Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 12

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 12
Prófkjör Framsóknarflokks í Reykjavík LLUM BRÖGÐUM BEITT Gífurleg smölun í gangi Guömundur G. Þór- arinsson sœkir stuön- ingsmenn utan flokks Kosningabandalag gegn Haraldi og Finni Agreiningur um utan- bœjarmenn Haraldur Ólafsson, alþm., nýtur stuðn- ings flokksfólksins, sem svo er nefnt. Mikil harka hefur nú fœrst í próf- kjör framsóknarmanna í Reykjavík. Stífsmölun hefur farid fram og verid rekin af frambjóöendum flokksins sem stefna á efstu sœti listans — og hefur öllum brögdum verið beitt. Hefur flokksbundnum framsóknar- mönnum fjölgað mjög í Reykjavík að undanförnu, og auk þess stuðn- ingsmönnum flokksins, sem ritað hafa nöfn sín á sérstakan lista þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við flokkinn. Er það gert til að tryggja viðkomandi rétt til þátttöku í próf- kjöri um nœstu helgi. A fimmta þús- und manns hefur skv. prófkjörsregl- um rétt til þátttöku í prófkjörinu, en það er svipaður fjöldi og flokkurinn fékk við síðustu alþingiskosningar. í FLOKK — OG ÚR HONUM AFTUR Það eru frambjóðendurnir Har- aldur Ólafsson, alþingismaður, Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, og Guð- mundur G. Þórarinsson, verkfræð- ingur, sem bítast um tvö efstu sæti á framboðslista flokksins, en skoð- anakönnun gerir ráð fyrir að hann fái einn þingmann í Reykjavík. Og eftir því er slagurinn harður. Heimildarmenn HP í Framsókn- arfiokknum fullyrða, að Haraldur Ólafsson njóti einkum stuðnings þeirra, sem skráðir voru í flokksfé- lögin — fyrir smölun, þ.e.a.s. þeirra sem teljast til „gamla flokksins". Eftirað Guðmundur G. Þórarinsson, verk- fræðingur, gaf kost á sér í prófkjöri fram- sóknarmanna hófst mikil smölun inní flokkinn. Minnir það á prófkjörsæfingar Guðmundar G. 1978 og 1979. Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður ráðherra, sækir einnig verulegan hluta síns fylgis til þessa hóps, en umfram allt á hann sér dygga stuðn- ingsmenn í röðum ungliða í flokkn- um. Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sækir sitt fylgi eink- um tii nýrra félaga og nú yfirlýstra stuðningsmanna flokksins. Tveir þeir síðasttöldu hafa lagt mikið uppúr smölun í Háskóla Is- lands, þar sem Haraldur Ólafsson hefurJþótt sterkur fyrir. Hefur nem- um Hf verið boðið uppá að taka þátt í prófkjörinu gegn því að þeir geti gengið úr flokknum aftur, að sögn háskólastúdents, sem HP ræddi við í gær. Hluti þeirra, sem þannig hefur gengið til liðs við flokkinn er heim- ilisfastur utan Reykjavíkur. Harald- ur Ólafsson hefur mótmælt þátttöku utanbæjarmanna í prófkjöri flokks- ins og ritaði af því tilefni formanni kjörstjórnar, Eiríki Tómassyni lög- fræðingi, bréf þar sem hann and- mælirslíku ráðslagi. Lögfræðingur- inn kvað hins vegar upp þann úr- skurð, að ungu fólki væri heimil þátttaka í prófkjöri, svo framarlega sem það gengi í FUF. Hann kvað það hins vegar óheimilt, að flokks- bundnir menn úr öðrum flokkum tækju þátt í prófkjöri framsóknar- manna. Haraldur Ólafsson mótmælti þessari lagatúlkun með grein í Tím- anum og sagði, að hún væri ekki einasta lögleysa, heldur og siðlaus. ANNARS FLOKKS FÓLK Guðmundur G. Þórarinsson er sá frambjóðendanna, sem gengið hef- ur hvað harðast fram í að fá