Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 21

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 21
eins og til að mynda þegar við Hope bjuggum í Hell’s-Kitchen-hverfinu á vesturhlið Manhattan, en eina ástæðan fyrir því að þar var lífvænlegt var sú að lögreglustöðin var á næsta horni." ÞÁTTUR AF HOPE Hope er eiginkona Guðna, Millington að eftir- nafni, og varð fundur þeirra í New York, þar sem hún starfaði sem fréttamaður Associated Press fréttastofunnar. Hvernig blessast hjónaband fréttamanns og fréttakonu? „Einstaklega vel,“ fullvissar Guðni mig um og prjónar aftan við, öldungis grafalvarlegur: „Ekki síst vegna þess að við þurfum aldrei að tala sam- an um neitt annað en fjölmiðla. Hins vegar er stundum rifist um ritvél heimilisins.” Hope er nú fréttaritari AP á íslandi og skrifar þar að auki fyrir Time tímaritið. Hún hefur einn- ig skrifað greinar fyrir Nýtt líf og er umsjónar- maður frétta á ensku í Ríkisútvarpinu. Ennfrem- ur lærir hún íslensku í Háskólanum. Blaða- mennska hefur lengi verið snar þáttur í lífi Hope, en hún ólst upp í Tælandi, þar sem foreldr- ar hennar voru blaðamenn og útgefendur. Hope segir að það hafi þess vegna verið sjálfsagt að giftast fréttamanni, sem hún gæti unnið með, þótt hún hafi ekki búist við því að það yrði á ís- landi! — Sígild spuming: huernig líkar Hope á ís- landi? „Prátt fyrir að ég hafi horfið úr góðu starfi í New York,“ svarar hún hreinskilnislega, „og far- ið til Islands, þá hafa mér gefist mörg skemmti- leg tækifæri á íslandi. Enginn bjóst við því að risaveldin tækju upp á því að halda leiðtogafund i Reykjavík og að hvalveiðideilan yrði svo hörð sem raun ber vitni. í AP-fréttum mínum frá ís- iandi hef ég reynt að sýna ísland sem land þar sem margt sem hefur alþjóðlega þýðingu er að gerast." Þar sem maður hefur oft heyrt sögur af erfið- leikum sem fylgja millilandahjónaböndum spyr ég þau Hope og Guðna hvort þau eigi við ein- hvern slíkan vanda að etja. Hope verður fyrri til að svara: „Að sjálfsögðu höfðum við nokkrar áhyggjur af því hvernig mér myndi líka á íslandi, en ég held að ég geti fullyrt að ég kann lífinu hér prýðilega og hef fært mér ýmislegt í nyt sem landið hefur upp á að bjóða, útivist, hesta- mennsku og svo framvegis." Hope keypti sér reyndar hest í sumar og þegar hann kemur úr haganum í desember býst Guðni ekki við að sjá hana meira. „Nema ég verði að Iáta mig hafa það að fylgja henni í einhverjum þessara ferða,” segir hann og örlar á angist í rómnum, „þó mér sé meinilla við að hossast á ferfætlingi yfir mýr- ar og móa. Eg verð bara sjóveikur af því að sitja á hesti. Og ef ég segi þér satt, þá er mér bölvan- lega við að fara út úr bænum, og hef aldrei gert það ótilneyddur.” HLÁTURSKAST FYRIR ALTARINU „En af því að þú spyrð hvernig útlendingi líki dvölin hérna, þá spyr ég á móti: hvernig líkar okkur íslendingum við landið okkar? Án þess að ég nenni að fara lengra út í þá sálma í augnablik- inu,“ segir Guðni „þá tel ég að það eina jákvæða við íslenskt samfélag sé að blessaðir stjórnmála- mennirnir okkar hafa séð fyrir því að allir þurfa að vinna svo mikla eftirvinnu að enginn hefur tíma til að láta sér leiðast." — En hvers vegna varstu ad koma heim. . .? „Það var í fyrrahaust, þegar ég var að fara ut- an til New York, að ég hringdi í Ingva Hrafn, sem þá var nýorðinn fréttastjóri á sjónvarpinu, og spurði hann hvort hann hefði áhuga á fréttaefni frá Bandaríkjunum. Hann réð mig umsvifalaust, en þá hafði ég aldrei hitt Ingva. Þetta er til marks um að Ingvi er maður sem getur tekið ákvarð- anir á staðnum, enda hefur hann breytt frétta- stofu sjónvarpsins meira á einu ári en mann hefði getað órað fyrir. Þegar til greina kom að ég færi á sjónvarpið hafði ég verið í New York í tvö ár og lokið MA- prófi í blaðamennsku frá New York háskóla; ég hafði hugsað mér að vera áfram þar ytra og jafn- vel að fara í doktorsnám. En við Hope ákváðum semsé að flytjast til íslands, sem var ekki síst mikil ákvörðun fyrir hana. Við létum gifta okkur í snatri, reyndar í lítilli kapellu sem J. Pierpoint Morgan hafði byggt sér til að ná sambandi við al- mættið og friðþægja fyrir syndir sínar." Guðni fullvissar mig um að þetta hafi verið