Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 31
I ,H t M M » t M i >
MitMtttMIMMI
,1 M M M M M M M M
t , M t I M t M t t I I « I »
BÓKMENNTIR
Leiöin til
Þórbergur Þórdarson
Ljóri sálar minnar
Helgi M. Sigurdsson bjó til
prentunar.
Mál og menning 1986
Ljóri sálar minnar geymir úrval
áður óprentaðra greina, hugleið-
inga, bréfa og dagbókarskrifa eftir
Þórberg Þórðarson frá árunum
1909—17 eða þar til Þórbergur er
farinn að gefa út sínar fyrstu Ijóða-
bækur. Vitaskuld er fengur að
slíku lesefni til viðbótar við það
sem Þórbergur skrifaði síðar.
Bókin byrjar á ófullgerðu kvæði
og dagbókarbroti: ungur maður er
um það bil að stíga sín fyrstu spor
á opinberri menntabraut — og
hlakkar mikið til. Við fáum lýsingu
á fyrsta vetri Þórbergs í bóhem-
standi. Hann er uppnuminn yfir
andlegheitunum og ánægður að
hafa kynnst svona gáfuðu fólki.
Strax þá skrifar hann með fágætri
sveiflu og metnaði þess sem finnur
sig knúinn til skriftá.
Frá vetrinum 1910—11 eru þrír
þættir sem sýna okkur þá megin-
strauma sem verk Þórbergs síðar
snerust oft á tíðum um: gaman-
samur söguþáttur í þjóðlegum stíl
af Gísla á Saurum, grín um snobb-
að skólafólk og ádeila á stétta-
skiptingu og presta fyrir að vera
litlir sannleiksleitendur.
Þá koma geysifróðleg bréf til
Þorleifs Gunnarssonar um kjör og
aðbúnað í sumarvinnu, stjórnmál
og 17. júní hátiðarhöld með
„íþróttagutli" á Borðeyri 1911.
Þau eru ómetanleg lýsing og
heilsteypt af ári í lífi meistarans,
umræðu menningarvita, tíðar-
anda og ástandi Þórbergs til lík-
ama og sálar ásamt persónulegri
skoðun hans á öllu sem fyrir augu
og eyru ber.
Afstaða Þórbergs til bókmennta
kristallast í tveimur greinum um
„Daginn mikla“ eftir Einar
Benediktsson og grein sem hann
nefnir „Trúin á vonarpeninginn"
og leggur útaf dýrkun mennta-
skólanema á skáldhæfileikum
Sveins Jónssonar, framtíðarskálds.
Greinarnar um Einar sýna hvernig
Þórbergur skiptir um skoðun á
skáldskap hans — eins og víða hef-
ur komið fram — og ritgerðin um
Svein framtíðarskáld er klassísk
grein um hrifningu ungmenna af
eigin snilld og snilld sinna nán-
ustu. Þarna setur Þórbergur fram
ákveðnar kröfur um skáldskap og
lemur á Sveini fyrir gaspur og litla
innstæðu orða sinna. Augljóst
virðist að Þórbergi hefur sárnað
hvað Sveinn hefur slegið í gegn og
verið meiri karakter í bæjarlifinu
en Þórbergur. Eflaust hafa kvæði
Sveins vakið hrifningu sem Þór-
bergi hefur þótt óþarflega mikil
miðað vð rýrð innihaldsins. Flest
sem þarna er sagt á við alla tíma.
Togstreitan milli kafarans og sjó-
skíðamannsins í listum er eilíf. Sjó-
skíðamaðurinn gerir fleiri sýnileg-
ar kúnstir öllum fjöldanum og nýt-
ur því lýðhylli en kafarinn fer einn
og óséður að kanna nýja heima og
getur þá sýnt okkur hinum meira
en sjálfan sig beran.
í dagbók frá fyrri hluta árs 1914
sjáum við Þórberg í glímu við
vinnusemina. Hann skráir hjá sér
vinnustundir á degi hverjum, lýsir
betrunaráformum sínum en hras-
ar annað slagið í fang Bakkusar og
almennt slór — og lífsbaráttu: þarf
m.a. að eyða dýrmætum tíma í að
skrapa saman 5 kr. fyrir húsaleig-
unni.
26. febr. 1914 skrifar Þórbergur
menntunar
heim í Suðursveit til bróður síns og
lýsir fyrir honum erfiðleikum við
skólanám, fjárskorti og hæfileik-
um sínum miklum. Lætur skina í
að hann hyggi á próftökur en les-
anda er ljóst að hann hefur þegar
gefið menntaskólann upp á bátinn
og tekið sér fyrir hendur að læra
íslensku og heimspeki án vonar
um prófgráðu.
í palladómi um Þorleif Gunnars-
son koma margar kunnuglegar
frásagnir úr Islenskum aðli og Of-
vitanum og er gaman að sjá hvern-
ig raunveruleikinn er smám sam-
an að verða að sögum í meðför
Meistarans.
