Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 37

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Side 37
eftir Egil Helgason myndir Gunnar Gunnarsson En samt börðust menn áfram, og alltaf skyldu þeir komast á leiðar- enda. En þá tók hinsvegar miklu verra við, það var einsog að fara úr öskunni í eldinn, mannraunirnar voru einsog dægilegt sumarfrí mið- að við það sem tók við í félagsheim- ilum á dreifbýlissvæðum landsins. Þar mætti lerkuðum hljómsveita- mönnum sjaldnast annað en skiln- ingsleysi og kauðaháttur, oftar en ekki voru aliar dyr harðlokaðar — ballinu aflýst. „That’s Icelandic rock’n’roll," seg- ir Eiríkur Hauksson á alþjóðamál- inu með raddblæ þess sem er löngu orðinn úrkula vonar um breytta og betri tíð. Við keyrum inní langþráða sól, sem hefur verið í sjónvarpsfréttun- um, þegar við erum komnir lang- leiðina austur í Vík. Hljóðkúturinn er að gefa sig, Pétur ökumaður held- ur sér vakandi með neftóbaks- neyslu. „Mikið helvíti er þetta leið- Arnar Jónsson; nei hann er ekki að gefa eiginhandar- áritun í þetta skiptið, og hann er ekki að yrkja — hann er að reyna að læra rulluna sína. . . Jensen stóð í markinu. Hann þurfti auðvitað að styrkja sig svolítið fyrir átökin, en meðan Jensen var í ró- legheitum að súpa á kútnum í einu markhorninu notaði gæinn tæki- færið og skoraði úr vítinu. Ég er ekki búinn að fyrirgefa honum enn- þá.“ „Hann verður samt í marki...” „Og Helga verður á miðjunni — hún verður að sýna að hún verð- Þ Hvaða lag eigum við að taka næst — kunnið þið einhver lög, strákar? Jens Hansson, Eggert, Pálmi, Eiríkur og Rétur bílstjóri. inlegt,” heyri ég hann tauta fyrir munni sér. Hann hefur keyrt margar poppstjörnur; Bubba, Megas, Drýsil — og nú er hann á faraldsfæti í sumar. . . að er alltaf eins þegar ég fer austur á land. Ég sker alltaf hrúta á söndunum og er sofandi þegar keyrt er framhjá Skaftafelli, og Suður- sveitin, mér hefur ekki ennþá auðn- ast að sjá hana, líklega vegna ein- bers sofandaháttar. En hvernig er það annars — er hún til, eða var hún bara tómur hugarburður og stælar , hjá Þórbergi? Ég veit allavega að Eggert Þor- leifsson leitaði líka að Suðursveit- inni út um allt austanvert landið, en fann hvorki tangur né tetur af henni... Ferðafélagar mínir, hljómsveitar- menn, eru farnir að rumska, úfnir um kollinn og krumpnir í framan, og hafa um annað að hugsa en bók- menntafræðilega landafræði. „Heyrðu, hvað voru þeir annars að segja í gær? Stendur ekki til að við keppum í fótbolta við bæjar- stjórnina á Höfn?” „Náum við ekki saman í ellefu manna lið?” „Jú, ef þú verður í marki...” „Nei, Jensen verður í marki, hann er fæddur markvörður!” Og þessu til sönnunar rifjar Tryggvi Húbner upp fótboltaleik sem skrallhljómsveitin Haukar tap- aði fyrir misgáning á Hvammstanga í eina tíð. Þá reyndi verulega á markmannshæfileika Engilberts: „Það var dæmt á okkur víti og skuldi að eiga þennan sambýlis- mann...” Við keyrum fram á tvo einstakl- inga, líklega hjón, úr mengi þess bjartsýnisfólks sem kýs að ferðast um Island í sumarfríinu — hjólandi. Það eru líklega fyrstu mannaferðir sem við höfum séð síðan á Selfossi. Aftan úr rútunni heyrist þreytuleg og tóbaksrám rödd, algjörlega á skjön við ferðamennina sem hjóla glaðbeittir til móts við morgunsól- ina í austri: „Það er tvennt sem ég vildi alls ekki vera. Kind — af því þær eru svo heimskar- og túristi á Islandi — af því þeir eru svo hlægi- legir...” Við keyrum síðasta spottann með