Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 02.04.1987, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Qupperneq 16
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPÓSTSINS [ eftir Halldór Halldórsson Um 55% íslendinga telja, ad meint skattaiagabrot Alberts Gud- mundssonar fv. fjármálarádherra hafi ekki veriö nœg ástœöa til þess að víkja honum úr starfi sem ráö- herra í ríkisstjórn /andsins. 45% telja Hafskipsgreiöslurnar tvœr, sem Albert taldi ekki fram, hins veg- ar nœga ástœöu til þess aö hann vœri látinn fara frá. Þetta kom fram í skoðanakönnun, sem HP efndi til um sl. helgi. Þessi niðurstaða er að mörgu leyti merkileg. Helgarpósturinn hefur tvisvar áð- ur kannað viðhorf þjóðarinnar til stöðu Alberts Guðmundssonar með hliðsjón af Hafskipsmálinu. f fyrra skiptið taldi góður meirihluti, að Aibert ætti ekki að segja af sér þrátt fyrir rannsókn Hafskipsmálsins og hugsanleg tengsl hans við málið eða 64%. Þetta var í desember 1985. í síðara skiptið hafði dæmið snúizt við og nú töldu 73% aðspurðra, að Albert œtti að segja af sér fyrir fullt og ailt eða á meðan rannsókn færi fram. Þessi síðari könnun var gerð snemma í júlí í fyrra. Niðurstaða skoðanakönnunar- innar frá því um liðna helgi er ekki eins afgerandi og hinar tvær fyrri. í júlíkönnuninni í fyrra spurðum við hvaða ástæður fólk legði til grundvaliar afstöðu sinni og var nið- 55% TÖLDU EKKI ÁSTÆÐU TIL AFSAGNAR ALBERTS 45% VORU Á ÖNDVERÐRI SKOÐUN 90% TEUA, AÐ FRAMBJÓÐENDUR, ÞINGMENN OG RÁÐHERRAR EIGI AÐ SÆTA SIÐFERÐILEGRI ÁBYRGÐ VEGNA YFIRSJÓNA urstaðan sú, að góður meirihluti taldi, að siðferðilegar ástæður vægju þyngst, fremur en pólitískar eða lagalegar. í öllum þessum könnunum hefur svörun verið mjög góð og raunar bezt í nýjustu könnuninni. Aðeins um 4% vildu ekki svara og rösk 11% voru óákveðnir. Þessi samanburður sýnir, að nú þegar raunveruleg dæmi um skatta- undandrátt hafa verið lögð á borðið með staðfestingu þar til bærra aðilja (þ.e. skattrannsóknarstjóra) og við- komandi verið látinn sæta póiitískri og siðferðilegri ábyrgð, þá snúa ís- lendingar við blaðinu og milda af- stöðu sína. Afstaða manna í könnuninni virð- ist bera vott um, að svarendur hafi Þessi skoðanakönnun var gerð 29. mars. Hringt var í 800 einstakl- inga skv. tölvuskrá yfir símanúmer fyrir allt landið. Spurningunum var beint til þeirra sem svöruðu og voru 18 ára eða eldri og var miðað við jafnt hlutfall kynja. Úrtakið skiptist í þrjú svæði: Reykjavík (306 símanúmer), Reykja- nes (182 símanúmer) og lands- byggðin, þ.e. kjördæmi önnur en Reykjavík og Reykjanes (312 síma- númer). ekki verið óklárir í afstöðu sinni til grundvallarmála, þegar einungis þurfti að taka afstöðu tii þeirra án raunverulegra dœma. Þannig spurðum við fyrst spurn- ingarinnar: ,',Telur þú rétt eöa rangt, aö stjórnmálamaður sé látinn sœta ábyrgö fyrir siöferöilegar yfirsjónir? 91% þeirra, sem tóku afstöðu svöruðu þessari spurningu játandi, 9% neitandi, en 12% tóku ekki af- stöðu. Að þessu svari fengnu spurðum við spurningarinnar um skattamál Alberts og afsögn hans og verður ekki annað sagt en að allnokkurrar mótsagnar gæti, þegar spurning- arnar og svörin eru borin saman. i þriðja lagi spurðum við: „Telur þú, aö stjórnmálaflokkar eigi aö 1. Telur þú rétt eða rangt að stjórn- málamaður sé látinn sæta ábyrgð fyrir siðferðilegar yfirsjónir? 2. Telur þú að meint brot Alberts Guðmundssonar í skattamálum hafi verið næg ástæða til að víkja hon- um úr starfi sem ráðherra? 3. Telur þú að stjórnmálaflokkar eigi að leggja sama siðferðimæli- kvarða á þingmenn og frambjóð- endur eins og á ráðherra? leggja sama siöferöimœlikvaröa á þingmenn og frambjóöendur, eins og á ráöherra?" Hér eru engin nöfn nefnd og eng- in dæmi og um leið verður afstaða svarenda ótvíræð. Nákvæmlega 90% þeirra, sem tóku afstöðu svara þessari spurningu játandi en 10% neitandi. Tæp 13% tóku ekki af- stöðu. Niðurstaðan af þessum þremur spurningum er í hnotskurn sú, að íslendingar virðast vera ótvírætt þeirrar skoðunar, að stjórnmála- menn eigi að sæta ábyrgð vegna yf- irsjóna, mistaka, mútuþægni o.s.frv. og gildi þá einu hvort um ráðherra eða þingmann eða hvort tveggja sé að ræða. En niðurstaðan er einnig sú, að röskur meirihluti er þeirrar skoðunar, að skattlagabrot Alberts Guðmundssonar hafi ekki verið þess eðlis eða nógu alvarlegt til þess, að hann væri knúinn til af- sagnar úr embætti ráðherra. Og þá er spurningin: Hvar vill þjóöin draga mörkin? í máli Alberts Guðmundssonar hafa bæði Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson verið spurðir sérstaklega um afstöðu sína til afsagnar ráðherrans fyrrverandi á meðan hann var ráðherra. For- sætisráðherra hefur ekki dregið dul á skoðun sína. Hann var spurður í ríkissjónvarpinu 27. júní í fyrra t.d. hvort honum fyndist, að Albert ætti að hafa frumkvæði að því að víkja úr ríkisstjórninni á meðan á rann- sókn stæði. Steingrímur svaraði þannig: „Það verður hann vitanlega að meta og hefur metið. Ég held út af fyrir sig að það sé mjög skynsam- legt að gera það og ég get að minnsta kosti sagt fyrir sjálfan mig, að ég hefði gert það.“ Um svipað leyti var gengið á Þor- stein í ríkisútvarpinu með spurning- una: „Er siðferðisbrestur að þínu mati nægjanleg ástæða til afsagnar ráð- herra? Svar: „Mál geta verið þannig vaxin, já, að það sé.“ Þorsteinn bætti því síðan við, að- spurður, að Sjáifstæðisflokkurinn „hefur tekið þá ákvörðun að hann vill sjá niðurstöðu þeirrar rannsókn- ar (sem þá var í gangi, innsk. HH) áður en hann leggur dóm á þau atriði og mat á það hvers eðlis þau eru“. Leiða má líkur að því, að þessi „stefna" Sjálfstæðisflokksins hafi orðið til þess, að nú stendur hann frammi fyrir hættulegasta kiofningi í flokknum frá upphafi. -HH. IGREINARGERÐ SKAISI 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.