Helgarpósturinn - 02.04.1987, Síða 39
II
I lutafélagið Kjörland sem
tók yfir rekstur kartöfluverksmiðju
Kaupfélags Svalbarðseyrar hefur
farið brösulega af stað. Félagið er
eign KEA, sem á 60% hlutafjár,
Ágæti h/f, sem á 20% og Hlutar
h/f, sem á 20%. Hlutur h/f er eign
nokkurra kartöflubænda í Eyjafirði.
Frá því Kjörland tók yfir reksturinn
hefur fyrirtækið átt í greiðsluerfið-
leikum og skuldar nú kartöflubænd-
um í Eyjafirði umtalsverðar fjár-
hæðir fyrir afgrðir þeirra. Þeir
bændur máttu 'varla við frekari
skakkaföllum eftir gjaldþrot Kaup-
félags Svalbarðseyrar og eru margir
þeirra að hugsa um að hætta kart-
öflurækt, eða jafnvel að bregða búi.
Rekstur Kjörlands að undanförnu
þykir hafa fært heim sanninn um
það, að það sé enginn rekstrar-
grundvöllur undir kartöfluverk-
smiðjunni á Svalbarðseyri. . .
Þ
ar sem rekstur Kjörlands
h/f á kartöfluverksmiðjunni á Sval-
barðseyri gengur ekki sem best,
hefur nokkur skjálfti gripið um sig
meðal kröfuhafa í þrotabúi Kaup-
félags Svalbarðseyrar. Nú þegar
er ljóst að eignir búsins nægja ekki
til að greiða annað en forgangskröf-
ur og kröfur með veðrétti. Nú þegar
vonir manna um að Kjörland hafi
bolmagn til þess að kaupa kartöflu-
verksmiðjuna á skikkanlegu verði
dofna, er allt útlit á því að jafnvel
þeir sem hafa veð fyrir sínum skuld-
um tapi umtalsverðum fjárhæðum.
Bæði Samvinnubankinn og Iðn-
aðarbankinn hafa veð fyrir stórum
skuldum aftarlega á veðskrám, en
Samvinnubankinn er með sýnu
verri veð. Iðnlánasjóður og Iðn-
rekstrarsjóður hafa hins vegar
flest sitt á þurru...
u
UT.
VACUUM POKKUNARVELAR ERU HAGÆÐA VELAR A
HAGSTÆÐU VERÐI
FYRIR KJOT- OG FISKVINNSLUR HOTEL,
VEITINGAHÚS OG KJÖRBÚÐIR
Nú eru Henkovac vélarnar tölvustýrðar (Microprocessor
control), sem þýðir að öll stig Vacuum pökkunarinnar frá því
vélinni er lokað og þar til hún opnast er stýrt sjálfvirkt af tölvu
forriti. Með ,,Microprocessor“ stýringunni hefur Henkovac
skotið öðrum framleiðendum ,,Vacuum pökkunarvéla“ langt
aftur fyrir sig.
Henkovac byggir á 35 ára reynslu og er leiðandi framleið
andi Vacuum pökkunaryéla með útflutning til 55 landa.
Yfirburðir Henkovac véla endurspeglast best í því að á síð
ustu árum hefur framleiðslan aukist um 600%.
VIÐ HOFUM EINKAUMBOÐ FYRIR HENKOVAC
H«isi.os lir
KROKHALS 6 SIMI 671900
||
I ugsanlegt er að dragi til tíð-
inda á næsta skiptafundi í þrotabúi
Kaupfélags Svalbarðseyrar sem
haldinn verður um miðjan þennan
mánuð. Á síðasta skiptafundi aflaði
Hafsteinn Hafsteinsson, bústjóri,
sér heimildar til að fara ofan í saum-
ana á færslum milli reikninga félags-
ins mánuðina fyrir gjaldþrot. Það
mun vera almenn vissa fyrir því í
Eyjafirðinum að margir félagsmenn
kaupfélagsins björguðu inneignum
sínum hjá félaginu með því að yfir-
taka skuldir nábúa sinna. Þegar
menn höfðu síðan jafnað skuldir
sínar með þessum hætti, gerðu þeir
upp sín á milli. Nú mun þetta allt
verða rifið upp. Þeir sem yfirtóku
skuldir annarra munu því verða að
endurgreiða andvirði inneignar
sinnar hjá kaupfélaginu. Þegar því
er lokið eiga þeir síðan kröfu á
hendur þeim sem þeir höfðu áður
yfirtekið skuldir af. Það má því bú-
ast við flóknum málarekstri milli fé-
lagsmanna í Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar í kjölfar skiptanna .. .
Opnun sérstaklega fyrir
leikhúsgesti kl. 18.00.
Boröpantanir í síma 11340.
þessa yiku höfum við til sýnis
kjötkrókavog hjá okkur
Plastos lilL#
KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900 ^
I
HELGARPÖSTURINN 39