Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 22
PIZZAHÚSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
Smokkur
Hann gœti
reddaö þér
GEGN EYÐNI
Omega-3 og hjs-ytað
Viðtökur Omega-3 hérlendis sýna
að íslendingum er annt um heilsuna
Omega-3 þorskalýsisþykknið!
Rannsóknir vísindamanna um allan heim
benda ótvírætt til þess að fjölómettaðar
fitusýrur af Omega-3 hópnum (EPA og
DHA) stuðli að því að fyrirbyggja krans-
æðasjúkdóma eða draga úr hættunni á
þeim.
Omega-3 frá Lýsi hf. er eina þykknið
sinnár tegundar í heiminum sem unnið
er úi hreinu þorskalýsi. Hráefnið er
sérvalin þorskalifur.
I Omega-3 er mun meira af fjölómett-
uðum fitusýrum en í venjulegu þorska-
lýsi.
Nú hefur magn A og D vítamína
verið minnkað verulega. Þeir sem
teljast til áhættuhóps geta þv( tekið fleiri
perlur á dag án þess að fara yfir ráð-
lagðan dagskammt af A og D
vítamfnum.
Athugið að perlurnar eru nú ávalar!
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777
ARGUS/SÍA 409*006
Dagbókin hennar Dúllu
31. mars 1987
Kæra dagbók!
Nú veit ég hvernig maður fær lífs-
reynslu. Ég hef líka þroskast alveg
æðislega síðan ég hafði síðast tíma
til að skrifa í þig. Heldurðu ekki að
hún Gíslína, systir ömmu á Eini-
melnum, hafi bara dáið!!! Auðvitað
var hún orðin ógeðslega gömul og
ég þekkti hana svo sem ekkert rosa
vel, en þetta var samt ofsalega „slá-
andi“ (eins og mamma segir). Það er
svakalega skrítin tilfinning að eiga
ekki eftir að fara aftur í heimsókn til
hennar og að fá aldrei oftar ilmsápu
eða freyðibað frá henni í jólagjöf.
Það er nú þó ekki það alvarleg-
asta við þetta allt saman, heldur
það, að amma tók mig með sér í
KISTULAGNINGUNA! Hugsaðu þér
— og ég sem hef ekki einu sinni far-
ið í jarðarför alla mína ævi.. .
Amma heimtaði þetta bara og sagði
að hún yrði að fá „stuðning". Það
var nú ekki nokkur hálka, svo þetta
var greinilega algjör fyrirsláttur.
Mamma var í vinnunni (auðvitað
pabbi líka, en hann kom af einhverj-
um ástæðum aldrei til greina sem
„stuðningur") og Stebba systir var
að læra í sumarbústað á Þingvöll-
um, svo ég varð fórnarlambið.
Og þetta var sem sagt lífsreynslan.
Ég var þarna barasta rétt við hliðina
á líki. Þetta var rosalegt.. . maður
sá alveg í hana undir lakinu, sá hvar
hausinn var og allt. Það voru allir
grenjandi, en mér fannst þetta mest
óhugnanlegt. Presturinn fór líka að
gramsa í lakinu allt í einu, sem ég
átti ekkert von á. Þegar ég sá að
hann ætlaði að lyfta því af henni,
kreisti ég aftur augun. Sumir í fami-
líunni gerðu þetta líka á eftir prest-
inum. Frekar hefði ég nú dáið sjálf
en að horfa ofaní kistuna.
Það var lítið mál að fara í jarðar-
förina eftir þetta sjokk. Ég var líka
svo upptekin við að vera reið út í
prestinn, því hann var alveg ógeðs-
lega væminn. Hann talaði um Gísl-
ínu eins og hún hefði verið algjör
engill. Einimelsklíkan hefur örugg-
lega logið þessu öllu í hann, því
hann hafði aldrei hitt líkið. Það var
sko ekki minnst á öll fjölskylduboð-
in sem hún eyðilagði, þegar hún var
búin að drekka of mikið sérrí. Og
ekki orð um kallinn, sem hún bjó
með í mörg ár og var yngri en sonur
hennar. Nei, það var bara reddað
vængjum á þá gömlu og allir grétu
í kór yfir að missa þessa elsku. Ég
meina það...
Ein syndajátning, sem bara þú
færð að heyra: Ég Iaug að Bellu og
hinum stelpunum, að ég hefði flett
lakinu ofanaf henni í kistunni og
hún hefði litið út eins og venjuleg
sofandi manneskja. Þeim fannst svo
merkilegt að ég hefði séð lík.
Góða nótt, Dúlla.
P.S.
Mamma er kannski ekki eins vitlaus
og maður heldur. Hún var að sýna
mér kosningaáróður frá Framsókn-
arflokknum, Iíklega vegna þess að
enginn annar nennti að hiusta á
hana, og það er nú svolítið til í þessu
kvennakjaftæði. Þarna voru myndir
af 36 frambjóðendum, 12 konum og
24 körlum. Karlarnir voru næstum
allir einhverjir fræðingar eða stjór-
ar, bara einn verkamaður og einn
húsasmiður, sem var uppdressaður í
jakkaföt og ekkert smiðslegur. Af
þessum tólf konum voru átta ein-
hvers konar skrifstofublækur og ein
húsmóðir. Bara tveir fræðingar!
