Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 23
HVAÐ KOSTAR
AÐ KOMA UPP ÍBÚÐ?
Sá tími mun liöinn að fólk lét sér
nœgja ad gefa kerti og spil í gjafir á
jólunum. Nú þykir ekki merkilegt ad
barnanna btdi skrifborb og stóll
vandlega falib í þvottahúsinu,
frúnni bregbur ekkert mjög mikið
þótt nýr bíll standi fyrir utan húsib á
abfangadag og húsbóndinn brosir
bara góblátlega og segir ab „þetta
hafi nú verib óþarfi" þegar ledur-
klœddur húsbóndastóll stendur
slaufum skreyttur í húsbóndaher-
berginu.
HVAÐ KOSTAR AÐ
KOMA UPP 90 M2
ÍBÚÐ?
Kannski er þessi formáli bara ýkj-
ur einar og það má vel vera að enn-
þá séu til fjölskyldur sem gefa litlar
og látlausar gjafir á jólum. En það er
þó staðreynd að fyrir jólin koma
margir því í verk sem trassað hefur
verið allt árið, láta mála heimilið,
teppaleggja eða kaupa húsgögn.
Það er til dæmis ekki út í hött að
ætla að nokkrar fjöiskyldur muni í
ár láta verða af því að kaupa hús-
gögn á heimilið og gefa kannski
þannig hvort öðru jólagjöf. En hvað
skyldi kosta að koma upp íbúð nú til
dags?
Það var ekki hlaupið að því að
finna fólk sem var reiðubúið að
hleypa okkur inn í einkalíf sitt og
leyfa okkur að fylgjast með þegar
íbúð er gerð upp. Þá komu Stella og
Stulli til sögunnar — og þau björg-
uðu málunum. Stella og Stulli eru
nefnilega að flytja heim eftir búsetu
og störf erlendis og þau eru með sex
ára dóttur en engin húsgögn. I gegn-
um kunningsskap fengu þau leigða
þriggja herbergja íbúð á góðu verði,
með þeim skilmálum þó að mála
hana og teppaleggja því íbúðin er
heldur illa farin. Stulla finnst nú ekki
mikið mál að bjarga við málun á
níutíu fermetra íbúð nema hvað
hann hefur ekki hugmynd um
hvaða verkfæri hann þarf að eiga né
heldur hversu mikil málning fer á
slíkan flöt.
Stella hefur sat að segja minnstar
áhyggjur af veggjunum, hennar
Itexti: Anna Kristine Magnúsdóttir teikningar: Jón Óskarl
vegna mega þeir vera áfram í fjólu-
bláu og bleiku litunum. Hún hefur
mun meiri áhyggjur af því á hverju
þau eiga að sitja og so.',. og að ætlast
til að sex ára dóttirin sofi á dýnu er
alveg hreint út í hött. Stella er góðu
vön frá æskuárunum og segist ekki
fá inn á sitt heimili nema það sem
nýtt er og smart.
Stefanía, móðir Stellu leitaði til
þriggja húsgagnaverslana á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og spurðist
fyrir um meöalverb á húsgögnum.
Þetta voru húsgagnaverslanirnar
CASA, BÚSTOFN og IKEA og starfs-
fólk þar brást fljótt og vel við beiðn-
inni.
MÁLAÐ FYRIR
13.000.- KR.
Ásgeir Hólm í versluninni „Málar-
inn“ tók einnig vel í þá bón að
reikna út hvað málning myndi
kosta, jafnframt því sem hann veitti
Stefaníu upplýsingar um það hvað
þurfi að eiga þegar málningarvinna
hefst. En hvaða litir eru í tísku? var
næsta spurning því ekki er nóg að
húsgögnin séu falleg, litur íbúðar-
innar verður að vera í samræmi við
þau. Ásgeir sagði alla ljósa liti vera
í tísku um þessar mundir og mest
væri tekið af hrímhvítum og hjarn-
hvítum litum. Benti hann jafnframt
HELGARPÓSTURINN 23