Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 28

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 28
afmælishátíð Reykjavíkurborgar er í fullum gangi og er ætlunin að 18. ágúst muni borgin „skarta sínu feg- ursta“. A afmælisdeginum á að dreifa inn á hvert heimili á landinu 50—70 síðna dagskrárriti og hefur undanfarið staðið yfir mikil auglýs- ingasöfnun í ritið meðal fyrirtækja og stofnana í borginni og utan. Með- al þess sem á að skreyta borgina á afmælinu er sérstaklega uppsett krambúð upp á gamla móðinn og verður hún áKjarvalsstöðum.Menn hafa verið duglegir að safna göml- um verslunarmunum í krambúðina og hefur meðal annars verið leitað til aðila á landsbyggðinni um lán á munum. Nema hvað fleiri eiga 200 ára afmæli og þykir sumum forráða- mönnum slikra bæjarfélaga orðið nóg um að fá hin ýmsu „betlibréf" frá borginni, sem þá telji sig hið eina og sanna afmælisbarn . . . iLiengi lifir í gömlum pappírum. í Lögbirtingablaðinu frá því á föstu- dag getur að líta áþreifanlega sönn- un fyrir þessu. Undir liðnum Stefn- ur gjörir yfirborgardómarinn í Reykjavík kunnugt að honum hafi tjáð Oddur C.S. Thorarensen — apótekari í Garðabæ — að hann þurfi að höfða mál til ógildingar á veðskuldabréfi. Þetta væri varla til frásagnar, nema hvað veðskulda- bréfið var gefið út af Stefáni Thor- arensen, föður Odds, hinn 28. sept- ember 1923 — eða fyrir tæpum 63 árum! Bréfið var tryggt með öðrum veðrétti og uppfærslurétti í fasteign- inni númer 16 við Laugaveg (Lauga- vegsapótek). Bréfið hljóðaði upp á gamlar krónur 56 þúsund, sem sam- kvæmt vísitölu vöru og þjónustu samsvarar um það bil 2.6 milljónum nýkróna. I tilkynningunni segir: „Stefnandi kveður framangreint veðskuldabréf vera að fullu greitt en frumrit þess hafi glatast og ekki, fundist þrátt fyrir mikla leit og eftir- grennslan og hvíli það því enn á hús- eigninni, sem stefnandi sé núver- andi eigandi að. Honum sé því nauð- synlegt að fá veðskuldabréfið ógilt með dómi, svo unnt sé aö aflýsa því af fasteigninni" Já, svona er lifið hjá sneplunum. Annað hvort flækjast þeir fyrir þeg- ar enginn vill þá, eða þeir finnast ekki þegar þörf er á. Hart er í heimi, hvat? Dýrin kunna ekki umferðarreglur. Þess vegna þarf að sýna aðgæslu í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar- reglur og ríða hægra megin og sýna bílstjórum sams konar viðmót og þeir ætlast til af þeim. ^ PINGVör,r Þingvellir skipa sérstakan sess í hugum okkar Islendinga. Bæði vegna einstakrar náttúrufegurðar og tengsla staðarins við sögu þjóðarinnar. Hótel Valhöll á Þingvöllum er góður gististaður. Öll herbergi hótelsins, 30 að tölu, eru rúmgóð og vel búin. Bað fylgir hverju herbergi. Á Hótel Valhöll eru allar veitingar í boði og góðir veislusalir. VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966 VÖNDUÐ VINNA - VANDAÐ VERK RAMMA MIÐSTOÐIN Álrammar 15 stærðir Margir litir Smellurammar 20 stærðir Plaköt mikið úrval Innrömmun 28 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.