Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 23

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 23
til kaupa á stóðhestum sem annars yrðu fluttir úr landi. Markaðsnefnd Félags hrossabænda og búvörudeild SÍS gefa öll kaup sem þau sjá um að koma í kring upp til skatts og hrossaræktarbændur munu greiða a.m.k. 1,25% af söluverði hests í líf- eyrissjóð bænda og 2,5% af verðinu í svokallað búnaðarmálasjóðsgjald. Hestasala til útlanda er annars engin ný bóla. Þannig munu á ár- unum 1870—1930 hafa verið fluttir út 2—3 þúsund hestar árlega, marg- ir í námavinnu og 1850—1950 hafa t.d. 160.000 hestar farið úr landi. Lágmarksverðið var ekki sett á að ástæðulausu! Gunnar Bjarnason fyrrverandi hrossaræktarráðunaut- ur Búnaðarfélagsins mun um mið- bik þessarar aldar hafa beitt sér mjög fyrir hestasölu til útlanda og upp frá þeim tíma hafa verið seld úr landi um 300—500 'hross á ári. Frá síðustu áramótum hafa markaðs- nefnd Félags hrossabænda og bú- vörudeild Sambandsins unnið sam- an að hestaútflutningi. Að sögn Sig- urdar Ragnarssonar sölufulltrúa aðilanna er hér um tilraun að ræða sem gefist hefur vel því þegar hafa verið seldir rúmlega 300 hestar úr landi það sem af er þessu ári. „Til- raun okkar felst í því að reyna að skapa hrossabændum tækifæri til að selja hross erlendis og reyna að þrýsta fiutningsverði til útlanda nið- ur.“ Síðastliðinn vetur hefðu þessir aðilar t.d. tekið sérstakt gripaflutn- ingaskip á leigu og þannig tekist að lækka flutningskostnað um helm- ing frá því sem áður var þegar hest- ar voru fluttir út með venjulegum ís- lenskum fragtskipum eða í flugvél- um. Flutningskostnaður nemur allt að einu hestsverði Sigurður sagði að í kjölfar lands- mótsins mætti búast við mikilli hestasölu til erlendra hestamanna, vanir erlendir kaupendur munu halda að sér höndum á hesta- mannamótum því þá rýkur verð upp um allan helming, og því væru markaðsnefnd Félags hrossabænda og búvörudeildin á höttunum eftir öðru gripaflutningaskipi þessa dag- ana. „Flutningskostnaður hefur oft hamlað útflutningnum því þess eru dæmi að sá kostnaður hafi farið upp í heilt hestsverð," sagði Sigurður í samtali við HP. Einnig hefðu aðil- arnir staðið að útgáfu á bæklingi og sent bréf til tengiliða erlendis og upplýsingar í erlend tímarit sem fjaíla um íslenska hesta. ,,Ef við fá- um fyrirspurnir frá útlendingum um hestasölu aðstoðum við eftir bestu getu. Menn á vegum okkar hafa t.d. farið með útlendinga til að skoða hesta og við höfum staðið að sér- stökum hestamörkuðum. Við höf- um alltaf nóg fyrir stafni og reynum að taka þátt í allri umræðu um ís- lenska hesta hvort sem hún fer fram á íslandi eða erlendis, í þeim til- gangi að örva söluna og efla mark- aðsstöðu okkar erlendis." 200 þúsund króna fóðurkostnaður á mánuði Hrossaræktarbændur binda mikl- ar vonir við aukinn hestaútflutning og að sögn Gunnars Sveinssonar hrossaræktarmanns á Sauðárkróki er verðlag á hrossum fyrst nú að verða þess eðlis að hrossaræktar- mönnum kunni að takast að lifa af hrossarækt einni saman. Það hafi hins vegar ekki náðst fram til þessa og hrossarækt sé alls staðar auka- búgrein. Ríkissjóður styrki að vísu einstaka þætti hrossaræktarinnar en það vegi hvergi upp á móti þeim gífurlega kostnaði sem hrossarækt fylgi. „Við feðgarnir sem rekum saman hrossarækt erum einungis með 30 hesta og fóðurkostnaður okkar á mánuði nemur einn 200 þúsund krónum." Nú er lokið stækkun og algjörri endurbyggingu hótelsins og bjóðum við nú upp á stórglæsileg herbergi, öll með sér baðherbergi, síma, útvarpi og