mjög skemmtilegt brúðkaup. „Við fengum hláturskast fyrir aitarinu, vegna þess að presturinn, mikill sérvitringur, hélt gleraugunum sínum saman með stórum bréfklemmum sem voru eins og horn á honum. Undir lokin vorum við öll skelli- hlæjandi, brúðhjónin, prestur ogsvaramenn. En á bak við okkur grét fjölskylda Hope fögrum tár- um yfir öllu þessu guðleysi og að sjálfsögðu einnig vegna þess að verið var að glata dóttur- inni til þessa hryllilega lands." — Eitt orö um pólitíkina, Gudni! Er fréttastofa sjónvarpsins frambodsskóli, eins og stundum heyrist fleygt? „Ef þú ert að fiska eftir því hvar ég stend í póli- tík, þá get ég sagt þér að ég er fremur tortrygg- inn í garð allra félaga, flokka, stofnana, rótgró- inna stjórnmálasamtaka og allra sem reyna að marka sér lítinn bás í kerfinu, sem ekkert kemst framhjá. Þess vegna dáist ég að þeim sem reyna Guðni Bragason sjónvarps- fréttamaður í HP-viðtali að sprengja rótgróinn valdastrúktúr, eins og framboði kvenna, sem gáfust upp á því að reyna að koma sínum stefnumálum í gegnum karla- flokkana." ENGINN LENGURÁ SVITASKYRTUNNI „Þegar ég var í Þýskalandi var mjög fróðlegt að fylgjast með því hvernig flokkakerfið riðlað- ist með uppgangi umhverfisverndarmanna. Eg fylgdist með kosningunum í Vestur-Þýskalandi í Bonn árið 1983, þegar ég var fréttaritari út- varpsins. Það var eftirminnileg reynsla á kosn- inganóttina að fara á milli kosningahátíða flokk- anna og sjá vonbrigðin hjá krötunum, snyrtileg- heitin hjá kristilegum og fara síðan á kosninga- hátíð græningjanna, sem var nokkurs konar rokk-pönk-uppákoma. Sama var upp á teningn- um í þinginu þegar umhverfisverndarmenn tóku sæti þar. Það fór kaldur hrollur um margan þingmanninn þegar aðskiljanlegasta fólk tók sæti á þinginu; sandalahippar og ýmiss konar fúndamentalistar, sem kannski af prinsip-ástæð- um höfðu ekki farið í bað árum saman." Guðni byrjaði í blaðamennsku í fríum frá há- skólanáminu í Múnchen og vann þá á blöðunum uppi í Síðumúla, Þjóðviljanum, Vísi og svo DV. Hann álítur það vera ágætis reynslu fyrir ný- græðinga að skrifa hina og þessa ógæfulega pósta, sem þykir svo sjálfsagt að láta sumar- menn gera. „Það kennir manni að blaða- mennska er ekki bara að skrifa það sem er skemmtilegt,” segir hann og bætir við að hann myndi engum ráðleggja að fara í fjölmiðlanám án þess að hafa fyrst kynnst vinnuaðstæðunum á blöðunum. „Það ætti að vera næg lexía fyrir suma til að leita sér að annarri vinnu og fyrir aðra að vilja gera þetta að ævistarfi. Fyrir nýliða er þannig að menn eru látnir læra af mistökun- um, varpað ósyndum í laugina. Ég man ekki eft- ir að nokkur hafi sagt mér til, nema ef vera skyldi Sæmundur Guðvinsson. Er bað var gott lið á þessum blöðum og sumt af því hefur unnið með mér á útvarpinu þar sem ég vann þrjú sum- ur, og hjá sjónvarpinu." — Nú er sjónvarpiö ödru vísi fjölmidill en blödin og fólk veltir ákaft fyrir sér útliti og klœdaburdi fréttamanna. Finnst þér ekki aö þar tröllríöi nokkurs konar fatadella? „Framkoma í útsendingu og klæðaburður er aðeins þáttur í framsetningu fréttarinnar eða upplýsinganna og skiptir engan veginn megin- máli, en er samt sem áður hluti af heildinni. Þetta er veigamikið atriði vegna þess að hér er um að ræða myndmiðil. Svo er það að athuga að mikilvægt er að mótuð sé stefna að því er snertir útlit fréttaútsendingarinnar, rétt eins og „lay-out" á tímariti. Mér finnst að okkur á frétta- stofunni hafi tekist vel upp í því að móta yfir- bragðið sem fréttaútsendingin hefur á sér núna. Um sjálfan mig vil ég aðeins segja það að ég er alls ekki stertimenni, þótt fyrr hengi ég mig í eigin bindi en að ég láti grípa mig bindislausan í útsendingu. Það var aðallega á síðasta áratug að fréttamenn voru beinlínis á svitaskyrtunni, eins og nóbelsskáldið kallar það, í útsendingu. Núna er öldin önnur." — Lokaspurningin: hvaö nœst? Guðni Bragason hugsar sig um stundarkorn áður en hann segir: „Eg hefði ekki komið heim og farið að vinna á sjónvarpinu nema upp á þau býti að vera þar í langan tíma. Það kostar tíma og mikla vinnu að verða góður fréttamaður og sjónvarpsmaður — og mér finnst ég enn eiga langt í land."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.