Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 30

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 30
HUGLEIKUR, Áhugaleikfélag Reykjavíkur, frumsýnir nk. laugar- dagskvöld nýtt íslenskt leikrit á Galdra-Loftinu, Hafnarstræti 9. Verkið sem heitir Ó þú... ástarsaga pilts og stúlku, er skrifað sérstak- lega fyrir hópinn af þremur meðlim- um hans, þeim Ingibjörgu Hjartar- dóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Hugleikur var stofnaður 1984 og er þetta fjórða verkið sem sett er upp undir hans merkjum. Áður hefur félagið sýnt Bónordsförina eftir Magnús Gríms- son, eitt elsta íslenska leikritið, skrif- að 1852, í styttri og breyttri gerð sem hópurinn vann sjálfur. Skugga- Sveinn varð líka fyrir barðinu á breytingum þeirra í Hugleik og kom út sem Skugga-Björg. Einnig hefur félagið sýnt verkið Sálir Jónanna sem var samið af sömu höfundum og skrifuðu það verk sem nú verður sýnt. Leikstjóri Ó þú... erSigrún Val- bergsdóttir, leikmynd gerir Erlingur Páll Ingvarsson og um lýsinguna sér Ólafur Thoroddsen. Hópurinn hef- ur sjálfur hannað búningana. I stuttu spjalli við Ingibjörgu Hjartar- dóttur, einn höfundanna, kom fram að þarna væri um nokkra tilrauna- starfsemi að ræða og þess vegna hefði Hugleikur reynt að skapa eig- in línu, skapa sér sérstöðu og vera með eitthvað sem enginn annar væri með. Hún vildi ennfremur hvetja alla til að koma og njóta áhugamennskunnar, þetta væri öðruvísi en allt þetta flóð atvinnu- leikhúsa í borginni. HÁSKÓLAKÓRINN er nú nýkominn úr mikilli söngför til Ítalíu, þar sem hann hélt eina fimm tónleika á níu dögum. Eftir því sem fregnir herma fékk kórinn mjög góðar viðtökur hjá hinum söng- elsku íbúum stígvélalandsins, svo góðar að menn vissu ekki alltaf hvaðan vindur blés. Þannig munu milli 500 og 600 mann hafa hlýtt á kórinn syngja í Urbino og telja fróð- ir menn að aldrei hafi fleiri hlýtt á söng kórsins á einum stað fyrr. ítöl- unum féll prógrammið vel í geð, ekki síst hin nýja íslenska tónlist og létu fögnuð sinn ákaft í ljósi með því að standa upp og hrópa hið alþjóð- lega húrra, vitandi að lítt þýddi að ávarpa íslendingana á móðurmáli sínu. Það gerðist svo eftir eina tón- ieikana að einhverjir áhorfendur gerðu sér lítið fyrir og komu bak- sviðs og nældu sér í eiginhandar- áritun nokkurra kórfélaga og var þá mörgum hógværum mörlandanum brugðið. BÓKAKLÚBBURINN Ver- öld heldur um þessar mundir upp á 4 ára afmæli sitt og hefur klúbbur- inn á þessum tíma selt í kringum 300 þúsund bækur. En klúbburinn, sem 8 bókaforlög standa að, er ekki einvörðungu í dreifingu á lesmáli og mun á þessu ári standa fyrir ýmiss konar menningarstarfsemi. Má þar nefna að 11. apríl mun óperusöng- konan Renata Scotto koma fram á hljómleikum á vegum klúbbsins og spilar Sinfóníuhljómsveit íslands undir hjá henni. í haust er síðan von á Nóbelsskáldinu Isaac Bashevis Singer í heimsókn í tengslum við sérstaka bókmenntakynningu klúbbsins. Ekki af verri endanum, þessir gestir. Loks má geta þess að næsta mánaðarbók Veraldar er Mid- ilshendur Einars á Einarsstödum, endurútgefin eftir að hafa verið uppseld um langa hríð. LOKSINS Kvikmyndasafn íslands komið undir þak Það var miövikudaginn 25. mars sem nýtt húsnœdi Kvik- myndasafns Islands og Kvik- myndasjóös, var formlega vígt aö vidstöddum fríöum flokki framámanna í stjórnkerfinu og kvikmyndaheiminum, auk ann- arra gesta. Þetta var ákaflega kœrkomiö, sér í