Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 40

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 40
E lins og kunnugt er, gerðu stuðningsmenn Marcosar fyrrum forseta á Filippseyjum uppreisnar- tilraun fyrir skömmu og náðu á sitt vald hóteli einu í Manila. Það hefur hins vegar ekki farið hátt, að íslend- ingur einn var staddur í hótelinu þegar atburðurinn átti sér stað. Var þar kominn Jón Ormur Halldórs- son stjórnmálafræðingur og stóð hann m.a. við hlið Tolentinosar í anddyri hótelsins, þegar sá síðar- nefndi sór embættiseið sinn sem varaforseti landsins. Það er ekki að spyrja að landanum.. . Þ að standa mörg kaupfélög illa í landinu þessa dagana. Eitt þeirra er Kaupfélagið Þór á Hellu. Aðalhvatamaður að stofnun þessa kaupfélags var á sínum tíma Ingólf- ur Jónsson sjálfur. Nú eru menn eins og Eggert Haukdal í stjórn fyrir kaupfélagið. Á aðalfundi kaup- félagsins Þórs, sem var haldinn ekki alls fyrir löngu, voru lagðir fram árs- reikningar 1985 og áætlaður efna- hagsreikningur. Ársreikningar sýna tap á rekstri kaupfélagsins árið 1985 upp á tæpar tuttugu milljónir króna, helmingi meira tap en árið 1984 en þá varð tapið tæpar tíu milljónir króna. Fyrir aðalfundinn var sendur maður frá Almennu verkfræðistof- unni h/f til að skrifa upp og verð- leggja fasteignir og annað lausafé kaupfélagsins. Hann taldi eignir fé- lagsins vera 117.440.000,- krónur. Við það bætist hlutafé kaupfélagsins upp á eina milljóna króna. En þetta er ekki markaðsverð og verður því að telja eignirnar mun minni. Lang- tímaskuldir og skammtímaskuldir umfram veltufjármuni eru hinsveg- ar 82 milljónir króna. Vextir af því gætu orðið allt að 25 milljónir á ári og hlýtur að vera erfitt að eiga við það þegar heildartekjur kaupfélags- ins árið 1985 voru rúmlega 200 milljónir króna. En telja verður að Þór eigi ekki eignir fyrir skuldun- um. Því ákveður stjórnin að fara út í hlutafjáraukningu upp á 30—40 milljónir til að grynnka á skuldun- um. En meðan dyggir menn eru að safna hlutafé um sveitina mega um- ræddir ársreikningar og áætlaður efnahagsreikningur ekki sjást. Þeir sem sátu aðalfundinn voru nefni- lega beðnir um að skilja þessi plögg eftir þegar þeir færu heim til sín. . . Gabriel HÖGGDEYFAR Ný sending SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 I austkosningar? Það er alltaf verið að ræða um haustkosningar, sem náttúrlega eru ákjósanlegt og auðuppvakið fréttamál í þeirri gúrkutíð sem gjarnan ríkir í íslensku þjóðlífi á sumrin. Sjálfstæðismenn eru enn sagðir mjög fúsir að leggja út í haustkosningar, og jafnvel ungir framsóknarmenn líka. Hinsvegar vitum við um einn mann sem tekur varla í mál að kosið verði í haust. Það er sjálfur Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, sem telur haustkosningar ekki hagfelld- ar fyrir Framsókn. En það er víst annað sem hefur líka áhrif á þessa afstöðu Steingrims — hann á nefni- lega að fara í opinbera heimsókn til Alþýðulýðveldisins Kína í október í haust, og haustkosningar gætu sett það strik í reikninginn að Steingrím- ur færi hvergi. . . Vinsamlegast FRAMVÍSIÐ BANKAK0RTI þegar þið greiðið með tékka 1 Qildm n Q3QQ QQQQ QQQ2 m Bankakortið - tákn um traust tékkaviðskipti Alþýðubankinn - Búnaðarbankinn - Landsbankinn - Samvinnubankinn Útvegsbankinn - Verzlunarbankinn - Sparisjóðirnir EUOOCARD KJOTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2 — S: 686511 SVÍNAKJÖTÁ HEILDSÖLUVERÐI Svínslœri 245 kr. kg. Nýir svínabógar 247 kr. kg. Nýir svínahryggir 440 kr. kg. Svínakótilettur 490 kr. kg. Svínahnakki úrbeinaöur 420 kr. kg. Svínahnakka-fillet 410 kr. kg. Sænsk kryddsteik 420 kr. kg. Úrbeinuö ný svínslœri 310 kr. kg. Úrbeinadir nýir svínabógar 295 kr. kg. Svínagrillpinni m/ananas og frábœrum lœrisvöövum adeins 40 kr. stk. Odýra beikonid 250 kr. kg. Svínalundir 666 kr. kg. Svínagúllas 475 kr. kg. Svínasnitchel 525 kr. kg. Svínaskankar 96 kr. kg. Svínalifur 125 kr. kg. Svínahausar ca. 5 kg. aðeins 100 kr. stk. OPIÐ LAUGARDAGA til kl. 16.00 AUK hf./SlA X2.5

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.