Helgarpósturinn - 10.07.1986, Page 36

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Page 36
Er Suöursveitin tómur hugarburöur? Er Engilbert Jensen góður í marki? Féll Eiríkur Hauksson á skyndiprófinu? Kann Pálmi Gunnarsson á bíl? Komst Eggert Porleifsson til Hornafjarðar á réttum tíma? Er Helga Möller nógu fín? HP kemst að því — „Góöa kvöldiö. Ég œtla ad byrja á því aö segja þennan 3ja aöalfund Hafskips settan. Aöur en við förum í sálmana vil ég kynna fyrir ykkur hljómsveit Ragnars Kjart.... Nei annars, ég œtla aö kynna fyrirykkur hljóm- sveitina Faraldur. Hér eru meöal annars staddir — trúiö þiö því? — snillingarnir frá Bergen sem hrepptu hiö eftirsótta 16da sœti! Hér til hœgri handar höfum viö — nei, þetta er ekki Björgólfur Guömundsson — þetta er léttasti saxófónleikari á höfuðborgar- svœöinu, aöeins 19 kíló og kannski ennþá léttari, því hann var allur aö flagna, saxófónn- inn er 17 kíló, þannig aö saman- lagt eru þeir Jens Hansson og saxófónninn 97 kíló. Jens Hans- son, gjöriðisvovel! Trommuleik- arinn er hann Siguröur okkar Reynisson. Siguröur er ekki enn- þá farinn aö oela, en þaö fer aö veröa kominn tími á þaö — fylg- ist meö, góöir gestir, það gerist frammi viö kvennaklósett um eittleytiö! Ætlaröu aö taka smá- sólo, Siguröur, og fara svo fram aö fá þér aö éta, vinur? Jájá, þetta er gott. Tryggvi Hubner er aö lœra nautaat á Spáni, og eins og allir vita er dýrt að læra nautaat — Tryggvi þarf nefni- lega aö borga nautin sjálfur. Tryggvi er þessi sœti hérna vinstra megin og veitir víst ekk- ert af peningunum. Nœstur er Pálmi Gunnarsson frá Vogi, gjör- H ■ ■ a? Á Selfossi? Það fer kliður um salinn. Við erum nefnilega stödd óravegu frá Selfossi og Ölfusinu, á allt öðrum stað á jarðarkringlunni, í sumarblíðunni austur á Höfn í Hornafirði, þar sem er félagsheimil- ið Sindrabær. Spaugarinn Eggert Þorleifsson reynir að fóta sig á hál- um brautum landafræðinnar og seg- ir við Selfyssinga: „Vaaá, eru ekki allir í stuði — já, það er alveg ágætt að vera í stuði..." Og Selfyssingarnir hornfirsku svara með margrödduðu „jaaaáii!" Og ekki minnkar fögnuð- urinn að marki þegar Eiríkur VOOOWWW Hauksson stígur fram á sviðið með töffaralegan rafmagns- gítar, klæddur í leðurbuxur, og fyrstu tónarnir í Gaggó Vest, þjóð- söng allra gagnfræðaskólanema, berast fram í salinn — „einsog sést, einsog sést, þá er ég alinn upp í Gaggó Veeest..." Þær eru ekkert til- takanlega háaldraðar ungmeyjarn- ar sem þyrpast fram á gólfið með litlu vasamyndavélarnar sínar og Ijósmynda Eirík í bak og fyrir, en að- dáun þeirra er fölskvalaus og sönn — þegar líður á dansleikinn sér maður þær skáskjótast á bak við sviðið í þeirri einlægu von að fá eig- inhandaruppáskrift hjá popphálf- guðunum að sunnan. Stundarkorni síðar stígur á pall söngpípan Helga Möller. Eiríkur tví- hendir míkrafóninn, einsog hann hafi ekki gert annað um dagana, og tilkynnir að þau ætli að „taka lag sem við erum búin að syngja milljón sinnum" —- „ef kassettan er í lagi,“ bætir Pálmi Gunnarsson við, „ann- ars tökum við bara til á meðan“; og Hvaða lag skyldu þau nú vera að syngja, Æsí-flokk- urinn? iöiösvovel. Pálmi er að lœra á bíl þessa dagana. Hvernig er þaö, Pálmi, eruð þiö ekki á leiöinni til Bergen...? Já, þakka þér fyrir, Pálmi — ávallt drengur góöur! Síðastur, en langt í frá sístur, er Eiríkur VOOOWWW Hauksson. Ætlaröu aö gefa okkur eitt VOOOWWW, Eiríkur? Þess má geta aö Eiríkur kenndi lengi dýrafrœöi við Melaskólann í Reykjavík; ég ætla aö leggja fyr- ir þig stutt skyndipróf, Eiríkur — geturöu nefnt mér þrjú klaufdýr alveg í skyndi? Já, kýr... rétt er þaö, svín... ha? Konan þín... er konan þín klaufdýr, Eiríkur???? Og þá skulum viö segja aö þessi 38di