lagi fyrir Kvik- myndasafniö sem lengst tilveru sinnar hefur mátt þola það að vera á hrakhólum ogjafnvel leg- ið undir skemmdum. En það verður fleira þarna til húsa en Kvikmyndasafnið, Kvikmynda- sjóður fœr þarna inni með sína starfsemi og listamennirnir sjálf- ir, kvikmyndaframleiðendur og kvikmyndagerðarmenn munu einnig fá inni fyrir þá starfsemi sem þeir þurfa að reka öllu jöfnu. Við þetta tœkifœri voru haldn- ar tölur fagrar og fínar, öllum þakkað sem hlut eiga aö máli og þakkir skilið fyrir sitt framlag til þess að kvikmyndalistin í land- inu hefur nú að lokum fengið hús sem hún getur kallað sitt eigið. POPP Plata á Richtersmælikvaröa eftir Ásgeir Tómasson You got to cry without weeping Talk without speaking Scream without raising your voice, you know I took the poison, from the poison stream, Then I floated out of here The Joshua Tree er ekki fljóttek- in hljómplata en alls ekki ómeltan- leg heldur. Á henni er ekki að finna dægurpopp sem ljúft er að láta fljóta inn um annað eyrað og út um hitt. Tónlistin og textarnir krefjast þess að lagt sé við hlust- irnar. Sums staðar er rokkað af mátulegri léttúð — á yfirborðinu — eins og fn God’s Country, Bullet The Blue Sky og perlunni With Or Without You. Einstaka sinnum má merkja blúsáhrif og jafnvel eitt- hvað sem mætti kalla vísi að kántrí. Tvö síðustu lögin á hlið tvö skera sig hins vegar nokkuð úr. Þar gerist tónlist U2 tæpast þyngri og betra að hafa skynfærin í því ásigkomulagi sem menn kjósa helst að hafa þau þegar seintek- innar tónlistar er notið. Svo sem kunnugt er eru flestir liðsmenn hljómsveitarinnar U2 kristnir vel. Nafn plötunnar, The Joshua Tree, vísar til þess. Þessi risavaxni eyðimerkurkaktus, Jósúatréð, er tákn vonar — hugs- anlega hrópandans í eyðimörk- inni án þess að ég þori að sverja það. — Hví þetta nafn hefur orðið fyrir valinu? Kannski líst fjór- menningunum ekkert á ástandið í heiminum í dag (samanber texta plötunnar), kannski þykir þeim tónlist dægurheima fremur lítil- sigld um þessar mundir og vilja með plötu sinni gefa okkur von um að í vændum sé betri tíð. Að minnsta kosti hafa íslendingar tek- ið Jósúatrénu opnum örmum. Þegar þetta er skrifað hefur platan setið tvær vikur í efsta sæti breið- skífulista DV. Annað væri líka móðgun við jafn góða plötu. Úskar Gíslason, nestor fslenskrar kvikmyndagerðar, stendur hér við hluta af eigum safnsins sem mest er frá honum komið Hér er til umræðu þjóðleg kvikmyndatónlist hjá Jóni Þórar- inssyni tónskáldi, Erlendi Sveinssyni, fyrrum forstöðumanni Kvikmyndasafnsins og Árna Björnssyni þjóðháttafræðingi. Guðbrandur Gislason, forstöðumaður safnsins og fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs og Anna Maria Hilmarsdóttir safnvörður. Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur og ritstjóri, Jón Her- mannsson formaður félags kvikmyndaframleiðenda og Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndagerðarmaður og fyrrum formaður þess félagsskapar. Samspil orðs og myndar, Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda- gerðarmaður, dagskrárstjóri afl. og listaskáldið Thor Vil- hjálmsson. THE JOSHUA TREE - U2 Island/Skífan Hafi einhver efast þarf hann ekki að velkjast í vafa lengur. U2 er í hópi merkustu hljómsveita sem nú starfa. Fyrri verk íranna fjögurra — plötur, myndbönd, tón- leikar og fíeira — hafa lyft þeim hátt á stall. Nýjasta fjöðrin í hatt- inn, platan The Joshua