Helgarpósturinn - 02.04.1987, Page 9
HLUTAFJÁRÚTBOÐ ARNARFLUGS
MAT FORRÁÐAMANNA ARNARFLUGS Á
MARKAÐSVERÐI BOEING 737 MILLJÓN DOLL-
URUM OF HÁTT
YFIRLÝSINGAR UM „VÆNTANLEGAN HAGN-
AÐ AF KAUPUM" VÉLARINNAR ÚR LAUSU LOFTI
GRIPNAR
TAPAÐAR ÚTISTANDANDI SKULDIR OG KYRR-
SETTIR FJÁRMUNIR INNI í EIGINFJÁRREIKNING-
UM
Steingrímur Hermannsson, forsætisráö-
herra. Framkvæmdasjóöur Islands er nú
bundinn í báða skó vegna taprekstrar Ála-
foss og Arnarflugs, tveimur árum eftir aö
sjóðurinn var settur undir stjórn Stein-
gríms í forsætisráðuneytinu.
hafi í félaginu taldir upp: í fyrsta lagi
góð kjör á skuldabréfum, vegna
fyrirgreiðslu Framkvæmdasjóðs. í
öðru lagi var hluthöfunum lofað
eins konar klúbbaðild, með ýmiss
konar fríðindum. í þriðja lagi var
starfsvettvangi féiagsins lvst. Og í
fjórða lagi voru yf irlýsingar forráða-
manna Arnarflugs um hina „duldu
eign“ félagsins í Boeing 737-205 C
sem félagið er með á kaupleigu-
samningi settar fram þannig að
„væntanlegur hagnaður af kaupun-
um“ eftir tvö ár yrði 160 milljónir
króna.
Eiginfjárstaðan sem verður enn
neikvæð eftir hlutafjárútboðið er
með þessu bætt upp með „hugsan-
legum hagnaði" af flugvélakaupum
eftir tvö ár.
Útreikningur félagsins á þessu
dæmi hljóðar svo:
Gert er ráð fyrir að markaðsverð
þessarar vélar sé í dag 8,5 milljónir
dollara. Eftir tvö ár býðst Arnarflugi
að kaupa vélina á 4,5 milljónir doll-
Höröur Einarsson, stjórnarformaður Arn-
arflugs. Hann setti fyrst fram kenninguna
um „væntanlegan hagnað" af kaupum á
Boeingvélinni í Morgunblaðinu 26. mars
síðastliðinn. Þessi kenning virðist nú vera
það eina sem forráðamenn félagsins
treysta sér til að selja.
ara. Mismunurinn er því 4 milljónir
dollara og þegar búið er að marg-
falda það með áætluðu gengi dollar-
ans í 40 krónum, koma út 160 millj-
ónir króna.
Helgarpósturinn innti Kristin Sig-
tryggsson framkvæmdastjóra eftir
því í gær, hvort félagið byggði mat
sitt á markaðsverði vélarinnar í
dag á mati flugvélamiðlara. Kristinn
sagði svo ekki vera. Hins vegar
hefðu starfsmenn félagsins fylgst
vel með verðþróun á þessum vélum
að undanförnu.
VERÐ FLUGVÉLARINNAR
OFMETIÐ UM MILLJÓN
DOLLARA
Helgarpósturinn leitaði því til
Avmark Services Limited, sem er
fyrirtæki sem gefur út skrár unnar
úr sölusamningum á flugvélum um
allan heim. Gary Gerard, starfsmað-
ur þess félags, sagði markaðsverð á
samskonar vélum, með samskonar
hreyfla og Arnarflugsvélin, vera
Kristinn Sigtryggsson, framkvæmda-
stjóri Arnarflugs. Tekst honum aö koma
Arnarflugi aftur á flug eftir margfaldar
brotlendingar síðustu ára? Það veltur á
hvernig hlutafjárútboðið gengur. Það er
lífsnauðsyn fyrir félagið. En þegar þvl er
lokið hefur félagið enn neikvæða eigin-
fjárstöðu um 120 milljónir króna.
mjög misjafnt. Ef hreyflarnir væru
gamlir mætti gera ráð fyrir að vélin
seldist á um 6.127 þúsund dollara. Ef
þeir væru hins vegar nýir mætti
reikna með verði á bilinu 7—7,5
milljónir dollara.
Varðandi verðþróun næstu ára
sagði Gary að verðið héldist að öll-
um líkindum út þetta ár og hækkaði
jafnvel lítillega. Þegar hins vegar
300 og 400 „seríurnar" af Boeing
737 færu að hafa áhrif á markaðinn
mætti gera ráð fyrir að verðið félli.
