór sagði að mönnum í svínarækt væri eðlilega illa við stórar útsölur en ótt- uðust ekki mjög áform um sölu á „fjallalambi" á meðan því átaki fylgdi ekki útsala á kjötinu. Ríkið keypti kjötið Það sem gerir sölumál kindakjöts athyglisverð í ár er að ríkissjóður hefur ábyrgst greiðslur til bænda og vinnslustöðva fyrir allt það kjöt sem til er í landinu. Ný framleiðsluráðs- lög gera ráð fyrir markvissari stjórn- un á kindakjötsframleiðslu en um leið að bændum verði greitt fullt verð fyrir það magn sem þeir mega framleiða á hverju ári. Á þessu verð- lagsári ábyrgist ríkissjóður greiðslur fyrir 12.150 tonn en á því næsta 11.800, og gert er ráð fyrir að talan fari stiglækkandi. Raunar hefur kindakjötsframleiðsla farið ört minnkandi á síðustu árum. Mest var framleitt árið 1978, eða um 16.500 tonn. Vandinn liggur svo að stórum hluta í því að á sama tíma hefur kjöt- neysla landsmanna dregist hraðar saman og mest hefur þar munað um samdrátt í kindakjötsáti. Á sama tíma er aukning í neyslu á hvítu kjöti — svína- og fugla. „Það er ekki opinber stýring á neinni annarri kjötframleiðslu og vissulega er mikið rætt um það meðal sauðfjárbænda," sagði Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfélagsins, í samtali við HP. „Þó er staðreynd að það er offramleiðsla í allri kjötfram- leiðslu og ekki einasta útsala á kindakjöti heldur líka á til dæmis svínakjöti og kjúklingaframleiðend- ur hafa bundist samtökum um aö halda framleiðslunni niðri. Þá benti Jón ennfremur á að auk- in sala á kindakjöti kæmi ekki ein- vörðungu niður á sölu annarra kjöt- tegunda heldur væri kjötið einnig í samkeppni við aðrar tegundir mat- væla, svo sem fisk og grænmeti. Aðrir viðmælendur HP tóku undir að vissulega gætu til dæmis kjötút- sölur verkað til þess að draga úr samdrætti í kjötáti landsmanna en þó væri hér fyrst og fremst um að

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.