aöalfundur Faralds hér á Selfossi sé bara byrjaöur. það kemur náttúrlega á daginn að sjálfur Æsí-flokkurinn þarf ekki að hafa fleiri orð um þann eina og sanna Gleðibanka, enda hvia ungir Hornfirðingar, hrópa og klappa af slíkum ógnarkrafti að útveggir - Sindrabæjar ganga í bylgjum. s ^^^kemmtifólkið sem skipar Faralds-flokkinn var að tínast austur á Hornafjörð eftir ýmsum króka- leiðum daginn sem dansiballið var haldið í Sindrabæ. Pálmi var auðvit- að í veiði í einhverjum afdalnum og kom seint og um síðir á sínum prí- vatbíl. Helga Möller vaknaði snemma og kom með flugi um morguninn. Engilbert Jensen svaf ásamt föruneyti á Kirkjubæjar- klaustri og kom um eftirmiddaginn til að Ieita að týndum snúrum og syngja Bláu augun þín og Heim í Búðardal, sem alltaf gerir jafnmikla Eggert Þorleifsson; „Eru ekki allir í stuði hérna á Sel- fossi?" lukku, enda bæði lögin óvefengjan- lega sígild. Eggert Þorleifsson og meðreiðarsveinn hans, Arnar Jóns- son, misstu af flugi í Reykjavík, fengu engan bílaleigubíl og enga leiguflugvél heldur, nema þá sem kostar næstum 50 þúsund fyrir skottúrinn, og komu loks keyrandi í loftköstum austur með strandlengj- unni, en undir stýri sat kunningi þeirra, gamall glanni, sem keyrði á fjórum tímum frá Reykjavík til Hornafjarðar. Að sögn aðflutts Hornfirðings, sem farið hefur þessa leið ótal sinnum, er þvílíkur hraði „næsti bær við dauðann," einsog hann orðaði það. En það dugir víst ekkert „elsku raamma" þegar mað- ur er í sjóbissness og þeir Eggert og Arnar endasentust niður Horna- fjarðarafleggjarann rétt í þann mund sem innfæddir voru farnir að ókyrrast í sætum sínum. En allir komust sumsé á áfangastað að lok- um, sæmilega vel upplagðir, og Hornfirðingar fengu sitt ball þetta föstudagskvöld, enda þótt þeir ættu margir hverjir að mæta eldsnemma í vinnu morguninn eftir. E A Iður en við erum komnir framhjá Nesti í Ártúnsbrekkunni er ég orðinn þess vísari að bílstjóri litlu Mercedes Benz-rútunnar er frændi Þorgríms Gestssonar fréttamanns á útvarpinu. Það þykir mér afar traustvekjandi að heyra, enda vann Þorgrímur einusinni á Helgarpóst- inum. Frændinn heitir Pétur og er fyrrverandi strætóbílstjóri, keyrði leið þrjú, Nes-Háaleiti. Ég hef oft ferðast með þeim strætó. Hinir far- þegarnir í rútunni eru ekki margir, aðeins þrír, en allir í miklum metum hjá unga fólkinu, að því ég best veit. Sigurður Reynisson, trommuleikari úr hljómsveitinni Drýsli, situr frammí hjá bílstjóranum og tekur upp harðfiskpakka þegar hann er „Það væri nú lítil eftirsjá í því, þótt þú misstir röddina," segir Pétur rútu- bílstjóri. „Allavega myndi ég ekki sjá eftir henni." Pétur fór einu sinni hringveginn með hljómsveitinni Drýsli, og gleymir því sennilega aldrei — að minnsta kosti ekki partí- inu á loftinu í Sindrabæ eftir ballið. Eiríkur nennir ekki einu sinni að þykjast vera móðgaður. „Ég er líka með svona rosalega skrítið kvef í puttanum," heyrist í manninum sem fór á Gaukinn og beinir allt í einu huganum að nær- tækari hlutum en spænska fótbolt- anum. „Sko, þegar ég beygi puttann svona, þá er einsog hann læsist aft- ur og... Ég er ekkert viss um að ég geti spilað á morgun..." Missir Eiríkur röddina? Nei, þið þurfið ekki að bíða eftir framhaldi í næsta blaði — hann missti ekki röddina. Hinsvegar er ekki laust við að E. Helgason, söngvari hinnar stórmerku, en skammlífu og mis- Helgasyni blaðamanni af Helgarpóstinum í Reykjavík hlotn- ast hinsvegar sá sérstaki heiður að fá að hossast austur í lítilli rútubif- reið af Mercedes Benz-gerð. Til þess var líka leikurinn gerður — að fá að kynnast frjálsu líferni hljómsveita- töffara útá þjóðvegunum, eða „on the road", einsog það heitir á al- þjóðamálinu. Þegar ég sest uppí