einstakl- inga til að skrá sig á þar til gerða stuðningsmannalista. Sjálfstæðis- maður, sem hafði samband við HP upplýsti, að þetta væri m.a. gert með því að lýsa því yfir við við- komandi, að prófkjör væri opið og að ekkert gerði til þótt menn væru flokksbundnir i öðrum flokkum, eða hefðu kosið í prófkjöri annarra flokka. Er hér einkum um sjálfstæð- ismenn að ræða, en Guðmundur G. Þórarinsson og helstu kosninga- Finnur Ingólfsson. Vaxandi stjarna í Framsókn. Hann styðja ungliðar í þéttbýli og dreifbýli. smalar hans, þeir Þráinn Valdimars- son, Jósteinn Kristjánsson og Omar Kristjánsson, hafa lagt ríka áherslu á að ná til fólks utan flokks. Stangast þetta á við lögskýring- ar Eiríks Tómassonar og hefur próf- kjörsbaráttan enda harðnað mjög síðustu dagana. Telja margir hæg- fara framsóknarmenn í Reykjavik að svo hart sé barist, að flokkurinn standi splundraður eftir prófkjör. Og skipti þá litlu máli hvernig menn raðast á lista. í samtali við HP sagði einn forystumanna flokksins í Reykjavík, að hann teldi vafasamt að flokkurinn myndi hætta sér útí prófkjör á næstu árum. Vegna gruns um, að annars flokks fólks — einkum flokksbundnir sjálf- stæðismenn og fjölskyldur þeirra — sé á listum þeim sem lagðir eru til grundvallar í prófkjöri framsóknar- manna hefur kjörstjórn gert könnun á fjölda flokksbundinna manna úr öðrum flokkum. Hafa framsóknar- menn félagaskrá Sjálfstæðisflokks- ins undir höndum. Verður tekin ákvörðun um það í dag, hvernig kjörstjórn snýr sér í máli þessu, en útlit er fyrir að verulegum hluta manna verði vísað frá í prófkjöri. Af flokksbundnum sjálfstæðismönnum eru m.a. nefndir til sögunnar Armann Örn Armannsson, fram- kvæmdastjóri Ármannsfells, Magnús Hreggviðsson, útgefandi, og eiginkona hans, Bryndís Valgeirs- dóttir. Endurskoðun á kjörskrá er mikið verk, enda rúmlega tvö þús- und manna nýliðun hjá flokknum í Reykjavík. Heimildarmenn í Fram- sóknarflokki telja víst, að endur- skoðuð kjörskrá dragi verulega úr vinningslíkum Guðmundar G. Þór- arinssonar. PRÓFKJÖRS- UPPÁKOMUR Guðmundur G. Þórarinsson er hins vegar óskrifað blað í þessu prófkjöri, eins og svo oft áður. Fram- boð hans kom seint fram eftir að stuðningsmenn hans höfðu smalað um 500 nöfnum á áskorendalista þar sem skorað var á hann að gefa kost á sér í prófkjöri. Áskorenda- smölunin fór þannig fram, að stuðn- ingsmenn Guðmundar G. tilkynntu flokksmönnum að hann færi fram fyrir orð Steingríms Hermanns- sonar, en eins og kunnugt er bar Steingrímur Hermannsson þann orðróm til baka strax og hann var spurður. Halldór E. Sigurðsson, sem hafði unnið að undirbúningi fram- boðs Guðmundar G., hætti afskipt- um af framboðinu, þegar ljóst var hvernig málflutningur stuðnings- manna Guðmundar G. var. Guðmundur G. Þórarinsson og stuðningsmenn hans hafa nú sent út dreifibréf á ýmsa lykilmenn í Reykjavík, þar sem tilkynnt er um og hvatt til kosningabandalags Guð- mundar G., Sigríðar Hjartar, og Helga Guðmundssonar. Er í tillög- um þessum lagt til, að Finnur Ing- ólfsson, aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra, verði settur í fjórða sæti listans, og að menn sleppi Har- aldi Ólafssyni algjörlega. Kosninga- bandalaginu er stefnt gegn þeim tveimur og Ástu R. Jóhannesdóttur, sem stefnir á annað og þriðja sæti listans. Þau Sigríður Hjartar og Helgi