Hann spáði því að eftir 5 ár hefði
verðið á vélum eins og Arnarflugs-
vélinni lækkað um 20% frá því það
er í dag.
Upplýsingar Avmark stangast
töluvert á við það markaðsverð sem
Arnarflugsmenn greina frá. Sömu-
leiðis upplýsingar sem gefnar eru
upp um verð þessara véla í The Air-
liner Price Guide fyrir veturinn
1987. Þar eru þessar vélar metnar á
tæplega 7,5 milljónir dollara. Af
Auglýsing Arnarflugs um hlutafjárútboð-
iö. Fyrir utan inngöngu (ferðaklúbb hefur
félagiö ekkert aö bjóöa væntanlegum
hluthöfum, annað en kenningu Harðar
Einarssonar um „væntanlegan hagnað"
af kaupum á Boeingvélinni.
þessum tveimur aðilum, verður að
telja Avmark áreiðanlegri.
Ef upplýsingar þeirra eru bornar
saman við uppgefnar tölur frá Arn-
arflugi kemur í ljós að þar skeikar
1—1,5 milljónum dollara. Rétt er að
benda á að eftir C-skoðun á vél Arn-
arflugs í Dublin, sem stendur nú yfir
verða báðir hreyflar vélarinnar nýir
eða nýlegir. Hér er því miðað við
markaðsverð frá Avmark á vélum
með nýja hreyfla.
Ef markaðsverðið frá Avmark er
sett inn í dæmið í auglýsingunni
verður „væntanlegur hagnaður af
kaupunum“ á Boeingvélinni á bilinu
97—117 milljónir króna (miðað við
gengi dollara: 39 krónur), en ekki
160 milljónir króna, eins og segir í
auglýsingunni.
Að markaðsverðinu slepptu er
annað athyglisvert í þessu reikn-
ingsdæmi sem Arnarflugsmenn
hafa margsinnis endurtekið í fjöl-
miðlum. Þeir greina ekki frá því að
félagið á enn eftir að greiða leigu fyr-
ir þessa vél í tvö ár. Ársleigan er
1.326 þúsund dollarar. Leiga í tvö ár
er því tæplega 103,5 milljónir
króna.
Ef leigu næstu tveggja ára er bætt
við kaupverð Arnarflugs á vélinni
eftir 2 ár, er kaupverðið orðið 7.152
þúsund dollarar. Það er ekki ýkja
fjarri því markaðsverði sem Helgar-
pósturinn fékk uppgefið hjá Av-
mark, sérstaklega í Ijósi spár Gary
Gerard á verðþróun næstu ára. Því
má allt eins gera ráð fyrir engum
hagnaði af kaupum Arnarflugs á
Boeing 737-205 C. Alla vega er það
mun raunsærra í ljósi þessara upp-
lýsinga, en að gera ráð fyrir 160
milljón króna hagnaði eins og gert
er í auglýsingunni og yfirlýsingum
forráðamanna Arnarflugs.
Þá má benda á að þessi kaupleigu-
samningur Arnarflugs er félaginu
ekki ýkja hagstæður í dag. Leigan
sem félagið borgar er ekki nema lít-
illega undir hæstu leigugjöldum i
dag, þrátt fyrir að verð pg leiga á
flugvélum hafi ekki verið jafn hátt í
langan tíma. Það skapast af lágu
eldsneytisverði og góðri afkomu
flugfélaga. Skilyrðum sem Arnar-
flugi, öfugt við Flugleiðir, hefur ekki
tekist að nýta sér.
SPILIN Á BORÐIÐ!
Þegar framsetning auglýsingar
Arnarflugs um hlutafjárútboðið er
lögð við grein Gísla Maack, fyrrver-
andi verkefnastjóra félagsins, er
ljóst að forráðamenn félagsins þurfa
að gera hreint fyrir sínum dyrum.
Betur en þeir hafa hingað til gert, þó
svo „hreinskilni" Harðar Einars-
sonar stjórnarformanns, hafi orðið
tilefni leiðaraskrifa Morgunblaðs-
ins.
Slík krafa þarf ekki einungis að
koma frá væntanlegum hluthöfum.
í ljósi skuldbindinga ríkisins vegna
rekstrar félagsins eiga skattborgar-
ar heimtingu á greinargóðum upp-
lýsingum um stöðu félagsins. Öfugt
við tilvonandi hluthafa geta þeir
ekki sjálfum sér um kennt ef skolla-
eyrum er skellt við gagnrýni sem
komið hefur fram.
HELGARPÖSTURINN 9