Helgarpósturinn - 02.04.1987, Síða 12
FRÖNSK KVIKMYNDAVIKA
Dagana 4.—10. apríl verdur í
Regnboganum haldin frönsk kvik-
myndavika. Þad er Háskólabíó sem
stendur að þessari viku ásamt Alli-
ance Francaise og Unifrance Film
International í samvinnu við
franska sendiráðið. Á hátíðinni
verða sýndar 9 myndir, allar nýjar
og nýlegar, sú elsta frá 1985 og að
sögn þeirra sem til þekkja þá er hér
á ferð rjóminn af franskri kvik-
myndagerð síðustu ára. Sannarlega
gleðitíðindi.
Meðal mynda á hátíðinni er ein
sem heitir Therese, eftir leikstjór-
ann Alain Cavalier. Þessi mynd sóp-
aði til sín verðlaunum, César-verð-
launum, sem eru franska hliðstæð-
an við Óskarsverðlaunin banda-
rísku, hún fékk 6 verðlaun m.a. sem
besta myndin. Að auki fékk myndin
sérstök verðlaun á Cannes-hátíðinni
í fyrra, ásamt Mission eftir Roland
Joffe og Fórninni eftir Tarkowsky en
sem kunnugt er fór Guðrún Gísla-
dóttir með stórt hlutverk í þeirri
mynd. Myndin segir frá ungri konu
Daihatsu-umboðið, Ármúla 23, 108 Reykjavík
S: 91 -681733 S:91 -685870
Akureyri
Bílvirki sf.
Fjölnisgata 6B
S: 96-23213
Njarðvík
Daihatsu-salurinn
v/Reykjanesbraut
S: 92-1811
Ofangreint verð er staðgreiðsluverð og án ryðvarnar og skráningar. Gengi dags. 1.4. 1987.
FYRIRTÆKI FYRIRTÆKI
CIJORE
MEÐ AL-DRIFI
er í vaxandi mœli valinn af fyrirtœkjum til
ýmissa verka, t.d. fyrir sölumenn og allt
mögulegt bœjarsnatt, einnig sem „mini1
greidabíll
; '; . ; íH\
1. Al-drif með einum hnapp — þegar færð versnar þá skilar litla torfæru-
tröllið þér á leiðarenda.
2. Heilsársdekk.
3. Frábærlega lipur í öllum bæjarakstri og ótrúlega sparneytinn.
4. 5 gíra gírkassi.
5. Með einu handtaki breytt í lítinn sendibíl með því að fella niður aftur-
sætisbak.
6. Síðast en ekki síst á frábæru verði, 307.900*
sem verður ástfangin af manni sem
dó fyrir nokkrum öldum, Jesú
Kristi.
Aðrar myndir sem rétt er að nefna
eru: Þrír karlar og ein karfa, eftir
Coine Serreau. Þessi mynd hlaut
César-verðlaunin ’86 sem besta
myndin og er talin vera hlægileg-
asta mynd níunda áratugarins, nú
þegar hafa séð hana 8 milljónir
manna, þar af helmingur utan
Frakklands. Síðu frakkarnir heitir
mynd sem gerist í Suður-Ameríku
og hefur undirtitilinn „pólitískur
vestri”, eftir Gilles Béhat. Kjúklingur
í ediki, eftir Claude Chabrol er 37.
mynd hans í fullri lengd, en hann er
sennilega einna þekktastur þeirra
leikstjóra sem eiga myndir á hátíð-
inni.
Hér til hliðar gefur svo að líta dag-
skrá kvikmyndavikunnar, en eins
og áður sagði eru sýningar í Regn-
boganum. Myndirnar verða allar,
utan Therese, sýndar með enskum
texta. Svo er bara að drífa sig í bíó.
Laugard. 4.4.: „Trois hommes et
un couffin" (Þrír karlar og ein karfa).
„Rouge baiser" (Rauður koss) 1985,
eftir V. Belmont. „Les longs man-
teaux“ (Síðu frakkarnir) 1985, eftir
G. Béhat. „Thérése” 1986, eftir A.
Cavalier.
Sunnud. 5.4.: „Rouge baiser”
(Rauður koss) 1985, V. Belmont.
„Les longs manteaux" (Síðu frakk-
arnir) 1985 eftir G. Béhat. „Trois
hommes et un couffin" (Þrír karlar
og ein karfa) eftir C. Serreau. „On ne
meurt que deux fois“ (Dauðinn
kemur aðeins tvisvar) 1985, eftir J.
Deray.
Mánud. 6.4.: „Rouge baiser”
(Rauður koss) 1985, V. Belmont.
„Trois hommes et un couffin" (Þrír
karlar og ein karfa) 1985, eftir C.
Serreau. „Thérése" 1986, eftir A.
Cavalier. „On ne meurt que deux
fois“ (Dauðinn kemur aðeins
tvisvar) 1985.
Þriðjud. 7.4.: „La pirate" (Sjóræn-
ingjakonan) 1984, eftir J. Doillon.
„Poulet au vinaigre” (Kjúklingur í
ediki) 1985, eftir C. Chabrol. „Trois
hommes et un couffin" (Þrír karlar
og ein karfa).
Miðvikud. 8.4: „Beau temps mais
orageux en fin de journée" (Logn og
heiðríkja) 1986. „Flagrant désir"
(Augljós þrá) 1986, eftir C. Faraldo.
„Poulet au vinaigre" (Kjúklingur í
ediki), eftir Claude Chabrol.
Fimmtud. 9.4.: „Poulet au vin-
aigre" (Kjúklingur í ediki) 1985, eftir
C. Chabrol. „La pirate" (Sjóræn-
ingjakonan) 1984, C. Doillon. „Thér-
ése“ 1986, eftir A. Cavalier.
Föstud. 10.4.: „Flagrant désir"
(Augljós þrá) 1986, eftir C. Faraldo.
„Beau temps mais orageux en fin de
journée" (Logn og heiðríkja). „Thér-
ése“ 1986.
Úr verðlaunamyndinni Therese
Úr Þremur körlum og einni körfu.
Kjúklingur I ediki eftir Chabrol.
12 HELGARPÓSTURINN