Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 28

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 28
Siguröur Sigurjónsson og Jakob Þór Einarsson ( hlutverkum sínum. Leikrit í leikriti í farsa sem fer á f jalirnar hjá LR á næstunni. Sigurður Sigurjónsson leikur gestaleik, aðkomumann í leikhópi, Kjartan Ragnarsson leik- stjóra. Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir gamanleikinn Óánægjukórinn eftir Alan Ayckborn nk. þridjudags- kvöld. Þetta er annad verkid sem leikfélagiö setur upp eftir þennan kunna breska höfund, hiö fyrra var Rúmrusk, sem var frumsýnt í Aust- urbœjarbíói í október 1978 og gekk lengi við góöar undirtektir áhorfenda. Leikritið gerist meðal áhugaleik- húsfólks í Englandi og segir frá upp- setningu á Betlaraóperunni eftir John Gay. Frekar illa gengur hjá velska leikstjóranum að koma sýn- ingunni heim og saman, þar til upp- burðarlítill og hlédrægur skrifstofu- maður gengur til iiðs við flokkinn, þar sem ýmsir atburðir sem ekki eru fyrirsjáanlegir verða tii þess að hann verður miðpunktur sýningar- innar og reyndar utan hennar líka. Óhætt er að fullyrða að gestum ætti ekki að leiðast undir sýningunni, því eins og í öllum góðum försum er fjöldi skemmtilegra uppákoma sem orsakast af margháttuðum misskiln- ingi þeirra sem við sögu koma: Leikstjóri er Þorsteinn Gunnars- son, búninga gerir Una Collins, leik- mynd Steinþór Sigurðsson og þýð- inguna gerir Karl Ágúst Úlfsson. Með helstu hlutverk fara Sigurður Sigurjónsson, sem leikur skrifstofu- manninn, en þetta er fyrsta hlutverk Sigurðar hjá LR, Kjartan Ragnars- son sem leikur leikstjórann og Margrét Ákadóttir leikur eiginkonu hans. Meðal annarra leikenda eru Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Jakob Þór Einarsson og Guðrún Ásmunds- dóttir, auk fjölda annarra. Mikil og fjörleg tónlist er í verkinu og er Jó- hann G. Jóhannsson tónlistarstjóri sýningarinnar sem svo oft áður hjá Kjartan Ragnarsson leikur leik- húsmann sem tekur sig og list slna of alvarlega. Kómísk sviðsetning á okkar vandamálum Kjartan Ragnarsson, hinn góö- kunni leikari, leikstjóri og leikrita- skáld, fer meö hlutverk leikstjórans í Óánœgjukórnum. Þetta er auövit- aö vel viö hœfi og einhverjir hafa gengiö svo langt aö halda því fram aö hlutverkiö sé skrifaö fyrir hann. Þaö lá því beinast viö aö spyrja hvort hann vœri aö leika sjálfan sig. „Þetta er alveg eins og ég, bless- aður vertu, nema ég er ekki velsk- ur.“ — Hvaö viltu segja um þetta þema, leikrit í leikriti? „Þetta er nokkuð sem er alltaf spennandi og erfitt um leið. Það er verið að berjast við að fá tvö lög í verkið, annarsvegar þegar fólkið er að leika í verkinu og svo þegar það þarf að líta út fyrir að vera ekki að leika, vera það sjálft. Okkur leikhús- fólki finnst þetta verk vera gott vegna þess hversu kómísk sviðsetn- ing þetta er á okkar próblemum. Þetta getur gefið fólki innsýn í þau vandamái sem við glímum við á hverjum degi, auðvitað á gaman- saman hátt, en þetta er samt ekki bara kómedía, verkið er líka að ein- hverju leyti tragískt." — Helduröu aö þetta fái góöan hljómgrunn? „Já, ég held það, hér eru geysilega mörg áhugaleikhús og mjög margir ættu að þekkja það sem hér fer fram. Allur þessi leikhúsáhugi sem hér er helgast m.a. af því að það eru svo margir áhugaleikarar. Það er alltaf verið að segja að það vinsæl- asta hjá íslendingum sé fótbolti en það er bara ekki rétt. Það koma miklu fleiri í leikhús heldur en fara nokkurntíma að sjá fótbolta." HÖFUNDURINN Alan Ayckborn er einn þekkt- asti og vinsælasti gamanleikjahöf- undur Breta um þessar mundir. Hann hefur samið á þriðja tug leikrita, jafnt gamanleikrit sem al- varlegri verk, og hafa þau mörg náð miklum vinsældum víða um lönd. Ayckborn stýrir litlu leikhúsi í Scarborough á Englandi, þar sem flest verka hans hafa fyrst verið sett upp, en jafnframt er hann eitt „hirðskálda" breska þjóðleikhúss- ins. BALLETT Raudur dans Danshöfundur: Jochen Ulrich Tónlist: Samuelina Tahija Ásmundur Karlsson útfœröi lýs- ingu eftir Georges Steffens. Jochen Ulrich valdi búninga og þá leikmuni sem mynda leikmynd. Sýningarstjóri: Kristín Hauks- dóttir. Aöstoöarmaöur: Ásdís Magnús- dóttir. Hljóöblöndun: Hans Bárens og Júlíus Agnarsson. Textaþýöingar: Hafliöi Arn- grímsson. íslenski dansflokkurinn frum- sýndi miðvikudaginn 25. mars ballettinn „Ég dansa við þig“ eftir Jochen Ulrich. Heiti sýningarinn- ar felur í sér meginþema hennar. Hún er samsett af fjölmörgum svipmyndum sem brugðið er upp í leik og dansi. Danshöfundurinn Jochen Ulrich, sem við þekkjum frá upp- setningu hans hér um árið á Blindingsleik eftir Jón Ásgeirsson, reynir að miðla almennri tilfinn- ingu og myndum af ýmsum uppá- komum í mannlegum samskiptum kynjanna, því sem gerist í daglega lífinu og spennunni milli karls og konu, þannig að úr verður eins- konar lífsdans. Hann lítur á þetta með gáskafullum, grátbroslegum húmor, og gerir óspart grín að okkur, togstreitu kynjanna í lífs- ins ólgusjó, í blíðu og stríðu. Jochen er vanur í uppfærslum sín- um að leita á ný mið og er alls óhræddur og oft djarfur. Hann er geysi hugmyndaríkur og kemur manni oft á óvart. Hlutur tónlistar er mikill í sýn- ingunni. Hún er í höndum og und- ir stjórn þeirra Egils Ólafssonar og Jóhönnu Linnet, skv. þýskri form- úlu, og samanstendur af danstón- list og slögurum frá 3. og 4. ára- tugnum. Tónlist þessa tíma er ákaflega draumkennd og rómantísk og textinn í samræmi við það, fjallar um ástina, hverfulleika, draumóra og hillingar. Á sviðinu myndast sterk tengsl milli söngs og dans, einskonar samtal milli söngvara og dansara, sem mótar ákaflega sterkt og magnað andrúmsloft. Það sem er einkennandi fyrir þessa sýningu er hversu mikil ná- lægð næst milli flytjenda á sviði og áhorfenda. Það er verið að túlka hluti sem við skiljum ekki bara sem myndskreytingu við tón- list. Það er ekki hægt að fjalla um þessa sýningu nema að minnast á gestadansarana, þá Athol Farmer, sem er Nýsjálendingur, og Phil- ippe Talard, sem er franskur, en þeir eru aðaldansarar við Kölnar- óperuna. Athol er í rauninni sú persóna í sýningunni sem tengir atriðin saman og er hreint frábær. Hann virðist eiga óvenju gott með að miðla því sem koma á til skila með hreyfingum sínum og lát- bragði og hefur óvenju ríka dans- tilfinningu. íslenski dansflokkurinn kemur mjög vel út sem heild. Ég hef sjald- an séð hann jafn geislandi á svið- inu og nú. Þó eru nokkrir sem blómstra meir en aðrir. Ég nefni Kristínu Hall, Birgittu Heide, Guð- mundu Jóhannsdóttir, nýliðann Ásgeir Bragason sem var bráð- fyndinn, tvíburana Guðrúnu og Ingibjörgu Pálsdætur sem virðast stæðilegar í sínum atriðum. Örn Guðmundsson átti frábæran „dansleik" og reif upp hláturtaug- arnar í salnum, svo var Ólafía Bjarnleifsdóttir ljúf og ljóðræn í basli við metorðastigann. Tvídans Helenu og Philippe var skemmti- lega unninn og dansaður. Það sem er megin einkenni á þessari sýningu er hversu fáguð hún er í allri umgjörð, leikmyndin og búningar einfaldir og oft tákn- rænir. Ég hef sjaldan séð búninga á dönsurum jafn glæsilega og áferðarfallega. Er það ekki síst að þakka ákveðnum einfaldleika í litavali; rautt, svart, hvítt og gull- litað. Rauði liturinn er gegnum- gangandi í sýningunni og tákn- rænn fyrir viðfangsefnið. Þessi sterka nærvera söngvara og dansara á sviðinu gerir það að verkum að það myndast sterkt og töfrandi andrúmsloft, draum- kennt en þó með jarðtengdum boðskap sem við skiljum þrátt fyr- ir allt. Þegar upp er staðið er hér um að ræða áhrifamikið sjónarspil fyrir okkur sem sitjum í salnum. Ég tek undir þau orð sem hafa verið sögð um þessa sýningu, að hér er um bestu skemmtun í bæn- um að ræða. EE SÝNINGU Kristjönu Samper í Gallerí Gangskör lýkur nú á föstu- daginn. Þetta er önnur einkasýning hennar og á henni sýnir hún 19 verk sem flest eru unnin á þessu ári, skúlptúra og teikningar en þetta er í fyrsta skipti sem hún sýnir teikn- ingar á einkasýningu. Hún er þó fyrst og fremst myndhöggvari og helsta viðfangsefni hennar eru sam- skipti manna í millum. Sýningin er opin virka daga kl. 12—18 og lýkur, eins og áður sagði, föstudaginn 3. apríl. NYTT kvikmyndablaö mun vera að hefja göngu sína eftir því sem heimildir HP herma. Blað þetta sem enn hefur ekki hlotið nafn mun að sögn fróðra koma út ekki sjaldnar en 6 sinnum á ári. Ritstjóri verður Guömundur Þorsteinsson, fyrrver- andi útgáfustjóri Svarts á hvítu, og gamalreyndur áhugamaður um kvikmyndir. Eigendur blaðsins eru hins vegar þeir Helgi Hilmarsson og Bjarni Þ. Sigurösson sem báðir eru gamlir fjalakettlingar. Svo ku Svart á hvítu ekki vera langt undan hvað eign varðar. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.