sjónvarpi. Höfðaberg: Veitingasalur með úrval sérrétta. Súlnaberg: Matstofa með úrval veitinga á sann- gjörnu verði. Bjóðum einnig upp á fulikomna aðstöðu fýrír hverskonar funda- og ráðstefnuhald svo og fyrír matarhópa, veislur og aðra mannfagnaði. Verið ávallt velkomin. -SIMI- 22200 Elsta, en um leið nýjasta, hótel bæjarins HOTEL KE/A býdurydnr velkomin. ræða samkeppni einstakra kjötteg- unda eða búgreina. Halldór Kristinsson svínabóndi taldi að stjórnun á svínakjötsfram- leiðslu yrði mjög óvinsæl meðal framleiðenda. „Stjórnun á kinda- kjötsframleiðslu er komin til af illri nauðsyn og hefur alls ekki gefið góða raun. I okkar búskap framleið- um við ekki meira en þarf og menn vita að þeir geta ekki leitað til neins nema sjálfra sín ef illa gengur. Auð- vitað heltast alltaf einhverjir úr lest- inni en menn vilji hafa þetta svona. Ég held að það hafi aldrei verið út- sala á svínakjöti nema í kjölfarið á kindakjötsútsölu sem hefur þá sett okkar sölu úr lagi,“ sagði Halldór. Svipuð sjónarmið ráða ríkjum með- al kjúklingabænda en í báðum þess- um búgreinum eru það fá og stór bú sem framleiða obbann af öllu sem fer á markaðinn. í nautakjötsframleiðslu hefur ver- ið offramleiðsla um nokkurt skeið og þar hafa samtök bænda verð- launað bændur fyrir að slátra kálf- um sínum kornungum — eða áður en þeir verða að söluhæfu kjöti. Sé ég eftir sauðunum/ sem að koma af fjöll- unum,. .. íslensk villi- og fjallalömb í fjár- rekstri niður með Þjórsá. Víða er sá tími, sem líður frá réttum til slátrunar, notaður til að ala sláturlömbin á auð- meltu fóðurkáli — en kannski breytist það með átaki markaðs- nefndar. Stólað ó útigrillin Fyrsta júní síðastliðinn voru til í landinu rúm 5000 tonn af lamba- kjöti sem er um 1000 tonnum meira en á sama tíma í fyrra. 1985 var mjög dræm sala í júní vegna verð- hækkana 1. júní sem orsökuðu aukna sölu í maí. Nú virðist aftur á móti sem sala hafi verið með þokka- legasta móti í júní og almennt hefur sala kindakjöts á vormánuðum ver- ið góð undanfarin ár. „Sala á þess- um grillmánuðum getur verið mjög mikil en fer að sjálfsögðu eftir veðri," sagði Jón H. Bergs, forstjóri SS, í samtali við HP. Verðlagsári lýk- ur 1. september og á síðasta ári voru þá afgangs um 2000 tonn sem velt var yfir á þetta ár. Þrátt fyrir líflegri sölu í júní í ár en í fyrra er óraunhæft að ætla að öll þau 5000 tonn sem eru í landinu seljist upp á þessum tíma. Fjallalambsherferð markaðs- nefndar kostar samkvæmt heimild- um HP um 3,5 til 4 milljónir króna en heildar„verðmæti“ þeirra kjöt- tonna sem óseld eru nemur rúmum milljarði króna. Margir heimilda- menn HP töldu að vonlaust væri að sú herferð skilaöi verulegum ár- angri nema verðið væri lækkað um leið. Verðlækkun og einhverskonar kjötútsala (sem nú er ákvörðun ríkisstjórnarinnar) mun aftur á móti velta vandanum yfir á næsta verð- lagsár með því að stórsala fyrir slát- urtíð mun drepa niður sölu á nýja kjötinu fyrst þegar það kemur á markað. „Þetta er hrikalegt kvik- syndi, menn tapa meiru og meiru á því að halda uppi neyslunni, kostn- aður á bilinu 1 til 2 milljarðar — svo það er ekki nema von að reynt sé að klóra í bakkann," sagði einn heim- ildamanna HP. GERNI JET TURBO HREINSITÆKI Hreinsun verður leikur einn GERNI JET, ný gerð af háþrýstihreinsitæki með Turbo spíss. Mjög handhæg - létt og afkastamikil. Aðeins 18 kg á þyngd og með allt að 120 BAR þrýsting. Ýmsir fylgihlutir, t.d. fyrir sandblástur. Þú sparar tfma, fé og fyrirhöfn með GERNI JET. HELGARPÖSTURINN 23 ÖRKIN/SlA

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.