Helgarpósturinn - 27.11.1986, Síða 46
HBLGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 28. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli.
18.00 Litiu prúðuleikararnir.
18.25 Stundin okkar.
19.00 Spítalalíf.
19.30 Fréttir.
20.10 Sá gamli.
21.10 Rokkarnir.
21.35 Þingsjá.
21.50 Kastljós.
22.40 Á götunni ★★★ (Blue Knight).
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1973.
Leikstjóri Robert Butler. Aðalhlutverk:
William Holden og Lee Remick.
00.20 Dagskrárlok.
Laugardagur 29. nóvember
14.25 Þýska knattspyrnan — Bein út-
sending. Gladbach—Köln.
16.20 Hildur.
16.45 íþróttir.
18.25 Fróttaágrip á táknmáli.
18.30 Ævintýri frá ýmsum löndum.
19.00 Stóra stundin okkar.
19.30 Fróttir.
20.10 Undir sama þaki. — Þáttur úr gam-
anmyndaflokki frá 1977. Leikstjóri
Hrafn Gunnlaugsson.
20.45 Klerkur í klípu.
21.10 Aftanstund með Elvis Presley.
22.10 Dóttir Ryans ★★★ (Ryans's Daught-
er). Bresk verðlaunamynd frá 1970.
Leikstjóri David Lean. Aðalhlutverk:
Sarah Miles og Robert Mitchum.
Myndin gerist í írsku þorpi árið 1916.
01.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur 30. nóvember
13.30 Bikarkeppni Sundsambands Is-
lands. Bein útsending.
14.50 Sunnudagshugvekja.
15.00 Wolfgang Amadeus Mozart V.
18.05 Stundin okkar.
18.35 Kópurinn.
19.00 Iþróttir.
19.30 Fróttir.
20.05 Meistaraverk.
20.15 Geisli.
21.10 Wallenberg — Hetjusaga. Nýr
flokkur — Fyrsti þáttur. Aöalhlutverk:
Richard Chamberlain, Alice Krige,
Kenneth Colley og Bibi Andersson.
22.00 Mannskaðatindur. Bandarískheim-
ildarmynd um fjall í Pakistan sem hef-
ur orðið fjallgöngumönnum torsótt.
22.55 Kvöldstund með Eddu Erlends-
dóttur.
23.50 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 27. nóvember
20.00 Fróttir.
20.30 Bjargvætturinn.
21.15 Tfska.
21.40 Eltingarleikur (Chase) ★. Bandarísk
kvikmynd frá CBS sjónvarpsstöðinni.
Aðalhlutverk Jennifer O'Neill og
Richard Farnsworth.
23.10 Frægð og fegurð ★ (Rich and
Famous). Bandarísk kvikmynd frá
1981 með Candice Bergen og Jacq-
ueline Bisset í aðalhlutverkum.
00.40 Guðfaðirinn er látinn ★★ (The Don
Is Dead). Bandarísk kvikmynd frá .
1973 með Anthony Quinn í aðalhlut- •
verki.
02.15 Dagskrórlok.
Föstudagur 28. nóvember
17.30 Myndrokk.
18.30 Teiknimynd.
19.00 Einfarinn.
20.00 Fróttir.
20.30 Innlendur þáttur.
20.50 Spóspegill.
21.20 Leiktímabilið ★★ ($ 1.000.000
Infield). Bandarísk sjónvarpsmynd
með Rob Reiner, Bob Constanzo,
Christopher Guest og Bruno Kirby.
22.50 Benny Hill.
23.15 Hernaðarleyndarmól ★★ (Top
Secret).
00.45 Hið yfirnáttúrulega ★★ (The
Keep). Bandarísk kvikmynd frá 1983.
02.15 Myndrokk.
05.00 Dagskrórlok.
Laugardagur 29. nóvember
16.30 Hitchcock.
17.15 Allt er þó þrennt er.
17.40 Undrabörnin.
18.25 Teiknimyndir.
19.05 Allt í grænum sjó.
20.00 Fróttir.
20.30 Undirheimar Miami.
21.15 Ástarsaga ★★ (Love Story). Banda-
rísk kvikmynd frá 1970 með Ryan
O'Neal og Ali MacGraw í aðalhlut-
verkum.
22.45 Ástarþjófurinn ★★ (Thief of
Hearts). Mynd þessi frá 1984 er um
draumóra ungrar giftrar konu.
00.25 Tilgangur Iffsins ★★★ (Meaning of
Life). Bresk kvikmynd frá 1983, gerð
af hinum margfræga Monty Python-
hópi í London.
02.15 Myndrokk.
05.00 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur 27. nóvember
19.00 Fróttir.
19.40 Daglegt mól.
19.45 Að utan.
20.30 Frá tónleikum sinfónfuhljóm-
sveitar (slands f Hóskólabíói.