Tree trygg- ir þá enn frekar í sessi. Það eru vitaskuld órar einir að fara nú í byrjun aprílmánaðar að spá fyrir um hljómplötu ársins 1987. En mikið mega hinir strák- arnir og stelpurnar í bransanum standa sig vel á þessu herrans ári ef þau ætla að slá U2 og The Joshua Tree við. Ég hef ekki gleymt því að væntanlegar eru piötur með David Bowie, Michael Jackson, Cure og fleirum sem vænta má mikils af. Af þessu má ráða að ég er ákaf- lega ánægður með Jósúatréð. Reyndar er platan sú fyrsta sem út kemur á þessu ári sem ég hef nennt að hlusta á í heild. Útgáfan það sem af er árinu hefur verið með daprasta móti. Þó get ég ekki sagt að The Joshua Tree hafi kom- ið mér neitt á óvart eins og margt á fyrri plötum U2. Nú orðið reikna ég ekki með neinu nema því besta frá Bono og félögum. Hins vegar verður ekki hjá því komist að hug- urinn hvarfli öðru hverju til The Unforgettable Fire (1984) þegar hlustað er á nýju plötuna. Kannski ekki síst vegna þess að Brian Eno og Daniel Lanois stjórnuðu upp- tökum beggja. (Umbúðir platn- anna tveggja eru iíka keimlíkar. Án þess að þær komi málinu bein- línis við er óhætt að gefa þeim fimm stjörnur.) Samanburðurinn verður The Joshua Tree yfirleitt í hag. Þar er þó engan smell að finna á borð við Pride. Fyrir bragðið verður heildin sterkari. Ekkert eitt lag fær athygli á kostn- að hinna. Sjálfsagt styrkir það plötuna enn frekar að iiðsmenn U2 gættu þess vel og vandlega að ofvinna ekki það efni sem þeir voru með í höndunum hverju sinni. í viðtöl- um hafa þeir sagt að hafi laglína ekki höfðað til þeirra án þess að eyða þyrfti bæði tíma og kröftum til að möndla hana til hafi henni einfaldlega verið lagt og sú næsta tekin til handargagns. Svona vinnubrögð hljóta að þýða mark- vissari árangur eigi hæfileika- menn á annað borð í hlut. Mý- mörg dæmi sanna að of mikil yfir- lega og pælingar veldur því að of- vöxtur hleypur í alit saman. (Svo má sjáifsagt finna dæmi um hið gagnstæða en það verður ekki gert hér.) Liðsmenn U2 eru í toppformi og mynda pottþétta heild þrátt fyrir að þeir hafi tekið sér góða hvíld hver frá öðrum. Gítarleikur The Edge gæti allt eins verið línurit jarðskjálftamæla þegar best Iét við Kröflu. Clayton og Mullen eru þéttir eins og fyrri daginn. Og Bono, blessaður pilturinn! Aldrei hef ég heyrt hann betri en einmitt nú. Hlýlegur og látlaus aðra stund- ina og jafnvel síðar í sama lagi kraftmikill, þykkjuþungur. Hann nýtur þess að sjálfsögðu að syngja einungis eigin texta og hlýtur því öðrum fremur að vita hvernig á að túlka þá. Að minnsta kosti vantar hvergi sannfæringarkraftinn í rödd írans sem hiklaust má telja meðal fremstu rokksöngvara okk- ar tíma — jafnvel fremstan meðal jafningja. Textar Bonos eru sérkapítuli út af fyrir sig. Ekki er mér kunnugt um að hann hafi sent frá sér ljóða- bækur. En hefði hann tíma frá hljómplötuupptökum, hljómieika- ferðum, sjálfboðavinnu í Súdan og öðru slíku gæti hann hæglega slegið í gegn sem ljóðskáld. Hann er orðheppinn, á létt með að koma meiningunni til skila í fáum og einföldum dráttum og inn- hverfur og torskilinn þegar hann vill þar við hafa. Á The Joshua Tree tekst honum upp í One Hill Tree og Running To A Stand Still. Hér er brot úr þeim síðarnefnda sem fjallar um vonleysi heróín- neytandans: Sweet the sin But bitter taste in my mouth I see seven towers But I only see one way out 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.