17. nóv. 1915 skrifar Þórbergur í
dagbók sína magnaða lýsingu á
sjálfum sér og kjörum sínum, fá-
tækt og eymd, bóka- og heilsu-
leysi: „Ég er að reyna að brjóta
mér leið til menntunar og þekk-
ingar og vil sannarlega verða nýt-
ur maður. En helvítis lífið og
mennirnir, sem ég á saman við að
sælda fara með alla góða ásetn-
ingu mína. Þeir ljá mér ekki orða-
bók. . .“(214)
Síðasta dagbókarbrotið er frá
seinnihluta sumars 1916 og segir
frá ferð Þórbergs í kaupavinnu
vestur á firði þar sem hann ræktar
einlæga vináttu sína við Tryggva
Jónsson. Þar vestra skrifar Þór-
bergur margt um ást sína á
Tryggva, hvað hann unni honum
og syrgi á hverri skilnaðarstund
en jafnframt vakna hjá honum
skringilegar hugrenningar útaf
tveimur vinnukonum þegar þau
þrjú eru ein heima. Þremur dög-
um seinna verður hann „þú“ við
Bjarneyju, aðra þeirra —hvort sem
það er nú eitthvert dulmál eða heið-
arlegt dús og helgina þar á eftir er
hann drjúgur yfir stelpunum í
hlöðunni.
Bókinni lýkur síðan á litlum
pistli um heimspeki, lífsreglum
ströngum og hugleiðingum vegna
útkomu Spaks manns spjara, árið
1917. Þar slær Þórbergur nýjan
streng „þegar megnið af rímiríi
skáldanna er annað hvort háfleygt
andleysisskrif, tínt upp úr orða-
bókum, eða lyriskt eilífðarmas,
flatt og aflangt eins og flóin.“(249)
Rithöfundurinn Þórbergur Þórð-
arson er farinn af stað á prenti.
Útgefandinn, Helgi M. Sigurðs-
son, blekkir lesandann, lætur
hann halda að hér sé honum leyft
að skyggnast beint yfir öxl Þór-
bergs, milliliðalaust. Verkinu er
svo vel ritstýrt að það fer næstum
framhjá manni að hér hafi nokkur
maður vélað um. Vissulega væri
gaman að ítarlegri skýringum
víða og tengingum við aðra starf-
semi Þórbergs, hvers eðlis eru þau
skrif sem ekki eru í bókinni, hvar
eru Snorra-Eddu skýringarnar
o.s.frv. Það vantar m.ö.o. svo mikið
af slíkum upplýsingum að það er
ógerlegt að nota Ljóra sálar minn-
ar sem heimild fyrir rannsókn á
sambandi minninga- og dagbókar-
brotanna við endanlega gerð í
margfrægum bókum Þórbergs. En
þessi bók er sjálfstæð ævi- og
þroskasaga Þórbergs, skrifuð af
Helga M. Sigurðssyni með orðum
Þórbergs sjálfs. Og Þórbergur fær
að hafa sín dularfullu leyndarmál
áfram: hvað gekk hann langt með
vinnukonunum í hlöðunni? Hvers
lags ástarsamband er þetta við
Tryggva Jónsson útum allar lautir?
Hvað á hann við með samræðis-
verknaði sem eigi má fremja oftar
en þrisvar í mánuði og það á til-
teknum dögum? Það er óþarfi að
svara slíkum spurningum.
gs
KVIKMYNDAHUSIN
LOKAÐ VEGNA BREYTINGA
ALLT I HVELLI
(Touch and Go)
NÝ
Grínmynd með Michael Keaton (Mr.
Mom og Night Shift).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LIÐÞJÁLFINN
(Heartbreak Ridge)
★
Með Clint Eastwood. Hann leikurhörku
liðþjálfa sem þjálfar njósna- og könnun-
arsveit.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
NJÓSNARINN
(Jumpin Jack Flash)
★★
Gamanmynd með Whoopi Goldberg,
stjörnunni úr Color Purple.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FLUGAN
(The Fly)
★★
Galdrar og hrollur fyrir það sem þess er
virði. Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 11.
PENINGALITURINN
(The Color of Money)
★★★
Newman kennir hinum óreynda Tom
Cruise ieikinn.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
KRÚKÓDlLA DUNDEE
(Crocodile Dundee)
★★★
Léttgrín.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ráðagóði róbótinn, Hundalff,
öskubuska og Hefðarkettir sýndar
kl. 3 um helgina.
Guð gaf mér eyra er mynd sem enginn
ætti að láta framhjá sér fara. Peggy Sue
í Stjörnubíói er sprenghlægileg grín-
mynd. I Regnboganum er franska
myndin Tartuffe, byggð á leikriti Moliér-
es, frábær frönsk mynd.
BIOHUSIÐ
THE ROCKY HORROR PICTURE
SHOW
★★
Eftirminnileg mynd frá áttunda ára-
tugnum.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
GUÐ GAF MÉR EYRA
★★★
Óskarsverðlaunamynd með Marlee
Matlin og William Hurt.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
LAUGARÁS
B I O
PRIVATE INVESTIGATIONS
NÝ
Framleiöandi Sigurjón Sighvatsson,
með Clayton Rohner, Ray Sharkey og
Talia Balsam. Sakamálamynd.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
THE AMERICAN WAY
NÝ
Um fljúgandi útvarpsstöð.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FURÐUVERÖLD JÓA
(Making Contact)
★★
Ævintýramynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
EFTIRLÝSTUR LlFS EÐA LIÐINN
(Wanted Dead or Alive)
★★★
Hörku spennumynd með Rutger Hauer
og Gene Simmons. Bönnuð yngri en
16.