Pældíðí...
ÍÞRÓTTIR
Springa flokkar, springa pottar:
Eldur brennur í ædum...
Þá er komið að sprengiviku á ný
og ekki seinna vænna að glæða
áhuga knattspyrnuunnenda og ann-
arra gamblera á getraununum, því
potturinn hefur heldur sigið niður á
við aftur eftir að hafa heldur jafnað
sig í samkeppninni við Lottóið. I þá
góðu gömlu daga (sl. haust) náði
potturinn 2.2 milljónum króna en í
síðustu viku var hann bara um 800
þúsund. Og þar sem 37 tipparar
náðu 12 varð aðalvinningurinn
heldur rislítill eða rúmlega 15 þús-
und á mann. En nú er sem sagt
sprengivika og eldur brennur í æð-
um manna og þá margfaldast pott-
urinn! Þess vegna erum við sæmi-
lega rausnarlegir í kerfisspá dags-
ins, sem hljóðar upp á 6 tvítryggða
og 2 þrítryggða og kostar slíkur seð-
ill 2.880 krónur. Þess má geta að á
síðustu fjórum vikum hafa ódýrari
kerfisspár HP gefið þrisvar sinnum
11 rétta. . .
Leikur Arsenal og Liverpool á
Wembley verður hörkuleikur, sem
framlengist ef jafnt er eftir venjuleg-
an leiktíma. Ef enn er jafnt þá þarf
annan leik. Ég reikna fastlega með
því að Liverpool hafi það að sigra á
gæðunum. Ég tel litiar líkur á jafn-
tefli, þá er nú líklegra að Arsenal
taki sig saman í andlitinu og eigi
góðan leik. Ekki vanþörf á, liðið hef-
ur ekki unnið í síðustu 10 eða svo
deildarleikjum. Annars eru erfið-
ustu leikir helgarinnar heimaleikir
Chelsea og Ipswich og rétt að þrí-
tryggja þá. Leikur W.B.A. og Sund-
erland er tvíeggjaður og kemur til
greina að þrítryggja hann og mætti
þá í staðinn stóla á Newcastle að
sigra Leicester (kæmi þá í staðinn
kerfið 4 tvítryggðir/3 þrítryggðir
sem kostar 2.160 krónur). Sumir
kynnu að vilja treysta Wimbledon til
stórræða eftir útisigurinn gegn
Liverpool, en kraftaverkið gerast
ekki tvisvar í röð hefur mér virst og
barningurinn dugar áreiðanlega
skammt á gervigrasinu hjá gæðalið-
inu Luton. Að öðru leyti vísa ég á
meðfylgjandi töflu.
í fjölmiðlakeppninni eru 27 um-
ferðir búnar og nú aðeins 6 umferð-
ir eftir. Bylgjan er enn efst og komin
með annan fótinn á Wembley 16.
maí. Nánar verður hugað að stöð-
unni í næstu viku, en geta má þess
að í mini-keppninni hefur Alþýðu-
blaðið náð forystu á ný, HP 145 og
AB 147 og 7 umferðir eftir. -fþg
Arsenal-Liverpool Úrslital. mjólkurbikars 25-15-60 2 12
A. Villa-Man.city 6-6-5(l-4-5) 0-7-10(0-4-5) 55-35-10 1 lx
Charlton-Watford 4-6-6(l-3-5) 4-4-9(4-2-2) 25-40-35 X x2
Chelsea-Everton 7-4-6(6-24) 7-4-6(5-2-2) 35-35-30 1 1x2
Luton-Wimbledo n 13-3-1(5-3-2) 6-2-8(5-44) 70-10-20 1 1
Newcastle-Leicester 6-4-6(2-3-3) 2-1-14(4-0-6) 55-25-20 1 lx
N.Forest-Coventry 10-6-1(4-3-3) 2-5-9(44-5) 60-25-15 1 1
Sou’mpton-Sheff.Wed 9-2-5(4-0-6) 3-4-10(2-2-5) 65-25-10 1 1
Tottenham-Norwich 10-3-4(5-1-1) 6-6-4(3-6-0) 60-30-10 1 lx
Bradford-Portsmouth 6-5-6(3-4-4) 5-6-5(6-24) 10-20-70 2 2
Ipswich-Derby 11-4-2(4-3-3) 9-3-5(6-4-0) 30-40-30 X 1x2
W.B.A.-Sunderland 7-4-5(l-3-5) 3-4-9(4-0-6) 50-30-20 1 lx
Skýringar: Fyrst koma leikir helgarinnar. Þá kemur árangur heimaliðs
heima en innan sviga árangur heima og að heiman í síðustu leikjum. Þá
kemur árangur útiliðs úti en innan sviga árangur heima og að heiman í síð-
ustu leikjum. Þá eru framreiddar prósentulíkur á úrslitum að mati spá-
manns. Þá kemur einföld fjölmiðlaspá en að síðustu breytileg kerfisspá.
22 HELGARPÓSTURINN