21.20 Sumarleyfi í skammdeginu.
22.20 Fimmtudagsumræöan.
23.10 Kammertónlist.
24.00 Fróttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 28. nóvember
06.45 Bæn.
07.03 Morgunvaktin.
07.20 Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson
flytur þáttinn.
09.03 Morgunstund barnanna.
09.45 Þingfróttir.
10.30 Sögusteinn.
11.03 Samhljómur.
12.20 Fróttir.
14.00 Miödegissagan.
14.30 Nýtt undir nóiinni.
15.20 Landpósturinn.
16.20 Barnaútvarpið.
17.03 Sfðdegistónleikar.
17.40 Torgið — Menningarmál.
18.00 Þingmól.
19.00 Fróttir.
19.30 Daglegt mól.
19.35 Lestur úr nýjum barna- og ungl-
ingabókum.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Sfgild dægurlög.
22.20 Vfsnakvöld.
23.00 Frjólsar hendur llluga Jökulssonar.
00.05 Næturstund í dúr og moll.
01.00 Dagskrórlok.
MEÐMÆU
Elvis-aðdáendur geta auð-
veldlega sleppt sér framan
við ríkis-imbann á laugar-
dagskvöld. Wallenberg-þátt-
urinn á sunnudagskvöld er
hugnæmur. Að loknum
Stöðvar-fréttum á föstudags-
kvöld, gefst að kíkja á fyrstu
innlendu dagskrárgerðina
þaðan. Stöllurnar Jónína
Leósdóttir og Ragnheiður
Davíðsdóttir klikka hvorugar
á sitthvorri bylgjulengdinni.
Munið svo þátt Sigurðar
Skúlasonar um Örju Saijon-
maa á Rás 2, seinast á
fimmtudagskvöid.
Laugardagur 29. nóvember
06.45 Bæn.
07.03 „Góðan dag, góöir hlustendur".
Pétur Pétursson sór um þáttinn.
09.30 í morgunmund. Þáttur fyrir börn í
tali og tónum.
10.25 Morguntónleikar.
11.00 Vfsindaþátturinn.
11.40 Næst á dagskró.
12.00 Hór og nú.
14.00 Sinna. Þáttur um listir og menningar-
mál.
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líðandi stund.
16.20 Barnaleikrit: ,,Júlfus sterki" eftir
Stefán Jónsson.
17.00 Aö hlusta á tónlist.
18.00 íslenskt mál.
19.00 Fróttir.
19.35 „Hundamúllinn", gamansaga eftir
Heinrich Spoerl.
20.00 Harmonfkuþáttur.
20.30 Bókaþing.
21.00 íslensk einsöngslög.
21.20 Um nóttúru íslands.
22.20 Mannamót. Leikið á grammófón og
litið inn á samkomu.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrórlok.
Sunnudagur 30. nóvember
08.00 Morgunandakt.
08.30 Lótt morgunlög.
09.05 Morguntónleikar.
10.25 Út og suöur.
11.00 Messa í Akraneskirkju.
12.20 Fróttir.
13.30 Sólborgarmól.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.10 Sunnudagskaffi.
16.20 Fró útlöndum.
17.00 A tónleikum hjó Ffiharmonfusveit
Berlínar.
18.00 Skóld vikunnar.
19.00 Fróttir.
20.00 Ekkert mól fyrir ungt fólk.
21.00 Hljómskólamúsfk.
21.30 Útvarpssagan.
22.20 Norðurlandarósin.
23.20 í hnotskurn.
00.05 Á mörkunum. Þáttur með léttri tón-
list í umsjá Jóhanns Ólafs Ingvasonar
og Sverris Páls Erlendssonar.
00.55 Dagskrórlok.
áir
Fimmtudagur 27. nóvember
20.00 Vinsældalisti rásar tvö.
21.00 Gestagangur.
22.00 Rökkurtónar.
23.00 Arja. Þáttur um finnsku söngkonuna
örju Saijonmaa í umsjá Sigurðar
Skúlasonar.
24.00 Dagskrárlok.
Föstudagur 28. nóvember
09.00 Morgunþáttur.
12.00 Hádogisútvarp.
13.00 Bót í máli.
15.00 Fjör ó föstudegi.
16.00 Endasprettur.
20.00 Tekið á rás.
22.00 Kvöldvaktin.
23.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 29. nóvember
09.00 óskalög sjúklinga.
10.00 Morgunþáttur.
12.03 Hádegisútvarp.
13.00 Listapopp.
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Tveir gítarar, bassi og tromma.
18.00 Fróttir ó ensku.
20.00 Kvöldvaktin.
23.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrórlok.
Sunnudagur 30. nóvember
13.30 Krydd í tilveruna.
15.00 66. tónlistarkrossgátan.