óskaplegum skellum og dynkjum. Það liggur þokuslæða yfir Hornaf- irðinum, en þegar við komum niðrá Höfn er albjart og glampandi sól. L skenkir kaffi og tjáir okkur að sjáist vín á verkafólki í vinnu á laugar- dagsmorgnum sé það umsvifalaust rekið. Nýjar reglur, engin miskunn! í öðru lagi eru þeir svo margir skemmtikraftarnir sem keppa um hylli landsbyggðarfólks á sumrin; Sumargleðin er að taka á rás þetta sama kvöld í Njarðvíkunum, og Tryggvi spyr undirleitur hvort ekki séu sætaferðir frá Höfn í Stapann. Upplitið er orðið heldur aumt á mönnum þegar kemur svo í ljós að það er mikil rokk- og sólarhátíð austur á fjörðum, og líka stjörnur, stórar en kannski ekki jafnstórar, sem ætla að halda uppi gleði alla helgina í botni Seyðisfjarðar. Það eru góðhjartaðar vinstrikonur sem standa fyrir þessari nýbreytni í Fjarðarbotninum — líklega til að reyna að bæta austfirskum æskulýð upp mikinn og sáran missi, þau sorgartíðindi að ekkert verslunar- mannahelgarfyllerí verði í Atlavík þetta árið. Og ekki batnar ástandið þegar staðarhaldarinn í Sindrabæ segir þungur á brún: „Nei, ég á ekki von á stóru balli í kvöld. . . loksins fæ ég þá tækifæri til að koma á þennan fræga stað Hérann á Höfn, sem ég hef heyrt mærðan í ljóði, sem aldrei hefur birst á prenti og sennilega fáir heyrt. I kaffinu á þessu ágæta veitinga- húsi liggur yfir hópnum svartsýnis- ský, enda þótt sólin skíni úti; náttúr- lega eru menn velktir eftir rútuferð- ina, heitir það ekki „jet-lag” þegar maður flýgur. Svo er hitt, að hljóm- sveitatöffararnir okkar þykjast þess fullvissir þarna í morgunsárið að enginn láti sér detta í hug að koma á ball hjá Faraldri/Æsí/Helgu/- Pálma/Eiríki/Engilbert/Eggerti og Arnari í Sindrabæ. í fyrsta lagi eru Hornfirðingar að drukkna í vinnu, og framreiðslustúlkan á Héranum I elga Möller er flogin austur og segir frá því að síðast hafi hún spilað þar með hljómsveit sem hét Melrakkarnir, sem var dóttursveit annarrar hljómsveitar sem hét Gaddavír. Það mun hafa verið sögu- leg skemmtun og vart við alþýðu- skap. „Hávaðinn var alveg ærandi, gestirnir að verða vitlausir, strák- arnir gjörsamlega útúrdrukknir og dóu smátt og smátt fram á hljóðfær- in. Það var hræðilega neyðarlegt," segir Helga. „Það verður þá þér að kenna ef það verður messufall, þeir þekkja þig aftur," segir Eiríkur Hauksson. Pálmi Gunnarsson er kominn úr veiði og gjörþekkir staðhætti þarna fyrir austan eftir að hafa unnið á Hornafirði sem unglingur og náttúr- lega líka eftir eilíft hringsól um þjóð- vegina í tvo áratugi. Þegar Pálmi gengur inní Sindrabæ segist hann mundu rata um flest félagsheimilin í dreifbýlinu, þótt hann yrði allt í einu sleginn blindu. „Pálmi heilsar málverkunum í anddyrinu,” bætir Eiríkur við. Líklega er þó íslandsmeistarinn í |?jóðvegahringsóli og félagsheimil- um Engilbert Jensen sem stendur í ógnarbasli við að róta upp kynstr- um af hátölurum, míkrafónum og svuntuþeysurum á sviðinu í Sindra- bæ. Hvað ætli Engilbert hafi farið marga hringi í kringum landið — eða sjálfan sig? Snúrur og aftur snúrur og enn snúrur. „Hvar eru snúrurnar,” spyr Engilbert pirraður. „Hefur einhver stolið snúru?” Einn tveir þrír og one two three og halló og aðeins meiri diskant og fídbakk... Það er ekkert sældarlíf að vera rótari, en Engilbert fær erfiðið margborgað í allsherjarfagnaðarlát- um þegar hann syngur Heim í Búð- ardal og Bláa augað þitt, einsog Eggert kallar það í kvikindisskap sínum. . . lEggert er baksviðs að troða