Helgarpósturinn - 02.04.1987, Síða 21
II
ngir sjálfstæðismenn hafa
gjarnan haldið á lofti kjörorðinu
„Báknið burt". Á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins um daginn vildu
nokkrir fulltrúar af yngri kynslóð-
inni fá samþykktar nokkrar „bomb-
ur“ í þessa veruna. í ályktun frá
þeim sem lögð var fyrir fundinn var
meðal annars gert ráð fyrir því að
Æskulýðsráð ríkisins yrði þegar í
stað lagt niður. Samkvæmt heimild-
um HP mun Árni Sigfússon þá
hafa kallað hina ungu samherja sína
á sinn fund og rætt við þá undir
alvarlegum augum. Niðurstaðan
var að leggja skyldi ráð þetta niður
svo fljótt sem auðið væri. Árni?
Hann er formaður Æskulýðsráðs-
ins...
að hefur skiljanlega mætt
mikið á Þorsteini Pálssyni síðustu
daga og vikur. Engan skal undra að
hann eigi í erfiðleikum með að finna
réttu leiðina til gagnárása á Borg-
araflokk Alberts Guðmundsson-
ar eftir allt það sem á undan hefur
gengið. Þetta sýndi sig þegar Þor-
steinn var að tjá sig um hinn nýja
flokk í sjónvarpsviðtali fyrir
skemmstu. Fyrst sagði Þorsteinn að
enginn málefnaágreiningur væri á
milli Sjálfstæðisflokksins og Borg-
araflokksins, en örskömmu síðar
sagði hann að stefna Borgaraflokks-
ins (málefni) væri sér óskiljanleg...
v
ið sögðum frá því í síðustu
viku að Samband ungra sjálf-
stæðismanna hefði farið að for-
skrift Þorsteins Pálssonar og boð-
ið Sambandi ungra jafnaðar-
manna á kappræðufund, en ekki
Æskulýðsfylkingu Alþýðu-
bandalagsins, þar eð nú væru það
kratar sem töldust „höfuðkeppi-
nautar" Sjálfstæðisflokksins. Kapp-
ræðufundurinn átti að vera í gær-
kvöldi, miðvikudag. Það gerðist
hins vegar á föstudagskveldi í síð-
ustu viku að SUS-menn báðu SUJ
um frestun á fundinum af „óvið-
ráðanlegum orsökum". Þegar nánar
var falast eftir þessum orsökum var
svarið: „Ástandið í flokknum". Þetta
var sem sagt föstudagskvöldið
góða, þegar Borgaraflokkurinn
skilaði inn framboði sínu og allt við
suðumark í Valhöll...
Valdatafl í Valhöll
Jón Baldvin verður með
hörkufund í veitingahúsinu
Uxinn í Glæsibæ'
Álfheimum 74, kl. 21.00
í kvöld.
Allir velkomnir
Opið laugardag í
öllum deildum frá kl.
9-16
Versliö þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
WSL4
Jll
KORT
E. ■■■
tunocAoo ■
vlS
f A A A A A A
l_j l_ m — u Qlí’uo'
uii i jyuuajK-
- = - LJ -lUUrtj ij jJ:
uefiuuuyHiii ihiþ
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
HELGARPOSTURINN 21