16.00 Vinsældalisti rásar tvö.
18.00 Dagskrárlok.
JBYLGJANi
Fimmtudagur 27. nóvember
20.00 Jónfna Leósdóttir ó fimmtudegi.
21.30 Spurningaleikur Bylgjunnar.
23.00 Vökulok.
24.00 Inn í nóttina með Bylgjunni.
Föstudagur 28. nóvember
06.00 Tónlist í morgunsárið.
07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas-
syni.
09.00 Póll Þorsteinsson á léttum nót-
um.
12.00 Á hódegismarkaði.
14.00 Pótur Steinn ó róttri bylgjulengd.
17.00 Hallgrfmur Thorsteinsson í
Reykjavfk sfðdegis.
19.00 Þorsteinn J. Vilhjólmsson kannar
hvað næturlífið hefur að bjóða.
22.00 Jón Axel Ólafsson, nátthrafn
Bylgjunnar.
03.00 Næturdagskró Bylgjunnar.
Laugardagur 29. nóvember
08.00 Valdís Gunnarsdóttir leikur tón-
list úr ýmsum áttum.
12.00 Jón Axel á Ijúfum laugardegi.
15.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
17.00 Vilborg Halldórsdóttir á laugar-
degi.
18.30 í fróttum var þetta ekki helst.
19.00 Rósa Guðbjartsdóttir leikur tón-
list og spjallar viö gesti.
21.00Anna Þorláksdóttir í laugardags-
skapi.
23.00 Þorsteinn Ásgeirsson og Gunnar
Gunnarsson. Nátthrafnar Bylgjunn-
ar.
04.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Sunnudagur 30. nóvember
08.00 Fréttir og tónlist í morgunsárið.
09.00 Jón Axel ó sunnudagsmorgni.
11.00 I fróttum var þetta ekki helst. End-
urtekið.
11.30 Vikuskammtur Einars Sigurðs-
sonar.
13.00 Helgarstuð með Hemma Gunn.
15.00 Þorgrímur Þráinsson í léttum leik.
17.00 Rósa Guðbjartsdóttir leikur ró-
lega sunnudagstónlist.
19.00 Valdfs Gunnarsdóttir á sunnu-
dagskvöldi.
21.00 Popp ó sunnudagskvöldi.
23.30 Jónfna Leósdóttir. Endurtekið frá
fimmtudagskvöldi.
UTVARP
effir Helga Má Arthúrsson
Einlœgni og auglýsingar
SJÓNVARP
Fyrirmyndarþáttur
Timburmönnunum er aö ljúka. Menn
eru að ná áttum eftir fjöimiölasprenging-
una, sem átti sér stað á fyrstu haustdögum.
Ríkisútvarpið virðist vera að ná sér eftir þá
óvæntu samkeppni, sem forsvarsmenn
stofnunarinnar bjuggu sig ekki nægilega
vei undir. Menn finna það í loftinu. Osjálf-
rátt lætur maður Rás I mala áfram og skipt-
ir ekki yfir á Bylgjuna. í stað þess að hlusta
á fréttir þeirrar stöðvar les maður blöðin
frekar en að heyra fréttamenn þar lesa
upphátt úr þeim.
I svefnrofunum einn laugardagsmorgun
heyrði ég útundan mér, að Stefán Jökuls-
son var með vísindaþátt. Ég sperrti eyrun.
Lagði við hlustirnar — og vaknaði. Hann
var að ræða við Ólaf Guðmundsson, verk-
fræðing útvarpsins, um bylgjur. Lang-
bylgju, miðbylgju, stuttbylgju og jafnvel ör-
bylgjur. Þetta, ásamt öðru því sem boðið er
uppá í þætti þessum, er stórskemmtilegt og
fræðandi. Annað en beljandi poppkúltúr-
inn sem tröllríður Rás II og Bylgjunni.
Fréttir á Rás I — kvöldfréttir — hafa skán-
að mjög eftir að ráðist var í magasínþátt
þann sem nú er sendur út. Þar fyrir utan
hefur fréttastofan tekið upp nýtt fyrir-
komulag hádegisfrétta á laugardögum sem
ættu að geta orðið góðar, ef menn halda
rétt á spilunum og leggja í þáttinn yfirburði
þá, sem fréttastofan getur haft gagnvart
Bylgju og sjónvarpsstöðvum. Það kostar
hins vegar vinnu — mannskap. Þar ætti
Ríkisútvarpið að standa öðrum á sporði.
Nýjar stöðvar. Fleiri miðlar ættu að hafa
í för með sér breytingu á fréttaflutningi.