samanvöðlaðri klósettrúllu uppí munninn á sér, líklega í þeirri trú að hann verði gerbreyttur maður fyrir vikið. Arnar Jónsson, „þessi bráð- myndarlegi maður," einsog horn- firsk heimasæta orðaði það, er að reyra utaná sig einhver ljósgræn- ustu og vemmilegus’tu jakkaföt í samanlagðri sögu fatatískunnar. „Að hann skuli gera sér þetta, að vera í svona fötum," segir heimasæt- an hornfirska hálfgrátandi. Og þeg- ar Eggert setur á hausinn sundur- skorinn fótbolta, hvílíkt höfuðfat, og fer i slitinn hlýrabol er ekki laust við að þeir séu ansi lítilfjörlegir saman- borið við fjölskyldu Péturs Hjalte- sted hljómborðsleikara, sem spíg- sporar um í ríbokk-skóm, ljósum æfingagöllum, sólbrún, ljóshærð og ósgu sæt. En hvað gera menn ekki fyrir list- ina? „Er ég nógu fín," spyr Helga Möil- er sem situr í makindum og lakkar á sér neglurnar. samdi þegar ég gerði mér grein fyrir því að ég er ekki einsog fólk er flest... Jæja, hlæjið þið líka þegar fólk dettur i hálku? Við erum með samtök í Reykjavík fyrir fólk sem þjáist af þessu meini... Og Eggert mundar gítarinn, ekki óhönduglegar en vísnasöngvarinn Megas, og næstu mínúturnar þarf enginn að fara í grafgötur um hvað er „hitt” kvöldsins, hvað annað en baráttusöngurinn LÍTIL TIPPI LENGJAST MEST. . . D aginn eftir er maður soldið sloj, og þarf í ofanálag að keyra sleitulaust í rútu frá Hornafirði á Egilsstaði. Þeir segja að þar sé hit- inn svo mikill að Héraðsbúar spæli egg á asfaltinu. Eggert er ennþá að leita að Suður- sveitinni, og ég reyni að hjálpa til eftir fremsta megni, en aðrir farþeg- ar álíta að leitin sé til einskis. Við komumst að þeirri niðurstöðu að í Hamarsá hljóti menn að veiða hamra, sagir, naglbíta og líklega hef- ilbekki líka, það er að segja þeir sem eru heppnir. Landafræði íslands er þráttfyrir allt ekki sú armæða sem maður hélt á skólaárunum. Mig rámar óljóst í að einhver nafnfræg sögupersóna, ég man náttúrlega ekki hvað hún hét, hafi tekið sig til og hent goðum, jú voru það ekki goð, ofan af fjalli sem við erum að keyra framhjá og ég man ekki alveg hvað hét, ég held samt að það sé Búlandstindur... „Hvað segirðu, Egill, henti hann boðorðum?" „Nei, goðunum.” „Þá hlýtur þetta að vera Sínaí- Baksviðs... „Nei!” er margróma viðkvæði úr öllum hornum. Eggert er ennþá að reyna að troða klósettpappírnum uppí sig: „Djöfull sem klósettpappírinn er misjafn á þessum stöðum," andvarp- ar hann mæðulega í þann mund sem þeir félagarnir eru kallaðir fram á sviðið. V aaá, allir í stuði! Var þetta ekki Æsí-flokkurinn hérna áðan? Var Eiríkur Hauksson með? Já, það er víst lygi að hann sé hommi. Sungu þau Gleðibankann? Já, gerðu þau það? Ja, ég samdi nú einusinni lag sem er hérumbil alveg einsog Gleðibankinn. Nei, það var löngu fyrir Bergen. Færðu stundum móral yfir öllum svikaprettunum, þeir sögðu þú vær- ir svaka-svindlari í fréttunum... Og hérna er annað lag sem ég fjall!" „Heyrðu, Pétur, er þetta Sínaí- fjall?” „Ja, þá hljótum við að hafa tekið vitlausa beygju," „Hvað hét hann aftur, kallinn sem henti goðunum?” „Þor... eitthvað..." „Þorgrímur?" „Þorsteinn?" „Þórgnýr?" „Það hefur ekki verið Þráinn Bertelsson? Hann er víst orðinn svo voða trúaður...” „Heyrðu, Eggert. Er þetta þá ekki fljótið Níl?" „Ja, ef svo er þá hlýtur þetta að vera Brúin yfir fljótið Kwai"... Á Egilsstöðum var fullt hús um kvöldið og greinilegt að þeir eru ekki búnir að gleyma Gleðibankan- um þar heldur... HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.