Guðmundsson hafa bæði ver- ið drjúg við smölun inní flokkinn og hafa náð um 300 manns inná flokks- skrár skv. heimildum innan Fram- sóknarflokksins. Óvíst er hvort þetta kosningabandalag heldur eða ekki, en fari svo gæti Guðmundur G. hafnað ofarlega á lista og gert þeim Haraldi og Finni skráveifu. Prófkjörsbarátta Guðmundar G. Þórarinssonar hefur verið býsna skrautleg síðustu árin. Árið 1978 gekk hann og stuðningsmenn hans mjög hart fram í smölun vegna próf- kjörs. Tóku um 7.500 manns þátt í prófkjörinu. Þessi fjöldi skilaði sér hins vegar ekki í sjálfum kosning- unum, en þá fékk flokkurinn 4.116 at- kvæði. Er það svipaður fjöldi at- kvæða og er nú á félagaskrám flokksins í Reykjavík fyrir þetta prófkjör. Árið 1979 reyndi Guðmundur G. Þórarinsson aftur fyrir sér í próf-. kjöri og þóttist eiga rétt á fyrsta sæti listans. Þá bar hins vegar svo við, að Ólafur Jóhannesson flutti sig úr Norðurlandskjördæmi eystra og til Reykjavíkur. Hlaut hann fyrsta sæti á framboðslista flokksins, en Guð- mundur G. Þórarinsson sætti sig ekki við niðurstöðuna og neitaði að taka sæti á listanum. Hann lýsti því þá yfir að afskiptum hans af stjórn- máíum væri lokið. Hægfara framsóknarmenn í Reykjavík telja, að prófkjörsuppá- komur Guðmundar G. vinni gegn honum innan flokksins og því hafi hann og stuðningsmenn hans lagt ofurkapp á að ná nýju fólki inní flokkinn og á stuðningslistana. ÞÉTTBÝLISSÖKN í VOÐA? Hörð prófkjörsbarátta og umfram allt hin mikla smölun hefur komið illa við alþingismann flokksins í Reykjavík, Harald Ólafsson. Hann hefur ekki tekið þátt í smöluninni heldur lagt allt traust sitt á flokks- fólkið, sem svo er nefnt. í stóru próf- kjöri geldur hann þess, auk þess sem Haraldur Ólafsson hefur löng- um átt í smávægilegum útistöðum við formann flokksins, Steingrím Hermannsson. Honum er hins veg- ar talið það mjög til tekna, að hafa staðið heiðarlega að baráttunni um efsta sæti á lista flokksins. Haraldur og Finnur Ingólfsson eru taldir eiga svipaða möguleika á fyrsta sæti list- ans og áður en framboð Guðmund- ar G. kom fram var ríkjandi sátt um þessa tvo frambjóðendur í fyrstu tvö sætin. Finnur hefur unnið verulega á innan flokksins síðustu vikurnar, enda þótt eldra fólki í flokknum þyki stuðningsmenn hans hafa ver- ið full djarftækir í smölun ungliða inní FUF. Baráttuaðferðir Guðmundar G. Þórarinssonar eru harðlega gagn- rýndar innan flokksins og stuðn- ingsmenn hans og þeir frambjóð- endur sem hann hefur gert kosn- ingabandalag við eru óvirkir fram- sóknarmenn. Láta flokksstarfið lönd og leið, en leggja sig alla fram í prófkjöri. Guðmundur G. nýtur þess hins vegar, að Steingrímur Her- mannsson hefur sýnt honum mik- inn trúnað, sbr. setur Guðmundar G. í nefndum og ráðum hvers kyns. Til- finningarnar í garð hans eru því blendnar. „Ef Guðmundi G. Þórarinssyni tekst ætlunarverk sitt, að setja þá Harald Ólafsson og Finn Ingólfsson útí kuldann, þá býð ég ekki í Fram- sóknarflokkinn í Reykjavík í kosn- ingum," sagði forystumaður flokks- ins í Reykjavík í samtali við HP. Hann bætti því við, að með því væri þéttbýlissókn flokksins stefnt í voða — og prófkjör yrðu að öllum líkind- um lögð af hjá flokknum. Það gæti orðið hin eiginlega niðurstaða próf- kjörsbaráttunnar í Reykjavík. 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.