Opnari fréttaflutning. Hin harða frétta-
mennska sem boðuð var hefur enn ekki
séð dagsins ljós. Og er það miður. Það er
miður vegna þess hlutverks sem fjölmiðlar
verða að leika í lýðræðisþjóðfélagi. Hver á
að vera í aðhaldshlutverkinu, ef ekki fjöl-
miðlar? Ef til vill má rekja þetta til ófrelsis
frjálsu stöðvanna gagnvart fyrirtækjum og
hagsmunahópum sem hafa tekið sér það
fyrir hendur, að koma frjálsu stöðvunum á
fót. En talandi um frelsi — og frjálsar stöðv-
ar.
Jónínu Leósdóttur, Ólafi Ragnari Gríms-
syni og Guðrúnu Þorbergsdóttur var end-
urvarpað aðfaranótt mánudags á Bylgj-
unni. Jónína ræddi við hjónin Ölaf Ragnar
og Guðrúnu í stórskemmtilegum samtals-
þætti. Þar heyrðu menn í öðrum Ólafi
Ragnari. Eiginmanninum, föðurnum, ein-
staklingnum. Ekki stjórnmálamanninum.
Og mikið eru stjórnmálin slæm, hugsaði
ég, þar sem ég hlustaði á Ólaf Ragnar. Guð-
rún Þorbergsdóttir sagði frá af mikilli al-
vöru draumum og vonum sjómannsdóttur-
innar, sem beið eftir föður sínum, enda þótt
hún vissi að hann kæmi aldrei aftur. Hafið
hafði tekið sinn toll. Auglýsingu var skotið
inní þessa alvarlegu og einlægu frásögn
Guðrúnar á skerandi hátt. Og maður upp-
götvaði með áþreifanlegum hætti að aug-
lýsingar og einlægni eiga ekkert sameigin-
legt.
Stöð 2 er byrjuð á því að senda út innlent
dagskrárefni. A sunnudagskvöld var Jón
Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri t.d. með
þátt um nýútkomnar góðbókmenntir með
viðtölum við höfunda, upplestri höfunda
með skemmtilegum myndskreytingum
Hilmars Oddssonar kvikmyndagerðar-
manns. Þessi þáttur er einhver allra bezti
þátturinn um menningarmál, sem undirrit-
aður hefur séð í íslenzku sjónvarpi.
Jón Óttar ræddi vandlega við bókarhöf-
undana, í spurningum hans gætti vel
grundaðrar gagnrýni og af viðtölunum var
ljóst, að stjórnandi þáttarins hafði lesið
bækurnar af gaumgæfni. Um það báru
spurningarnar vott, en fram til þessa hefur
það stundum hvarflað að manni, að lestur-
inn hafi stundum mætt afgangi hjá spyrj-
endum, svo merkilegt, sem það kann að
vera.
Viðtöl Jóns Óttars veittu áhorfendum all-
góða innsýn í þær bækur, sem voru til um-
fjöllunar og honum tókst jafnframt að fjalla
um bókmenntir án þess, að samtölin færu
fyrir ofan garð og neðan með háfleygu
hjali sem alltof oft vill eyðileggja uppbyggi-
lega og skemmtilega umræðu um þann
sprelliifandi veruleika sem er að finna á
milli bókarspjaldanna og lifir okkur öll.
Skemmtilegast var samtal Jóns Óttars
við Matthías Johannessen ritstjóra Morg-
unblaðsins og skáld. í langflestum verka
Matthíasar gægist fram sá mannlegi „borg-
araismus" ritstjórans og skáldsins, en samt
miklu sterkar í viðtölum við hann. í viðtal-
inu á Stöð 2 var Matthías í stuði og hörð-
ustu kommar hljóta að hafa hrifizt af þeirri
einlægni, sem fram kom í ástarjátningu
hans til borgaralegra gæða.
Hvað um það. í lok þáttar dró Jón Óttar
saman kosti og galla hverrar bókar fyrir sig
og gaf þeim einkunnir með stjörnum.
Hann rökstuddi val sitt og mat og komst
óskaddaður frá þessu djarfa tiltæki, sem
stjörnugjöf hlýtur að teljast.
Innlend dagskrárgerð Stöðvar 2 fór sem-
sé mjög vel á stað og verði framhald á má
ríkissjónvarpið fara að vara sig.
Rétt er að minnast hér lítillega á nýjan
fréttatengdan þátt, sem hóf göngu sína á
þriðjudagskvöld, Návígi, undir stjórn Páls
Magnússonar. Þar var þeim félögum Svav-
ari og Jóni Baldvin stillt upp gegnt hvorum
öðrum og síðan sett í gang hanaat. Mikið
raupað en fátt um marktæk svör eða yfir-
lýsingar, ef undan er skilin yfirlýsing Jóns
Baldvins um, að kosningabandalag fyrir
kosningar kæmi ekki til greina og svo svar
Svavars við spurningunni um það hvort
hann væri krati eða kommi, að hann væri
„jafnaðarsinni". Nýtt hugtak, nýr stimpill í
íslenzka pólitík, gjörið þið svo vel.
46 HELGARPÓSTURINN