rútubílinn minnist ég þess meira að segja að hafa heyrt frægan hljóm- sveitagæja, sem ég hafði eitt sinn mætur á, lýsa því hversu háskasam- legur „the road" er fyrir líkama og sál þess sem þar hringsólar. í huga hljómsveitamannsins skipar holótt- ur þjóðvegurinn sama sess og græn- golandi úthafið í vitund sjómanns- ins, eða hvað sagði ekki popparinn sem ég hafði mætur á „the road has taken many lives". Ekki veit ég hversu hringvegurinn hefur heimt- að mörg íslensk popparalíf, en tel það víst að hljómsveitatöffararnir okkar hafa sprænt utan í næstum því hverja þúfu sem liggur við hring- veginn. Eggert finnst greinilega þreytandi að vera alltaf fyndinn. Eirfkur er orðinn þreyttur á að syngja Gleði- bankann, en Rálmi er ekkert þreyttur — enda var hann á leiðinni í heimahaga sína á Vopnafirði. búinn að klára sviðin og appelsínið sem hann keypti út um lúgu á Um- ferðarmiðstöðinni. Eiríkur Hauks- son söngvari, sem var með Sigga í Drýsli, fitlar annars hugar við sól- gleraugun sín — ég held hann sé að velta því fyrir sér hvort hann geti látið sjá sig í Don Cano-skokkbún- ingnum sem keyptur var á leiðang- ursmenn. Tryggvi Húbner gítarleik- ari skrapp á Gaukinn áður en hann lagði í hann og er byrjaður að hita - sig upp fyrir ítarlegan fyrirlestur um spænska fótboltann, sem hann kynnti sér til hlítar veturinn sem hann var ekki að læra nautaat á Spáni, heldur meiri gítarleik. Klukkan er að ganga tvö um nótt, og Pétur ökumaður segist ætla að vera klukkan fjögur í Vík, en klukk- an átta á Höfn. Og það stóðst svona hérumbil. V oðalegt er það hvað söngv- arar þurfa að hugsa mikið um rödd- ina í sér. Við erum ekki komnir aust- urfyrir Selfoss og Eiríkur er hættur að gjóa tortryggnisaugum á skokk- gallana ljósgrænu, en farinn að fitla við barkakýlið á sér í staðinn, dálítið mæðulegur á svipinn. Þegar við brennum framhjá Mjólkurbúi Flóa- manna segir hann uppúr eins manns hljóði: „Ég er með eitthvað það alfurðu- legasta kvef sem ég hef fengið, það er næstum því einsog ég sé ekki með neitt kvef en samt er ég kvefað- ur. Ég missi röddina ef þetta heldur svona áfram," segir Eiríkur og kveikir í einni Salem lights máli sínu til áhersluauka. Svoleiðis sígarettur eru víst góðar fyrir röddina. skildu hljómsveitar Gaukanna hafi alið með sér þá von eitt andartak að Eiríkur gæti allt í einu ekki stunið upp hljóði, væri sumsé forfallaður á síðustu stundu, örlagastundinni, og allt í einu stæði hljómsveitin uppi vængbrotin og söngvaralaus, með engan til að syngja Gaggó Vest sem hundruð öskrandi unglinga heimta og engar refjar og þegar öll ráð eru þrotin og allar hóstamixtúrur gagnslausar stígur fram gamli Gaukurinn, öngvu búinn að gleyma, og býðst til þess að redda málunum og lætur það ekkert á sig fá þótt hvarvetna glampi vantrú í augum ogsvoframvegis ogþarfram- eftirgötunum rakleitt á toppinn — kannski í söngvakeppni til Bergen, Tromsö eða Tirana. V ið erum komnir yfir Markar- fljótsbrúna, langleiðina austur undir Eyjafjöll, og þeir eru farnir að segja hrakfarasögur úr hljómsveitaferða- lögum, allir nema Siggi trommari sem er líka búinn með rækjusam- lokuna sína og kitt-kattsúkkulaðið og lagstur saddur til svefns í aftur- sætinu. Þremenningarnir sem vaka hafa allir lent í mannraunum þegar þeir gerðu sitt ítrasta til að flytja vestrænan skarkala og poppkúltúr í friðsæla fjalladali og sofandaleg sjávarþorp, oftar en ekki um hávet- ur, eða þegar allt var gjörsamlega ófært vegna vorleysinga ellegar haustrigninga. Það var margt sem hamlaði för: grjóthrun, skriðuföll, fannfergi, belj- andi jökulfljót, vatnavextir, flóð, Kötlugos, Móðuharðindi — og ekki síst hrikalegar ýkjur af þessu tagi. 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.