Sýnd kl. 9 og 11.
REGNBOGONN
TRÚBOÐSSTÖÐIN
(Mission)
★★★
Vönduð stórmynd eftir Bretann Roland
Joffé með þeim Roþert de Niro og
Jeremy Irons í aðalhlutverkum.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
HJARTASÁR
(Heartburn)
★★
Jack Nicholson og Meryl Streep sam-
an (mynd.
Sýnd 3, 5.30, 9 og 11.30.
SKYTTURNAR
★★★
Ný (slensk mynd eftir Friðrik Þór.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
FERRIS BUELLER
★★
Gamanmynd.
Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,9.05 og 11.05.
ÞEIR BESTU
(Top Gun)
★★★
Með Tom Cruise.
Sýnd kl. 3.
TARTUFFE
★★★
Frönsk, gerð eftir leikriti Molíéres.
Sýnd kl. 7.
HANNA OG SYSTURNAR
Endursýnd kl. 3, 5 og 9.30.
PEGGY SUE GIFTI SIG
(Fteggy Sue Got Married)
★★★
Grlnmynd, með Kathleen Turner og
Nicholas Cage.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
STATTU MEÐ MÉR
(Stand by Me)
★★
Fjórir strákar, á þrettánda ári, (leit að l(ki.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Kærleiksbirnir og Völundarhús kl.
3 um helgina.
tíaabit
BLÁ BORG
(„Blue City")
NÝ
Með Judd Nelson og Ally Sheedy (The
Breakfast Club, St. Elmo's Fire). Saka-
málamynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
★ ★ ★ ★ tramúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
I
MYNDBÖND
SCARFACE^*
Til leigu m.a. hjá Vídeó Gœdum
v/Kleppsueg.
Bandarísk, árgerd 1983.
Leikstjórn: Brian De Palma.
Leikarar: Al Pacino, Michelle
Pfeiffer, Steven Bauer.
í þessari blóðfylltu ræmu segir
frá kúbönskum innflytjanda í
Bandaríkjunum sem meikar það
með eiturlyfjasölu. Það sem hér
stendur óneitanlega uppúr er stór-
góður leikur Pacinos sem þess
kúbanska; hann veitir óneitanlega
snjalla innsýn í hugarheim glæpa-
manns sem einskis svífst til þess
að ná settu marki. Litli Kúbaninn
verður ríkur og rænir konu yfir-
mannsins, hann kemst í öll réttu
samböndin en ævintýri taka um
síðir enda. Hann drepur sinn besta
vin fyrir að sofa hjá heittelskaðri
systur sinni og hann verður sjálfur
eitrinu að bráð. Að auki kemur
hann ekki nógu heiðarlega fram
við heildsala í Kólombíu sem
finnst ómaklega að sér vegið og
kemur með her manns til að drepa
Pacino. í myndinni rennur allt of
mikið blóð fyrir minn smekk, text-
inn er líka einhæfur, byggist á
jafnri notkun tveggja orða, shit og
fuck, sem standa stundum saman
í fucking shit. Pacino er hinsvegar
góður eins og fyrr sagði og hans
vegna ættu þeir sem ekki eru við-
kvæmir að sjá myndina.
-KK
SAKHAROV★★★
77/ leigu hjá Vídeó Gœdum
v/Kleppsveg.
Bandarísk, árgerö 1984.
Leikstjórn: Jack Gold.
Leikarar: Jason Robbards,
Glenda Jackson, Frank Finlay.
Eins og nafnið gefur til kynna
fjallar þessi mynd um sovéska vís-
indamanninn Andrei Sakharov.
Hún greinir frá þeirri ákvörðun
hans að ganga í flokk andófs-
manna og berjast fyrir tjáningar-
frelsi, sem leiddi til þess að hann
var settur í stofufangelsi, neyddur
til að leggjast inná sjúkrahús og
seinna sendur í útlegð frá Moskvu.
Myndin er mjög dramatísk, eink-
um vegna kröftugs leiks þeirra
Robbards sem Sakharovs og
Jacksons sem eiginkonu hans. Það
er kannski sérstaklega í ljósi þess
sem gerst hefur að undanförnu
sem gaman er að sjá þessa mynd
frá þeim tímum sem vísindamað-
urinn og nóbelsverðlaunahafinn
var í ónáð í Sovét. Nú etur hann
hinsvegar kvöldverð með Maggie
Thatcher og ræðir við erlenda
blaðamenn. Myndin er þessvegna
fyrst og fremst vel gerð heimild
um tíma sem tæplega verður hald-
ið á lofti að öðrum kosti.
-KK
'■mt &
HELGARPÖSTURINN 31